Dagur - 29.06.1988, Side 1
Svartárkot:
Moldar-
strókur úr
landgræðslu-
girðingu
„Það hefur verið kolvitiaust
tíðarfar undanfarnar vikur og
það er fyrst núna að komið er
þokkalegt veður. Landið hlýt-
ur að hafa farið mjög illa á
þessu, á laugardaginn voru
hérna tíu til ellefu vindstig,“
sagði Tryggvi Harðarson bóndi
í Svartárkoti í Bárðardal.
Svartárkot er fremsti bær í
Bárðardal og stendur hátt.
Tryggvi sagði'að hvassvjðrið og
þurrkarnir undanfarnar vikur
hefði verið með eindæmum,
skyggni hefði stundum ekki verið
nenta 4-6 hundruð metrar. Land-
ið hefði fokið verulega upp, á því
væri ekki vafi, en veðurfar scm
þetta væri nær einsdæmi á þess-
um árstíma.
„Ég er búinn að fara mikið um
heiðina í sambandi við minkinn
og það virðist vera lítið um hann
þar,“ sagði Tryggvi en tók fram
að hvassviðrið undanfarið hefði
hamlað refa- og minkaveiðum
mikið en hann væri að leggja af
stað á greni á nýjan leik.
Norðaustur af Svartárkoti er
landgræðslugirðing á vegum
Mývetninga en þar hefur, eins og
Tryggvi orðar það, staðið mold-
arstrókur upp úr landinu í þrjár
vikur. Ekkert hefur verið veitt í
Svartárvatni undanfarið því það
hefur gruggast ntikið. í vor leit
þetta þó vel út því mikið var um
rykmý og silungurinn virtist vera
á uppleið. EHB
Frá slysstað í strengjasteypudeild-
inni í gær. Mynil; GB
Möl og sandur:
Vír slóst í
tvomenn
Vinnuslys varð í strengja-
steypudeild hjá Möl og sandi
skömmu eftir hádegið í gær.
Tveir menn voru fluttir á slysa-
deild en meiðsl þcirra reyndust
óveruleg.
Slysið varð þegar tveir menn
voru að strengja vír í steypumót
að burðarbita. Festing gaf sig og
vírinn slóst í mennina báða.
Mennirnir meiddust lítillega og
er því einkum þakkað að festing-
in sjálf slóst ekki í þá. ET
'Gert klárt fyrir málningu.
Mynd: TLV
Ársreikningar Blönduósshrepps:
Neituðu að skrifa undir
- fulltrúar D-listans sátu hjá við undirritun
„Fjármagnskostnaðurinn er
geysilega mikill og flest sveit-
arfélög landsins standa frammi
fyrir því. Það er staðið í tölu-
verðum framkvæmdum, t.d.
við íþróttahúsið, og menn eru
kannski að keyra sig áfram
meira en þeir hafa efni á í stað-
inn fyrir að greiða niður
skuldir,“ sagði Jón Sigurðs-
son, þegar hann var spurður
„Áin er búin að vera mjög
mórauð en er að lýsast núna og
við sáum fisk stökkva í fyrsta
sinn í morgun. Annars hefur
ekki sést líf í ánni,“ sagði
Kristján P. Guðmundsson lax-
veiðimaður í samtali við Dag í
gær en hann var þá að Ijúka
veiði í Laxá í Aðaldal.
Fyrir hádegi í gær fengust tveir
góðir laxar fyrir ofan fossa en 9
um fjárhagsstöðu Blönduóss-
hrepps.
Jón Sigurðsson á sæti í hrepps-
nefnd Blönduósshrepps. Hann
lét bóka á fundi á dögunum,
ásamt Sigríði Friðriksdóttur, að
reikningar Blönduósshrepps fyrir
árið 1987 lýstu mjög vel slæmri
stöðu sveitarsjóðs og fyrirtækja,
og væri sú staða algjörlega óvið-
unandi. Þá lýsa þau yfir andstöðu
Laxveiðin:
við millifærslur milli sveitarsjóðs
og hitaveitu. Orðrétt segir svo í
bókuninni: „Það er í hæsta máta
óeðlilegt að nýta fjármagn frá
hitaveitu til reksturs sveitarsjóðs
einkum og sér í lagi þegar Hita-
veita Blönduóss er ein dýrasta
hitaveita í landinu. Þess vegna
sitjum við hjá við atkvæðagreiðslu
um ársreikninga.“
Hilmar Kristjánsson, oddviti,
óskaði eftir því að bókað yrði:
„Vegna bókunar fulltrúa D-lista
óskar undirritaður eftir að fram
komi að millifærslur sem vitnað
er til eru fólgnar í því að leiðrétta
stöðu sveitarsjóðs gagnvart hita-
veitu með því að sveitarsjóður
yfirtekur lán og greiðir upp skuld
vegna hitaveitu, í stað þess gagn-
stæða, sem lesa má úr fyrrnefndri
bókun."
Hilmar kvað bókun þeirra Jóns
og Sigríðar byggða á misskilningi
og sagði m.a. þetta um hjásetu
þeirra við undirritun ársreikn-
inga: „Það sýnir best hvernig
þetta fólk hefur unnið. Ég er
búinn að sitja í sveitarstjórn í 14
ár og á þeim tíma hafa menn ekki
verið með pólitískar væringar
nema rétt í kringum kosningar.
Þetta fólk hefur litað allt með
pólitískri mælistiku og reynt að
koma höggi á andstæðinga. Það
er ljóst að við höfum framkvæmt
mikið á síðustu árum og sveitar-
félagið skuldar þó nokkuð en við
erum ekki á neinum hættumörk-
um,“ sagði Hilmar og benti um
leið á að hvergi hefur verið meiri
fjölgun íbúa en á Blönduósi á
Norðurlandi s.l. 8 árin og veru-
legt fjármagn hefði verið lagt í
atvinnuuppbyggingu.
Veiði í Laxá í Aðal-
dal undir meðallagi
laxar fengust fyrir neðan fossa. Á
þessum tíma voru komnir 216
laxar á land frá því veiði hófst í
sumar en það er nokkuð undir
meðallagi.
„Ég álít að það komi gusa af
laxi ef áin heldur áfram að lýsast.
Nú hefur veiði að mestu legið
niðri í marga daga og því er mik-
ið af laxi óveitt í ánni. Laxinn
verður óvarkár eftir allan sand-
burðinn í ánni og þá fer hann að
veiðast,“ sagði Kristján
jafnframt.
Veiði í Fnjóská er nýhafin og
voru 10 laxar komnir á land í
gær. Nú þegar er kominn 19,5
punda fiskur á land, 0,5 pundum
þyngri fiskur en sá stærsti í fyrra.
Veiðimenn vænta því góðs af
Fnjóská í sumar. JÓH
Tímamóta-
fundur í
Slipp-
stöðinni hf.
I dag verður haldinn almennur
hluthafafundur í Slippstöðinni
hf. á Akureyri. Bæjarstjóri
Akureyrar, Sigfús Jónsson, fer
með atkvæði Akureyrarbæjar
á fundinum, en tillaga hcfur
komið frá fjármálaráðherra
um að breyta samþykktum
félagsins.
Tillaga fjármálaráðherra, Jóns
Baldvins Hannibalssonar, er á þá
leið að forkaupsréttur hluthafa í
Slippstöðinni að fölum hlutum
verði afnuminn. Meirihluti Sjálf-
stæðisflokks og Alþýðuflokks í
bæjarstjórn Akureyrar sam-
þykkti með 7 atkvæðum gegn 4
atkvæðum Framsóknarflokks og
Alþýðubandalags að fela bæjar-
stjóra að styðja, f.h. Akureyrar-
bæjar, tillögu fjármálaráðherra á
hluthafafundinum.
Bæjarstjórn Akureyrar sam-
þykkti á fundi sínum 21. júní að
skora á ríkisstjórnina að halda
áfram þátttöku í rekstri Slipp-
stöðvarinnar hf.
EHB