Dagur - 29.06.1988, Blaðsíða 19

Dagur - 29.06.1988, Blaðsíða 19
29. júní 1988 - DAGUR - 19 íslandsmótið í knattspyrnu SL-deild: Hörkuleikir á Húsa- vík og Akureyri - Völsungur og Víkingur leika á Húsavík en KA og ÍA á Akureyri - Leiftur mætir Fram í Reykjavík Þrjú af fjórum norðanliðunum sem Ieika í 1. deildinni í knatt- spyrnu verða í eldlínunni í kvöld en þá hefst 8. umferð með þremur leikjum. Umferð- inni lýkur síðan annað kvöld með tveimur leikjum. I kvöld leika Völsungur og Víkingur á Húsavík, KA og IA á Akur- eyrarvelli og Fram og Leiftur á Laugardalsvelli. Allir hefjast leikirnir kl. 20. A sama tíma annað kvöld leika síðan ÍBK og Þór í Keflavík og KR og Valur á KR-vellinum. KA-ÍA KA sem byrjaði keppni í deild- inni mjög vel hefur eitthvað verið að fatast flugið að undanförnu og liðið aðeins fengið eitt stig úr síð- ustu fjórum leikjum. í kvöld fær liðið ÍA í heimsókn til Akureyrar og má búast við hörku viðureign. Skagamenn sitja um þessar mundir í öðru sæti deildarinnar og virðast ætla að blanda sér af alvöru í slaginn um íslandsmeist- aratitilinn. KA er um miðja deild en ætli liðið að halda sér áfram í efri kanti deildarinnar, kemur ekkert annað en sigur til greina í kvöld. Völsungur-Víkingur Völsungur situr sem fyrr á botni deildarinnar og liðið hefur aðeins hlotið eitt stig. 1 kvöld fær liðið Valgeir Barðason og félagar hans í KA mæta Skagamönnum í kvöld og verð- ur fróðlegt að fylgjast með Valgeiri gegn sínum gömlu félögum. Mynd: tlv Staðan 1. deild Úrslit leikja í 7. umferð 1. deildar íslandsmótsins í knatt- spyrnu urðu þessi: Valur-ÍBK 3:1 Þór-Víkingur 2:1 Leiftur-KA 2:1 Fram-Völsungur 2:0 ÍA-KR 2:0 Staðan í deildinni er þessi: Fram 7 6-1-0 15: 2 19 ÍA 7 4-3-0 11:3 15 KR 7 4-1-2 12: 9 13 Valur 7 3-2-2 10: 6 11 KA 7 3-1-3 7:10 10 Leiftur 7 1-4-2 6: 7 7 Þór 7 1-4-2 7: 9 7 ÍBK 7 1-3-3 9:12 6 Víkingur 7 1-2-4 5:13 5 Völsungur 7 0-1-6 3:14 1 Markahæstir: Guðmundur Steinss. Fram 7 Pétur Ormslev Frain 4 Aðalsteinn Víglundsson ÍA 3 Björn Rafnsson KR 3 Gunnar Jónsson í A 3 Pétur Pétursson KR 3 Steinar Ingimundars. Leiftri 3 Sæbjörn Guðmundsson KR 3 Tryggvi Gunnarsson Val 3 Frjálsar íþróttir: Akiireyrar- mótið Akureyrarmótið í frjálsum íþróttum í flokkum 16 ára og yngri verður haldið á Akureyr- arvclli laugardaginn 16. júlí og hefst keppni kl. 13. Keppt verður í fjórum flokk- um pilta og stúlkna, 10 ára og yngri, 11-12 ára, 13-14 ára og 15- 16 ára. Skráning og nánari upp- lýsingar eru í síma 26655 og á æfingum. Æfingar á vegum Ungmenna- félags Akureyrar eru byrjaðar af fullum krafti og fara fram á Akureyrarvelli. Æft er í tveimur flokkum, 10 ára og yngri og 11 ára og eldri. í flokki 10 ára og yngri eru æfingar á þriðjudögum frá kl. 16.00-17.30 og á sama tíma á fimmtudögum. I flokki 11 ára og eldri eru æfingar á þriðju- dögum og fimmtudögum frá kl. 17.30-19.00. Víking í heimsókn en Víkingur er í næst neðsta sætinu og virðist ekki hafa burði til þess að blanda sér í toppbaráttuna eins og ntarg- ir spáðu í upphafi. Staða Völs- ungs er vissulega slæm en alls ekki vonlaus og ætli liðið að halda sæti sínu í deildinni, þarf það að fara að vinna sigra. Völs- uhgur er með marga snjalla knattspyrnumenn í sínum röðum og hefur alla burði til þess að standa sig í sumar. Fram-Leiftur Leiftur vánn sinn fyrsta sigur í 1. deild á sunnudag, er liðið lagði KA að velli í Olafsfirði. Áður haföi liðiö gert fjögur jafntefli heima en tapað tvívegis úti. í kvöld leikur liðið sinn þriðja úti- leik og nú gegn Fram á Laugar- dalsvelli. Framarar eru í miklu stuði um þessar mundir og fátt virðist geta stöðvaö þá í barátt- unni um íslandsmeistaratitilinn. Liðið hcfur aðeins gert eitt jafn- tefli en unnið aðra leiki sína og er í efsta sæti deildarinnar. Leiftur er sýnd veiði en ekki gefin og á góöum degi getur liöið vclgt toppliðinu all hressilega undir uggum. Siguröur Hulldórsson er hættur með Völsungsliðið. Arnar Guðlaugsson hefur sest við stjórnvölinn hjá Völsungi. Knattspyrna: Sigurður hættir með Völsung - Arnar Guðlaugsson tekur við liðinu Sigurði Halldórssyni þjálfara 1. dcildarliðs Völsungs í knattspyrnu hefur verið sagt upp störfum. Við þjálfun liðs- ins tekur Arnar Guðlaugsson og hóf hann störf strax í gær og stýrir liöinu í fyrsta skipti í kvöld er Völsungur fær Vík- ing í heimsókn. „Fað var nauösynlegt að gera áherslubreytingar og ekki stst þar sem liðið hefur aðeins feng- ið I stig af 21 mögulegu. Þaö er ekki hægt aö segja aö sökin sé alfarið þjálfarans en hann verð- ur þó að teljast ábyrgur." sagði lngólfur Freysson formaöur knattspyrnudeildar VÖjsungs í samtali við biaðiö í gær. Arnar Guölaugsson hinn nýi þjálfari Völsungs er betur þekktur sem handknattleiks- maöur en hann þótti einnig lið- tækur knattspyrnumaður og lék með Fram á sínum tíma. Arnar þjálfaði lið Völsungs t 3. deild- inni í handbolta í vetur og nú hefur hann sem sé tekið viö knattspyrnuliðinu. Akureyri: Twin Otter mót í fallhlífarstökki stokkið fram á nótt á föstudag, laugardag og sunnudag Twin Otter mót í fallhlífar- stökki verður haldið á Akur- eyri um helgina. Stokkið verð- ur frá föstudegi til sunnudags og lenda fallhlífarstökkvararn- ir á lendingarsvæöi Fallhlífar- Siguröur Bjarklind verður að öllum líkindum meðal þátttakenda á Twin Ott- er mótinu um helgina. Mynd: kga klúbbs Akureyrar við Hamra- borgir norðan við Kjarnaskóg. Þarna verða samankomnir flestir ef ekki allir fallhlífarstökkv- arar landsins, jafnt þeir bestu sem og þeir sem eru styttra komnir í íþróttinni. Twin Otter flugvél frá Flugfélagi Norður- lands rnun sjá um að koma stökkvurnum upp í 12-15.000 feta hæð í hvcrt sinn og veröur stokkið alla dagana og fram á nótt. Seinni partinn á laugardag ætla stökkvarar síðan að reyna að setja nýtt íslandsmet í stærð stjörnu. Stærsta stjarnan sem mynduð hefur verið hér á landi, er 15 manna og var gerö á slíku móti í fyrra en að þessu sinni á að reyna við 20 manna stjörnu. Það getur því oröiö fróðlegt að fylgj- ast með stökkvurunum á mótinu urn helgina. Einnig er meiningin að bjóöa uppá farþegastökk og því geta þeir sem áhuga hafa á því að kynnast þessari íþrótt fengið að stökkva með kunnum og reynslu- miklum stökkvurum. Fallhlífar- stökk á vaxandi fylgja að fagna víða um heim og er m.a. unnið að því að gera þetta að ólympíu- íþrótt. En eitt aðalnúmerið á opnunarhátíðinni á ólympíu- leikunum í Seoul í haust er ein- mitt fallhlífarstökk.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.