Dagur - 29.06.1988, Blaðsíða 13
Nýi sjúkrabílinn á Húsavík vígður að viðstöddum bílstjórum, stjórnarmönnum Rauða kross deildarinnar, lækni og
sr. Birni H. Jónssyni.
Húsavík:
Nýr sjúkrabm vígður
- mjög vel búinn tækjum
Rauða kross deildin á Húsavík
hefur eignast nýjan sjúkrabíl af
gerðinni Ford Econolinc. Bíll-
inn var keyptur fullbúinn til
landsins og kostaði um 2,3
milljónir króna. Hægt er að
flytja tvo sjúklinga samtímis í
bílnum og er hann mjög vel
búinn tækjum, þ.á m. tækjum
til meðhöndlunar hjartasjúkl-
inga í neyðartilfellum.
Á fimmtudagskvöld vígði sr.
Björn H. Jónsson bílinn í nýju,
rúmgóðu húsnæði fyrir sjúkrabíl-
ana. Viðstaddir athöfnina voru
sjúkrabílstjórarnir, sem cru sex
að tölu, stjórnarmenn Rauða
kross deildarinnar og Guðmund-
ur Óskarsson, yfirlæknir heilsu-
gæslustöðvarinnar. Þetta cr sjö-
undi bíllinn sem sr. Björn vígir
fyrir deildina, hann vígði fyrsta
bílinn sem deildin eignaðist 1965,
og hafa allir bílarnir komist leiða
sinna áfallalaust.
Sérverkefnasjóður RKI fjár-
magnar kaupin á bílnum að ein-
um fjórða hluta, deildin seldi
eldri bíl og rann andvirði hans til
kaupa á nýja bílnum. Framlög
hafa borist frá sveitarfélögum á
svæðinu og einstaklingum. Á
kosningadaginn var framlögum
safnað við kjörstað á Húsavík og
söfnuðust þá rúmlega 100 þúsund
krónur. Þess má geta að kona
sem býr í Hvammi. dvalarheimili
aldraðra sendi 1000 króna fram-
lag til söfnunarinnar um leið og
hún kaus utankjörstaðar. Her-
mann Jóhannsson, formaður
Rauða kross deildarinnar bað
Dag að koma á framfæri kæru
þakklæti til bæjarbúa fyrir stuðn-
inginn. 1M
HÆKKUN Á
SJÓMANNAAFSIÆTFI
FRÁ 1. JÚLÍ1988
Sjómannaafsláttur hœkkar
hinn l.júlí 1988
úr408kr. á dag í444 kr. á dag.
Um meðferð sjómannaafsláttarskal bentá að hafatil hliðsjónar
reglugerð um persónuafslátt og sjómannaafslátt
nr. 79/1988, sem send hefur verið til allra launagreiðenda.
RSK
RIWSSKÁTTSUÓRI
86HI 'óú[ ÆS - HUOACl - S t
29. júní 1988 - DAGUR - 13
Bremsuborðar
Verð frá kr.
14J68S
Vönduð vara=aukið öryggi
Véladeild KEA
Óseyri •
21400 & 22997