Dagur - 25.08.1988, Side 1

Dagur - 25.08.1988, Side 1
71. árgangur Akureyri, fimmtudagur 25. ágúst 1988 159. tölublað það hressir Uaiiw Týndu milljónirnar og VMA: Peningarnir munu finnast - segir Árni Gunnarsson alþingismaður „Þessar milljónir eru ekki týndar. Hins vegar er það mín skoðun að í samningaviðræð- um um þessa aukafjárveitingu þá hafi fjármála- og húsnæðis- vanda Háskólans á Akureyri því miður verið blandað inn í þær umræður. Þessum tveimur málum átti að halda algjörlega aðskildum. Það að blanda fjár- hagsvanda þessara tveggja skóla saman hefur komið niður á Verkmenntaskólanum,“ sagði Arni Gunnarsson alþing- ismaður. Baldvin Bjarnason, settur skólameistari við Verkmennta- skólann á Akureyri, skýrði frá því að aukafjárveiting upp á 22 milljónir króna sem renna átti til byggingaframkvæmda við skól- ann væri týnd. Hann sagði að Árni Gunnarsson hefði greint frá þessari fjárveitingu á „Opnum dögum“ en ekkert hefði til pen- inganna spurst. Árni sagðist hafa greint frá umræddri aukafjárveitingu í framhaldi af samtali við fjármála- ráðherra, í öðru lagi í framhaldi af viðræðum hans og formanns skólanefndar við fjármálaráð- herra og í þriðja lagi í framhaldi af viðræðum hans og bæjarstjóra Akureyrar við fjármálaráðherra um þetta mál. En hvar eru þessar 22 milljón- ir? Árni sagði að í viðræðum nefnda um aukafjárveitinguna, vaxtakostnað og annað slíkt, hefði málið lent í biðstöðu. Þau atriði hefðu verið leyst en Árni sagðist telja að málið hefði ekki komið til endanlegrar afgreiðslu einfaldlega vegna þess að réttir aðilar hefðu ekki talað saman. „Ég lýsi því yfir hér og nú að þessir peningar munu koma í leitirnar og Verkmenntaskólinn mun fá þá fjármuni sem þarna er um rætt. Kannski hafa menn ver- ið of bráðlátir í þessu háskóla- máli, að ljúka ekki fyrst við Verkmenntaskólann og ganga frá hans húsnæðismálum. Ég held að menn hafi verið 1-2 árum of fljót- ir á sér og þar hafi afmæli Akur- eyrar kannski átt hlut að máli,“ sagði Árni og bætti því við að hann ætlaði nú þegar að ræða við fjármálaráðherra um þetta mál. SS Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins fundaði á Akureyri í gær. Niðurstaða fundarins var að reyna niðurfærsluleið þá sem svokölluð bjargráðanefnd lagði til. Þó telja þeir sjálfstæðismenn að samráð verði að hafa við verkalýðsforyst- una áður en ákveðið verði að fara þessa leið. Mynd: cu Þjóðin hefur ekki efni á neinum leikaraskap núna - segir Þorsteinn Pálsson, en þingflokkur Sjálfstæðistlokksins vill reyna niðurfærsluleiðina í samráði við verkalýðsforystuna „Okkar niðurstaða er sú að við viljum reyna niðurfærsluleiðina að höfðu samráði við verkalýðs- forystuna. Við teljum að það sé mjög mikilvægt, ef fara á þessa leið, að um hana takist allvíðtæk samstaða í þjóðfélag- inu,“ sagði Þorsteinn Pálsson Svalbarðseyri: Átöppunarverksmiðja og útflutningur á vatni? - Vaðlaheiðin ekki nógu gjöful í sumar hefur Halldór Péturs- son, jarðfræðingur hjá Nátt- úrufræðistofnun Norðurlands, Jcdamic minerate Nydes kotd 0,2 ttr. Mjólkursamlag KEA flytur út vatn og hugmyndir voru uppi um hlið- stæða atvinnugrcin á Svalbarðseyri. kannað vatnslindir í Vaðla- heiði með tilliti til þess hvort þar væri að finna gott neyslu- vatn í ríkum mæli. Rannsóknir þessar eru á vegum Iðnþróun- arfélags Eyjafjarðar og niður- stöður iiggja því sem næst fyrir, en tilgangurinn með rannsóknunum var m.a. sá að kanna grundvöll fyrir átöppun- arverksmiðju á Svalbarðseyri. Sigurður P. Sigmundsson, framkvæmdastjóri Iðnþróunar- félagsins, sagði að vatnsöflunar- möguleikar hefðu verið kannaðir í Vaðlaheiði og Víkurskarði. Meiningin hefði verið að athuga möguleika á nýtingu vatnsins, ef það reyndist gott og í einhverju magni. „Við vorum að hugsa um átöppun og höfðum Svalbarðs- eyri sérstaklega í huga því þar eru hús sem mætti nýta. Niður- staðan er hins vegar sú að það er ekki nógu mikið vatn í kringum Svalbarðseyri en nóg af vatni í Víkurskarði, sem að öllum lík- indum er of langt í burtu frá Sval- barðseyri til þess að hægt sé að nýta það þar,“ sagði Sigurður. íslenskt vatn er rómað fyrir gæði og Mjólkursamlag KEA flytur það út í nokkrum mæli þótt ekki sé um nein stórviðskipti að ræða. Sigurður sagði að skilyrði til vatnsöflunar í Vaðlaheiði og hugsanlegur útflutningur hefðu fyrst og fremst verið könnuð með tilliti til atvinnuástands á Sval- barðseyri og ónýttra húsa. í Víkurskarði reyndist vera mikið af vatni sem hugsanlegt er að nýta, þótt Svalbarðseyri sé ekki inni í því dæmi. Sigurður kvaðst ætla að hafa samráð við mjólkursamlagið um framhald málsins því vissulega væri mögu- legt að vinna frekar að þessari hugmynd. SS forsætisráðherra að loknum fundi þingflokks sjálfstæðis- manna, sem haldinn var á Ak- ureyri í gær. Þorsteinn sagði því óhjákvæmilegt að samráð yrði haft við verkalýðsforyst- una áður en farið væri af stað og niðurfærsluleiðin reynd, ættu allir þættir hennar að ganga upp. Þingflokkar allra stjórnar- flokkanna sátu fundi í gær og ræddu stöðuna. Fundir Framsókn- ar- og Alþýðuflokks stóðu fram á kvöld, en að þeim loknum sögð- ust bæði Steingrímur Hermanns- son og Jón Baldvin Hannibalsson hafa fullt umboð flokka sinna til að reyna niðurfærsluleiðina til hlítar. Steingrímur sagði eftir fundinn í gær að verði leiðin reynd yrði hún undanbragðalaust að ganga í gegnum allt efnahags- kerfið. Þá sagði hann að fresta þyrfti öllum launahækkunum sem og búvöruhækkunum sem koma eiga til framkvæmda þann 1. sept- ember. Samkæmt niðurstöðu þing- flokkanna í gær verður leiðin að öllum líkindum valin, en um það verður rætt á ríkisstjórnarfundi í dag. Þorsteinn Pálsson sagði mikil- vægt að menn gerðu sér grein fyrir þeim mikla og alvarlega vanda sem útflutningsframleiðslan ætti við að stríða og að vegna versn- andi ytri aðstæðna hefðum við misst milljarða út úr hagkerfinu. „Við getum ekki búið til neitt sældarástand á meðan við ekki náum inn þessum milljörðum aft- ur,“ sagði hann. Verði niöurfærsluleiðin marg- nefnda reynd sagði Þorsteinn að augljóst væri að verðlag lækkaði ekki um sama hundraðshluta og launin og því yrðu menn að gera sér grein fyrir. Lækkun launa allra þjóðfélagshópa er eitt það sem erfiðast þykir við niðurfærsluleið- ina. „Það verður að tryggja að hún verði réttlátlega framkvæmd. Ef þessi leið verður farin verður að vera tryggt að hún nái til allra, annars verður ekki fyrir hendi það réttlæti sem nauðsyniegt er og þess vegna verður að hafa samráð við verkalýðsforystuna.“ Þorsteinn var bjartsýnn á að samstaða næðist í ríkisstjórninni um að reyna þessa leið og taldi ekki ástæðu til annars en að unnið væri að þessu máli af heilindum. „Það er skylda flokkanna að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að ná þessari samstöðu. Þjóðin hef- ur ekki efni á neinum leikaraskap lengur,“ sagði Þorsteinn. mþþ Ping Pong: Innbrotið upplýst Rannsóknarlögreglan á Akur- eyri hefur upplýst innbrotið í verslunina Ping Pong á Akur- eyri sem átti sér stað aðfara- nótt mánudags. Þar var að verki einn aðili, sem áður hefur komið við sögu lög- reglunnar á Akureyri. í innbrot- inu var stolið fatnaði fyrir tugi þúsunda, en honum hefur nú öll- um verið skilað. VG

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.