Dagur - 25.08.1988, Side 11

Dagur - 25.08.1988, Side 11
25. ágúst 1988 - DAGUR - 11 íþróttir Enska knattspyrnan: Tekst að stöðva Iiverpool? 4-5 lið telja sig hafa möguleika á því í vetur Nú á laugardaginn hefst keppnin í ensku knattspyrn- unni. Mikið hefur gengið á í sumar, hörmulegt gengi Eng- lendinga í Evrópukeppninni að viðbættum skrílslátum áhang- enda Iiðsins sem urðu til þess að vonir félagsliðanna um þátt- tökurétt í Evrópukeppnum runnu út í sandinn. Þá kom til mikilla átaka innan knatt- spyrnusambandsins vegna samninga um sjónvarpsréttindi og um tíma leit út fyrir að tíu stærstu félögin stofnuðu úrvalsdeild. Sem betur fór tók- ust sættir og keppnin í vetur verður því með sama sniði og áður. En flest félögin hafa búið sig undir leiktímabilið með því að bæta við sig nýjum leikmönnum og selja aðra. Við skulum nú aðeins reyna að átta okkur á helstu breytingum sem orðið hafa og spá lauslega um frammistöðu 1. deildarliðanna. Toppbaráttan Fimm af fyrstudeildarfélögunum eru langstærst og því líkleg til að skipa sér í efstu sætin, auk Eng- landsmeistara Liverpool eru það Everton, Man. Utd., Arsenal og Tottenham. Pau sátu ekki aðgerðalaus í sumar og háðu harða baráttu um þá toppleik- menn sem í boði voru. Everton hafði vinninginn og eyddi um £5 milljónum í fjóra nýja leikmenn. Þeirra dýrastur var miðherjinn Tony Cottee frá West Ham, kostaði £2,5 millj. og er það mesta upphæð sem greidd hefur verið fyrir leikmann á Englandi. Auk hans voru Stuart McCall Bradford, Pat Nevin Chelsea og Neil McDonald Newcastle keyptir fyrir stórar upphæðir. En Everton varð að sjá á eftir enska landsliðsbak- verðinum Gary Stevens fyrir £1 millj. til Rangers í Skotlandi, en framkvæmdastjóri þeirra Graeme Souness hefur undanfarin ár riðið húsum hjá knattspyrnuliðum á Englandi og lokkað til sín snjalla leikmenn. Arsenal hefur ekki haft sig mikið í frammi í sumar, aðeins keypt miðvörðinn Steve Bould frá Stoke City fyrir £390.000. En félagið byggði að miklu leyti upp lið sitt í fyrra og í vor keypti Arsenal tvo leikmenn, bakvörð- inn Lee Dixon frá Stoke City og útherjann Brian Marwood frá Sheffield Wed. Liðið hefur staðið sig vel í æfingaleikjum og virðist í góðri samæfingu sem er meira en hægt er að segja um marga keppi- nauta þess. Glansliðin Man. Utd. og Tott- enham eru ávallt mjög áberandi og mikið í fréttum. Bæði þessi félög hafa þurft að bíða lengi eft- ir Englandsmeistaratitli og leggja Everton lét £2,5 milljónir fyrir Tony Cotter. nú allt í sölurnar til að ná honum til sín. Tottenham nældi í Paul Gasco- igne eftirsóttasta leikmanninn á markaðinum í sumar fyrir £2 millj. eftir mikla baráttu við Man. Utd. og framherjinn Paul Stewart var keyptur frá Man. City fyrir £1,7 millj. En ýmsir leikmenn hafa yfirgefið Totten- ham, Clive Allen seldur til Frakklands fyrir £1 millj., Johnny Metgod, Ossie Ardiles, John Chiedozie, Ray Clemence og Nico Claesen ekki lengur í herbúðum Tottenham. Man. Utd. hefur styrkt lið sitt með landsliðsmarkverði Skot- lands Jim Leighton sem kostaði £750.000 frá Aberdeen og Mark Hughes er að nýju kominn til Utd. Ian Rush mun að nýju klæðast hin- um rauða búningi Liverpool í vetur. fyrir £1,5 millj. frá Barcelona. Arthur Albiston, Kevin Moran og Graeme Hogg eru farnir burt, auk þess sem Chris Turner, Gordon Strachan, Norman Whiteside og Paul McGrath hafa verið óánægðir hjá félaginu. McGrath hefur nú ákveðið að vera áfram og þeir Whiteside og Strachan gætu einnig tekið sömu ákvörðun. Það er hins vegar ekk- ert leyndarmál að félagið er enn á höttunum eftir nýjum leikmönn- um. Meðan þessi félög sem á undan eru talin kepptust við að kaupa nýja leikmenn hélt Kenny Dalgl- ish stjóri Liverpool að sér hönd- um og lét nægja að kaupa ungan miðvörð frá Bristol Rovers Nick Tanner fyrir £20.000. Það er því ekki að undra þótt því væri haldið fram að bilið milli Liverpool og hinna fjögurra stóru hefði nú ver- ið brúað að mestu. En ánægjan stóð ekki lengi því með endur- komu Ian Rush frá Juventus til Liverpool á kaupverði sem ekki hefur verið gefið upp, kæfði Dalglish háværustu bjartsýnis- raddirnar. Þrátt fyrir meiðsli Alan Hansen fyrirliða Liverpool sem munu halda honum frá keppni næstu mánuði og að Craig John- ston sé hættur í knattspyrnu verður að telja líklegt að Liver- pool verji titil sinn. Takist Everton að komast hjá meiðslum lykilmanna er líklegt að þeir muni veita nágrönnum sínum harðasta keppni, en Arsenal gæti einnig komið þar við sögu. Eina liðið sem gæti blandað sér í hóp þessara stórliða er Nottingham For. undir stjórn Brian Clough. Hann hefur styrkt lið sitt með þeim Brian Laws frá Middlesbrough og Steve Hodge frá Tottenham. Á lygnum sjó Sjö félög, Derby, Newcastle, Sheffield Wed., Luton, West Ham, Southampton og Coventry eru líkleg til að sigla lygnan sjó í vetur. Derby átti í erfiðleikum í fyrra, en Paul Goddard mun styrkja framlínu þeirra verulega. Newcastle hefur þurft að sjá á eftir sterkum leikmönnum, Gascoigne, McDonald og Godd- ard allir farnir, en í þeirra stað eru komnir John Robertson frá Hearts £700.000, David Beasant markvörður frá Wimbledon £800.000 og John Hendrie frá Bradford £500.000 og Newcastle verður ekki í neinum vandræðum í vetur. Sheffield Wed. lið Sigurðar Jónssonar seldi miðherja sinn og aðal markaskorara Lee Chapman til Frakklands fyrir £350.000 og gæti þurft að hressa upp á fram- línuna. Hins vegar keypti liðið Alan Harper frá Everton fyrir £275.000 sterkan leikmann. Luton er nú eina 1. deildarliðið með gervigrasvöll. Tvær skær- ustu stjörnur þeirra frá úrslita- leiknum í deildabikarnum í fyrra eru farnar, Brian Stein til Frakk- lands og markvörðurinn Andy Dibble til Man. City en Luton sem leikur mjög skemmtilega knattspyrnu hefur nóg af góðum leikmönnum eftir. West Ham neyddist til að selja Tony Cottee, en fyrir vikið hefur félagið nú talsverð peningaráð og þegar hafa tveir leikmenn verið keyptir, Allan McKnight lands- liðsmarkvörður N.-írlands frá Celtic £250.000 og David Kelly írskur landsliðsmaður frá Walsall, mikill markaskorari fyrir £600.000. Lítið hefur verið um breyting- ar hjá Coventry, nánast sami hópur, en Southampton hefur keypt tvo sterka menn, miðherj- ann Paul Rideout frá Bari £350.000 og miðvörðinn Russell Osman frá Leicester og ætti liðið ekki að eiga í neinum vandræð- um í vetur, en í fyrra var skammt í hættusvæðið í deildinni. Á botninum Q.P.R. kom mjög á óvart í fyrra og var í efsta sæti 1. deildar um tíma. Nú er hins vegar búið að rífa upp gervigrasvöll félagsins 2. flokkur Þórs var óheppinn að fara ekki með sigur af hólmi þegar liðið mætti KR-ingum á Þórsvellinum í fyrrakvöld. Lokatölurnar urðu 2:2 eftir að Þórsarar höfðu tvívegis náð forystu en KR-ingar jafnað sem verður örugglega til þess að liðið verður ekki eins sterkt á heimavelli og áður. Sterkir leik- menn hafa farið burt síðustu mánuðina eins og Bannister, Fenwick og nú síðast John Byrne. Q.P.R. gæti því hæglega lent í fallbaráttu í vetur. Bikarmeistarar Wimbledon gætu einnig lent í erfiðleikum, flótti er kominn í lið þeirra eftir hinn frækilega sigur gegn Liver- pool í bikarnum sl. vor. David Beasant markvörður var fyrstur til að fara og fleiri fylgdu á eftir. Sterkir leikmenn eins og John Fashanu eru eftirsóttir og líklegt að hann verði keyptur frá félag- inu. Norwich hefur oft verið spáð falli, en ávallt staðið sig vel. Þeir hafa hins vegar þurft að selja sína bestu leikmenn undanfarin ár og í sumar hurfu tveir af sóknar- mönnum þeirra. Kevin Drinkell £500.000 til Rangers og Wayne Biggins til Man. City. Nú er hætt við að liðinu takist ekki að rífa sig upp og falli því í 2. deild. Charlton er annað lið sem hef- ur lifað tvö ár í 1. deild, en mjög örfáum mínútum seinna í bæði skiptin. í fyrri hálfleik var jafnræði með liðunum. Bæði fengu þau tvö sæmileg marktækifæri sem ekki tókst að nýta og staðan í leikhléi var því 0:0. naumlega í bæði skiptin. Þeir virðast hafa mörg líf og þurfa þess örugglega til að lifa af þann vetur sem í hönd fer. Nýliðarnir Af þeim þrem liðum sem komu upp í 1. deild í vor er Aston Villa líklegast til velgengni. Stórklúbb- ur sem hefur bætt við sig leik- mönnum í sumar. Derek Mount- field miðvörður Everton £425.000 og Chris Price frá Blackburn £150.000 voru keyptir til að styrkja vörnina og síðan kom Gordon Cowans að nýju til Villa frá Bari fyrir £250.000.' Lið- ið ætti að verða fyrir ofan miðja deild. Middlesbrough hcfur sterka leikmenn í mikilvægum stöðum, Steve Pears í marki. miðverðina Tony Mowbray og Gary Pallister og síðan Bernie Slaven frammi. Takist þeim að halda þessum leikmönnum ætti liöiö ekki að þurfa að óttast fall. Millwall hins vegar hefur ekki nægilega brcidd reyndra leik- manna og gæti lent í vandræðum með sæti sitt í deildinni. Þ.L.A. Síðari hálfleikur var mun opn- ari og skemmtilegri og voru Þórs- arar heldur sterkari án þess þó að ná að nýta sér það til sigurs. Þeir náðu forystunni á 68. mínútu þegar Þórir Áskelsson skoraði með fallegu skoti eftir góða sókn en KR-ingar jöfnuðu þremur mínútum síðar. Þegar 5 mínútur voru til leiks- loka fengu Þórsarar dæmda víta- spyrnu. Páll Gíslason tók spyrn- una og skoraði og héldu þá flestir að Þórssigur væri í höfn. En KR- ingar gáfust ekki upp og jöfnuðu leikinn tveimur mínútum fyrir leikslok og úrslitin því 2:2. Leikur þessi var bæði skemmti- legur og vel leikinn. Þórsarar léku trúlega sinn besta leik í sum- ar og hefðu átt sigur skilinn. KR- ingar hafa mjög sterku liði á að skipa og hafa þegar tryggt sér íslandsmeistaratitilinn, auk þess sem þeir eru nýkrýndir bikar- meistarar. Ein umferð er nú eftir í riðlin- um og eiga Þórsarar eftir að mæta Þrótturum í Reykjavík. Þróttarar eru þegar fallnir úr riðl- inum en ekki er ljóst hverjir fara niður með þeim. JHB Axel Vatnsdal ssekir að einum varnarmanna KR. Mynd: tlv Úr leik Sovétmanna og Tékka, sem fram fór í íþróttahöllinni á Akureyri og lauk med sigri Sovétmanna, 20:16. Önnur úrslit í Flugleiðamótinu á þriðju- dag voru þau að Svisslendingar unnu B-lið íslands 20:19 og Spánverjar unnu íslendinga 23:21. Mynd: tlv Knattspyrna 2. flokkur: Þórsarar óheppnir gegn KR - íslandsmeistararnir jöfnuðu í lokin

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.