Dagur - 30.08.1988, Side 1
Gránufélagsgötu 4
Akureyri • Sími 23599
Ekki úrkomu-
metum
helgina
- úrkoma samt
í efri kantinum
Ekki var um neitt úrkomumet
að ræða á Norðurlandi um
helgina að sögn Magnúsar
Jónssonar veöurfrædings
Veðurstofu íslands. Veður-
stofan er þó ekki með mæling-
ar í Ólafsfirði en Magnús sagð-
ist hafa haft spurnir af mikilli
úrkomu þar.
„Það er ekki hægt að staðfesta
slíkar tölur því ég veit ekki hvað-
an þær eru komnar eða við hvaða
aðstæður þær eru mældar,“ sagði
hann. „Það þýðir samt ekki að
úrkoma hafi ekki verið í efri
kantinum því slíkur vatnsflaumur
og aurskriður koma ekki nema í
mikilli úrkomu."
Úfkoma á Siglunesi frá kl. 18 á
laugardaginn til kl. 18 á sunnu-
dag mældist 28 mm og á sama
tíma á Akureyri 29 mm. „Það var
að vísu umtalsverður vindur og
þá skilar úrkoman sér verr í mæl-
ana en í logni,“ sagði Magnús.
Á Akureyri er metúrkoma í
águst 52 mm á sólarhring. Að
meðaltali á mánuði er úrkoma á
Akureyri 40 mm. „Þetta er því
auðvitað nokkuð mikil rigning,“
sagði Magnús. KR
Mörg liúsanna við Hlíðarvegurinn var illa útleikinn eftir aurskriðurnar. Hérna má sjá Svavar Magnússon ásamt lleiruni lijálparmönnuni við að hreinsa aurinn
af lóð sinni en hún var illa útleikinn eftir skriðurnar. Mymlir: TLV
Gífurleg úrkoma í Ólafsfirði:
Tvær aurskriður féllu á byggðina
rýma þurfti um 70 hús á brekkunni - ekki urðu slys á fólki en mikið eignatjón
Tvær aurskriður féllu úr
Tindaöxl á byggðina í Ólafs-
firði á sunnudag, í kjölfar
mikilla rigninga þar um helg-
ina. Flytja varð fólk úr um 70
húsum á brekkunni og koma
því fyrir annars staðar í bænum.
Ólafsfirðingar muna ekki aðra
eins úrkomu en um tíma var
35-40 cm vatnslag á götum í
Jón Halldórsson stendur við hús sitt cn hann var svo óhcppinn að fá tvo bíla
í garð sinn sem bárust með aurnum.
bænum. Ekki hafa orðið slys
á fólki í þessum ósköpum en
Ijóst að um gífurlegt eignatjón
er að ræða, bæði á húseignum
og bifreiðum.
„Fyrri skriðan fór af stað um
kl. 15.30 á sunnudag en sú seinni
um kl. 18.45 en auk þess voru að
falla skriður allan daginn, sem
ekki náðu í bæinn,“ sagði Guð-
björn Arngrímsson í Ólafsfirði í
samtali við Dag í gær.
„Nokkrir bílar lentu í fyrri
skriðunni og tveir þeirra bárust
með henni af efstu götunni og
niður á þá næstu. Það var þrennt
í öðrum þeirra en þau sluppu án
meiðsla. Það féll einnig skriða á
Múlaveginn á móts við Brimnes-
ána og lenti á bíl. Hann fór með
skriðunni fram af veginum og var
mesta mildi að fólkið í honum
skyldi sleppa án meiðsla."
Guðbjörn sagði að byrjað
hefði að rigna á laugardag en
ekki hafi verið um hættuástand
að ræða fyrr en á sunnudags-
morgun. „Almannavarnanefnd
var kölluð saman eftir hádegi á
sunnudag og hún var einmitt á
fundi þegar fyrri skriðan féll. Þá
var börgunarsveitin komin af
stað til þess að hjálpa fólki að
dæla vatni úr kjöllurum sínum.“
Ástandið hefur verið kannað
örlítið eftir því sem hægt er en
vegna veðurskilyrða hafa menn
ekki hætt sér að ráði í fjallið
ennþá en vitað er að það er á iði.
Það hætti að rigna á sunnudags-
kvöld en því er spáð að það eigi
eftir að rigna meira á næstunni og
því gætu fleiri skriður farið af
stað.
Grjótskriða hreif með sér bíl á
Múlavegi í Ólafsfírði í
ósköpunum á sunnudaginn og
ruddi honum út af veginum.
Til allrar hamingju slapp fólkið
sem í honum var ómeitt úr
þessum hildarleik en bíllinn
skemmdist mikið. Ökumaður-
inn, Konráð Sigurðsson, var
beðinn um að lýsa atvikinu
nánar:
„Við vorum að snúa við á plani
sem er rétt utan við ruslahaug-
ana. Fólk fer þarna gjarnan og
horfir út fjörðinn og snýr við.
Það voru þrír bílar þarna og ég
var síðastur í röðinni. Þegar ég
var að snúa við heyrði ég drun-
Múlinn er lokaður og skemmd-
ir þar verða ekki kannaðar fyrr
en þessu rigningarástandi lýkur.
Hins vegar var stefnt að því að
urnar í skriðunni, en ég áttaði
mig varla á því hvað var að gerast
og gerði mér ekki grein fyrir því
að þetta gæti gerst á þessum stað.
Hvað þá svona gífurlegt llóð.
Þetta var ekki aurskriða heldur
grjót sem buldi á bílnum og tók
liann með sér fram af veginum og
niður í hlíðina.“
Konráð sagði að fólkið í hinum
bílunum hefði sloppið við skrið-
una og það hefði tilkynnt lögregl-
unni og björgunarsveitinni um at-
burðinn. Hann sagði það nánast
ótrúlegt að enginn skyldi meiðast
í þessari skriðu en bíllinn er enn
hálfgrafinn í skriðunni og taldi
Konráð hann mikið skemmdan.
SS
opna Lágheiðina í gær en þar fór
ræsi í sundur. -KK
„Gijótíð buldi
á bílnum“
- segir Konráð Sigurðsson
sem lenti í grjótskriðu