Dagur


Dagur - 30.08.1988, Qupperneq 13

Dagur - 30.08.1988, Qupperneq 13
830! .ÖC — FíU£)AG - £! 30. ágúst 1988 - DAGUR - 13 Súlnaberg: Fjórtán metra listaverk - eftir Sigurð Árna Sigurðsson í gamla ketilshúsinu í Kaup- vangsstræti hefur ungur mynd- listarnemi, Sigurður Árni Sig- urðsson, haft vinnustofu í sumar. Sigurður hefur stundað nám í París og fer aftur út í haust, en þegar blaðamenn komu í heimsókn var hann langt kominn með 14 metra langt listaverk sem prýða mun veitingastaðinn Súlnaberg í vetur. Verkið er óhemju viðamikið, 14 metrar og 48 sentímetrar á lengd, og Sigurður var því fyrst inntur eftir því hvort honum hefði gengið erfiðlega að fá pláss fyrir verkið. „Jú, auðvitað var erfitt að finna vegg sem rúmar þetta iangt verk og norðurveggurinn á Súlnabergi var raunar eini vegg- urinn í bænum sem ég fann til að hengja þetta form á. Þegar ég ákvað að ráðast í þetta verk hérna í vinnustofunni ræddi ég við forráðamenn Súlnabergs og þeir ætla að leyfa verkinu að hanga í vetur. Þeir ætla líka að borga efniskostnað, sem er mjög hagstætt fyrir mig, því öðruvísi hefði ég ekki getað gert þetta. Það er ákaflega uppörvandi þeg- ar fyrirtæki geta komið á móts við okkur, sem erum að reyna að þróa okkur áfram, á þennan hátt.“ - En hvers vegna réðist þú í svo gríðarlega umfangsmikið verk? „Þetta er form sem ég hef verið með í maganum ansi lengi og það hefur komið aftur og aftur fyrir í myndum hjá mér. Mig hefur allt- af langað til að gera það stórt, sérstaklega núna undir lokin, til þess að geta afgreitt þetta form í eitt skipti fyrir öll og snúið mér að öðru.“ - Þú málar á krossviðarplötur, ekki satt? „Jú, þetta er birkikrossviður sem ég saga út. Ég hef verið að gera svipaða hluti upp á síðkast- ið, saga út ýmis form, en þetta til- tekna form er hluti af einhverri þróun hjá mér.“ - Hvernig viltu lýsa þessu formi? Sigurður Árni við verk sitt í ketilshúsinu. Hann líkti því við fisk, raunar tvo fiska sem eru að mætast. Mynd: tlv „Þetta byggist upp á tveim bogum, hlutar úr tveim bogum sem skerast á tveim stöðum. Boginn hefur rétt um 40 metra radíus og gengur í gegnum allt, jafnboginn. Það sem ég er að leit- ast við að fá með því að lyfta þessu frá veggnum er skugginn sem kemur undan plötunum.“ - Ertu ekki búinn að eyða miklum tíma í þetta verk? „Vissulega hefur þetta tekið dágóðan tíma, en kannski ekki mjög langan tíma í vinnu því formið hefur gerjast lengi, maður verður að taka þróunina með í dæmið. Þetta hefði ekki orðið til ef síðasta verk hefði ekki orðið til og þennan hlut hef ég verið með í maganum í marga mánuði. Það er dálítið kyndugt að eftir því sem maður fær stærri vinnu- stofu þá stækka verkin hjá manni. Ómeðvitað nýtir maður sér stærð vinnustofunnar og ég hefði ekki getað gert þetta verk ef ég hefði ekki fengið svona góða vinnustofu.“ Verk Sigurðar verður væntan- lega komið upp á vegg á Súlna- bergi þegar þetta birtist og það mun blasa við gestum í vetur. Óneitanlega nýstárlegt listaverk í augum margra og skemmtileg tilbreyting frá hefðbundnum veggskreytingum veitingahúsa. SS Nauðungaruppboð á eftirtöldum fasteignum fer fram í dómsal embættisins, Hafnarstræti 107, 3. hæð, Akureyri, á neðangreindum tíma: Árbæ, Hrafnagilshreppi, þingl. eigandi Kristinn Ó. Jónsson, föstud. 2. september 1988 kl. 13.30. Uppboðsbeiðendur eru: Búnað- arbanki íslands og Veðdeild Landsbanka íslands. Dalbraut 14, Dalvík, þingl. eig- andi Sveinbjörn Sveinbjörns- son, föstudaginn 2. september 1988 kl. 14.45. Uppboðsbeiðendur: eru Jón Eiríksson hdl. og Ásgeir Thor- oddsen hdl. Eiðsvallagötu 9 n.h., Akureyri, þingl. eigandi Sigfús Hansen, föstudaginn 2. september 1988 kl. 13.30. Uppboðsbeiðendur eru: Gunn- ar Sólnes hrl. og Veðdeild Landsbanka Islands. Einholti 8 e, Akureyri, þingl. eig- andi Karl Sigurðsson, föstudag- inn 2. september 1988 kl. 15.00. Uppboðsbeiðendur eru: Ólafur Birgir Árnason hdl. og Veðdeild Landsbanka íslands. Fjólugötu 16 n.h., Akureyri, þingl. eigandi Björgvin Jónsson o.fl., föstudaginn 2. september 1988 kl. 15.15. Uppboðsbeiðendur eru: Guðjón Ármann Jónsson hdl. og Veð- deild Landsbanka íslands. Grundargerði 7 d, Akureyri, þingl. eigandi Ingvi Óðinsson, föstudaginn 2. september 1988 kl. 15.15. Uppboðsbeiðandi er innheimtu- maður ríkissjóðs. Helgamagrastræti 12 n.h., Akureyri, þingl. eigandi Áslaug Þorsteinsdóttir, föstudaginn 2. september 1988 kl. 15.30. Uppboðsbeiðandi er Sigríður Thorlacius hdl. Hjallalundi 9 e, Akureyri, þingl. eigandi Auður Stefánsdóttir, föstudaginn 2. september 1988 kl. 15.45. Uppboðsbeiðandi er Gunnar Sólnes hrl. Hólabraut 17, efri hæð, Akur- eyri, þingl. eigandi Ármann Ólafsson, föstudaginn 2. sept- ember 1988 kl. 15.45. Uppboðsbeiðandi er Ólafur Birgir Árnason hdl. Karlsrauðatorgi 20, Dalvík, þingl. eigandi Bergur Höskulds- son, föstudaginn 2. september 1988 kl. 16.00. Uppboðsbeiðandi er innheimtu- maður ríkissjóðs. Lönguhlíð 7 c, Akureyri, þingl. eigandi Vilhelm Guðmundsson, föstudaginn 2. september 1988 kl. 16.15. Uppboðsbeiðandi er Ólafur Birgir Árnason hdl. it Lækjargötu 11 a, Akureyri, þingl. eigandi Birgir Ottesen, föstudaginn 2. september 1988 kl. 14.15. Uppboðsbeiðandi erTrygginga- stofnun ríkisins. Bæjarfógetinn á Akureyri og Dalvík, Sýslumaöurinn í Eyjafjarðarsýslu. Nauðungaruppboð annað og síðara, á eftirtöldum fasteignum fer fram í dómsal embættisins, Hafnarstræti 107, 3. hæð, Akureyri, á neðangreindum tíma: Böggvisstöðum, minkab.íb.hús, Dalvík, þingl. eigandi Þorsteinn Aðalsteinsson, föstudaginn 2. september 1988 kl. 13.45. Uppboðsbeiðendur eru: Hró- bjartur Jónatansson hdl. og Benedikt Ólafsson hdl. Dalbraut 9, Dalvík, talinn eig- andi Sigurgeir Sigurðsson, föstudaginn 2. september 1988 kl. 14.00. Uppboðsbeiðendur eru: Trygg- ingastofnun ríkisins, Veðdeild Landsbanka íslands, Benedikt Ólafsson hdl. og Sigríður Thorlacius hdl. Eyrarlandsvegi 12, Akureyri, þingl. eigandi Herbert Halldórs- son, föstudaginn 2. september 1988 kl. 14.00. Uppboðsbeiðendur eru: Búnað- arbanki íslands og Ragnar Steinbergsson hrl. Kjalarsíðu 16 d, Akureyri, þingl. eigandi Gísley Hauksdóttir, föstudaginn 2. september 1988 kl. 13.45. Uppboðsbeiðendur eru: Veð- deild Landsbanka íslands, Ólaf- ur Birgir Árnason hdl. og Bæjar- sjóður Akureyrar. Bæjarfógetinn á Akureyri og Dalvík, Sýslumaöurinn í Eyjafjaröarsýslu. V/antar blaðbera frá 1. september í Laxagötu, Brekkugötu, Hólabraut og Klapparstíg Bróöir minn, KRISTJÁN RÖGNVALDSSON, garðyrkjumaður, Barðstúni 3, Akureyri, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri laugardaginn 27. ágúst. Jarðarförin fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 2. sept- ember kl. 13.30. Fyrir hönd vandamanna. Sólveíg Rögnvaldsdóttir.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.