Dagur - 31.08.1988, Qupperneq 2
2 - DAGUR - 31. ágúst 1988
'•11 r t iíi rti'i ■» T- *-
23 £ i—•
1 /L, h m • f" r . m ^ tt 1 . r
1 r r f r r T J 2
—4 L. —B n L
Kennsla á hljómborð
og rafiiiagnsorgel
Innritun í síma 24769
eftir klukkan 17.00.
Orgelskóli Gígju.
—
AKUREYRARB/tR
Afnot af íbúð í
Davíðshúsi, Akureyri
Eins og áður hefur komið fram, þá gefst fræði-
mönnum og listamönnum kostur á að sækja um 1 -
6 mánaða dvöl í lítilli íbúð í Davíðshúsi til að
vinna að fræðum sínum eða listum.
Ákveðið hefur verið að frestur til að skila umsókn-
um um afnot af íbúðinni árið 1989 verði til 30.
september nk.
Umsóknir ber að senda til: Akureyrarbær, c/o Ing-
ólfur Ármannsson, menningarfulltrúi, Geislagötu
9, 600 Akureyri.
JÉk Menningarsjóður
íslands og Finnlands
Tilgangur sjóðsins er að efla menningartengsl Finnlands
og (slands. í því skyni mun sjóðurinn árlega veita ferða-
styrki og annan fjárstuðning. Styrkir verða öðru fremur
veittir einstaklingum, stuðningur við samtök og stofnanir
kemur einnig til greina ef sérstaklega stendur á.
Umsóknir um styrki úr sjóðnum fyrir árið 1989 skulu send-
ar stjórn Menningarsjóðs (slands og Finnlands fyrir 30.
september nk. Áritun á íslandi: Menntamálaráðuneytið,
Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík. Æskilegt er að umsóknir
séu ritaðar á sænsku, dönsku, finnsku eða norsku.
Stjórn Menningarsjóðs íslands og Finnlands.
24. ágúst 1988.
C LANDSVIRKJUN
Útboð
Landsvirkjun óskar hér með eftir tilboðum í að
steypa upp og fullgera aðveitustöðvarhús sem reisa
á við 220 kV háspennulínu Landsvirkjunar til álvers-
ins í Straumsvík, móts við Hamranes sunnan Hafn-
arfjarðar. Verkinu tilheyra einnig ýmsir aðrir verk-
þættir svo sem gerð undirstaða fyrir stálmöstur og
spenna.
Útboðsgögn verða afhent frá og með þriðjudeginum
30. þ.m. á skrifstofu Landsvirkjunar, Háaleitisbraut
68, Reykjavík, gegn óafturkræfu gjaldi að upphæð
kr% 3.000.-
Helstu kennitölur í verkinu eru:
Flatarmál húss 614 m2
Rúmmál húss 3160 m3
Steypa 1015 m3
Mótafletir 4170 m2
Steypustyrktarjárn 92 tn
Miðað er við að verkið geti hafist 23. september nk.
og að verklok verði sem hér segir:
Húsið fokhelt 31. desember 1988
Steypt mannvirki utanhúss 15. apríl 1989
Heildarverklok 15. maí 1989
Tilboðum skal skila á skrifstofu Landsvirkjunar 9.
september 1988 fyrir kl. 10.30, en tilboðin verða
opnuð þar sama dag kl. 11.00 að viðstöddum bjóð-
endum.
Reykjavík 28. ágúst 1988.
Skoðanakönnun SKÁÍS:
85,1% hafa bragðað bjór
Flestir íslendingar átján ára og
eldri hafa bragðað áfengan
bjór, ef marka má skoðana-
könnun sem SKÁÍS gerði dag-
ana 19. og 20. ágúst. Hringt
var í 700 manns og af þeim
svöruðu 636. Alls kvaðst 541
hafa bragðað áfengan bjór,
eða 85,1%, en 94 sögðust ekki
Jón Sigurðsson viðskiptaráð-
herra hefur ekki gefist upp á
því að reyna að selja Útvegs-
bankann og nú hefur hann
skipað nefnd til að kanna
möguleika á og undirbúa sölu
hans.
í fréttatilkynningu frá við-
skiptaráðuneytinu segir að ráð-
herrann hafi nýlega skipað starfs-
hóp til þess að kanna möguleika
á og undirbúa sölu hlutabréfa
ríkisins í Útvegsbanka íslands hf.
Starfshópnum er falið að vinna
að eftirtöldum markmiðum við
sölu hlutabréfanna:
hafa bragðað þennan drykk,
eða 14,8%.
Spurt var hvort fólk teldi að
íslenska vatnið myndi gefa meiri
möguleika en ella á góðri bjór-
framleiðslu. 68,9% jánkuðu
þessari spurningu, 13,1% kváðu
nei við, 16,7% voru óákveðnirog
1,4% aðspurðra svöruðu ekki. Ef
- Að ríkissjóður fái rétt verð
fyrir hlutabréfin.
- Að með sölu bréfanna verði
stuðlað að sameiningu banka-
stofnana og
- að eignarhaldi að bankanum
verið dreift.
í starfshópnum eiga eftirtaldir
sæti: Björn Friðfinnsson aðstoð-
armaður ráðherra, Jónas A.
Aðalsteinsson hrl., og Árni Tóm-
asson löggiltur endurskoðandi.
Þessi hópur mun á næstunni hefja
viðræður við ýmsa aðila til þess
að kanna áhuga á kaupum bréf-
anna í ljósi nýrra aðstæðna. AP
aðeins er litið á þá sem tóku
afstöðu töldu 84,1% að íslenska
vatnið yrði bjórnum til fram-
dráttar.
Þá var spurt hvort líklegt væri
að íslendingar gætu flutt út eigin
bjór, líkt og Danir. 69,3% töldu
að svo væri, 20,9% svöruðu neit-
andi og 8,3% voru óákveðnir og
1,4% gáfu ekki svar. Af þeim
sem tóku afstöðu sögðu 76,8%
já, en 23,2% nei.
Spurningunni: Telur þú rétt að
Áfengisverslunin selji allar þær
bjórtegundir sem íslenskir fram-
leiðendur geta boðið upp á?,
svöruðu 70% játandi, 20% neit-
andi, 8% voru óákveðnir og 2%
svöruðu ekki.
Loks var spurt hvort fólk teldi
sanngjarnt að innlendur bjór yrði
ódýrari en erlendur. 62,6% töldu
það sanngjarnt, 29,6% neituðu
þessu, 6,1% voru óákveðnir og
1,7% svöruðu ekki.
Af þeim sem ekki sögðust hafa
bragðað áfengan bjór voru konur
fleiri en karlar, fólk yfir fimmtugt
fleiri en þeir sem ekki höfðu náð
þeim aldri og fleira fólk á lands-
byggðinni hafði ekki bergt á þess-
um vökva en þeir sem höfuð-
borgarsvæðið byggja. SS
Sala Útvegsbankans:
Jón reynir aftur
Sauðárkrókur:
40 tonn af malbiki
í holur hér og þar
Á Sauðárkróki voru sett 35-40
tonn af malbiki á götur bæjar-
ins fyrir skömmu og voru þetta
ekki heilar götur heldur blettir
hér og þar. Að sögn bæjar-
starfsmanna var þetta hefð-
bundið viðhald á götunum, en
margar götur voru orðnar æði
götóttar.
Þá var malbikað þar sem lagn-
ing ljósleiðarans lá yfir götur
bæjarins, eða á þrem stöðum.
Malbikið er fengið frá Hofsósi,
þar sem að undanförnu hefur
verið blandað malbik fyrir Sigl-
firðinga á götur þeirra. Bæjar-
starfsmenn notuðu tækifærið og
fengu malbik til að gera við allar
þær holur sem farnar voru að
hrella ökumenn á Sauðárkróki.
Nú ættu demparar bílanna að fá
örlítinn frið, en það stendur varla
mjög lengi, því holurnar eru
fljótar að koma aftur.
Aðspurðir sögðu bæjarstarfs-
menn að mun hagstæðara væri að
síendurbæta holurnar í staðinn
fyrir að malbika yfir heilu göturn-
ar. „Það þarf hvort eð er að laga
holurnar ef malbikað verður yfir
allt,“ sögðu þeir og glottu út í
annað. -bjb
Bæjarstarfsmenn að malbika í eina holuna af mörgum, og eins og sjá má rýk-
ur mjög úr þessu „tjörumalli“.