Dagur - 31.08.1988, Blaðsíða 5
31. ágúst 1988 - DAGUR - 5
Kirkjusandur:
„Ána'gðastur þegar
verki er lokið“
- segir Gunnar Þ. Þorsteinsson yfirumsjónarmaður
framkvæmda við hinar nýju höfuðstöðvar Sambandsins
Hið nýja hús Sambands íslenskra samvinnufélaga, sem verið er að reisa á
Kirkjusandi í Reykjavík. Mynd: ap
lesendahornið
Hann hefur unnið fyrir Sam-
bandið í mörg ár og hefur á þeim
tíma haft yfirumsjón með mörg-
um stórframkvæmdum á vegum
fyrirtækisins. Þar má t.d. nefna
uppbyggingu Sambandsverk-
smiðjanna á Akureyri, Hótel
KEA og Bifrastar í Borgarfirði.
Gunnar hafði ákveðið að hætta
störfum á þessu ári, enda orðinn
67 ára gamall. Honum var hins
vegar falið að annast þetta stór-
verkefni og frestaði því starfslok-
um hjá Sambandinu. Við spurð-
um hann hvort það væri eitthvað
sérstakt hús eða sérstök bygging
sem hann hugsaði sérstaklega
hlýtt til: „Það er venjulega sú
bygging sem nýlegast er lokið
við. Þetta er svona svipað og rit-
höfundur sem nýlokið hefur við
nýja bók og finnst hún það besta
sem hann hefur sent frá sér, en er
líka á sama tíma himinlifandi að
verkinu skuli loksins vera lokið,“
sagði Gunnar og kímdi.
Framkvæmdir við Kirkjusand
hófust 1. mars síðastliðinn og
hefur verið mikið brotið og byggt
síðan. Þar má t.d. nefna að ný
hæð var byggð ofan á húsið og nú
er verið að setja nýja glugga í alla
bygginguna. Reiknað er með að
lokið verði við klæðingu hússins
að utan um næstu áramót, en þá
verður útlit byggingarinnar orðið
endanlegt. AP
Samband íslenskra samvinnu-
félaga er nú að byggja upp nýj-
ar höfustöðvar fyrir skrifstofur
fyrirtækisins. Þær eru á Kirkju-
sandi og hefur Gunnar Þ. Þor-
steinsson yfirumsjón með því
verki. Húsið er nú smám sam-
an að fá á sig fullnaðarútlit, en
mikið verk hefur verið að
endurreisa þetta gamla hús.
Dagsmenn komu þar við á
dögunum og spjölluðu við
Gunnar Þ. Þorsteinsson um
framkvæmdirnar.
„Verkið hefur gengið sam-
kvæmt áætlun og gert er ráð fyrir
því að einhver starfsemi verði
komin í húsið í byrjun næsta
árs,“ sagði Gunnar og var hress
með framvindu mála.
Gunnar Þ. Þorsteinsson, hefur yfir-
umsjón með byggingaframkvæmd-
um á Kirkjusandi, en hann hefur
annast slík störf fyrir Sanibandið í
40 ár.
Eru bréflberar ólæsir?
- spyr langþreyttur lesandi sem ekki fær póstinn sinn skilvislega
Eldri kona á Eyrinni kom að
máli við Lesendahornið og
sagði sínar farir ekki sléttar í
samskiptum við þá sem bera út
póst.
Konan sagði pósti iðulega ekki
komið til skila til réttra aðila.
Einkum átti hún við hús á Odd-
eyrinni, þar sem fleiri en ein íbúð
væru í húsi. Pósti væri troðið inn
í gegnum fyrstu bréfalúgu sem
fyndist og hún hefði oft og einatt
þurft að sækja póst sinn til ná-
granna sinna. Hins vegar fengi
hún ævinlega Þjóðviljann sendan
inn um sína lúgu, þó svo hún-
kaupi ekki það blað heldur ná-
granni hennar í næsta húsi.
„Þetta ófremdarástand hefur
verið svona lengi og ég er orðin
býsna þreytt á því. Margoft hef
ég rætt við menn uppi á pósthúsi,
en árangurinn er lítill, eða
enginn. Ég þekki marga sem hafa
sömu sögu að segja og mér þætti
vænt um ef þessu máli væri kippt
í liðinn,“ sagði þessi eldri kona af
Eyrinni. Hún sagði líka að dyr
sínar væri merktar nöfnum íbú-
anna, en svo virtist sem bréfberar
læsu ekki hver ætti heima hvar
heldur notuðu fyrstu dyr sem
sjáanlegar væru á húsinu.
Enn um Strandgötuna:
Má búast við öndum
á tjamir götunnar?
Halldór Kristjánsson kom við
á ritstjórn Dags vegna skrifa af
skökkum og skældum gang-
stéttum við Strandgötu og var
hann fyllilega sammála öllu
sem þar kom fram.
Halldór sagði að í fyrra sumar
hefði Strandgatan verið malbik-
uð, en einhverra hluta vegna var
malbikað yfir meirihluta niður-
falla á vissum svæðum. Stórar
tjarnir myndist því gjarnan á
gangstéttinni, enda sé hún á köfl-
um langt fyrir neðan götuna.
„Þetta er til mikillar skammar
fyrir bæinn,“ sagði Halldór. „Um
götuna fara hundruð ferða-
manna, enda leggjast skemmti-
ferðaskip við Eimskipafélags-
bryggjuna og því margir sem
ganga um götuna og þetta er það
fyrsta sem þeir sjá.“
Þá var Halldór ekki alls kostar
ánægður með umgengni í kring-
um nokkur hús við áðurnefnda
götu og sagði að járnadrasl af
ýmsum toga hefði legið í portum
til fjölda ára. „Þetta er ekki til
fyrirmyndar. Ég skora á hlutað-
eigandi að fjarlægja draslið sitt
hið fyrsta."
Vélbátatrygging Eyjafjarðar
Aðalfundur félagsins
verður haldinn sunnudaginn 11. september í
Sjallanum kl. 2.
Dagskrá samkvæmt félagslögum.
Stjórnin.
Laus staða
Staöa forstjóra Fangelsismálastofnunar er laus til umsókn-
ar. Forstjórinn skal vera lögfræðingur.
Umsóknir sendist ráðuneytinu fyrir 23. september 1988.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið,
23. ágúst 1988.
Laus staða
Umsóknarfrestur um stöðu sérfræðings í íslenskri mál-
fræöi við íslenska málstöð, sbr. auglýsingu í Lögbirtinga-
blaði nr. 88/1988, er framlengdur til 15. september nk.
Umsóknir skulu sendar menntamálaráöuneytinu, Hverfis-
götu 6, 150 Reykjavík.
Menntamálaráðuneytið, 26. ágúst 1988.
Laus staða
Staða deildarstjóra í Þjóðdeild Landsbókasafns íslands er
laus til umsóknar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og starfsferil
skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu fyrir 22. sept-
ember næstkomandi.
Menntamálaráðuneytið, 26. ágúst 1988.
Fimmtudaginn 1. september verður aftur far-
ið að aka leið 5 í Glerárhverfi og leið 4 verður
því flýtt um 10 mínútur á tímabilinu 12.00-
19.00.
Nánari upplýsingar verða gefnar í símum 24929
og 24020.
Forstöðumaður.
Nýr opnunartími
Eftir 1. sept. verður verslun
HAGKAUPS opin sem hér segir:
Akureyri
Mánud. -miðvikud. 900-1800
Fimmtud.-föstud. 900-1900
Laugard. 1000-1600
HAGKAUP
Akureyri