Dagur - 31.08.1988, Blaðsíða 7
31. ágúst 1988 - DAGUR - 11
Keld Hiittel borgarstjóri í Randers ávarpar gesti í lok vinabæjaviku.
Mynd: JHÁ
RANDERS-UGEN 88
AKUREYRI
1992
Kaupangskirkja endurvígð
Frá vígsluathöfninni í Kaupangskirkju. Mynd: ehb
Kaupangskirkja í Eyjafirði var
endurvígð síðastliðinn sunnu-
dag. Sr. Sigurður Guðmunds-
son, vígslubiskup, stjórnaði
þessari hátíðlegu athöfn sem
hafði yfir sér blæ helgi og
friðar. A Kaupangskirkju voru
nýlega gerðar verulegar endur-
bætur og var álitið að vegna
breytinganna þyrfti að endur-
vígja kirkjuna.
Núverandi Kaupangskirkja var
byggð árið 1922 undir yfirumsjón
Sveinbjörns Jónssonar, bygg-
ingameistara, en hann teiknaði
einnig kirkjuna. Kirkjan stendur
á gömlum kirkjustað í Kaupangs-
sókn, en sóknarmörkin eru frá
Þverá að sunnan að Varðgjá að
norðan, en þetta landsvæði er
nefnt Kaupangssveit í daglegu
máli.
Sr. Bjartmar Kristjánsson,
fyrrum sóknarprestur í Lauga-
landsprestakalli og fyrrverandi
prófastur Eyjafjarðarprófast-
dæmis, sagði að ekki væri
nákvæmlega vitað hversu lengi
kirkja hefði staðið á þessum stað.
í Auðunnar máldaga rauða er
getið um kirkju í Kaupangi árið
1318, en máldaginn er kenndur
við Auðunn rauða Þorbergsson,
einn hinna norrænu biskupa á
Hólum. Kaupangur er því meðal
elstu kirkjustaða á landinu.
Lítið er vitað um sögu Kaup-
angskirkju gegnum aldirnar en
kirkjan sem stóð á undan þeirri
sem nú er var úr timbri. Hún var
orðin ónýt og var rifin þegar hún
var komin að falli rétt fyrir 1922.
A þessari öld hafa sex prestar
þjónað við kirkjuna; sr. Jónas
Jónasson á Hrafnagili, lands-
þekktur fræðimaður, sr. Þor-
steinn Briem, sr. Gunnar Bene-
diktsson, sr. Benjamín Krist-
jánsson, sr. Bjartmar Kristjáns-
son og frá 1986 núverandi sókn-
arprestur, sr. Hannes Örn
Blandon.
Viðstaddir endurvígsluna
voru, auk sóknarbarna og vígslu-
biskups, sr. Birgir Snæbjörnsson,
prófastur Eyjafjarðarprófast-
dæmis, sr. Hannes Örn Blandon,
og Óli Þór Ástvaldsson á Þóru-
stöðum V, meðhjálpari og for-
maður sóknarnefndar, Elín
Friðriksdóttir, Hjarðarhaga og
Sólveig Haraldsdóttir, Svertings-
stöðum, en þau þrjú síðast-
nefndu aðstoðuðu við athöfnina.
Laugalandsprestakall skiptist í
sex sóknir, Kaupangssókn,
Munkaþverársókn, Möðruvalla-
sókn, Hólasókn, Saurbæjarsókn
og Grundarsókn. Prestssetrið hef-
ur verið að Syðra Laugalandi frá
1935 en áður var það í Saurbæ.
EHB
FYRIRLESTUR
um
„samstarf fyrirtækja
í dreifbýli"
Iðnþróunarfélag Eyjafjarðar hf. mun standa fyrir
fyrirlestri um samstarf fyrirtækja í dreifbýli.
Fyrirlesturinn er öllum opinn en einkum ætlaður for-
ráðamönnum fyrirtækja og sveitarstjórnarmönnum.
Eftirfarandi atriðum verður m.a. gerð skil:
- Af hverju samstarf?
- í hverju samstarf er fólgið.
- Hvað mælir með og hvað hindrar samstarf.
- Eru það aðrir aðilaren fyrirtækin sjálf sem geta tekið þátt í samstarfi.
- Dæmi um tvö vel heppnuð samstarfsverkefni í Noregi.
Tími: Laugardaginn 3. september 1988 kl. 14-16.
Staður: Hótel KEA, Akureyri.
Fyrirlesari: Sven-Erik Östengen, Noregi.
Sven-Erik hefur tuttugu ára reynslu í ráðgjöf við minni
fyrirtæki í gegnum starf sitt hjá Norsku iðntæknistofn-
uninni.
Innritun: Iðnþróunarfélag Eyjafjarðar hf., Glerárgötu 30.
Sími: 96-26200, fyrir 1. september 1988.
Þátttökugjald: Kr. 800.-