Dagur - 31.08.1988, Síða 14
14 - DAGUR - 31. ágúst 1988
Flugáhugafólk!
Bóklegt einkaflugmannsnámskeið
verður haldið á tímabilinu
5. sept. til 30. nóv.
Nánari upplýsingar gefur Ármann Sigurðsson
í síma 26149 á kvöldin.
V____________________________/
Vélavörður
Vélavörður óskast á Dalborgu EA 317.
Upplýsingar í símum 96-61475 og 985-20727.
Óskum eftir að ráða
starfsfólk í sápudeild
Upplýsingar gefur verksmiðjustjóri í síma 21165.
Efnaverksmiðjan
Sjöfn
Afgreiðslustarf
1. september.
Við óskum eftir afgreiðslufólki í leikfanga- og gjafa-
vöruverslun okkar.
Vinnutími kl. 9-18. Einnig hálfan daginn kl. 9-13 eða
kl. 13-18 kemurtil greina.
Umsóknareyðublöð fást í versluninni.
LEIKFANGAMARKAÐURINN PARÍS HF.
Hafnarstræti 96, sími 27744.
Póst og símamálastofnunin
jBg óskar að ráða
tæknifulltrúa I
til starfa við loranstöðina Gufu-
skálum.
Frítt fæði á staðnum ásamt rafmagni, hita og hús-
búnaði.
Námsdvöl í Bandaríkjunum nauðsynleg.
Áskilin er rafeindavirkjun (símvirkjun/útvarpsvirkj-
un).
Nánari upplýsingar veitir stöðvarstjórinn Gufuskál-
um og starfsmannadeild Reykjavík.
Viljum ráða nú þegar konur
og karla til starfa í vetur
Bónusvinna.
Hálfs- eða heilsdagsstörf.
Upplýsingar hjá verkstjórum á staðnum.
K. Jónsson & Co. hf. Niðursuðuverksmiðja.
Vantar stýrimann
á 55 tonna rækjubát strax.
Báturinn er gerður út frá Hrísey.
Uppl. í síma 25097 (Gunnar).
Meinatæknir
Meinatæknir óskast til starfa á rannsókna-
stofu Heilsugæslustöðvarinnar á Egilsstöð-
um.
Upplýsingar gefa Gunnar í síma 97-11386 og Guð-
rún í síma 97-11400.
„Fjármálafyrirtæki eru
ekki án formlegs eftirlits“
- segir Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra
Jón Sigurðsson hefur skrifað
bréf til Alþýðubandalagsins
varðandi starfsemi nýrra
fjármálafyrirtækja. Það segir
ráðherrann það misskilning að
þessi fyrirtæki hafi að mestu
verið án formlegs eftirlits af
hálfu opinberra aðila.
f bréfi ráðherrans segir að í gildi
séu lög sem veita bankaeftirliti
Seðlabanka íslands heimildir til
þess að framkvæma eftirlit með
verðbréfamiðlun og rekstri
verðbréfasjóða.
Með heimild í framangreind-
um lögum og reglugerðum hefur
bankaeftirlitið haft eftirlit með
starfsemi verðbréfafyrirtækja,
sem fólgið hefur verið í heim-
sóknum til fyrirtækjanna, í inn-
köllun endurskoðaðra ársreikn-
inga frá þeim og annarri upplýs-
ingasöfnun.
Því er rangt að segja, að þessi
fyrirtæki séu „að mestu leyti
sjálfala og eftirlitslaus.“ Hitt er
annað mál að skort hefur ýmis
ákvæði um rekstur fyrirtækjanna.
Má þar nefna skýr ákvæði er girði
fyrir hagsmunaárekstra verð-
bréfafyrirtækis og verðbréfa-
sjóða, sem það rekur, ákvæði um
upplýsingaskyldu gagnvart eig-
endum hlutdeildarskírteina í
verðbréfasjóði, ákvæði um eigin-
fjárstöðu verðbréfafyrirtækis
o.fl. Einnig vantar reglur um
starfsemi svokailaðra fjármögn-
unarleigufyrirtækja.
Jón Sigurðsson viðskiptaráð-
herra skipaði í febrúar sl. nefnd
til að fjalla um starfsemi á fjár-
magnsmarkaði utan banka og
sparisjóða. Þessi nefnd hefur
kannað nauðsyn á frekari laga-
setningu um þessa starfsemi og
ákvað hún að skipta verkefni
sínu í þrjá þætti.
í fyrsta lagi ákvað hún að fjalla
um verðbréfaviðskipti og verð-
bréfasjóði og í framhaldi af þeirri
umfjöllun samdi hún drög að
frumvarpi til nýrra laga um það
efni. Nefndin hefur leitað
umsagna um frumvarpsdrögin
hjá ýmsum aðilum og mun hún
innan skamms ganga frá breyt-
ingum á texta frumvarpsdrag-
anna í samræmi við ábendingar
frá þeim. Viðskiptaráðherra mun
væntanlega fá endanleg frum-
varpsdrög í hendur á næstu dög-
um og mun hann þá leggja þau
fyrir ríkisstjórnina og þingflokka
hennar til ákvörðunar um fram-
lagningu á Alþingi.
í öðru lagi fjallaði nefndin um
fjármögnunarleigur og samdi hún
síðan drög að frumvarpi til laga
um eignarleigu. Nefndin sendi
nokkrum aðilum drögin til
umsagnar og rennur umsagnar-
frestur út í lok þessa mánaðar.
Síðan verður gengið frá frum-
varpinu, sem lagt verður fyrir
ríkisstjórnina og þingflokka
hennar til ákvörðunar um fram-
lagningu.
Stefnt er ákveðið að því að
bæði þessi frumvörp verði lögð
fyrir Alþingi í þingbyrjun.
Priðji þátturinn í starfi nefnd-
arinnar er rekstur á sviði
greiðslumiðlunar, afborgunarvið-
skipta o.fl. sem einkum snýr að
neytendavernd, en það starf er
skemmra á veg komið hjá nefnd-
inni en varðar fyrstu tvo þættina.
Jón Sigurðsson viðskiptaráð-
herra segir í lok bréfsins að hann
hafi oft lýst yfir nauðsyn þess, að
tekið verið á tengslum milli við-
skiptavina og fjárfestingarfélag-
anna, þannig að tryggt sé að
félögin og stjórnendur þeirra séu
ekki eigendur að þeim fyrirtækj-
um, sem félögin kaupa skulda-
bréf af beint eða óbeint. AP
Vaka-Helgafell:
Bókaklúbbur IVrir böm
Útgáfufyrirtækið Vaka-Helgafell
er þessa dagana að hleypa af
stokkunum nýstárlegum bóka-
klúbbi. Par er um að ræða fyrsta
bókaklúbbinn hér á landi sem
eingöngu er ætlaður börnum.
Hann hefur hlotið nafnið Bóka-
klúbbur barnanna, Disneyklúbb-
urinn, og verður bókavalið
almennt miöað við börn allt að 10
ára aldri.
Markmiðið með stofnun klúbbs-
ins er að auka úrval vandaðra bóka
handa íslenskum börnum frá því
sem nú er og stuðla þannig að
nánari kynnum yngstu kynslóðar-
innar af bókum og bóklestri.
Nýi barnabókaklúbburinn mun
í upphafi gefa félögum sínum
kost á að eignast myndskreyttar
sögubækur úr víðkunnum bóka-
flokki frá Walt Disney sem ber
heitið Ævintýraheimurinn. Þarer
að finna sígild ævintýri í nýjum
búningi svo sem um Mjallhvíti,
Þyrnirós, Hróa Hött, Ösku-
busku, Pétur Pan og Gosa. Öðru
hverju munu svo koma út bækur
með þekktustu söguhetjum Walt
Disney sem notið hafa vinsælda
meðal barna um víða veröld ára-
tugum saman.
Ævintýrabækurnar munu
koma út mánaðarlega og verða
einungis til söiu í Bókaklúbbi
barnanna, Disneyklúbbnum. Þær
eru í allstóru broti, 44 síður að
stærð, litprentaðar og innbundn-
ar. Hver bók kostar 598 krónur
með burðargjaldi og söluskatti en
við inngöngu í klúbbinn fá félags-
menn tvær ævintýrabækur fyrir
verð einnar, það er með 50%
kynningarafslætti.
Með bókunum fylgir endur-
gjaldslaust blað barnabóka-
klúbbsins, Gáski, sem í er ýmis
fróðleikur, tómstundaviðfangs-
efni, gamanmál og getraunir.
Meðal verðlauna eru fjölskyldu-
ferðir til Disneyworld í Florida í
Bandaríkjunum.
Lögð er áhersla á það í blaði
klúbbsins að börnin spreyti sig
þar á ýmsan hátt við leikræn við-
fangsefni sem í senn eru þrosk-
andi og skemmtileg og þjálfa
athyglisgáfu þeirra. Ýmis fróð-
leikur af innlendum og erlendum
toga mun fljóta með.
Félagar Bókaklúbbs barnanna,
Disneyklúbbsins, gangast ekki
undir neinar skuldbindingar. Þeir
þurfa hvorki að kaupa neinn
ákveðinn fjölda bóka né heldur
að vera í klúbbnum ákveðinn
tíma. Þeir geta einfaldlega hætt í
klúbbnum hvenær sem þeir vilja
með einu símtali og fá þá ekki
fleiri bækur sendar.
Fyrstu bækur klúbbsins úr
bókaflokki Walt Disneys, Ævin-
týraheimurinn, munu koma út í
september.