Dagur - 31.08.1988, Blaðsíða 15
íþróttir
31. ágúst 1988
f*N-f*
DAGUR- 15
r* p»•'**, n. u *•
f
Haustmót KRA:
Þórsarar
sterkir í
Þórsarar reyndust heldur
sterkari en KA þegar liðin
léku í 7. flokki fyrir
skömmu. Leikirnir voru lið-
ur í haustmóti KRA og sigr-
uðu Þórsarar í tveimur leikj-
um og KA í einum.
Leik A liðanna lauk með
stórsigri Pórs, 10:2. Jónatan
Magnússon skoraði fjögur
mörk fyrir Þór, Orri Óskars-
son og Jóhann PÖrhallsson tvö
hvor og Hörður Rúnarsson og
Ragnar eitt hvor. Lárus Stef-
ánsson skoraði bæði mörk
KA.
KA sigraði 5:4 í leik fí lið-
anna. Þar var Hiynur Por-
móðsson heldur betur á skot-
skónum þvi hann skoraði öll
mörk KA. Brynjar Vatnsdal
og Eiríkur Eiríksson skoruðu
tvö mörk hvor fyrir Þór.
Loks van'n.C Iið Þórs 7:0 sig-
ur í sínum leik. Gunnar Jóns-
son og Andri Hjörvar skoruðu
þrjú mörk hvor og Sindri Frí-
mannsson eitt. JHB
Æskan
vann Vask
Æskan sigraði Vask með
tjórum mörkum gegn einu
þegar liðin léku frestaðan
leik úr 1. umferð D-riðiIs 4.
deildar í síðustu viku.
Æskan var heldur sterkari í
fyrri hálfleik og náði þá að
skora tvö mörk. í síðari hálf-
ieiknum náði Æskan mjög
góðum tökum á leiknum og
bætti þá við tveimur mörkum
én Gunnar Berg skoraði eina
mark Vasks úr vítaspyrnu.
Pétur Friðriksson og Baldvin
Hallgrímsson skoruðu tvö
mörk hvor fyrir Æskuna. JHB
Firmakeppni GH:
Guðni sigraði
Úrslit firmakeppni Golfklúbbs
Húsavíkur 1988 fóru fram á
Katlavelli sl. föstudagskvöld.
Sigurvegari á mótinu varð
Útgerðarfélagið Brík hf. sem
Guðni Rúnar Helgason keppti
fyrir.
Alls tóku 64 fyrirtæki þátt í
mótinu en 15 kepptu til úrslita á
föstudagskvöld. Leiknar voru 18
holur en um var að ræða höggleik
með forgjöf. Guðni Rúnar, sem
er 12 ára, sigraði á 72 höggum
nettó. Aðalgeir Bjarnason skip-
stjóri á Björgu Jónsdóttur tók við
verðlaunagripunum fyrir hönd
útgerðarfélagsins.
I öðru sæti á mótinu varð Höfði
hf. sem Axel Reynisson keppti
fyrir og í þriðja sæti var Véla-
deild KP sem Karl Hannesson
keppti fyrir, voru þeir báðir á 77
höggum nettó. IM
Guðni Rúnar Helgason sigurvegari í mótinu með verðlaunagrip og fulltrúi
fyrirtækisins sem sigraði í keppninni, Aðalgeir Bjarnason skipstjóri á Björgu
Jónsdóttur með verðlaunagripi, annar er farandgripur en hinn til eignar.
Knattspyrna:
Landsleikur gegn Rússum
Siegfried Held landsliðsþjálf-
ari hefur valið 16 leikmenn til
að mæta Sovétmönnum á
Laugardalsvellinum í kvöld kl.
18.00. Þetta er fyrsti leikur í 3.
riðli undankeppni HM í knatt-
spyrnu.
Sund:
Wolfgang Shar til
starfa hjá Óðni
Eftirtaldir leikmenn hlutu náð
fyrir augum Helds:
Bjarni Sigurðsson Brann
Friðrik Friðriksson B 1909
Arnór Guðjohnsen Anderlecht
Asgeir Sigurvinsson Stuttgart
Atli Eðvaldsson Val
Guðmundur Torfason KSC Gent
Guðni Bergsson Val
Sævar Jónsson Val
Gunnar Gíslason Moss
22
13
25
39
51
14
19
42
34
Ólafur Þórðarson ÍA 23
Ómar Torfason Fram 30
Pétur Arnþórsson Fram 19
Pétur Ormslev Fram 29
Viðar Porkelsson Fram 19
Sigurður Grétarsson Luzern 20
Sigurður Jónsson Sheff. Wed. 14
Þórarinn V. Árnason skorar fyrsta mark KA gegn ÍR. Mynd: tlv
Knattspyrna 2. flokkur:
KA í 1. deild
- tryggði sætið með 5:1 sigri á ÍR
þó aldrei að ógna marki KA-
2. flokkur KA tryggði sér sæti í
A-riðli, eða 1. deild, þegar lið-
ið sigraði ÍR 5:1 á KA-vellin-
um á laugardag. Sigur KA-
manna var öruggur eins og
tölurnar gefa til kynna og
þýddi hann að KA og ÍBK
leika í A-riðli að ári en mögu-
leikar IR-inga eru úr sögunni
þar sem þeir töpuðu 0:1 fyrir
IBK á dögunum. Síðasti
leikurinn í þessari úrslita-
keppni var leikur IBK og KA
og átti hann að fara fram í
Keflavík í gærkvöld.
KA-menn hófu leikinn á laug-
ardag af miklum krafti og og
fengu óskabyrjun því Pórarinn
V. Árnason skoraði fyrsta mark
leiksins strax á 3. mínútu eftir
stórsókn. KA-menn sóttu áfram
og nokkrum mínútum síðar skor-
aði Björn Pálmason annað mark
KA.
Eftir það mark jafnaðist
leikurinn nokkuð. ÍR-ingar náðu
manna neitt verulega á meðan
sóknir KA-manna voru mun
beinskeyttari. Þeir náðu að bæta
við einu marki fyrir hlé og var þar
Björn Pálmason að verki með sitt
annað mark.
Segja má að eftir þriðja markið
hafi allur vindur verið úr ÍR-
ingum. Þórarinn V. Árnason
bætti fjórða marki KA við á 60.
mínútu og þrátt fyrir að ÍR-ingar
klóruðu í bakkann með marki úr
vítaspyrnu var spurningin ein-
ungis hversu stór sigur KA-
manna yrði. Pað var svo Svanur
Valgeirsson sem innsiglaði sigur
KA með glæsilegu marki þegar 5
mínútur voru til leiksloka.
Ekki er hægt að segja annað en
að KA-menn séu vel að 1. deild-
arsætinu komnir. Þeir hafa að-
eins tapað einu stigi í sumar í 21
leik og ef þeir hafa sigrað eða
gert jafntefli í Keflavík í gær-
kvöld hafa þeir farið taplausir í
gegnum íslandsmótið. JHB
Sundfélagiö Óöinn hefur ráðið
Wolfgang Shar sem þjálfara
afreksflokks frá og með 1.
september. Wolfgang Shar er
íþróttakennari frá Iþróttahá-
skólanum í Köln, en þar tók
hann sundþjálfun sem sérgrein
ásamt endurhæíingarleikflmi
fyrir hjartasjúklinga og aldr-
aða.
Wolfgang hefur verið búsettur
hér á landi í rúm þrjú ár og hefur
verið þjálfari hjá 1. deildarliði
KR auk þess sem hann hefur ver-
ið þjálfari unglingalandsliðsins og
hefur hann ásamt öðrum annast
undirbúningsþjálfun ólympíuliðs
íslands í sundi. Auk þjálfunar
mun Wolfgang starfa við endur-
hæfingu á hjartadeild FSA.
Shar mun taka við þjálfun af
Jóhanni G. Möller sem hefur
annast mestalla sundþjálfun á
Akureyri frá 1970 en Jóhann
mun taka að sér þjálfun á yngri
flokkum félagsins. Það er mikill
fengur fyrir íþróttafólk og sér í
lagi sundfólk á Akureyri að fá
mann með jafn mikla menntun
og reynslu sem Wolfgang Shar til
að starfa í bænum og er víst að
hann verður mikil lyftistöng fyrir
sundíþróttina.
Á síðasta ári féll Óðinn í
þriðju deild í sundinu og þótti þá
rétt að leita nýrra leiða og hefja
markvissa uppbyggingu á starf-
inu. Var þá farið að leita eftir
þjálfara og bar sú leit fljótlega
árangur þar sem Wolfgang Shar
sýndi þessu verkefni mikinn
áhuga. Mikill skortur er nú á
þjálfurum á landinu og er fjöldi
félaga um land allt þjálfaralaus.
Æfingar hjá afreksflokki Óðins
hefjast að nýju nú um mánaða-
mótin og fyrsta mótið sem félagið
tekur þátt í á keppnistímabilinu
verður bikarkeppni SSI, 3. deild,
sem verður haldið á Neskaupstað
10. - 13. september.
Auk sundþjálfunar fyrir sund-
félagið Óðin er verið að kanna
inöguleika á því að hefja mark-
vissar æfingar fyrir fullorðna,
undir handleiðslu þjálfara. Þjálf-
un hjá yngri flokkum félagsins
hefst 5. september nk.
Innritun nýrra félaga verður
föstudaginn 9. september kl. 18
og er þar kjörið fyrir alla sem
áhuga hafa á að æfa sund að
mæta. Þjálfarar yngri flokka
verðá Jóhann Möller og Ármann
H. Guðmundsson.
Björn Sverrisson lék sinn 150. leik með meistaraflokki Tindastóls gegn Fylki sl. föstudagskvöld. Að leik loknum
afhenti Stefán Haraldsson (t.v.) formaður knattspyrnudeildar Birni blómvönd og koníak frá félaginu fyrir að hafa
náð þessum merka áfanga. Mynd: bjb