Dagur - 01.10.1988, Page 3

Dagur - 01.10.1988, Page 3
1. október 1988 - DAGUR - 3 4 sakamálasaga Flugvélamar sem hurfu Tvær flugvélar með samtals 116 farþegum um borð hurfu á dul- arfullan hátt yfir Andersfjöll- um. Þeir, sem rannsökuðu hvarfið, halda að báðum vélun- um hafi verið rænt. Flug nr. 11 frá Saeta-flugfé- laginu fór 15. ágúst 1976 frá Quito í Equador með 59 far- þega um borð. Framundan var 45 mínútna flug til fjallabæjar- ins Cuenca. Vélin hvarf spor- laust. Tveim árum síðar var önnur flugvél frá Saeta-flugfélaginu á leið til Cuenca, í þetta skipti með 57 farþega um borð. Sú vél hvarf einnig sporlaust. Þrátt fyr- ir ákafa leit fannst hvorki tang- ur né tetur af flugvél né farþeg- um. En við sérstakar yfirheyrsl- ur, sem haldnar voru í Quito, sóru fimm bændur og kennari, að þeir hefðu séð hvernig seinni vélin allt í einu breytti stefnu frá suðlægri til norðaustlægrar. Árangurslaus leit Majór Carlos Serrano, fram- kvæmdastjóri Saeta-flugfélags- ins, sem er eitt af þrem innan- landsflugfélögum í Equador, styður þá hugmynd að báðum vélunum hafi verið rænt. Hann heldur því fram að eiturlyfja- smyglarar séu með í ráðum. „Báðar vélarnar, sem eru af Vicker Visecount gerð, hæfa til- gangi þeirra fullkomlega," sagði hann. „Þær hafa rnikið flugþol, geta lent á stuttum brautum og séu sætin tekin burtu bera þær sex tonna farm.“ Flugher Equador, leitarsveit- ir úr landhernum, leitarflugvél af C-130 gerð frá bandaríska flughernum ásamt þyrlu með mjög þróaðan leiserbúnað tóku þátt í leitinni að flugvélunum tveim en án árangurs. Þrátt fyrir ákafa leit í nokkrar vikur fannst ekki hið minnsta spor til að fara eftir. James Kuykendal, Equador- fulltrúi þeirrar deildar stjórn- sýslunnar í Bandaríkjunum, sem fer með málefni baráttunn- ar gegn eiturlyfjasmyglinu, sagði að fundist hefðu nöfn ein- staklinga, sem voru skráöir eit- urlyfjasmyglarar, á farþegalist- um seinni flugvélarinnar. Þessir einstaklingar gátu þó engu svar- að til um það, hvað hefði orðið af vélunum. Nauðungarvinna Majór Serrano framkvæmda- stjóri Saeta-flugfélagsins er viss um að farþegarnir hafi verið settir í nauðungarvinnu við maríjúanauppskeruna. Peir, sem saknað er, eru 74 karlmenn, 36 konur og 6 börn, flest bændur, en í hópnuin eru einnig læknir og lögfræðingar. Guillermo Jaramillo, lög- fræðingur í Quito, átti 39 ára gamlan son, Ivan, í seinni vél- inni. Hann myndaði samtök ættingja hinna horfnu til þess að reyna að leysa gátuna. Asamt Saeta-flugfélaginu lofuðu sam- tök þessi 325.000 dollara verð- launum hverjum þeim, sem gætu komið með upplýsingar, sem leiddu til þess að gátan yrði leyst. Árangur hefur enn ekki orðið neinn. Skoðanakönnun - Áskrifendaleikur Helgarblað Dags hefur tekið nokkrum breytingum undanfarnar vikur, von- andi til batnaðar. Nýir efnisþættir hafa litið dagsins ljós og fleiri eiga eftir að fylgja í kjölfarið. Okkur finnst tilvalið að kanna hug lesenda til helgarblaðsins áður en ráðist verður í frekari breytingar og efna til áskrifendaleiks í leiðinni. Þrenn verðlaun eru í boði: 1. AEG kaffivél frá Járn- og glervörudeild KEA. 2. Brauðrist frá Járn- og glervörudeild KEA. 3. Spennu- og ástarsögur frá Snorrahúsi. Þið þurfið aðeins að rita nokkur orð um efni blaðsins, skrifa nafn, heimilisfang og símanúmer, klippa seðilinn út og senda okkur í umslagi merkt: Dagur - skoðanakönnun, pósthólf 58, 602 Akureyri. Einnig er heimilt að leggja seðlana inn á afgreiðslu Dags, en þeir þurfa að berast okkur fyrir kl. 17 miðvikudaginn 12. október. Dregið verður úr seðlunum 13. október og nöfn vinningshafa birt í helgarblaðinu 15. október. Svarseðill: Hvaða efnisþætti ert þú sáttur við, áskrifandi góður, í helgarblaði Dags? Svar: Hvaða þætti mætti að skaðlausu leggja niður? Svar: _____________________________________ Hvers konar efni vilt þú sjá í helgarblaði Dags? Svar: ___________________________________________ Nafn: _______ Heimilisfang: Símanúmer: JD)ÆV®ÍI)II ■■■■ rPi WS4 ■■■■ Dags.: SVARSEÐILL Beiðni um millifærslu áskriftargjalds □ Er áskrifandi □ Nýr áskrifandi Undirritaður óskar þess að áskriftargjald Dags verði framvegis skuldfært mánaðarlega á greiðslukort mitt. Kortnr.: Gildir út: Nafnnr.: Strandgötu 31 • Sími 96-24222 ÁSKRIFANDI: HEIMILI:......... PÓSTNR,- STAÐUR: SlMI:............ UNDIRSKRIFT.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.