Dagur - 01.10.1988, Síða 7
leiklist
1. október 1988 - DAGUR - 7
Hinir ólíku vinir, William Carlos Williams (Theodór Júlíusson) og Ezra
Pound (Þráinn Karlsson) á góðri stundu. Mynd: GB
var þaö sýnt það ár í Nýlistasafn-
inu í Reykjavík. Það vakti mikla
athygli og var uppselt á allar sýn-
ingar sem leikhúsinu var unnt að
hafa á þeim takmarkaða tíma
sem það hafði safnið til afnota.
Egg-leikhúsinu hefur verið boðið
með Skjaldbökuna á ýmsar lista-
hátíðir um allan heim og hefur
verkið hvarvetna hlotið afbragðs
dóma og verið eftirsóttasti full-
trúi íslenskrar leiklistar á slíkum
hátíðum. Lilla Teatern í Helsinki
tók Skjaldbökuna til sýninga
1985 og bandarískir leikhúsmenn
hafa einnig sýnt verkinu áhuga.
í sýningu Leikfélags Akureyr-
ar fara helstu máttarstólpar leik-
félagsins, Theodór Júlíusson og
Þráinn Karlsson, með hlutverk
skáldanna. Theodór er hinn
heimakæri Williams en Þráinn
leikur Ezra Pound. Gaman verð-
ur að sjá þessa kappa saman á
sviðinu, báða í aðalhlutverkum.
Sem fyrr segir er Viðar Egg-
ertsson leikstjóri og er þetta
fyrsta verkefni hans sem slíkur
hjá Leikfélagi Akureyrar. Viðar
hefur hins vegar leikið í fjöl-
mörgum sýningum leikfélagsins á
undanförnum nítján árum.
Guðrún Svava Svavarsdóttir
hannar leikmynd og búninga og
er þetta fyrsta verkefni hennar
hjá LA. Hún hefur getið sér gott
orð fyrir verk sín í leikhúsum
landsins. Lárus H. Grímsson,
hinn kunni tónlistarmaður, samdi
tónlist við verkið og áhrifahljóð
sem eru veigamikill þáttur sýn-
ingarinnar. Lýsingu hannaði
Ingvar Björnsson. SS
setu til að sjá að Skjaldbakan
kemst þangað líka er að mörgu
leyti óvenjulegt og hrífandi verk.
Vinátta tveggja
ólíkra manna
Skjaldbakan kemst þangað líka
segir frá bandarísku skáldunum
Ezra Pound og William Carlos
Williams. Leikritið greinir frá
ólíkum viðhorfum þeirra til lífs-
ins og starfsins og ekki síst segir
það frá ótrúlegri vináttu þeirra
sem stóð í 60 ár, þrátt fyrir marg-
háttaðar hremmingar.
Williams, sem er læknir og
skáld, skipti tíma sínum milli
þessara starfa og hann er sann-
færður um að læknirinn og skáld-
ið séu óaðgreinanlegir, geti ekki
hvor án annars verið. Hann taldi
að ef hann deildi kjörum sínum
með fólki, helst því smáa og um-
komulausa, þá myndi það gefa
skáldskap hans aukið gildi. Hann
bjó í smábæ allt sitt líf, starfaði
þar sem læknir, kappkostaði að
yrkja ljóð jafnt sem jörðina og
ást hans á heimahögunum gerði
þá að paradís á jörð.
Ezra Pound, vinur hans, tók
hins vegar aðra stefnu og vildi
kynnast öllu því sem hugsað
hafði verið og ort í heiminum til
þess að geta fellt það í einn ljóða-
bálk. Heimurinn var vettvangur
hans og hann festi hvergi rætur.
Ezra var á sífelldum ferðalögum
og drakk í sig andann á hverjum
stað. Á fjórða áratugnum fann
hann sér loks samastað; í
hugmynd. Sú hugrnynd var fas-
isminn. Hann fór að útvarpa
áróðri fyrir fasistana á Ítalíu til
Bandaríkjanna í seinni heims-
styrjöldinni.
Ezra Pound var eitthvert
merkasta ljóðskáld þessarar
aldar. Fyrir áróður sinn var hann
kærður fyrir landráð og til stóð
að dæma hann til dauða. Pað
kom í hlut Williams að verja
hann, þótt ekki gæti hann varið
skoðanir hans. Þessi átök eru
þungamiðja leikritsins.
Sigurför Skjaldbökunnar
Árni Ibsen skrifaði leikritið
Skjaldbakan kemst þangað líka
árið 1984 fyrir Egg-leikhúsið og
Næstkomandi föstudagskvöld,
7. október, frumsýnir Leikfé-
lag Akureyrar leikritiö Skjald-
bakan kemst þangaö líka, eftir
Arna Ibsen. Þessi frumsýning
markar að mörgu leyti tíma-
mót; hún er fyrsta frumsýning
LA á þessu leikári, fyrsta verk-
efni Viðars Eggertssonar sem
leikstjóra hjá Leikfélagi Akur-
eyrar og fyrsta verkið undir
handleiðslu Arnórs Benónýs-
sonar leikhússtjóra.
Þeir Viðar og Arnór þekkja
báðir vel til leikritsins því þeir
stilltu saman strengi sína og léku
saman í uppfærslu Egg-leikhúss-
ins á Skjaldbökunni 1984. Þeir
eru sammála um ágæti verksins
og segja boðskap þess höfða sér-
staklega til landsbyggðarfólks.
Við brugðum okkur á æfingu
eitt kvöld í vikunni og myndirnar
hér á síðunni voru teknar við það
tækifæri. Ekki var búið að leggja
lokahönd á leikmynd og búninga
þannig að umgjörð myndanna
verður að taka með fyrirvara. En
innihald verksins var komið í
sinn búning og ekki þurfti langa
„Nei elskan, ég er ekki að skamma þig, en þú verður að skipta oftar á barn-
inu.“ Mynd: SS
Skjaldbakan komin
til Akureyrar
ÞÖ HEFIIR TIEKIFIERI
Tll U NÝTA ÞÍR
12 ÖRA REYNSLU
StRFRKRINGA
FJ ARFESTING AR -
FÉLAGSINS, ÞÍR AR
KOSTNADARLAUSU.
skrifstofu Fjárfest-
ingarfélagsins við Ráð-
hústorgið er Guðmundur B.
Guðmundsson til aðstoðar
við viðskiptavini félagsins,
bœði í sambandi við kaup
og sölu verðbréfa, ráð-
leggingar og upplýsingar
varðandi ávöxtun sparifjár,
söfnun lífeyris og fjár-
málaumsjón.
KJARABRÉF, MARKBRÉF,
TEKfUBRÉF, SKYNDIBRÉF,
NÝ SPARISKÍRTEINI RÍKIS-
SJÓÐS, ELDRI SPARI-
SKÍRTEINI, HLUTABRÉF,
ÖNNUR VERÐBRÉF, FRJÁLSI
LÍFEYRISSJÓÐURINN.
FJÁRFESriNGARFÉlAGÐ |
Ráðhústorgi 3, 600 Akureyri S (96) 25000 I
i98«: Kjarabréf 3,292 - Markbréf 1,730 - Tekjubréf 1,576 - Fjölþjóðabréf 1,268- Skyndibréf 1,013