Dagur - 01.10.1988, Page 11

Dagur - 01.10.1988, Page 11
1. október 1988 - DAGUR - 11 við kennslu skóla. Hvammshlíðar- Ákvað að ekki væri hægt að búa þarna „Við kunnum mjög vel við okkur í Noregi og má segja að ég hafi verið orðinn norskur í aðra ætt- ina. í byrjun var ég hálf mállaus og þegar ég hafði búið einn sól- arhring í Noregi var ég tvisvar búinn að lenda í vandræðum út af eldspýtum. Á Fornebu flug- velli þegar ég kom, bað ég um „tændstikker". Konan sem afgreiddi mig sagði: „Her i Norge kaller man det for fyrstikker!". Fyrsta árið bjó ég í bæ sem heitir Bryne rétt hjá Stavanger og þeg- ar ég var búinn með eldspýturnar fór ég í búð og bað auðvitað um fyrstikker. „Her kaller man det for stikkedáse," var svarið sem ég fékk. Þá féllust mér hendur. Búinn að vera í landinu einn sól- um vinnu, því ég vissi að hér væri verið að byggja nýtt mjólkursam- lag. Ég vissi líka að hér yrði mjög alhliða framleiðsla og yrði þar af leiðandi mjög skemmtilegt fram- leiðslutæknilega séð. Endaði það með því að ég var ráðinn sem framleiðslustjóri og gegndi því til 1982 að ég tók við starfi samlags- stjóra. Þegar við komum til Akureyrar þekktum við engan. Núna er orðið stórt vandamál fyrir mig að labba göngugötuna því ég þarf að heilsa svo mörgum og líklega tala ég svo mikið að þeir sleppa ekki frá mér! Ég er því fyrir mína hönd búinn að rota söguna sem segir að erfitt sé að kynnast Akureyringum." Eftir að Inga og Þórarinn komu heim, fæddist þeim fljótt sonur, en sá heitir Atli Sveinn og er 8 ára gamall. Tveimur árum seinna fæddist Kjartan Páll og þriðja barn þeirra er væntanlegt í heiminn í október. Þórarinn er greinilega liðtækur til margra hluta, en hér hengir hann upp þvott, greinilega með mestu ánægju. því að koma mér upp á senu ef skólaböll eða skemmtanir voru annars vegar.“ Ekki eins rauður og af var Iátið - Þú ert einn af fyrstu nemend- unum sem settust í „kommaskól- ann“ við Hamrahlíð? „Já, þetta var nokkuð merki- legur skóli. Ég var í 3. árgangi af þremur en samt var þetta heill menntaskóli. Ekki varð ég nú mikið var við að hann væri eins „rauður“ og af var látið. Fyrsta vorið voru t.d. kosningar um forseta skólafélagsins og stór- framsóknarmaðurinn Eiríkur Tómasson nú lögfræðingur, sigr- aði Stefán Unnsteinsson í þeim kosningum. Mér þótti rosalega gaman í MH, enda kynntist ég konunni minni þar. Hún heitir Inga Einarsdóttir, er úr Keflavík og var tveimur árum á eftir mér í skólanum. Strax eftir stúdents- próf hélt ég til framhaldsnáms í Noregi og hún var í „festu“ heima þangað til hún lauk prófi og kom út til mín.“ Inga og Þórarinn bjuggu í Nor- egi til ársins 1979. Hann nam mjólkurverkfræði við Landbún- aðarháskólann að Ási, en þar hafa margir íslendingar numið í gegnum árin. Inga fór í fóstru- nám, síðar sérnám og starfar nú arhring og fá þrjú orð yfir eld- spýtur. Ég ákvað að það væri ekki hægt að búa í þessu landi, en mér til mikillar huggunar voru nemendur með mér víðs vegar frá Noregi sem skildu jafn lítið, því Norðmenn tala margar mállýskur sem sumar eru mjög ólíkar. Ég ákvað því að prófa næstu viku og norskan kom mjög fljótt." - Hvernig líkaði ykkur við Norðmenn? „Þeir eru ágætir. Ætli þeir séu ekki meiri sveitamenn en við því íslendingar eru haldnir smá- þjóðaminnimáttarkennd sem brýst út í því, að við erum alltaf að kaupa okkur hamingjuna. Norðmenn eru ekki eins slæmir í því og við. Þeir eru hins vegar alveg sömu lífsgæðakapphlaups- menn og við. Þeirra lífsgæði fel- ast í að eiga fjallakofa, strand- kofa og bát en við leggjum meira í eitt heimili af veðurfarslegum ástæðum. Þá eru Norðmenn smámunasamari, t.d. ferðu ekki í heimsókn til fólks nema að hafa tilkynnt þig á undan og það fór dálítið í taugarnar á mér.“ Stórt vandamál að labba göngugötuna - Þið flytjið heim og farið til Akureyrar, hvernig stóð á því? „Ég skrifaði til KEA og sótti Á veturna sést fjölskyldan gjarnan á skíðum í Hlíðarfjalli. Áuk þess má oft sjá feðgana sam- an á íþróttaleikjum, bæði á Akureyrarvelli og í íþróttahöll- inni. Börnin hafa greinilega erft íþróttaáhugann enda segir Þórar- inn að léttar snatt-íþróttir séu leyfðar í kjallaranum og það ein af ástæðunum fyrir því að flutt er í stærra hús. „íþróttirnar eru blanda af félagsskap og keppnis- anda. Félagsskapurinn er það skemmtilegasta og síðan er keppnin mjög skemmtileg á hvorn veginn sem leikur fer. Það er mikil vellíðan að skora mark sem liðið vinnur á eða að bjarga á línu á síðustu stundu." Gamalmennaíþrótt - Hverju svarar þú fólki sem finnst íþróttir ómerkar? „Ég held að fólk sem aldrei hefur verið í Jiópíþróttum, eða hópstarfi þar sem er samkeppni innan hópsins, en hann þarf samt að standa sem ein heild út á við, missi af miklu. Maður lærir mikið á þátttöku í íþróttum og ég held að þær séu mjög hollur undirbún- ingur fyrir lífið og tilveruna. Ég vona að þetta eldist ekki af mér þó að þetta verði sífellt erfiðara eftir því sem kílóin færast yfir.“ - Stundar þú einhverjar íþróttir? „Ég hef nú verið að dútla við „old-boys“ fótbolta og síðustu tvö ár hef ég verið að fikta við að spila golf sem ég áleit alltaf gam- almennaíþrótt og ekki hæfa mönnum fyrr en þeir væru að detta yfirum, en ég hef skipt um skoðun á því. Ætli ég sé ekki dálítll dellukarl og þess vegna hef ég ekki þorað að hella mér út í laxveiði og aldrei þorað að læra bridge. Ef ég byrja á einhverju finnst mér óþolandi að geta ekki klárað.“ - Hvernig eyðir þú tómstund- urn þínum? „Fyrir utan fjölskylduna, handbolta, golf og aðrar íþrótt- ir, er ég að vasast í pólitík og öðr- um félagsmálum. Svo hef ég stað- ið í húsbyggingum og lagfæring- um. Nú, á meðan maður á vini og kunningja sem nenna að tala við mann, verður frítíminn ekkert vandamál.“ Skapmikill en geögóður Þegar rætt er við Þórarin, er greinilega stutt í grínistann. Strákslegur hlátur er aldrei langt undan og það er erfitt að ímynda sér hann sem virðulegan stjórn- anda fjölda fólks. En er hann skapmikill? Kann hann að reið- ast? „Já, ég held að ég sé skapmikill en frekar geðgóður, þótt sjálfsagt verði ég leiður og fúll annað slag- ið eins og flest fólk. Auðvitað kann ég að vera reiður, en það stendur sem betur fer aldrei lengi yfir. Ég vona að ég hafi það mikla stjórn á skapi mínu að ég verði ekki reiður að tilefnislausu. Annars er betra að spyrja aðra um skapgerðina, t.d. konuna.“ - Eru samskipti við fólk þér mikilvæg? „Já mjög og mér þykja þau mjög skemmtileg. Fólk er eins misjafnt og það er margt. Mér þykir t.d. skemmtilegt að spá í það, að sama hlut þarf e.t.v. að segja. á þúsund mismunandi vegu, eftir því við hvern maður er að tala. Eitt það skemmtileg- asta við starf mitt eru samskiptin við fólk, bæði starfsfólkið innan- húss, samstarfsmenn innan kaupfélagsins og bændur í kring. Tengslin út í sveitirnar eru mjög heillandi. Mér finnst yfirleitt mjög gaman að fólki og þykir oft leiðinlegt að geta ekki haft gott samband við eins marga og ég vil.“ Nafli alheimsins - Hvað er það sem þér þykir vera virkilega huggulegar stundir? „Það fer eftir aðstæðum, t.d. eftir erilsama vinnuviku, á föstu- dags- eða laugardagskvöldi er mjög notalegt að borða góðan mat með fjölskyldunni, eða hitta góða vini. Við hjónin erum mikið fyrir svona uppákomur, sérstak- lega eftir að strákarnir okkar fóru að eldast." - Að lokum, eruð þið komin til Akureyrar til þess að vera? „Já, við kunnum mjög vel við okkur hér þó svo að við höfum engan þekkt þegar við komum. Það er alveg á hreinu að Akur- eyri er nafli alheimsins eins og allir staðir sem maður er og kann vel við sig á. En þó svo að við séum mjög ánægð með að búa hérna, er ég ekki búinn að panta lóð í kirkjugarðinum. Ég útiloka ekki að ég eigi eftir að flytja eitthvað annað, en ég þyrfti að sjá fram á að þar yrði ekki verra en hér. Ég geri mér grein fyrir að það eru margir aðrir staðir á jarð- arkringlunni sem eru góðir líka.“ Texti: VG Myndir: TLV

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.