Dagur - 01.10.1988, Qupperneq 12
12 - DAGUR-— 1, október 1988
poppsíðan
Kim Larsen er
ekki ný bóla
- skandinavísk tónlist svelt á íslandi
Danska poppgoðiö Kim Larsen
er á leið til íslands. Það hefur
ekki farið fram hjá neinum, nema
kannski þeim sem búa utan höf-
uðborgarsvæðisins og eru
dæmdir til að verða undir í bar-
áttunni um miöa á tónleika
goðsins. Landsbyggðarfólk fær
þó nasaþefinn af Larsen í útvarp-
inu því skyndilega eru útvarps-
stöðvarnar farnar að spila lög
með honum, rétt eins og hann
væri einhver ný bóla.
Kim Larsen er gamall í hett-
unni, gerði garðinn frægan fyrir
áratugum með hljómsveitinni
Gasolin og hefur síðan átt ein-
stökum vinsældum að fagna,
bæði einn og með hljómsveit
sinni Bellami. Larsen hefur verið
einn alvinsælasti tónlistarmaður
á Norðurlöndum í svo langan
tíma að það er óskiljanlegt
hvernig hann hefur getað farið
fram hjá íslendingum.
Skýringanna hlýtur að vera að
leita hjá þeim sem stjórna tónlist-
arsmekk íslendinga og kaupa inn
plötur. Skandinavísktónlist hefur
ekki átt upp á pallborðið hjá þeim
og þar með hafa íslendingar
misst af miklu. Fyrir utan Kim
Larsen má auðvitað nefna háð-
fuglana í Shubidua, Gnags og
hina frábæru Anne Linnet, en
plötur þessara dönsku tónlist-
armanna myndu sóma sér vel á
íslenskum heimilum.
Þeir sem hafa ferðast til
Norðurlandanna hafa uppgötvað
marga frábæra tónlistarmenn.
Sænska baráttuskáldið Björn
Afzelius trónir þar á toppnum að
mínu mati og Imperiet var ekki
svo galin hljómsveit. Því miöur
hefur það ætíð kostað tíma, fé
og fyrirhöfn að fá plötur með tón-
listarmönnum frá Norðurlöndun-
um, meira að segja þekktum
tónlistarmönnum, en ég vona að
breyting verði á með komu Kim
Larsens. Þar er á ferðinni náungi
sem brúar kynslóðabilið, virki-
lega skemmtilegur listamaður.
SS
Íbú5 óskast!
Oskum eftir að taka á leigu sem allra fyrst 2-3ja
herb.íbúð.
Fyrirframgreiðsla ef óskað er.
Upplýsingar hjá starfsmannastjóra í síma 21900
(220). y
s
Alafoss hf., Akureyri.
Frá menntamálaráðuneytinu
ffS Lausar stöður
við framhaldsskóla
Að Fjölbrautaskóla Suðurnesja vantar tónmennta-
kennara í stundakennslu til að sinna kórstjórn.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf
sendist skólameistara Fjölbrautaskóla Suðurnesja, fyrir
15. október nk.
Menntamálaráðuneytið.
I FRAMSÓKNARMENN ||Íl
IIII AKUREYRI 1111
Bæjarmálafundur
verður mánudaginn 3. október kl. 20.30 í Hafnarstræti 90.
Dagskrá næsta bæjarstjórnarfundar rædd.
Önnur mál.
Félagar fjölmennið. Stjórnin.
Móðir okkar, fósturmóðir og tengdamóðir,
BJÖRG HALLGRÍMSDÓTTIR,
Dvalarheimilinu Hlíð,
áður til heimilis að Helgamagrastræti 30, Akureyri,
sem lést 25. september, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju
þriðjudaginn 4. október kl. 13.30.
Guðrún Svava Bjarnadóttir, Ásgrímur Pálsson,
Nanna Kristín Bjarnadóttir, Konráð Árnason,
Björg Ólafsdóttir, Jósef Kristjánsson.
Umsjón: Valur Sæmundsson.
Forklædt som voksen er ein besta plata Kim Larsens. Þessi plata var að sjálfsögðu keypt í Danmörku því plötukaup-
menn á Islandi þekkja aðeins tvö lönd fyrir utan heimalandið. Hvaða lönd skyldu það vera?
Ozzy Osboume
- í fullu fjöri
Molar og mylsna
Heyrst hefur að Þursaflokkurinn
ætli að koma saman á nýjan leik.
Þetta eru góð tíðindi fyrir
íslenska poppáhugamenn, enda
var Þursaflokkurinn ein allra
besta hljómsveit sem fæðst hef-
ur á Klakanum. Þeir voru víst
búnir að bóka tónleika á Hótel
íslandi í október en þeim hefur
verið frestað. Langþráð plata
með snillingunum kemur vænt-
anlega út fyrir jól.
Kim Larsen er að gera allt
vitlaust á íslandi, löngu áður en
hann er væntanlegur til landsins.
Nú mun vera hér um bil uppselt á
alla tónleika hans á Hótel Islandi
í nóvember og landsbyggðarfólk
veit ekki í hvorn fótinn það á að
stíga. Sitja allir við sama borð?
Við viljum Kim Larsen út á land.
Snúm okkur þá til útlanda.
David Byrne söngvari Talking
Heads, hefur samið tónlist við
myndina Married to the Mob, en
þar eru Ellen Foley og David
Johansen meðal leikenda.
Ef einhver man eftir rokkabillí-
hljómsveitinni Stray Cats þá get-
um við Ijóstrað því upp að hún
var á sex vikna hljómleikaferða-
lagi um Bandaríkin nýverið og
fer í hljóðver á næstunni með
Dave Edmunds við stjórnvölinn.
Út er komin ný plata með
hljómsveitinni Bad Company en
tvö ár eru liðin frá síðustu plötu
sveitarinnar. Gripurinn ber nafn-
ið Dangerous Ace og inniheldur
tíu splunkuný lög.
Bon Jovi gáfu út „instrument-
al“ lag á dögunum sem ber nafn-
ið Dirty Fingers. Þetta lag er það
fyrsta sem þeir hafa hljóðritað
sfðan metsöluplatan Slippery
when wet kom út og á að nota
það í rokkþætti hjá bandarískri
útvarpsstöð.
Ef þið eigið leið um Bandaríkin
í haust þá skuluð þið skella ykk-
ur á tónleika með gamla mannin-
um Ozzy Osbourne. Tónleikaferð
hans hefst 29. október í Omaha
og lýkur 11. nóvember í
Pittsburgh. Hljómsveitin Anthrax
hitar upp fyrir kappann.
Ozzy Osbourne, fyrrum söngvari
Black Sabbath, hefur verið í eld-
línunni í tvo áratugi. Úr smiðju
hans hafa komið mörg af eftir-
minnilegustu lögum þungarokks-
ins, s.s. Paranoid, Iron Man og
Flying High Again. Enginn vafi
leikur á því að gamli maðurinn
hefur verið brautryðjandi á sínu
sviði og margir yngri þungarokk-
arar hafa tekið hann sér til fyrir-
myndar. Þá á ég við tónlistina,
því lífernið hefur alls ekki verið
eins og best verður á kosið og
síst til eftirbreytni.
Framlag hans til tónlistar-
heimsins hefur gjarnan fallið i
skuggann af umræddu líferni.
Barátta hans við alkóhólisma,
lagaerjur í kjölfar mistúlkunar á
lagi hans Suicide Solution og
vafasöm tiltæki á borð við það að
bíta höfuðið af lifandi leðurblök-
um á sviði, hafa varpað skugga á
þennan ágæta laga- og texta-
smið.
Sólóferill Ozzys hefur verið
nokkuð skrykkjóttur vegna
mannabreytinga í hljómsveit
hans; gítarleikarinn Randy
Rhoads lést árið 1982 og Jake E.
Lee yfirgaf skútuna 1987, en nú
er gamli maðurinn kominn á fulla
ferð með nýrri hljómsveit. Zakk
Wylde, Geezer Butler og Randy
Castillo hafa gengið til liðs við
Ozzy á nýju plötunni No Rest For
The Wicked. SS