Dagur - 01.10.1988, Síða 20
Snvrtivörur í úrvali - Okkar merki - Snyrtivörur í úrvali
Akureyri:
Súlan aflient nýjum
eigendum í dag
í dag verða undirritaðir samn-
ingar um sölu Súlunnar EA
300, en hlutafélag í eigu þeirra
Sverris Leóssonar, Bjarna
Bjarnasonar og Finns Kjart-
anssonar, kaupir skipið fyrir
140 milljónir króna.
Sverrir Leósson var lengi
útgerðarstjóri skipsins meðan
það var •' eigu Leós Sigurðssonar,
útgerðarmanns á Akureyri.
Bjarni Bjarnason hefur verið
skipstjóri á Súlunni undanfarin ár
og Finnur Kjartansson er yfirvél-
stjóri á skipinu. Hlutafélag nýju
eigendanna heitir Súlan hf. en
hlutafélag Leós Sigurðssonar
heitir Súlur hf.
í kaupverði skipsins, 140 millj-
ónum, eru loðnu-, síldar- og tog-
veiðarfæri innifalin. Skipið verð-
ur áfram gert út frá Akureyri og
hefur Akureyrarbær veitt bæjar-
ábyrgð vegna kaupanna.
Leó Sigurðsson stofnaði Súlur
hf. árið 1958 um skipið Sigurð
Bjarnason. Allt frá þeim tíma
hefur félagið rekið útgerð frá
Akureyri og skipið sem nú er selt
er hið þriðja sem ber nafnið Súl-
an.
Súlan EA 300 mun halda til
loðnuveiða um miðja næstu viku
og stunda þær væntanlega þar til í
mars á næsta ári. Eftir að loðnu-
vertíð lýkur mun skipið halda til
rækju- og þorskveiða. EHB
Verkalýðsfélagið Eining:
Engir útiendingar
til K. Jónssonar
Verkalýðsfélagiö Eining hafn-
aði umsókn K. Jónssonar &
Co. á Akureyri um leyfi til að
ráða nokkra útlendinga til
starfa við verksmiðjuna í
vetur. Niðursuðverksmiðjan
sótti um leyfið um miðjan sept-
ember, þar sem fyrirsjáanlegt
var að ef ekki tækist að manna
verksmiðjuna myndi hún eiga í
erfiðleikum með að vinna upp
í stóra samninga.
Umsókn K. Jónssonar um leyfi
til handa útlendingum til starfa á
félagssvæðinu var hafnað á þeirri
forsendu að ekki væri verjandi að
veita slíkt leyfi eins og sakir
standa. Allt benti til þess að
minni eftirspurn yrði eftir vinnu-
afli nú á næstunni en verið hefur.
A félagssvæði Einingar er þegar
komið fram atvinnuleysi í Ölafs-
firði, þar sem fjölmargir eru á
atvinnuleysisskrá. Þá eru upp-
sagnir yfirvofandi víðar á svæð-
inu.
Sævar Frímannsson formaður
Einingar segir stjórnina tilbúna
til að athuga sérstaklega hvort
möguleikar séu á að fá starfsfólk
af félagssvæðinu utan Akureyrar
til starfa hjá verksmiðjunni. „Við
teljum að reyna eigi þá leið til
þrautar áður en aðrar ráðstafanir
eru gerðar,“ sagði Sævar.
Formlegar viðræður hafa ekki
farið fram á milli verkalýðsfélags-
ins annars vegar og K. Jónssonar
& Co. hins vegar um þetta mál.
Viðræður um ráðningarkjör, þ.e.
ferðir og uppihald fyrir það fólk
sem hugsanlega gæti kornið til
starfa í verksmiðjunni og er utan
Akureyrar fara fram eftir helg-
ina. mþþ
Akureyri:
Stympingar í Miðbænum
- eftir misheppnaðan dansleik
Löggæslumenn á Akureyri
þurftu að skerast í leikinn á
skemmtistaðnum Zebra á
Akureyri í fyrrakvöld, en þar
hafði verið auglýstur dansleik-
ur fyrir unglinga í 9. bekk
grunnskóla.
Þá var þessa sömu nótt, enn
ein rúðan brotin í Lundarskóla
auk þess sem tvö götuljós við
Eikarlund voru brotin, en ekki er
ljóst hvort tengsl eru milli þess-
ara verknaða og óróans í Mið-
bænum. VG
Sverrir, Bjarni og Finnur, hinir nýju eigendur Súlunnar, taka formlega við
skipinu í dag. Mynd: ehb
Akureyri:
MA settur
á morgun
Menntaskólinn á Akureyri
verður settur sunnudaginn 2.
október og hefst kennsla þegar
daginn eftir.
Skólasetningarathöfnin verður
með hefðbundnu sniði en hún er
alltaf haldin á Sal í gamla skóla-
húsinu. Jóhann Sigurjónsson,
skólameistari, sagði að nemend-
ur í dagskóla væru 560 og er það
nokkur aukning frá því á síðasta
skólaári. í öldungadeild munu 70
nemendur stunda nám í vetur.
___________________EHB
Skipulagsne&d
mælirmeðÁma
- í stöðu skipulagsstjóra
Á fundi Skipulagsnefndar
Akureyrarbæjar í gær voru
þær tvær umsóknir sem bárust
um stöðu skipulagsstjóra tekn-
ar til afgrciðslu.
Skipulagsnefnd var sammála
um að leggja til, að Árni Ólafs-
son arkitekt í Reykjavík verði
ráðinn í starfið. Hinn umsækj-
andinn var Sveinn Brynjólfsson
arkitekt, starfsmaður hjá skipu-
lagsstjóra.
Bókun skipulagsnefndar kem-
ur væntanlega til afgreiðslu
bæjarstjórnar á næsta fundi, sem
verður á þriðjudag. VG
Uggur í
Eyjaqarðarsvæðið:
kartöflubændum
slæmrar tíðar
vegna
Vegna slæmrar tíðar upp á síð-
kastið, er nokkur uggur í kart-
öflubændum á Eyjafjarðar-
svæðinu varðandi uppskeru.
Vitað er til þess að bændur
hafi þurft að moka sig gegnum
snjó niður í garðana allt að 20
cm og ef tíðin batnar ekki, má
búast við töluverðu tjóni.
Strax í upphafi vertíðar var
ljóst, að uppskera yrði misjafn-
lega góð frá einum garði til
annars. Ólafur G. Vagnsson
ráðunautur BSE sagði að þá hafi
verið reiknað með að hún yrði
allt frá því að vera góð í að vera
léleg. „í heild má segja að gert
hafi verið ráð fyrir að uppskera
yrði í slöku meðallagi."
Hann sagði að alltaf skemmd-
ist eitthvað af kartöflum vegna
frosta. Nú séu auk frostsins, víða
mjög blautir garðar og gæti þurft
góðan þurrk svo hægt verði að
fara um þá. „Ég held nú að enn
hafi ekki frosið nema rétt skánin,
en auðvitað er alltaf eitthvað af
karföflum sem eru nánast í yfir-
borðinu og það er erfitt að flokka
þær frá og útiloka þegar tekið er
upp með vélum. Þær lenda því
saman við aðrar kartöflur,
skemma síðan út frá sér þegar
líður á veturinn ef þær eru ekki
tíndar frá og geta valdið tölu-
verðu tjóni. Það er þó ekki
ástæða til að taka mjög djúpt í
árinni enn, því einn hlýr dagur og
nokkurra daga stillur gætu bjarg-
að þessu.“
Ólafur sagði, að samkvæmt því
sem hann kæmist næst, væri sem
betur fer meirihluti bænda kom-
inn mjög langt með upptöku, en
langflestir ættu eitthvað eftir.
Ef ekki þornar fljótlega gæti horft
til vandræða, jafnvel svo að
bændur nái alls ekki upp úr görð-
unum. „Þá gæti orðið um mikið
tjón að ræða ef það sem eftir er,
lenti alfarið undir snjó.“ VG
Dagur:
Breytingar
á ritstjóm
Nokkrar breytingar verða á rit-
stjórn Dags frá og með þessu
blaði, eins og áður hefur verið
greint frá.
Austur-Húnavatnssýsla:
Þrjú ný riðutilfelli í haust
Vegna haustþings BKNE var
gefið frí í skólum í gær og ætluðu
unglingarnir því að skemmta sér
af því tilefni. Þarsem nemendur í
9. bekk eru flestir undir 16 ára
aldri og hafa ekki leyfi til þess að
vera inni á vínveitingahúsum,
vísuðu löggæslumenn öllum þeim
sem voru undir lögaldri, út úr
húsinu. Dansleikurinn leystist
upp og skapaðist nokkur órói
vegna þessa, einkum þar sem
krakkarnir fengu aðgangseyri
ekki greiddan til baka. Ungling-
arnir skeyttu skapi sínu m.a. á
lögreglunni og nokkrir voru
kærðir.
Ákveðið hefur verið að sauðfé
verði skorið niður á þremur
bæjum í Austur-Húnavatns-
sýslu vegna riðuveiki á þessu
hausti. Þar af er einn bær þar
sem riðunnar varð fyrst vart á
sl. vori.
Nú í haust hefur riða komið
upp á þremur bæjum til viðbótar
en að sögn Sigurðar H. Péturs-
sonar, héraðsdýralæknis hefur
landbúnaðarráðuneytið ekki
tekið ákvörðun um niðurskurð á
þeim bæjum ennþá og eftir er að
semja um bætur til bændanna ef
til niðurskurðar kemur. Sigurður
sagði að mun kostnaðarsamara
yrði að skera niður hjarðir bænda
sem hefðu heyjað í sumar í þeirri
trú að þeir væru með ósýkt fé því
þá yrði að bæta þeim heyin líka.
Hann sagði að sama staða væri
á Akri hjá Pálrna Jónssyni,
alþingismanni. Landbúnaðar-
ráðuneytið hefði ekki tekið
ákvörðun um niðurskurð á fé
Pálma og hann hefði þess vegna
heyjað í sumar. fh
Áskell Þórisson lætur af starfi
ritstjóra blaðsins, sem hann hefur
gegnt ásamt Braga V. Bergmann
frá því um mitt síðasta ár, og hef-
ur störf sem blaðafulltrúi Kaup-
félags Eyfirðinga.
Bragi V. Bergmann verður nú
einn ritstjóri blaðsins. Frá sama
tíma tekur Kristján Kristjánsson
við starfi fréttastjóra, en Kristján
hefur starfað sem blaðamaður á
Degi um nokkurra ára skeið. Þá
mun Stefán Sæmundsson blaða-
maður hafa urnsjón með Helg-
arblaði Dags frá sama tíma.
Ritstj.