Dagur


Dagur - 22.11.1988, Qupperneq 6

Dagur - 22.11.1988, Qupperneq 6
V - aUOA.a - am '.odmsvdn .S< 6 - DAGUR - 22. nóvember 1988 Iðntæknistofnun íslands: Þemadagar í plastiðnaöi í þessum mánuði býður Iðn- tæknistofnun íslands til þema- daga þar sem fjallað er um sameiginleg málefni nokkurra iðngreina. Þeirri spurningu hvort rekstur fyrirtækja sé dans á rósum er ekki beint svarað en engu að síður varpa slíkir dagar Ijósi á þau víti sem hægt er að varast í rekstri fyrir- tækja og hugsanlega fá for- svarsmenn fyrirtækjanna ein- hverjar hugmyndir að aflokn- um slíkum fræðsludögum um atriði scm betur mættu fara í þeirra eigin fyrirtækjum. Á þessum þemadögum hittast fulltrúar frá ýmsum fyrirtækj- um innan sömu iðngreinar, fræðast um sameiginleg málefni og skiptast á skoðun- um. Síðastliðinn fimmtudag var haldinn þemadagur í plast- iðnaði og var þema dagsins: Vöruþróun - markaðssókn - sjálfvirkni. Um þessi þema fluttu erindi þeir Sigurður Jóhannsson, framkvæmda- stjóri Plasteinangrunar á Akureyri, Kristinn Halldórs- son, framkvæmdastjóri Stjörnusteins í Hafnariirði og Gestur Bárðarson, verkfræð- ingur í Hampiðjunni í Reykja- vík. Lærðum okkar lexíu Sigurður Jóhannsson, fram- kvæmdastjóri Plasteinangrunar á Akureyri, rakti í máli sínu athug- anir sem fyrirtækið hefur verið að gera á framleiðslu á plasttunnum og þau vandamál sem upp hafa komið í undirbúningi að þessari framleiðslu. Hann lýsti ferlinum allt frá því ákveðið var í fyrirtæk- inu að kanna þessa framleiðslu og til þess að vélar voru keyptar og byrjað að framleiða. Eftir að smíðuð höfðu verið mót erlendis var byrjað að fram- leiða í þeirri vél sem keypt hafði verið frá Þýskalandi. Þá kom í ljós að vélin reyndist ekki vera gerð fyrir svo mikið skotmagn af plasti sem krafist er hér heima og því ónothæf til framleiðslunnar. Eftir strangar viðræður við fram- leiðandann í Þýskalandi gekkst hann inn á að Plasteinangrun fengi nýja vél, betri og afkasta- meiri, en gamla vélin yrði tekin til baka og reynt að selja hana. Nú í haust verður nýja vélin prufukeyrð í Pýskalandi áður en hún verður flutt hingað heim þannig að allt verði í Iagi þegar hefja á framleiðslu á tunnunum hér heima. „Við höfum orðið að bera fjár- festingu og alls konar kostnað á þessu tímabili. En við sjáum fram úr því og eygjum nú mögu- leikann á að geta hafið fram- leiðsluna. Petta er okkar litla saga af því hvernig illa getur tekist til. Við höfum lært mikið og ég held að hvað sem við gerum í framtíðinni þá munum við standa öðruvísi að málum,“ sagði Sigurður Jóhanns- son í erindi sínu um vöruþróun. Hvað er fjárhagsleg endurskipulagning? Pessa dagana er mikið talað um slæma fjárhagsstöðu margra fyrirtækja í landinu. Á slíkum tímum koma upp aðstæður hjá fyrirtækjum þar sem standa þarf frammi fyrir ákvörðunum um fjárhagslega endurskipulagningu. Kristinn Halldórsson, fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins Stjörnusteins í Hafnarfirði, flutti erindi á þemadegi í plastiðnaði þar sem hann fjallaði um fjár- hagslega endurskipulagningu fyrirtækja og sagði m.a.: „Þegar menn tala um fjárhags- lega endurskipulagningu fyrir- tækja þá er yfirleitt þrennt sem haft er í huga. Pað er að taka lán, selja eignir eða auka hlulafé. Ástæður fyrir nauðsyn á fjárhags- legri endurskipulagningar eru bull- andi taprekstur, endurnýjun véla og búnaðar eða stækkun fyrir- tækis en í dag er viðvarandi tap- rekstur algengasta orsök fyrir nauðsyn á fjárhagslegri endur- skipulagningu,“ sagði Kristinn. Kristinn rakti í erindi sínu hvernig fjárhagsleg endurskipu- lagning fór fram hjá hans eigin fyrirtæki í Hafnarfirði en Stjörnusteinn framleiðir frauð- plastkassa sem hugsaðir eru fyrir útflutning á ferskfiski og þá fyrst og fremst var horft til útflutnings á laxi. Fyrirtækið var stofnað árið 1984 en á þeim tíma var mikið rætt um að flytja út unnin fiskflök á heildsölu- og jafnvel á smásölu- markað erlendis. Á þeim for- senduin varð Stjörnusteinn til. En margt fer öðruvísi en ætlað er, því kynntust þeir Stjörnusteinsmenn. „Þegar fyrirtækið var skammt komið af stað urðu miklar breyt- ingar á markaðinum og á menn rann eitthvert gámaæði. Raun- verulega var öll undirbúnings- vinna lögð á hilluna og t.d. höfð- um við lagt mikla vinnu og fé í að undirbúa í samvinnu við aðra út- flutning á unnum, ferskum fisk- flökum en þessu var öllu ruslað út af borðinu í einu vetfangi enda augljóst að fiskkaupendur vildu miklu heldur kaupa hráefn- ið í Hull og Grimsby heldur en vera að bíða eftir því unnu frá íslandi. Þetta leiddi af sér að fyrirtækið lenti í kreppu, þarna hafði brostið ein af þeim stoðum sem fleyta átti fyrirtækinu fram að þeim tíma sem við gætum far- ið að stunda héðan útflutning á laxi. Ekki var sjáanlegt að á þess- um tíma væri í önnur verkefni að grípa, okkur vantaði tíma en fyrirtækið var byggt upp úr mat- arpeningum okkar sjálfra og hafði því ekki mikið tapþol," sagði Kristinn. Kristinn Halldórsson útskýrir fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækja fyrir fundarniönniim. Myndir: JÓH Betra að eiga eitthvað í einhverju en 100% í engu! Kristinn sagði í erindi sínu að þegar út í fjárhagslega endur- skipulagningu var komið hafi komið í ljós að skipta mátti þeim aðilum í þrennt sem áhuga höfðu á að koma inn í fyrirtækið. í fyrsta lagi hafi verið um að ræða menn sem vildu kaupa sig inn í fyrirtækið og fá þar atvinnu, í öðru lagi menn sem voru tilbúnir að leggja fram fé en gerðu mjög háa ávöxtunarkröfu og f þriðja lagi menn sem tilbúnir voru til að leggja fé í fyrirtækið með lang- tímasjónarmið í huga og voru jafnvel tilbúnir til að horfa upp á taprekstur um nokkurn tíma. „í sjálfu sér má segja að maður hafi ekki haft mikið val. Þegar fyrirtæki er illa farið fjárhagslega þá eru leiðirnar ekki margar en engu að síður tókst þannig til hjá okkur að við fengum inn þriðja aðila sem hafði það að markmiði að styrkja fyrirtækið til að kom- ast yfir ákveðna erfiðleika án þess að gera miklar kröfur um arð. Þegar að þessum punkti er komið í fjárhagslegri endurskipu- lagningu verður oft erfiður þröskuldur í veginum, nefnilega spurningin um hvernig meta eigi framlag þeirra sem áttu fyrirtæk- ið áður á móti nýjum framlögum í ljósi efnahagsreiknings fyrirtæk- Fundarmenn á Þemadegi Iöntæknistofnunar í plastiðnaði — --. ■ Gestur Bárðarson, verkfræðingur í Hampiðjunni, kynnir framtíðarmöguleika á sjálfvirkni í plastiðnaði. is með öfugt eigið fé. Okkur tókst að ganga frá þessu atriði svo allir væru sáttir. Síðan þá höfum við oft fengið þau viðbrögð frá mönnum að við höfum gefið fyrirtækið okkar en þessu er ég ekki sammála. Ég er á þeirri skoðun, eftir að hafa rætt þessi mál mikið, að þetta viðhorf sem menn ganga fyrirfram með í sambandi við endurskipulagningu af þessu tagi sé einhver erfiðasti þröskuldur sem menn setja fyrir sig til að fara inn í fyrirtæki. Þó að það megi til sanns vegar færa að menn láti frá sér sína drauma og vonir um hagnað og velferð þá er rétt að staldra við og hugleiða hvort ekki sé betra að eiga eitt- hvað í einhverju en 100% í engu,“ sagði Kristinn. I máli Kristins kom fram að miklu máli skiptir hvernig sá nýi aðili er sem kemur inn í fyrirtæki. Því skipti miklu hvernig ný stjórn

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.