Dagur - 22.11.1988, Qupperneq 12
12 - DAGUR - 221 nóvember 1988
íþróttir
Vafasamt víti kostaði
- Arsenal á mikilli siglingu - Liverpool nálgast toppinn
Tottenham hóf sig af botni 1.
deildar á sunnudag er liðið
sigraði Sheffield Wed. á úti-
velli í leik sem var sjónvarpað
á Bretlandi. Aðstæður voru
slæmar til að leika knatt-
spvrnu, fyrsti snjór vetrarins
féll á Englandi á sunnudag og
var völlurinn þakinn snjó.
Leikurinn bar þess vitni, fyrra
mark Tottenham 11 mín. fyrir
leikslok kom er Chris Fairclough
sendi boltann inn fyrir vörn
Sheffield, boltinn stöðvaðist í
snjónum á vítateig þar sem mark-
vörður Sheffield, Chris Turner,
reyndi að hreinsa frá, en spyrna
Paul Merson skoraði tvö mörk fyrir
Arsenal gegn Middlesbrough.
hans lenti í Paul Stewart og það-
an í netið. Stewart var aftur á
ferðinni 4 mín. síðar með sitt
annað mark í leiknum og tryggði
þar með Tottenham öll stigin.
Greinilegt er að lið Tottenham er
að sækja í sig veðrið og þeir Chris
Waddle og Paul Gascoigne léku
mjög vel. Lið Sheffield var slakt í
leiknum og hafði Bobby Mimms í
marki Tottenham lítið að gera,
en hann hefur verið mjög
umdeildur að undanförnu og nú
hefur gamla kempan Ray Clem-
ence hafið æfingar að nýju eftir
að hafa orðið að hætta vegna
meiðsla. Þá er Valsarinn Guðni
Bergsson nú hjá Tottenham til
reynslu og getur svo farið að
hann gerist leikmaður hjá Tott-
enham.
George Graham framkvæmda-
Úrslit 1. deild
A rscnal-Middleshrough 3:0
Aston Villa-Derby 1:2
Everton-Norwich 1:1
Luton-West Ham 4:1
Man. Utd.-Southampton 2:2
Millwall-Newcastle 4:0
Nottingham For.-Coventry 0:0
Q.P.R.-Liverpool 0:1
ShefTield 3Ved.-Tottenham 0:2
Wimbledon-Charlton 1:1
2. deild
Boumemouth-Man. City 0:1
Bradford-Chelsea 2:2
Crystal Palace-Leicester 4:2
Hull City-Birmingham 1:1
Ipswich-Brighton 2:3
Oldham-Leeds Utd. 2:2
Oxford-Plymouth 0:1
Portsmouth-Barnslcy 3:0
Shrewsbury-Watford 1:1
Stoke City-Swindon 2:1
Sunderland-W.B.A. 1:1
Walsall-Blackburn 1:2
stjóri Arsenal var í miklum vafa
fyrir leik liðsins gegn Middles-
brough hvern hann ætti að velja í
framlínuna við hlið Alan Smith.
Perry Groves, Martin Hayes og
Paul Merson komu allir til
greina, en hann valdi að lokum
Paul Merson og hann olli fram-
kvæmdastjóra sínum ekki von-
brigðum, því hann skoraði tvö
mörk í leiknum. Það fyrra eftir
hornspyrnu Brian Marwood í
fyrri hálfleik og síðan eftir hlé
með þrumuskoti eftir að mark-
vörður Boro hafði misst frá sér
boltann. David Rocastle bætti
þriðja marki Arsenal við rétt í
lokin, en liðið hafði mikla yfir-
burði í leiknum og er gífurlega
sterkt um þessar mundir og
margir sem spá liðinu Englands-
meistaratitli þegar upp verður
staðið í vor.
Á meðan Arsenal rúllaði yfir
Middlesbrough tapaði Norwich
sínu fyrsta stigi á útivelli í vetur
gegn Everton og nú er forskot
liðsins á Arsenal aðeins tvö stig.
Norwich virtist þó ætla að halda
sigurgöngu sinni á útivelli áfram
því liðið tók forystu á 62. mín. er
Malcolm Allen skallaði glæsilega
í mark eftir sendingu Dale
Gordon. Liðið lék mjög vel og
Neville Southall í marki Everton
hafði haldið liði sínu á floti með
mjög góðri markvörslu. En 16
mín. fyrir leikslok jafnaði Trevor
Steven fyrir Everton með marki
úr mjög umdeildri vítaspyrnu
sem dæmd var á Trevor Putney
fyrir brot á hægra bakverði
Everton, Ian Snodin. Það voru
þó flestir á því að Snodin hefði
dottið eftir að Putney hefði tekið
boltann af honum, en dómarinn
var viss í sinni sök. Mikið kapp
hljóp í leikmenn Everton eftir
markið, en Norwich hélt út.
Tony Cottee var mjög slakur í
liði Everton í leiknum sem mátti
þakka fyrir jafnteflið gegn
hinu skemmtilega liði Norwich
og athyglisvert er að 12 leikmenn
hafa skorað fyrir liðið sem sýnir
best hve samstillt liðið er.
Millwall fór upp í þriðja sætið
með stórsigri gegn Newcastle á
heimavelli. Newcastle keypti fyr-
ir helgi nýjan miðherja, Rob
McDonald frá PSV Eindhoven í
Hollandi og sá er varð að víkja úr
liðinu heldur þó sæti í landsliði
Brasilíu, sjálfur Mirandhinha.
McDonald barðist vel í leiknum,
en var bókaður auk þess sem
dæmt var af honum mark, en
búast má við því að hann láti
mikið að sér kveða í framtíðinni.
Newcastle átti þó ekki möguleika
gegn Millwall sem skoraði tvö
mörk í hvorum hálfleik og þurfti
lítið fyrir sigrinum að hafa. Alan
McCleary með viðstöðulausu
skoti og Terry Hurlock skoruðu í
fyrri hálfleik, en Tony Cascarino
og Kevin O’Callaghan bættu við
mörkum í þeim síðari.
Alex Ferguson sagði fyrir leik
Manchester Utd. sem hann
stjórnar, gegn Southampton á
Old Trafford að lið sitt yrði að
losna úr jafnteflunum ef liðið ætti
að hafa einhverja möguleika á
meistaratitlinum. En lið hans
gerði fjórða jafnteflið í röð og
fátt sem bendir til þess að Man.
Utd. blandi sér í baráttuna.
Southampton náði forystu strax á
6. mín. er Graham Baker lyfti
boltanum að marki Utd. og Jim
Leighton markvörður Utd. lét
knöttinn renna úr höndum sér í
netið, mikil mistök landsliðs-
markvarðar Skotlands. Bryan
Robson jafnaði þó fyrir Utd. á
17. mín. af miklu harðfylgi og
þegar Mark Hughes kom liðinu
Terry Hurlock skoraði eitt af mörkum Millwall gegn Newcastle.
Norwich sigur
- Fjögur lið efst og jöfn í 2. deild
yfir á 7. mín. síðari hálfleiks eftir
undirbúning Brian McClair
bjuggust flestir við að Utd. léti
kné fylgja kviði. Af því varð þó
ekki og Southampton tók leikinn
í sínar hendur, Matthew Le
Tissier jafnaði eftir sendingu frá
Danny Wallace á 70. mín. og
Southampton var nær sigri en
Utd. Leighton varði vel frá
Danny Wallace og Baker, en lið-
inu tókst ekki að knýja fram
sigur.
Liverpool sigraði Q.P.R. á úti-
velli með marki John Aldridge á
28. mín. Peter Beardsley braust
upp vinstri kantinn, sendi á Ian
Rush sem renndi fyrir á Aldridge
sem þrumaði boítanum upp í
þaknetið. Leikurinn góður og
Mike Hooper í marki Liverpool
varði oft vel.
Luton tókst loks að vinna leik
er liðið lagði West Ham að velli
útivelli gegn Hull City, Keith
Edwards jafnaði fyrir Hull City á
síðustu mín.
• Hinn mikli markaskorari
Tommy Tynan skoraði eina mark
leiksins fyrir Plymouth á útivelli
gegn Oxford.
• Ian Ormondroyd skoraði bæði
mörk Bradford í 2:2 jafntefli
gegn Chelsea.
• Philip Barber skoraði tvö af
mörkum Crystal Palace sem sigr-
aði Leicester 4:2.
• Leeds Utd. náði jafntefli gegn
Oldham á gervigrasinu þar,
Roger Palmer og Frankie Bunn
skoruðu mörk Oldham, en
Bobby Davison skoraði bæði
mörk Leeds Utd.
• Ekki var leikið í 3. og 4. deild
þar sem 1. umferð í FA-bikarn-
um fór fram um helgina. Wolves
er þar úr leik þar sem liðið tapaði
fyrir Grimsby. Þ.L.A.
John Aldridge skoraði sigurmark Liverpool gegn Q.P.R.
með fjórum mörkum gegn einu.
Kinsley Black skoraði tvívegis,
Roy Wegerle og Danny Wilson
sitt markið hvor, en Alvin Martin
gerði eina mark West Ham.
Aston Villa tapaði óvænt
heima gegn Derby og óttast nú
mjög að missa framkvæmda-
stjóra sinn Graham Taylor til
enska landsliðsins í stað Bobby
Robson sem virðist vera á síðasta
snúningi sem landsliðsþjálfari.
Derek Mountfield náði þó for-
ystu fyrir Villa, en Dean Saund-
ers jafnaði fyrir Derby og Paul
Goddard gerði síðan sigurmark
Derby í leiknum.
Robert Lee náði forystu fyrir
Charlton gegn Wimbledon, en
John Fashanu jafnaði fyrir
heimaliðið seint í leiknum.
Nottingham For. varð að gera
sér markalaust jafntefli á heima-
velli gegn Coventry að góðu.
2. deild
• Mikil barátta er nú í 2. deild
og þrjú lið efst og jöfn með 30
stig, Watford, Blackburn og
Portsmouth.
• Portsmouth sigraði Barnsley
3:0, Mike Quinn og Barry Horne
sem skoraði tvö tryggðu liðinu
sigur, en David Currie misnotaði
vítaspyrnu fyrir Barnsley.
• Andy Kennedy skoraði bæði
mörk Blackburn gegn Walsall.
• Dave Bamber jafnaði fyrir
Watford gegn Shrewsbury undir
lok leiksins.
• Luther Blissett gamli miðherj-
inn hjá Watford er nú á förum til
Bournemouth fyrir £60.000,
hann horfði á liðið tapa heima
gegn Man. City, Paul Molden
skoraði eina mark leiksins fyrir
City.
• Brighton vann sinn fyrsta sigur
á útivelli í vetur er liðið sigraði
Ipswich nokkuð óvænt. Kevin
Bremner skoraði sigurmark liðs-
ins þrem mín. fyrir leikslok.
• Birmingham náði jafntefli á
Staðan
1. deild
Norwich 13 8-4-1 14:13 28
Arsenal 12 8-2-2 30:14 26
Millwall 12 6-5-1 25:15 23
Southampton 13 64-3 22:18 22
Liverpool 13 6-4-3 18: 9 22
Coventry 12 5-4-3 14: 9 19
Derby 12 54-3 15: 9 19
Middlesbro 13 6-0-7 17:23 18
Nott.Forest. 13 3-8-2 16:17 17
Man.Utd. 12 3-7-2 15:12 16
Everton 12 44-4 16:14 16
Aston Villa 13 3-6-4 18:19 15
Sheff.Wed. 11 4-3-4 11:13 15
QPR 13 4-2-7 12:12 14
Charlton 13 3-5-5 17:23 14
Luton 13 3-4-6 13:15 13
Tottenham 12 3-4-5 21:24 11
West Ham 13 2-3-8 12:28 9
Wimbledon 12 2-3-7 11:22 9
Newcastle 13 2-2-9 9:27 8
2. deild
Watford 17 9-3-5 28:18 30
Blackburn 16 9-3-4 29:21 30
Portsmouth 17 8-6-3 28:18 30
Man.City 17 8-5-4 22:16 29
W.B.A. 17 7-6-4 24:18 27
Chelsea 17 7-6-4 28:19 27
Stoke 17 7-64 21:18 27
Ipswich 17 8-2-7 25:21 26
Barnsley 17 6-6-5 20:22 24
C.Palace 16 6-64 25:20 24
Sunderland 17 5-9-3 23:18 24
Leicester 17 5-7-5 21:25 22
Bradford 17 5-7-5 18:18 22
Bournem. 16 6-3-7 13:15 21
Hull 17 5-6-6 19:22 21
Oldham 17 5-6-6 29:26 21
Plymouth 15 6-3-6 20:23 21
Oxford 18 5-5-8 27:29 20
Swindon 17 4-7-6 22:27 19
Leeds Utd. 16 4-7-5 15:19 19
Walsall 17 2-8-7 19:23 14
Shrewsbury 16 2-8-6 12:2114
Brighton 16 4-2-10 19:37 14
Birmingham 16 2-3-1112:3» 9