Dagur - 22.11.1988, Page 13
' 22. nóvember 1988 - DAGUR - 13
kvikmyndarýni
wj Jón Hjaltason
Þörf áminning
Borgarbíó synir:
Klíkurnar (Colors).
Leikstjóri: Dennis Hopper.
Aðalhlutverk: Kobert Duvall og Sean Penn.
Orion Pietures 1988.
And-íþróttalega sinnaðir ein-
staklingar reyna stundum að vera
fyndnir á kostnað íþróttamanna.
Hver kannast ekki við aulabrand-
arann um knattspyrnumennina:
„Af hverju látið þið ekki
aumingja mennina hafa 22 bolta
að leika sér að? Þá gætu þeir hætt
að rífast þetta og svitna því hver
þeirra hefði einn bolta.“ Spurn-
ing af sama toga, en þó mun
alvarlegri, kemur alltaf upp í
huga mér þegar ég heyri þennan
kunnuglega blástur íþróttahatar-
anna; hvernig stendur á því að
eyða þarf milljóna tugum árlega
til að halda uppi lögum og reglu í
þjóðfélaginu? Er það virkilega
óhugsandi að mannskepnan geti
búið saman í sátt og samlyndi?
Er maðurinn vondur í öllu sínu
eðli eða er það umhverfið sem
veldur að allir ýfast við alla? Og í
beinu framhaldi; er sá möguleiki
fyrir hendi að þessi illska nái yfir-
höndinni og samfélagið leysist
upp í stríðandi smáhópa?
Nýjasta mynd Dennis Hoppers,
Klíkurnar, er eins og inngangur
að síðustu spurningunni, getur
þjóðfélagið leyst upp í
frumparta sfna? Svarið virðist
vera já. í upphafi myndar er
áhorfandinn mataður á nokkrum
uggvekjandi upplýsingum eins og
þeim að í Los Angeles einni séu
um 70 þúsund glæpamenn. Lög-
reglumennirnir eru hins vegar
töluvert færri.
Yrkisefni Hoppers er daglegt
starf tveggja þessara lögreglu-
manna en þeir eru báðir í sér-
sveitum sem settar eru til höfuðs
glæpaflokkum í þessari þriðju
stærstu borg Bandaríkjanna sem
kennd er við engla. Annar
þeirra, Danni McGavin, leikinn
af Sean Penn, er nýr í starfi.
Félagi hans, Bob Hodges sem
Óskarsverðlaunahafinn Robert
Duvall leikur, er hins vegar gam-
all í hettunni og á aðeins eitt ár
eftir af löggiltri starfsævi sinni.
Samstarf þeirra tveggja gengur
Nafntogaðasti eiginmaður síðari ára,
ins Danny McGavin.
brösuglega, annar er ungur og
ákafur, óvæginn og ekki alltaf
mjög gjörhugull. Hinn er eldri og
reyndari og býr yfir hyggindum
sem í hag koma. Ekki verður
annað sagt en að báðir þessir
leikarar komist allsæmilega frá
hlutverkum sínum sem felast
einkum í því að gera auðsæja
togstreituna sem í raun og veru
byggir ekki á öðru en aldri.
En efniviðurinn býr yfir miklu
meiri möguleikum en Hopper
kærir sig um að nýta. í meðförum
hans verður myndin ekki annað
en einn lögguhasarinn til. Spenna
skal ríkja og einfaldleikinn
drottna. Aðeins á einum stað
vottar fyrir einhverri félagslegri
hugsun, einn glæponinn ákallar
handhafa réttvísinnar með beiðni
Sean Penn, í hlutverki lögreglumanns-
um vinnu. Hann ákærir samfélag-
ið. Honum er meinað að hafa í
sig og á með heiðarlegum hætti,
glæpir eru honum ekki annað en
nauðsynlegt lifibrauð. En er
þetta svona einfalt? Er formúlan
fyrir frjálsu samfélagi heiðarlegra
borgara ekki önnur en vinna
handa öllum? Mér er þetta til efs
en óneitanlega væri gaman að sjá
Hollywoodstjórana meðhöndla
þetta vandamál. Og þá ekki síður
spurninguna um þá innri hættu
sem steðjar að vestrænum sam-
félögum vegna fjölgandi glæpa.
Um þennan vanda er kvikmyndin
Klíkurnar þörf áminning þrátt
fyrir að útkoman verði ekki önn-
ur en ósköp venjuleg spennu-
mynd með gamalkunnum stefum
og fyrirsjáanlegum endi.
Gamla myndin:
Lundarbrekka í Bárðardal 1913
í Degi 18. október sl. var birt
mynd af gömlum sveitabæ og
óskaö eftir upplýsingum frá
lesendum, ef þeir teldu sig
þekkja bæinn og fólkið á
myndinni. Tveimur dögum síð-
ar gaf einn lcsandi sig fram og
upplýsti að bærinn væri Lund-
arbrekka í Bárðardal og mynd-
in væri líklega frá árinu 1914.
Blaðinu hafa nú borist nánari
upplýsingar um þessa mynd og
fara þær hér á eftir.
„Þótt nokkuð sé liðið frá því að
gamla myndin af Lundarbrekku í
Bárðardal birtist í Degi (sú fyrri
18. október), vil ég nú láta vita
hvaða fólk við álítum að sé á
myndinni.
Talið frá vinstri: 1. Jón Lundi
Baldursson, f. 1906, síðar spari-
sjóðsstjóri og kennari í Nes-
kaupstað, nú látinn. 2. Afi hans,
Jónas Jónsson, bóndi á Lundar-
brekku. 3. Kona Jónasar, Jakob-
ína Jónsdóttir. Hún var fötluð á
efri árum og þess vegna situr hún
í stól. 4.-5. í dyrunum stendur
Jónunna Jónasdóttir með son
sinn Sigurð Baldursson á
handlegg. Sigurður var f. 1911 og
d. 1955. Hann var bóndi á Lund-
arbrekku. 6. Næst er Sigríður
Daníelsdóttir, ættuð úr Skaga-
firði en síðar húsfreyja á Litlu-
völlum. Hún var kaupakona á
Lundarbrekku sumarið 1913. 7.
Trúlegt þykir okkur að næstur
henni komi Baldur Jónsson,
bóndi á Lundarbrekku. Fleira
fólk treystum við okkur ekki til
að nafngreina. Aldur myndarinn-
ar ráðum við af því að Sigríður er
á henni og einnig af stærð barn-
anna, þótt ekki sé þetta óyggj-
andi.“
Undir þetta skrifar Hjördís
Kristjánsdóttir, Lundarbrekku,
Bárðardal, og kunnum við henni
bestu þakkir fyrir upplýsingarn-
ar.
Skrifstofutækni
Markmið með náminu er að mennta fólk til starfa á
nútíma skrifstofum. Megin áhersla lögð á viðskipta-
greinar og notkun tölvu. Námið tekur 256 klst. Að
námi loknu eru nemendur færir um að vinna við tölv-
ur smærri fyrirtækja og deilda innan stærri fyrirtækja.
★ Almenn tölvufræði.
★ Stýrikerfi.
★ Ritvinnsla.
★ Töflureiknar og áætlana-
gerð.
★ Gagnasafnsfræði.
★ T ölvufjarskipti.
★ Almenn skrifstofutækni.
★ Bókfærsla.
★ Tölvubókhald.
★ Verslunarreikningur.
★ T oll- og verðútreikningar -
innflutningur.
★ Stjórnun og mannleg
samskipti.
★ íslenska.
★ Viðskiptaenska.
Námskeiðið hefst í janúar.
Innritun og nánari upplýsingar í síma 27899.
Tölvufræðslan Akureyri hf.
Glerárgötu 34.
Vantar blaðbera
frá 1. desember í Aðalstræti og Lækjargötu.
Strandgötu 31 • S 24222
Seljum meðan
birgðir endast
úrbeinuð
hangilæri
á gamla verðinu
Maðurinn minn,
AGNAR GUÐMUNDSSON,
frá Hjalteyri,
Norðurgötu 11, Akureyri
lést á heimili sínu að kvöldi 14. nóvember.
Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 22. nóvember
kl. 13.30.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á líknarstofnanir.
Fyrir hönd barna, tengdabarna og barnabarna.
Indiana Kristjánsdóttir.