Dagur - 22.11.1988, Side 19
22. nóvember 1988 - DAGUR - 19
hér & þar
Les sunnudagsblöðin í rúminu
Það er ekki á hverjum degi að við
rekumst á greinar um íslendinga í
erlendum dagblöðum, en það
gerist þó. í nýlegu helgarblaði
The People rákumst við á grein
um útvarpsmanninn David Jensen
sem giftur er íslenskri konu,
Guðrúnu - en þau hafa áður
verið viðfangsefni blaðamanna í
Bretlandi.
í fyrrnefndri grein, er David
Jensen beðinn um að lýsa dæmi-
gerðum sunnudegi hjá sér fyrir
lesendum blaðsins. Samkvæmt
því sem stendur í blaðinu, er
David Jensen ákaflega vinsæll
útvarpsmaður. Hann ku vera
með fastan þátt á sunnudögum
hjá sjálfstæðri útvarpsstöð og
segir sjálfur að sunnudagur sé að
hluta til vinna og hluta leikur.
„Ég vinn venjulega fram yfir
miðnætti á laugardagskvöldum
og sef því eins lengi frameftir og
ég get, eða þar til Viktor, 8 mán-
aða gamall sonur minn vekur mig
um 7 leytið. Þá fer Guðrún, eig-
inkonan mín yndislega frá ís-
landi, fram úr, sækir Viktor og
kemur með hann upp í rúm til
okkar. Þá vakna ég fyrir alvöru.
Næstu stundum eyði ég í lestur
sunnudagsblaðanna, sem eru
breidd yfir allt rúmið okkar, eins
og sjá má af prentsvertunni á
rúmfötunum.“ Því næst segir
af Guðrúnu og David Jensen
Jensen frá því að hann hafi mjög
gaman af fótbolta og sé m.a. for-
maður áhangendaklúbbs Crystal
Palace. Því næst er lýsing á því
hvað Guðrún gefur honum í
morgunmat. „Þetta er ekki raun-
verulegur morgunmatur. Guðrún
hrærir saman jógúrt, hveitiklíði,
banana, ávaxtasafa og hunangi,
en þetta er mjög hollt og á að
gefa mér mikið af vítamínum.
Að loknum morgunverði fer ég
með 7 ára son okkar, Alexander
á „rugby“ æfingu í einn og hálfan
tíma og það kemur fyrir að ég tek
aðeins á með honum. Það er
töluvert langur akstur heirn, en
þá fáum við hádegisverð, eða
„brunch" eins og við Kanada-
menn köllum það. Það er skál af
heilhveitikorni, ristað brauð,
vöfflur, pönnukökur og kaffi.
Þrátt fyrir að þetta sé ekki hinn
hefðbundni breski hádegisverð-
ur, finnst mér ég hafa fengið
góða fyllingu.
Þá er kominn tími til þess að
ljúka undirbúningi fyrir þáttinn,
sem að mestu er unninn upp úr
blaðaúrklippum vikunnar. Ég
kem á útvarpsstöðina um kl.
15.00, spjalla aðeins við fram-
leiðandann og sendi þáttinn síð-
an út milli kl. 16.00 og 19.00. Eftir
kl. 17.00 nær útsending þáttarins
vítt um heiminn allt frá Kóreu til
Hong Kong, Japans, Singapore,
Malasíu, Nýja Sjálands, Suður-
Ameríku og 20 stöðva í Dan-
mörku.
Ég reyni alltaf að vera kominn
heim áður en börnin fara að sofa,
en við eigum auk Viktors og
Alexanders, ellefu ára gamla
stúlku sem heitir Anna Lísa.
Þar sem Guðrún fer oft á
sunnudögum í heimsókn til
íslenskra vina sinna, fáum við
okkur bara kínverskan eða ind-
verskan mat sem við kaupum og
tökum með heim.“
Jensen er fjölskyldumaður og er hér ásamt Viktor syni sínum og Guðrúnu.
i
dagskrá fjölmiðla
SJONVARPIÐ
ÞRIÐJUDAGUR
22. nóvember
18.00 Villi spæta og vinir hans (28).
18.25 Berta (5)
18.40 Á morgun sofum við út (5).
(I morgen er det sovemorgon.)
Sænskur teiknimyndaflokkur í tíu þáttum.
18.55 Tiknmálsfréttir.
19.00 Poppkorn.
Endursýndur þáttur frá 16. nóv.
19.25 Ekkert sem heitir.
Endursýndur þáttur frá 18. nóv.
19.50 Dagskrárkynning.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Matarlist.
20.45 Á þvi herrans ári 1966.
Atburðir ársins rifjaðir upp og skoðaðir í
nýju ljósi.
21.55 Hverjir myrtu Kennedy?
Ný, bresk heimildamynd sem leiðir get-
um að þvi að atvinnumorðingjar á vegum
maflunnar hafi myrt Kennedy Bandaríkja-
forseta en ekki Lee Harvey Osvald. Mynd
þessi hefur vakið mikla athygli og umtal
þar sem hún hefur verið sýnd, en f dag 22.
nóvember eru liðin 25 ár frá morðinu á
Kennedy.
23.00 Seinni fréttir.
23.10 Hverjir myrtu Kennedy? framhald.
23.55 Dagskrárlok.
SJONVARP
AKUREYRI
ÞRIÐJUDAGUR
22. nóvember
15.55 Hinsta óskin.
(Garbo Talks.)
Kona, sem haldin er banvænum sjúk-
dómi, biður son sinn að uppfylla sína
hinstu ósk: Að fá að hitta átrúnaðargoð
sitt Gretu Garbo.
17.45 Feldur.
18.10 Drekar og dýflissur.
18.35 Ljósfælnir hluthafar.
(Run from the Moming.)
Framhaldsmynd í 6 hlutum. 1. hluti.
Spennumyndaflokkur um endurskoðanda
sem kemst í hann krappann þegar vinnu-
veitendur hans fela honum að rannsaka
bókhaldsbækur hjá risavöxnu fyrirtæki.
19.19 19:19
20.45 Frá degi til dags.
21.15 íþróttir á þriðjudegi.
22.15 Suðurfararnir.
(The Harp in the South.)
Framhaldsmyndaflokkur í 6 hlutum um
fátæka innflytjendur sem flykktust til
Sydney i Ástralíu á árunum 1930-'40.
5. hluti.
23.00 Stræti San Fransiskó.
(The Streets of San Francisoo.)
23.50 Póstvagninn.
(Stagecoach.)
Endurgerð sígUds vestra sem John Ford
leikstýrði árið 1939.
Aðalhlutverk: Ann-Margret, Red Buttons
og Bing Crosby.
01.40 Dagskrárlok.
©
RAS 1
ÞRIÐJUDAGUR
22. nóvember
6.45 Veðurfregnir ■ Bæn.
7.00 Fréttir.
7.03 í morgunsárið
með Má Magnússyni.
Fréttayfiriit kl. 7.30 og 8.30, fréttir kl. 8.00
og veðurfregnir kl. 8.15. Lesið úr forystu-
greinum dagblaðanna að loknu fréttayfir-
liti kl. 8.30.
9.00 Fréttir.
9.03 Litli barnatíminn.
„Vaskir vinir" eftir Jennu Jensdóttur og
Hreiðar Stefánsson. Þómnn Hjartardóttir
les (2).
9.20 Morgunleikfimi.
9.30 í pokahorninu.
9.40 Landpósturinn - Frá Suðurnesjum.
Umsjón: Magnús Gislason.
10.00 Fréttir • Tilkynningar.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Ég man þá tíð.
11.00 Fréttir • Tilkynningar.
11.05 Samhljómur.
11.55 Dagskrá.
12.00 Fréttayfirlit ■ Tilkynningar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir • Tilkynningar.
13.05 í dagsins önn.
13.35 Miðdegissagan: „Öriög i Síberíu"
eftir Rachel og Israel Rachlin.
Elisabet Brekkan les (7).
14.00 Fréttir • Tilkynningar.
14.05 Djassþáttur.
- Jón Múli Ámason.
15.00 Fréttir.
15.03 Gestastofan.
Stefán Bragason ræðir við áhugatónlistar-
fólk á Héraði. (Frá Egilsstöðum).
15.45 Þingfréttir.
16.00 Fréttir.
16.03 Dagbókin.
Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið.
17.00 Fréttir.
17.03 Tónlist á síðdegi.
18.00 Fréttir.
18.03 Á vettvangi.
Tónlist • Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Tilkynningar.
19.35 Kviksjá - Rússlands þúsund ár.
Borgþór Kjæmested segir frá ferð í
tengslum við þúsund ára kristnitökuaf-
mæli rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar í
ágúst sl.
Fimmti og lokaþáttur.
20.00 Litli barnatíminn.
20.15 Kirkjutónlist.
21.00 Kveðja að austan.
Úrval svæðisútvarpsins á Austurlandi í
liðinni viku.
Umsjón: Haraldur Bjarnason. (Frá Egils-
stöðum)
21.30 Útvarpssagan: „Heiður ættarinnar"
eftir Jón Björnsson.
Herdís Þorvaldsdóttir les (5).
22.00 Fréttir ■ Dagskrá morgundagsins •
Orð kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.30 Leikrit: „Frystikista og svo falleg
augu" eftir Nínu Björk Árnadóttur.
Leikstjóri: Maria Kristjánsdóttir.
Leikendur: Hanna María Karlsdóttir,
Guðrún Gísladóttir og Hjálmar Hjálmars-
son.
(Endurtekið frá laugardegi.)
23.05 Tónlist á síðkvöldi.
24.00 Fréttir.
ét
ÞRIÐJUDAGUR
22. nóvember
7.03 Morgunútvarpið.
9.03 Viðbit
- Þröstur Emilsson. (Frá Akureyri.)
10.05 Morgunsyrpa
- Evu Ásrúnar Albertsdóttur og Óskars
Páls Sveinssonar.
12.00 Fróttayfirlit • Auglýsingar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 í undralandi
með Lísu Páls.
14.00 Á milli mála.
- Eva Ásrún Albertsdóttir og Óskar Páll
Sveinsson.
16.03 Dagskrá.
19.00 Kvöldfráttir.
19.33 Áfram ísland.
íslensk dægurlög.
20.30 Útvarp unga fólksins.
21.30 Fræðsluvarp: Lærum ensku.
Kennsla í ensku fyrir byijendur.
Fimmtándi þáttur.
22.07 Bláar nótur.
- Pétur Grétarsson kynnir djass og blús.
01.10 Vökulögin.
Fréttir eru sagðar kl. 2,4,7,7.30,8, 8.30,
9,10,11,12,12.20,14,15,16,17,18,19,22
og 24.
RlKJSLTIVARPIÐl
AAKUREVRU
Svæðisútvarp fyrir Akureyri
og nágrenni.
ÞRIÐJUDAGUR
22. nóvember
8.07-8.30 Svæðisútvarp Norðurlands.
18.03-19.00 Svæðisútvarp Norðurlands.
FM 104
ÞRIÐJUDAGUR
22. nóvember
7.00 Egg og beikon.
Óhollur en bragðgóður morgunþáttur
Stjörnunnar.
Fréttir kl. 8.
09.00 Níu til fimm.
Lögin við vinnuna. Lítt tmfluð af tali.
Hádegisverðarpotturinn á Hard Rock
Café kl. 11.30.
Fréttir klukkan 10, 12, 14 og 16.
17.00 ís og eldur.
Hin hliðin á eldfjaUaeyjunni.
18.00 Bæjarins besta
kvöldtónlist.
21.00 í seinna lagi.
Nýtt og gamalt í bland. KokteUl sem end-
ist inn í draumalandið.
01.00-07.00 Næturstjörnur.
NæturtónUst fyrir vaktavinnufóUt, leigu-
bilstjóra, bakara og þá sem vilja hreinlega
ekki sofa.
Hjóðbylgjan
FM 101,8
ÞRIÐJUDAGUR
22. nóvember
07.00 Kjartan Pálmarsson
kemur fólki af stað árla morguns.
09.00 Pétur Guðjónsson
á léttum nótum með hlustendum á seinni
hluta morgunvaktar.
12.00 Hádegistónlist.
13.00 Þráinn Brjánsson
hress og kátur eins og hans er von og
vísa.
17.00 Kjartan Pálmarsson.
Klukkan 17.30 er tími tækifæranna. Kjörið
tækifæri til að selja eða kaupa ykkur að
kostnaðarlausu.
19.00 Tónlist með kvöldmatnum.
20.00 Jóhann Jóhannsson
leikur vandaða tónhst, sannkaUað gæða-
popp.
22.00 Þráinn Brjánsson
tekur síðasta sprettinn á þriðjudögum.
24.00 Dagskrárlok.
989
BYL GJAN,
ÞRIÐJUDAGUR
22. nóvember
08.00 Páll Þorsteinsson
- þægUegt rabb í morgunsárið.
Fréttir kl. 8 og Potturinn, þessi heiti kl. 9.
10.00 Anna Þoriáks.
Aðalfréttimar W. 12 og fréttayfirht kl. 13.
14.00 Þorsteinn Ásgeirsson.
Fréttir kl. 14 og 16 og Potturinn ómiss-
andi kl. 15 og 17.
18.00 Fréttir á Bylgjunni.
18.10 Hallgrimur Thorsteinsson
í Reykjavík síðdegis.
19.05 Meiri músik
- minna mas. TónUstin þín á Bylgjunni.
22.00 Bjarni Ólafur Guðmundsson
og tónlist fyrir svefninn.
02.00 Næturdagskrá Bylgjunnar.