Dagur - 22.11.1988, Side 20
Akureyri, þriðjudagur 22. nóvember 1988
Rafgeymar
í bílinn, bátinn, vinnuvélinav
Viðhaldsfríir
Veljið rétt merki
ÞÓR5HAMARHF.
Við Tryggvabraut • Akureyri ■ Sími 22700
Flokksþing Alþýðuflokksins:
Róttæk stjórnkerfis-
tillaga felld naumlega
konurnar tóku völdin
„Þetta var ekkert átakaþing
enda flokkurinn samstæður
um þessar mundir,“ sagði Sig-
björn Gunnarsson, varaþing-
maður Alþýðuflokksins á
Norðurlandi eystra, um flokks-
þingið sem haldið var um helg-
ina.
A þinginu komu mörg mál til
umfjöllunar og bar þar hátt til-
laga um stjórnkerfismál þar sem
kveðið er á um að þeir þingmenn
flokksins sem setjast í stól ráð-
herra gegni ekki þingmennsku
heldur verði varamenn kallaðir
til starfa í þeirra stað. f tillögunni
var einnig kveðið á um að alþing-
ismenn sitji ekki í ráðum og
stjórnum á vegum framkvæmda-
valdsins og að nefndum Alþingis
verði veitt víðtækari heimild til
eftirlits með störfum fram-
kvæmdavaldsins. Eftir nokkrar
umræður um málið var tillagan
felld naumlega.
í kjöri til flokksstjórnar óx
hlutur landsbyggðarinnar mjög
að sögn Sigbjörns. Konur eru nú
í nreirihluta í forystusveit flokks-
ins og skipa, eftir þingið, stóla
varaformanns, ritara og for-
manns framkvæmdastjórnar. Pá
er jöfn skipting milli karla og
kvenna í stólum forseta fram-
kvæmdastjórnar. JÓH
Góð loðnuveiði
- þrátt fyrir brælu á miðunum
Leiðindaveður var á loðnu-
miðunum síðdegis í gær en þó
ekki verra en svo að skipin
gátu athafnað sig. Talsverð
bræla var á miðunum á sunnu-
dag og aðfaranótt mánudags.
Loðnan hefur undanfarið hald-
ið sig stutt norður af Sléttu-
grunni.
Örn KE 13 fór til Færeyja í gær
með fullfermi því allt var fullt í
Krossanesi. Beitir SU var búinn
að fá 450 tonn síðdegis í gær eftir
sjö köst, en skipið var þá norður
af Sléttugrunni. Súlan fór til
Krossaness í gær með 750 t og
Dagfari hafði fengið 520 t en
óvíst var um löndunarstað.
Á sunnudag fór Guðmundur
Ólafur með 600 tonn til Raufar-
hafnar og Björg Jónsdóttir fór
með 470 t til Þórshafnar.
Landanir á föstudag skiptust
þannig að Hólmaborgin fór með
1420 t til Eskifjarðar, Þórður
Jónasson EA 350 landaði 700 t í
Krossanesi, Beitir SU landaði
Eldur kom
iipp í
Áskeli ÞH
Eldur kom upp í vélarrúmi
Áskels ÞH 48 snemma í gær-
morgun þar sem hann var að
veiðum austan undan Þorláks-
höfn. Reynir frá Grindavík
kom að og bjargaði mann-
skapnum um borð. Stokksey
ÁR-50 dró Áskel til Þorláks-
hafnar.
Áskell er 70 tonna eikarbátur,
skráður á Grenivík, en gerður út
frá Grindavík. Áhöfn bátsins
telur fjóra menn og sakaði engan
þeirra er eldurinn kom upp. Þeir
voru fluttir heilu og höldnu til
Þorlákshafnar og komu þangað í
gær.
Áskell er þrítugur að aldri,
smíðaður í Danmörku árið 1958.
Útgerðarfélagið Gjögur hf. gerir
bátinn út. mþþ
1250 t í Neskaupstað, Súlan EA
300 800 t í Krossanesi, Dagfari
520 t á Raufarhöfn, Jón Kjart-
ansson 11001 á Eskifirði, Guðrún
Porkelsdóttir 720 t á Eskifirði,
Börkur 1250 t á Neskaupstað,
Guðmundur Ólafur 600 t í Ólafs-
firði og Björg Jónsdóttir 550 á
Þórshöfn. EHB
Sanabjór til Glasgowfara
Glaðbeittir Glasgowfarar komu til „heimahafnar“ í Flugstöðina á Akur-
eyri sl. laugardagskvöld að aflokinni vel heppnaðri cins dags vcrslunar-
og skemmtiferð. Punkturinn yfir i-ið var Viking-bjór frá Sana, sem
farþegar gátu keypt við heimkomuna. Mynd: ehb
Grímsey:
Bijálað
að gera
- óvenjugóður aíli í
vikunni sem leið
I síðustu viku var landað um 40
tonnum af fiski í Grímsey og
sagði Sæmundur Ólason hjá
Fiskverkun KEA í eynni að
svo gott fiskirí hefði ekki verið
á þessum árstíma í manna
minnum.
Það er boltafiskur sem bátarnir
eru að koma með að landi þessa
dagana, bæði stór og góður.
Sæmundur sagði að hann væri
þetta fjögur kíló að meðaltali, en
í haust hefði hann iðulega verið
undir tveimur kílóum.
Fjórtán manns vinna hjá Fisk-
verkun KEA í Grímsey og þar af
eru ekki nema tveir heimamenn.
Allir bátarnir sem leggja upp í
eynni eru hins vegar heimabátar
og eru frá tíu upp í fimmtíu tonn
að stærð.
„Það hefur verið alveg brjálað
að gera,“ sagði Sæmundur og
sagði menn himinlifandi yfir afla-
brögðum síðustu viku. „Þctta er
bara eins og gullsending af himn-
um ofan,“ sagði hann og gat þess
í framhjáhlaupi að Kiwanismenn
í eynni hefðu boðið konum sín-
um út að borða á laugardags-
kvöldið „svona til að gera sér
glaðan dag eftir allan djöfulgang-
inn.“ mþþ
Þrátt fyrir vaxtalækkunina í gær þykir ráðamönnum sem gæti tregðu
í bankakerfmu með vaxtalækkanir:
Astæðan er „fákeppni“ í
íslenska bankakerfinu
- segir Már Guðmundsson, efnahagsráðgjafi flármálaráðherra
Vextir lækkuðu í gær og eru
vextir á almennum skuldabréf-
um nú á bilinu 15-18%. í ágúst
í sumar voru vextir hinsvegar á
bilinu 25-40%. Ráðherrar hafa
þó gefið í skyn að til þurfi að
koma mun meiri vaxtalækkun
vegna hraðlækkandi verðbólgu-
og hefur Jón Sigurðsson, við-
skiptaráðherra, beint því til
Seðlabankans að frekari vaxta-
lækkun verði að koma til.
Stjórnmálamenn hafa margir
lýst undrun sinni á því hversu
hægt hafi gengið í bankakerf-
inu með lækkun vaxta. Már
Guðmundsson, efnahagsráðgjafi
fjármálaráðherra, bendir á að
vegna eðlis íslenska banka-
kerfisins, sem hann nefnir fá-
keppni í stað samkeppni hjá
bankakerfum í mörgum vestræn-
um ríkjum, náist ekki fram vaxta-
lækkun þegar forsendur hennar
hafi skapast. „Mér virðist vaxta-
stigið hreinlega frjósa uppi og þá
er spurningin hver hefur frum-
kvæði að lækkuninni. Af því að
bankarnir hugsa ekki bara um
framboð og eftirspurn á láns-
fjármarkaðnum í heild, heldur
einnig sína markaðshlutdeild, þá
getur enginn haft frumkvæði.
Þess vegna verður að koma til
stýring að ofan. Menn geta nefnt
það handafl, leiðsögn, strokur
eða hvað sem er,“ segir Már.
Hann segir að í raun hafi vöxtum
verið stýrt niður á við með þess-
um hætti á síðustu misserum og
svo verði einnig á næstunni,
a.m.k. svo lengi sem búið verði
við óbreyttan peningamarkað.
óþh
Pólitísk faðmlög flokksforing]a í Reykjavík um helgina:
Vilja negla allaballana
betur inn í ríkisstjóm
- segir Árni Gunnarsson, alþingismaður
Gagnkvæmar heimsóknir
flokksformanna Alþýöuflokks
og Framsóknarflokks á
flokksþing þessara flokka, sem
haldin voru um helgina, hafa
þótt nokkrum tíðindum sæta í
hinum pólitíska heimi.
Uppi eru ýmsar kenningar um
hvernig beri að túlka þessi pólit-
ísku faðmlög foringjanna. Sumir
viðmælendur Dags benda á að
með þessu séu þeir að undirstrika
samheldni sína gagnvart fyrrum
samstarfsflokki í ríkisstjórn,
Sjálfstæðisflokknum. Áðrir
segja, og þar í flokki er Árni
Gunnarson þingmaður Alþýðu-
flokks, að með þessu séu þeir að
„negla Alþýðubandalagið betur
inn í ríkisstjórnina."
Á flokksþingi Alþýðuflokksins
á Hótel íslandi um helgina var
einnig fjallað sérstaklega um
jarðveg fyrir auknu samstarfi eða
jafnvel sameiningu félagshyggju-
flokkanna á næstu vikum og
mánuðum. Samkvæmt orðum
viðmælenda Dags má ætla að lifr-
arbandalag Jóns Baldvins og
Ólafs Ragnars sé upphaf
alvöru viðræðna A-flokkanna
um þessi mál. Svanfríður Jónas-
dóttir, varaformaður Alþýðu-
bandalagsins, bendir á að núver-
andi flokkakerfi sé að mörgu
leyti úr sér gengið. Eftirfarandi
orð hennar varpa ljósi á ástæður
þess að menn telja að nú verði að
láta hendur standa fram úr erm-
um í bróðernislegum viðræðum
A-flokkanna: „Flokkar eru ein-
faldlega tæki til þess að ná fram
ákveðnum breytingum á þjóðfé-
laginu. Ef tækið, sem varð til við
allt aðrar þjóðfélagsaðstæður
gengur ekki lengur, er einfald-
lega skipt um það.“ óþh
Sjá nánar á blaðsíðu 4.