Dagur - 25.11.1988, Side 10

Dagur - 25.11.1988, Side 10
10 - DAGUR - 25. nóvember 1988 V spurning vikunnar HVERNIG LIST ÞER A NYJA FORYSTUSVEIT ASÍ OG HVERS VÆNTIR ÞÚ AF HENNI? (spurt á þingi ASÍ) Páll H. Jónsson, Félagi versl- unar- og skrifstofufólks á Akureyri: „Við verðum að bíða og sjá en ég get ekki neitað því að ég hefði viljað sjá önnur nöfn í forystusveitinni eins og t.d. nafn Þóru Hjaltadóttur. Eg varð fyrir vonbrigðum með að það skyldi ekki takast. En þessi for- ysta verður að dæmast af verk- um sínum." Guðjón Jónsson, Sjó- mannafélagi Eyjafjarðar: „Mér líst ákaflega vel á þessa forystu. Ég hef trú á að hún geti unnið saman að hagsmunum launþega í landinu. Þessi for- ysta þarf að byrja á að endur- heimta samningsréttinn og huga að nýjum samningum." Sigurður Ingólfsson, Iðju Akureyri: „Mér líst vel á forystuna og hef trú á að hún sé kraftmikil. Sér- staklega er ég ánægður með að annar varaforseti sé nú óflokksbundinn." Arndís Sigurpálsdóttir, Iðju Akureyri: „Jú, mér líst vel á þessa forystu og vona að hún standi sig í stykkinu. Fyrsta verk hennar þarf að vera að endurheimta samningsréttinn, á því er eng- inn vafi.“ Geirlaug Sigurjónsdóttir, Iðju Akureyri: „Þetta er kraftmikil forysta. Ég hef trú á að hún komi töluverðu til leiðar fyrir launafólk í land- inu.“ L 25. nóvember 1988 - DAGUR - 11 Af átaksverkefiii í atvinnumálum á Sauðárkróki Atvinnumál á Sauðárkróki og í Skagafirði eru í mikilli umræðu um þessar mundir. Af atvinnumálanefnd Sauðárkróks hefur verið unnið að undirbúningi þró- unarfélags með sameiginlegri þátttöku fyrirtækja og sveitarfélaga. Er það liður af átaksverkefni sem átaksnefnd atvinnumálanefndar, ÁAT, hefur unnið að í samvinnu við marga aðila. Fyrir nokkru var hald- inn fundur af atvinnumálanefnd, sem gerð hafa verið skil í blaðinu, þar sem átaksverkefnið var kynnt og fram kom jákvæður vilji fundarmanna um stofnun þróunarfélags. En í hverju felst þetta átaksverkefni ÁAT? Svipar því til átaksverkefnis Austfirðinga? Hver verða verkefni fyrirhugaðs þróunarfélags? Fess- um spurningum verður reynt að svara og er þessi samantekt m.a. byggð á skýrslu sem Örn Daníel Jónsson rekstrarfræðingur vann fyrir atvinnumála- nefnd Sauðárkróks um starfssvið rekstrarráðgjafa á Sauðárkróki. Umræða um átaksverkefni í atvinnumálum kom upp síðasta vetur og hefur síðan verið að þróast. Það var í haust sem veru- Íegur skriður kom á málið, eftir að átaksnefndin hafði kynnt sér það vel. í sumar fóru m.a. fram viðræður við Austfirðinga, þar sem þeir kynntu sitt átaksverk- efni og nú er það ljóst að það verkefni svipar ekki alveg til þess verkefnis sem ÁAT ætlar að koma á. Austfirðingar ætla að byggja á framtaki einstaklingsins, en eins og fram hefur komið gerir átaksverkefni ÁAT ráð fyrir stofnun þróunarfélags í samvinnu sveitarfélaga og fyrirtækja. Þar liggur aðal munurinn á þessum tveim verkefnum, þótt grunnhug- myndin sé sú sama, að auka fjöl- breytni í atvinnulífi á svæðunum tveim. Fyrirmyndaratvinnulíf á Sauðárkróki innan 3-5 ára? Skömmu áður en atvinnumála- nefnd boðaði fulltrúa fyrirtækja og sveitarfélaga á fund, þar sem átaksverkefnið var kynnt, fór fram fundur átaksnefndar á Sauðárkróki með starfsmönnum Byggðastofnunar á Akureyri, Valtý Sigurbjarnarsyni forstöðu- manni og Guðmundi Guðmunds- syni. í Átaksnefndinni eru Jón Karlsson, Sigurður Karl Bjarna- son, Knútur Aadnegaard, Trausti Jóel Helgason og Unnur Kristjánsdóttir iðnráðgjafi Norðurlands vestra. Á þessum fundi var átaksverk- efnið kynnt fyrir starfsmönnum Byggðastofnunar. í fundargerð frá þessum fundi segir m.a.: „At- vinnumálanefnd Sauðárkróks ætlar að standa fyrir átaksverk- efni varðandi innri málefni starf- andi fyrirtækja. Verkefninu er ætlað að efla skilning ráðamanna fyrirtækjanna á eftirliti með ein- stökum þáttum reksturs og á mikilvægi markaðssetningar framleiðslunnar. Markmiðið er að innan 3-5 ára verði á staðnum fyrirmyndaratvinnulíf. Með þessu mun þó ekki átt við að öll vandamál í atvinnurekstri verði úr sögunni, heldur að geta fyrir- tækja til að leysa þau verði til staðar. Fyrri uppbygging í atvinnumálum hefur byggst á utanað- komandi breytingum Atvinnumálanefnd telur þetta vænlega leið til þess að ná að við- halda grósku í atvinnulífi bæjar- ins og líklegri til árangurs en leit að nýjum atvinnumöguleikum með tilheyrandi stofnkostnaði o.s.frv. Fyrri uppbygging í atvinnumálum í bænum hefur byggst á utanaðkomandi breyt- ingum. Einkum eru nefnd þrjú dæmi um slíkt átak á síðari árum, þ.e. stofnun Útgerðarfélags Skagfirðinga hf., Fjölbrautaskól- ans á Sauðárkróki og Steinullar- verksmiðjunnar hf. Starfsemi þessara aðila hefur síðan haft ákveðin margfeldisáhrif hjá öðr- um fyrirtækjum í bænum og raunar víðar í Skagafirði." Að mati iðnráðgjafa og heima- manna er atvinnulíf á Sauðár- króki fjölbreytt og er starfsemi ýmissa stoðaðila atvinnurekstrar til staðar. Þar má nefna bók- halds- og tölvuþjónustu, verk- fræðinga og arkitekt. Sjávarút- vegsgreinar eru í höndum nokk- urra aðila, sem iðnráðgjafi telur kost og landbúnaður í héraðinu skapar töluverða fjölbreytni í vinnslugreinum í bænum. Má í því sambandi nefna sútunarverk- smiðju, kjötvinnslur, fóðurstöð, mjólkursamlag, sláturhús o.m.fl. 2% fólksfjölgun á Sauðárkróki á þessu ári I ályktun fundarins segir einnig: „Trésmíðagreinar eru á traustum grunni, en málmiðnaður er ekki í nógu góðum farvegi. Stafar það m.a. af því að stóru aðilarnir á staðnum hafa á stundum rekið vélsmiðjudeildir og sérhæfð fyrir- tæki í greininni því ekki náð að festa rætur. Skattakerfið mun á stundum hafa leitt fyrirtæki út á þessa braut, því að með þessu losna aðilar við að greiða sölu- skatt vegna vinnunnar. Hótel- og veitingarekstur er í svipuðu ástandi og vélsmiðjurnar, þó að skýringar á því séu vitanlega aðrar.“ í fundargerðinni er minnst á atvinnukönnunina sem gerð var snemma árs 1987 á Sauðárkróki á meðal fyrirtækja. Þá kom í ljós að verulegur fjöldi fólks sem Örn Daníel Jónsson rekstrar- fræðingur á fundi atvinnumála- nefndar fyrir skömmu, en hann vann skýrslu fyrir nefndina og INVEST um starfssvið rekstrarráð- gjafa á Sauðárkróki. Mynd: -bjb vann á Sauðárkróki, bjó í ná- grannasveitarfélögunum. Um þessar mundir er í gangi önnur slík könnun og verður fróðlegt að sjá niðurstöður hennar. Spurning er hvort nokkur breyting hafi orðið á þessum tæpu 2 árum. í þessu sambandi skal nefna að lík- ur benda til að íbúum Sauðár- króks muni fjölga um 2% á þessu ári og gæti þar komið til að fólk hafi flutt lögheimili sitt á Sauðár- krók frá nálægum byggðum. Betra vegasamband yfír Þverárfjall Á fundi átaksnefndar með Byggðastofnunarmönnum var rætt um að koma á betra vega- sambandi yfir Þverárfjall. Það myndi stytta leiðir milli Sauðár- króks, Skagastrandar og Blöndu- óss um nokkra kílómetra og myndi skapa möguleika á sam- starfi á ýmsum sviðum. Nefnt er til í því sambandi fiskflutningar, fóðurflutningar og fyrirhuguð sameiginleg sorpeyðing, auk ýmiss konar annars samstarfs sveitarfélaganna. Var haft á orði að það yrði mikil skrautfjöður í hatt nýstofnaðar miðstöðvar Byggðastofnunar á Akureyri ef hún beitti sér fyrir hagkvæmnis- athugunum á vegasambandi um Þverárfjallið. Atvinnumálanefnd óskar upplýsinga um stöðuna Atvinnumálanefnd Sauðárkróks hyggst fá Örn Daníel Jónsson rekstrarfræðing, fyrrverandi framkvæmdastjóra Iðntækni- stofnunar, til að sinna ákveðnum þáttum átaksverkefnisins, halda námskeið o.fl. Hefur atvinnu- málanefndin óskað eftir gögnum um eftirfarandi atriði: 1. Almennar upplýsingar um fyrirtæki og atvinnulíf á Sauð- árkróki. 2. Þróun á lánveitingum og vanskil, t.d. fyrir síðustu þrjú ár. Óskað er eftir að aflað verði sambærilegra upplýs- inga frá Iðnlánasjóði og Fisk- veiðasjóði. 3. Mat á þjónustustigi bæjarins, t.d. hvar hefur störfum fjölgað, hver er vaxtarbrodd- ur atvinnulífs í bænum? 4. Töluleg gögn um atvinnu- svæðið. Heildarmynd og inn- byrðis mismunur. Veik svæði innan Skagafjarðar o.s.frv. Skýrsla um starfssvið rekstrarráðgjafa Sauðárkróks Örn Daníel Jónsson rekstrar- fræðingur vann skýrslu fyrir atvinnumálanefnd Sauðárkróks og INVEST um starfssvið rekstrar- ráðgjafa á Sauðárkróki. Yrði sá rekstrarráðgjafi væntanlega starfsmaður fyrirhugaðs þróunar- félags fyrirtækja og sveitarfélaga í Skagafirði. Skýrslan hjá Erni skiptist í þrjá kafla, í fyrsta lagi fjallar hún um aukið mikilvægi ráðgjafar, samkeppnisstöðu fyrirtækja og breytt ytri skilyrði, í öðru lagi um hlutverk rekstrar- ráðgjafa og í þriðja lagi; áfram- hald á undirbúningi og næstu skref. Fyrsta kaflanum skiptir Örn upp í tvo hluta, í fyrsta lagi almennt séð og í öðru lagi staðan á Sauðárkróki. Örn segir að ytri aðstæður atvinnurekstrár hafi gjörbreyst á minna en tíu árum. Það sem var hagkvæmast og skynsamlegast fyrir tíu árum er nú óskynsamlegt. Þessu til stuðn- ings kemur Örn með samanburð, að fyrir 10 árum hafi lykillinn að velgengni verið velta, velta hafi opnað möguleika á húsbygging- um, húsbyggingar orðið að fast- eignaveði, fasteignaveð varð rétt- ur tii lánafyrirgreiðslu og lánafyr- irgreiðsla hafi þýtt auknar hús- byggingar. Orðrétt segir Örn síðán: „Niðurstaðan varð lokað hagkerfi þar sem heimamarkaður var verndaður og lítil sem engin Kennileitin þijú í atvinnuuppbyggingu á Sauðárkróki Steinullarverksmiðjan hf. Útgerðarfélag Skagfirðinga hf. Fjölbrautaskólinn á Sauðárkróki. Myndir: -bjb Mikil umræða á sér stað um þessar mundir á Sauðárkróki um atvinnulíf og hvað sé til úrbóta. Miklar líkur eru á að stofnað verði þróunarfélag, í sameiningu fyrirtækja og bæjarins. Mynd: gb skynsemi í öðru en hráefnisút- flutningi, að nýta þær auðlindir sem voru við bæjardyrnar. Hag- kerfið einkenndist af fisksölu, ströngu aðhaldi af hálfu ríkisins og mikilli athafnalöngun." „Skuldaskilasjóðuru skammtímarádstöfun í dag telur Örn að viðskiptahug- mynd sé í fyrirrúmi, arðsemi sé nauðsynleg, arðsemi ráðist af eiginfé og kostnaðarhaldi, að gera ekki það sem aðrir geta gert betur, finna vænleg markaðshorn og verða bestur á sínu sviði, og að heimurinn sé heimamarkaður. Niðurstöðuna úr þessu segir Örn að sé opið hagkerfi, þar sem hag- sveiflur eru ekki síður minni en í því lokaða, athafnalöngunin hef- ur breyst í framkvæmdagleði og sú alhliða uppbygging sem átt hefur sér stað hefur þýtt verulega erlenda skuldasöfnun. „Önnur afleiðing opna hagkerfisins er að nú krefjast útflytjendur heims- markaðsverðs fyrir vörur sínar hér á landi. Fiskverð er ekki lengur ákveðið með tilliti til endurdreifingar gjaldeyrisins innanlands, heldur því verði sem hægt er að fá fyrir aflann á er- lendum mörkuðum og sjá ný- stofnaðir fiskmarkaðir til þess að útgerðin fái ætíð það viðmiðun- arverð sem gildir á hverjum tíma. „Skuldaskilasjóður" er tilraun til að hverfa að einhverju leyti aftur til fyrra fyrirkomulags, en ætla má að þar sé um skammtímaráð- stöfun að ræða,“ segir Örn m.a. í skýrslunni. Stjórendur og starfsmenn fyrirtækja verða að meta meira eigin aðstæður Örn telur að stjórnendur og starfsmenn fyrirtækja verði í meiri mæli að meta eigin aðstæð- ur, fylgjast með öllum breyting- um og laga sig að þeim eins og kostúr er. Síðan segir Örn: „For- senda arðsemi nú er að reksturinn miðist við framleiðni fjármagns fremur en framleiðsluafköstin ein sér. Þegar svo er komið, að fjármagnskostnaður er orðinn jafn stór, eða jafnvel stærri liður en laun, þá má ljóst vera að góð fjármálastjórnun er orðin jafn mikilvæg og góð verkstjórn í framleiðslunni. Með þessu breyt- ast áherslurnar, veltuhraðinn verður í fyrirrúmi, birgðasöfnun verður að vera í lágmarki og inn- heimta markviss. Fjárfestingar eiga að miðast við reksturinn fremur en bindingu fjármagns í fasteignum. Hér er ekki um að ræða íslenskt fyrirbæri, heldur alþjóðlegt og því verður að laga sig að þeim ef það á ekki að koma niður á lífskjörum okkar, en þau eru nátengd framleiðni einstakra þjóðríkja. Víða erlend- is hafa stjórnvöld og ekki síður sveitarstjórnir unnið að því að endurskipuleggja atvinnulífið eftir þessum nýju leikreglum og hefur árangurinn verið misjafn. Fjölmörg dæmi eru um að vel hafi til tekist sem segir okkur að árangurs sé að vænta ef rétt og markvisst er unnið.“ Atvinnulíf á Sauðárkróki fjölbreyttara en víða annars staðar Um stöðuna í atvinnulífinu á Sauðárkróki segir Örn: „Sauðár- krókur hefur nokkra sérstöðu í samanburði við aðra kaupstaði af svipaðri stærð. Sérstaðan er að öllum líkindum tilkomin vegna virkrar þátttöku bæjarstjórnar- innar í atvinnuuppbyggingu, þótt einnig megi álíta að til staðar hafi verið framtakssamir einstakling- ar sem voru tilbúnir til að takast á við verkefnin. Niðurstaðan er að atvinnulíf er fjölbreyttara en víða annars staðar. Ein afleiðing hraðrar uppbygg- ingar er að Sauðárkróksbúar eru að vissu leyti í ámóta stöðu og íbúar landsins í heild; mikið hef- ur verið fjárfest og þær fjárfest- ingar eiga eftir að greiða niður þau lán sem tekin hafa verið. Með vissum skilningi má segja að hröðu uppbyggingarskeiði sé lokið, þess í stað sé nú komið að tímabili þar sem áhersla er lögð á að jafna stöðuna, þannig að fyrir- tækin eflist innanfrá og nýti þar rneð betur það fjárma^n sem þegar er í þeim bundið. Aherslan verður því að færast frá stofnun fyrirtækja til „þéttingar" á starf- semi þeirra sem fyrir eru. Þar með er ekki sagt að algerlega eigi að horfa framhjá nýsköpunar- möguleikum, heldur að ný störf og bætt kjör bæjarbúa almennt sé fyrst og fremst að sækja í að full- nýta það forskot og þá möguleika sem fjölbreytnin hefur skapað. Þetta eru þau rök sem ég tel helst fyrir því að vænlegt sé að fá rekstr- armann til að aðstoða fyrirtækin við að efla sig innanfrá fremur en að atvirtnumálanefnd réði til sín starfsmann til leitar að nýsköp- unarhugmyndum sem einnig væri möguleiki." Samstarfsmöguleikar til nýsköpunar fyrir fyrirtæki á Sauðárkróki Um hlutverk rekstrarráðgjafa segir Örn að mikilvægast sé að aðstoða fyrirtækin við að laga sig að breyttum aðstæðum með rekstrarlegri ráðgjöf, stefnumörk- un og vinna að einstökum afmörkuðum verkefnum og með námskeiðahaldi og færnisupp- byggingu. Örn talar um að „þétta“ eigi atvinnustarfsemi fyrirtækjanna og auka verðmæti afurða og þjónustu, finna mark- aði fyrir núverandi vörur. Þá tel- ur Órn að fyrirtæki á Sauðár- króki eigi möguleika á að finna samstarfsgrundvöll til nýsköpun- ar, þótt starfssvið þeirra séu um margt ólík, því reynsla erlendis frá sýnir að vaxtarbroddurinn í þeim byggðarlögum sem hvað best hafa staðið sig er tilkominn vegna aukinnar samvinnu fyrir- tækja. Að lokum segir Örn í skýrslu sinni: „Á fundi atvinnumála- nefndar og INVEST kom glögg- lega í ljós að áhugi á ráðningu rekstrarráðgjafa var mikill, efa- semdir komu þó upp og þá sér- staklega hvert verksvið slíks starfsmanns ætti að vera. Því má telja að eðlilegast væri að meta þörfina á skipulagðan hátt. Nær- tækasta leiðin væri að ræða við stjórnendur fyrirtækja, hvern og einn, fá svar við lykilspurningum og mat þeirra á stöðunni almennt. Að þeirri könnun lokinni væri hægt að meta umfang þarfarinnar og raða verkefnunum í mikil- vægisröð. Þar með fengist skýr mynd af stöðunni og ef niðurstað- an væri ráðning ráðgjafa þá væru komnar forsendur til að gera drög að starfslýsingu væntanlegs starfsmanns; slík lýsing auðveld- ar síðan leit að rétta manninum. Niðurstöður könnunarinnar yrðu síðan lagðar fyrir fund og sá fundur tæki ákvörðun um framhald.“ Þarf að láta til skarar skríða Af öllum hugleiðingum slepptum um leiðir til úrbóta í atvinnulífi á Sauðárkróki og í Skagafirði, þá er ljóst að til skarar þarf að skríða. Þessa dagana dynja yfir okkur fréttir af gjaldþrotum fyrirtækja um land allt og ráða- menn eru með yfirlýsingar sem ekki gefa tilefni til mikillar bjart- sýni. Eins og fram kom í skýrslu Arnar Daníels, þá er mikil fjöl- breytni í atvinnulífí á Sauðár- króki og því er nauðsynlegt að vel sé hugað að þeim fyrirtækjum sem í gangi eru. Mikilvægi sam- starfs fyrirtækja er ótvírætt, sér í lagi á tímum óvissu í atvinnu- og efnahagslífi. Samstarf fyrirtækja innan sveitarfélags, eða héraðs, er það sem verið er að tala um á Sauðárkróki, með stofnun þró- unarfélags. Slíkt yrði nýjung á íslandi og verður fróðlegt að fylgjast með framvindu málsins. Öll þessi umræða um atvinnumál á Sauðárkróki að undanförnu er af hinu jákvæða, það sýnir að mönnum stendur ekki á sama og ætla ekki að sitja aðgerðalausir úti í horni. -bjb

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.