Dagur - 25.11.1988, Blaðsíða 15
hér & þar
25. nóvember 1988 - DAGUR - 15
í-
Geðlæknirínn í
Staupasteini
edrú og ánægður
Alkóhólismi kemur all nokkuð
við sögu í Staupasteini (Cheers),
hinum vinsæla sjónvarpsþætti.
Barþjónninn Sam (Ted Danson)
leikur þar óvirkan alka og eins og
menn muna þá hjálpaði geð-
læknirinn Frasier Crane (Kelsey
Grammer) honum þegar hann
féll síðast. Frasier þessi er í tygj-
um við Díönu í þáttunum, eins
og þið vitið eflaust.
Þá er komið að raunveru-
leikanum og hann er allt annar.
Þar á Kelsey Grammer, sem leik-
ur geðlækninn, við alvarlegt
áfengisvandamál að stríða. Hann
hefur snúið sér að flöskunni og
kunningjar nefna ástæður á borð
við erfiða æsku, sáran hjóna-
skilnað og hryllilegt morð á syst-
ur hans.
Fyrir fimm mánuðum fór hann
að stunda AA fundi eftir að hafa
fengið hvatningu frá vinkonu
sinni, Cerlette Lamme. „Ég gat
aldrei viðurkennt fyrir sjálfum
mér að ég ætti við áfengisvanda-
mál að stríða. Nú hef ég loks tek-
ið við stjórninni og mér líður bet-
ur en mér hefur liðið í mörg ár.
Ég er nýr maður,“ segir Kelsey
og fer fögrum orðum um AA
samtökin, Alcoholics Anonymo-
us.
Cerlette Lamme, vinkona Kelseys, hjálpaði honum að horfast í augu við
áfengisvandamálið.
í Staupasteinsþáttunum. Kelsey Grammer, sem leikur geðlækninn Frasier
Crane, er hér með Ted Danson (Sam).
í bandarísku tímariti velta
greinarhöfundar því ákaflega fyr-
ir sér af hverju blessaður maður-
inn fór að drekka svona. Æska
hans er rakin, skilnaður foreldra
og dauði afa gamla. Þá er grafinn
upp atburður frá árinu 1975 er
þrír menn tóku systur hans sem
gísl, nauðguðu henni allir og
skáru hana síðan á háls. Enn eitt
áfallið í lífi Kelseys var síðan árið
1986 er þriggja ára hjónaband fór
í vaskinn.
Kelsey hefur drukkið grimmt á
undanförnum árum og hann hef-
ur komið sér upp bar bæði heima
hjá sér og í búningsherbergi sínu
í Staupasteinsþáttunum. Vin-
kona hans, fyrrverandi skauta-
drottning, reyndi að fá manninn
til þess að horfast í augu við þetta
vandamál og loks tókst henni
það. Hann sækir AA fundi reglu-
lega og er nýr og betri maður.
„Ég lifi í nútíðinni núna, tek einn
dag fyrir í einu,“ segir Kelsey,
edrú og ánægður.
dagskrá fjölmiðla
SJÓNVARP
AKUREYRI
FÖSTUDAGUR
25. nóvember
16.30 Dáðadrengir.
(The Whoopee Boys.)
Létt gamanmynd um fátækan og feiminn
ungan mann, forríku stúlkuna hans og
vellauðuga mannsefnið hennar.
17.55 í Bangsalandi.
18.20 Fepsí popp.
19.19 19.19.
20.45 Alfred Hitchcock.
21.15 Þurrt kvöld.
22.10 Áhættuleikarinn.#
(Hooper.)
Hörku spennumynd um kvikmyndastað-
gengilinn, Hooper, sem er farinn að láta á
sjá eftir áralangt starf og hefur í hyggju
að söðla um.
23.45 Þrumufuglinn.
00.35 Sólskinseyjan.#
(Island in the Sun.)
Mynd þessi var gerð á seinni hluta sjötta
áratugarins og þótti á þeim tima í djarfara
lagi.
02.30 Fjárhættuspilarinn.
(Gambler.)
Stórskuldugur fjárhættuspilari og há-
skólaprófessor fær lánaða peninga hjá
móður sinni.
Ekki við hæfi barna.
04.20 Dagskrárlok.
# Táknar frumsýningu á Stöð 2.
SJÓNVARPIÐ
FÖSTUDAGUR
25. nóvember
18.00 Sindbað sæfari (38).
18.25 Líf i nýju ljósi (16).'
18.50 Táknmálsfréttir.
18.55 Austurbæingar.
(Eastenders.)
Fimmti þáttur.
19.25 Búrabyggð.
(Fraggle Rock.)
19.50 Dagskrárkynning.
20.00 Fréttir og veður.
20.35 Ekkert sem heitir.
21.05 Þingsjá.
21.25 Söngelski spæjarinn (1).
(The Singing Detective.)
Breskur myndaflokkur sem segir frá
sjúklingi sem hggur á spítala og skrifar
sakamálasögu.
22.35 Örlög Franks og Jesse James.
(The Last Days of Frank and Jesse
James.)
Bandarískur vestri frá 1986.
Aðalhlutverk Johnny Cash, Kris Kristofer-
son og Willie Nelson.
Þjóðsagan um eina þekktustu útlaga
villta vestursins, sem voru miskunnar-
lausir morðingjar í augum yfirvalda en
hetjur í augum fólksins.
00.15 Útvarpsfréttir í dagskrárlok.
FÖSTUDAGUR
25. nóvember
7.03 Morgunútvarpið.
9.03 Viðbit.
- Þröstur Emilsson. (Frá Akureyri.)
10.05 Morgunsyrpa
Evu Ásrúnar Albertsdóttur og Óskars
Páls Sveinssonar.
12.00 Fréttayfirlit - Auglýsingar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 í undralandi
með Lísu Páls.
14.00 Á milli mála.
- Eva Ásrún Albertsdóttir og Óskar Páli
Sveinsson.
16.03 Dagskrá.
19.00 Kvöldfréttir.
19.33 Áfram ísland.
íslensk dægurlög.
20.30 Vinsældalisti Rásar 2.
Stefán Hilmarsson kynnir tíu vinsælustu
lögin.
22.07 Snúningur.
Stefán Hilmarsson og Anna Björk Birgis-
dóttir bera kveðjur milli hlustenda og
leika óskalög.
02.05 Rokk og nýbylgja.
03.00 Vökulögin.
Veðurfregnir frá Veðurstofu kl. 4.30.
Fréttir eru sagðar kl. 2,4,7,7.30,8,8.30,
9, 10, 11, 12, 12.20, 14, 15, 16, 17, 18, 19,
22 og 24.
RÁS 1
FÖSTUDAGUR
25. nóvember
6.45 Veðurfregnir - Bæn.
7.00 Fréttir.
7.03 í morgunsárið
með Ingveldi Ólafsdóttur.
Lesið úr forystugreinum dagblaðanna að
loknu fréttayfirliti kl. 8.30.
9.00 Fréttir.
9.03 Litli barnatíminn.
„Vaskir vinir" eftir Jennu Jensdóttur og
Hreiðar Stefánsson.
Þórunn Hjartardóttir les (5).
9.20 Morgunleikfimi.
9.30 Kviksjá - Rússlands þúsund ár.
Fimmti og lokaþáttur.
10.00 Fréttir - Tilkynningar.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Maðurinn á bak við bæjarfulltrúann.
Umsjón: Finnbogi Hermannsson. (Frá
ísafirði.)
11.00 Fréttir ■ TUkynningar.
11.05 Samhljómur.
11.55 Dagskrá.
12.00 Fréttayfirlit ■ Tilkynningar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir ■ TUkynningar.
13.35 Miðdegissagan: „Örlög í Síberíu"
eftir Rachel og Israel Rachlin. (10)
14.00 Fréttir ■ Tilkynningar.
14.05 Ljúflingslög.
15.00 Fréttir.
15.03 Fremstar meðal jafningja.
Þáttaröð um skáldkonur fyrri tima.
Sjöundi þáttur: „Skáldhneigðar systur",
Anne, EmUy og Charlotte Bronte.
Síðari hluti.
15.45 Þingfréttir.
16.00 Fréttir.
16.03 Dagbókin.
Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið.
17.00 Fréttir.
17.03 Tónlist á síðdegi.
- Nielsen og Tsjaíkovskí.
18.00 Fréttir.
18.03 Þingmál.
Tónlist • Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Tilkynningar.
19.33 Kviksjá.
Þáttur um mennmgarmál.
20.00 Litli barnatíminn.
20.15 Blásaratónlist.
21.00 Kvöldvaka.
a. „Syngið, strengir."
Jón frá Ljárskógum og ljóð hans.
Gunnar Stefánsson tók saman.
M.A.-kvartettinn syngur nokkur lög.
b. Lög eftir Sigvalda Kaldalóns.
Ingveldur Hjaltested, Stefán íslandi,
Guðrún Á. Símonar, Friðbjöm G. Jónsson
og Jón Sigurbjömsson syngja ásamt
Karlakór Reykjavíkur.
c. Draugasögur.
Kristinn Kristmundsson les úr þjóðsögum
Jóns Ámasonar.
Umsjón: Gunnar Stefánsson.
22.00 Fréttir • Dagskrá morgundagsins ■
Orð kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Vísna- og þjóðlagatónlist.
23.00 í kvöldkyrru.
Þáttur í umsjá Jónasar Jónassonar.
24.00 Fréttir.
Svæðisútvarp fyrir Akureyri
og nágrenni.
FÖSTUDAGUR
25. nóvember
8.07-8.30 Svæðisútvarp Norðurlands.
18.03-19.00 Svæðisútvarp Norðurlands.
7.00 Egg og beikon.
ÓhoUur en bragðgóður morgunþáttur
Stjörnunnar.
Fréttir kl. 8.
09.00 Níu til fimm.
Lögin við vinnuna. Lítt trufluð af tali.
Hádegisverðarpotturinn á Hard Rock
Café kl. 11.30.
Fréttir klukkan 10, 12, 14 og 16.
17.00 ís og eldur.
Hin hhðin á eldfjaUaeyjunni.
18.00 Bæjarins besta
kvöldtónUst.
21.00 Stjömustuð fram eftir nóttu.
03.00-10.00 Næturvaktin.
HJjóðbylgjan
FM 101,8
FÖSTUDAGUR
25. nóvember
07.00 Kjartan Pálmarsson
lítur björtum augum á föstudaginn.
09.00 Pótur Gudjónsson
til í slaginn á föstudegi.
12.00 Hádegistónlist,
ókynnt tónlist í föstudagshádegi.
13.00 Þráinn Brjánsson
í sínu sérstaka föstudagsskapi, með allt á
hreinu.
17.00 Kjartan Pálmarsson
verður ykkur innan handar á leið heim úr
vinnu..
19.00 Kvöldmatartónlist,
bitinn rennur ljúflega niður með ókynntri
tónhst.
20.00 Jóhann Jóhannsson
setur fólk í föstudagsstellingar.
24.00 Næturvakt Hljódbylgjunnar.
04.00 Ókynnt tónlist
til laugardagsmorguns.
989
IBYL GJANl
f FÖSTUDAGUR
25. nóvember
08.00 Páll Þorsteinsson.
Þægilegt rabb í morgunsárið.
Fréttir kl. 8 og Potturinn, þessi heiti kl. 9.
10.00 Anna Þorláks.
Aðalfréttirnar kl. 12 og fréttayfirUt kl. 13.
14.00 Þorsteinn Ásgeirsson.
Fréttir kl. 14 og 16 og Potturinn ómiss-
andi kl. 15 og 17.
18.00 Fréttir á Byigjunni.
18.10 Hallgrímur Thorsteinsson
í Reykjavik síðdegis,
19.05 Meiri músík
- minna mas. TónUstin þin á Bylgjunni.
22.00 Þorsteinn Ásgeirsson
á næturvakt Bylgjunnar.
03.00 Næturdagskrá Bylgjunnar.