Dagur - 25.11.1988, Side 17
K Fn
25. nóvember 1988 - DAGUR - 17
Akureyrarprestakall:
Sunnudagaskólinn verður nk.
sunnudag, 27. nóv. kl. 11 f.h.
Öll börn velkomin og foreldrar
þeirra. Takið nýja gesti með.
Sóknarprestarnir.
Fjölskylduguðsþjónusta verður í
Akureyrarkirkju nk. sunnudag, sem
er 1. sunnudagur í aðventu. Athöfn-
in hefst kl. 2 e.h. og eru fermingar-
börn og foreldrar þeirra og fjöl-
skyldufólk sérstaklega boðuð til
þessarar athafnar. Allir eru að sjálf-
sögðu velkomnir og hvattir til að
hefja jólaundirbúninginn í kirkj-
unni. Sálmar: 57-60-59-345-507.
Kvenfélag Akureyrarkirkju verður
með súkkulaði og heitar kleinur til
sölu í kapellunni eftir guðsþjónustu.
Sóknarprestarnir.
Dalvíkurprestakall.
Fjölskyldumessa verður í Dalvíkur-
kirkju 27. nóvember kl. 11.00.
Kveikt á fyrsta aðventukertinu.
Efni fyrir börnin.
Hljóðfæraleikur og söngur.
Sóknarprestur.
Spilakvöld.
Munið seinna spilakvöld-
ið okkar föstud. 25. nóv.
kl. 20.30 í Lóni v/Hrísa-
lund. Kvöldverðlaun.
Missið ekki af heildarverðlaununum.
Mætið öll vel og stundvíslega.
Kvennadeild Þórs.
KFUM og KFUK,
Sunnuhlíð.
Sunnudaginn 27. nóv-
ember. Almenn sam-
koma kl. 20.30. Ræðumaður: Ragn-
heiður Harpa Arnardóttir.
Allir velkomnir.
Opinber biblíufyrirlestur sunnudag-
inn 27. nóvember kl. 14.00 í Ríkis-
sal votta Jehóva, Sjafnarstíg 1,
Akureyri.
Ræðumaður Friðrik Friðriksson.
Allt áhugasamt fólk velkomið.
Vottar Jehóva.
Sjónarhæð.
Drengjafundur nk. laugardag kl.
13.00. Allir drengir velkomnir.
Sunnudagaskóli í Lundarskóla nk.
sunnudag kl. 13.30.
Öll börn velkomin.
Almenn samkoma nk. sunnudag kl.
17.00. Verið velkomin að hlýða á
Guðs orð.
Hjálpræðisherinn.
Hvannavöllum 10.
Föstud. kl. 20.00 æsku-
lýðurinn.
Laugard. kl. 14.00 jólabasar.
Sunnud. kl. 11.00 helgunarsam-
koma. Kl. 14.30 sunnudagaskóli.
Kl. 18.00 hermannasamkoma. Kl.
19.30 bæn. Kl. 20.00 almenn sam-
koma. Deildarstjórinn kaptein
Daníel Óskarsson talar og stjórnar.
Mánud. kl. 16.00 heimilasamband.
kl. 20.30 hjálparflokkur.
Þriðjud. kl. 17.00 yngriliðsmanna-
fundur.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
-
Villibráðarkvöld
á Hótel KEA
Sælkerar geta heldur betur
kitlað bragðlaukana á laugar-
dagskvöldið, en þá verður
haldið hið árlega villibráðar-
kvöld í samvinnu Skotveiðifé-
lags Eyjafjarðar og Hótel
KEA á Akureyri.
Veislustjóri verður hinn kunni
klerkur Möðruvallasóknar, sr.
Pétur Þórarinsson og til að villi-
bráðin renni Ijúflega niður mætir
Jasstríó Ingimars Eydal á staðinn
og leikur léttar sveiflur.
Fjölmargir réttir verða fram
bornir og skulu hér örfáir
nefndir. Fremst á meðal jafninga
er rjúpan, þá svartfuglinn, lundi,
endur og gæsir, skarfur og súla.
Hreindýr verða og á borðum og
lax bæði reyktur og grafinn. Og
er þá fátt eitt talið.
Bridgesamband Norðurlands:
Leiðalýsing
St. Georgsgildið stendur fyrir leiðalýsingu í kirkju-
garðinum eins og undanfarin ár. Tekið á móti
pöntunum í símum 22517 og 21093 fram til föstu-
dagsins 2. desember. Verð á krossi er 800 krónur.
í>eir sem vilja hætta tilkynni það í sömu símum.
Samtök sykursjúkra á Akureyri og nágrenni.
Jólafundurinn verður
á venjulegum fundarstað í Hafnarstræti 91 (KEA-
húsið) kl. 15.00 laugardaginn 26. nóvember nk.
Séra Pétur Þórarinsson ræðir við fundarmenn og flytur
jólahugvekju.
Stjórnin.
Dregið í Bikarkeppni
Dregið hefur verið um það
hvaða sveitir mætast í 1. og 2.
umferð Bikarkeppni Bridge-
sambands Norðurlands, sem
senn fer að hefjast.
Eftirtaldar sveitir drógust sam-
an og á sú sveit heimaleik, sem á
undan er nefnd:
Sv. Gunnars Berg, Akureyri - sv.
Ásgríms Sigurbjörnssonar, Siglu-
firði.
Sv. Arnar Einarssonar, Akureyri
— sv. Björgvins Leifssonar, Húsa-
vík.
Sv. Kristjáns Guðjónssonar,
Akureyri - sv. Ormars Snæ-
björnssonar, Akureyri.
Sv. Ásgeirs Valdimarssonar,
Akureyri - sv. Hellusteypunnar,
Akureyri.
Eftirtaldar sveitir sitja yfir í 1.
umferð: Sv. Ólafs Ágústssonar,
Akureyri, sv. Grettis Frímanns-
sonar, Akureyri, sv. Valtýs
Jónassonar, Siglufirði og sv.
Eðvarðs Hallgrímssonar,
Hvammstanga.
Leikjum í 1. urnferð skal lokið
fyrir áramót.
í 2. umferð spila eftirtaldar
sveitir saman:
Sv. Kristjáns Guðj./sv. Ormars
Snæbj. - sv. Valtýs Jónass.
Sv. Arnar Einarss./sv. Björgvins
Leifss. - sv. Eðvarðs Hallgrímss.
Sv. Ásgeirs Valdimarss./sv.
Hellusteypunnar - sv. Gunnars
Berg/sv. Ásgríms Sigurbjörnss.
Sv. Ólafs Ágústss. - sv. Grettis
Frímannss.
Leikjum í 2. umferð skal lokið
fyrir 1. febrúar 1989.
Félagsvist
verður í Golfskálanum að Jaðri
í kvöld, föstudagskvöld
25. nóvember og hefst kl. 21.00.
Vegleg kvöldverdlaun.
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfír.
Spilanefnd.
Vantar blaðbera
frá 1. desember í Aðalstræti og Lækjargötu.
Strandgötu 31 S 24222
AKUREYRARB/ER
Félagsmálastofnun
Akureyrar flytur
Ráðgjafadeild flytur að Hafnarstræti 104 3. h.
símar 25880 og 25881. Lokað verður vegna
flutninga fimmtudag og föstudag 24. og 25. nóv.
nk. en hægt verður að ná í starfsmenn vegna
brýnna erinda milli kl. 11 og 12 báða dagana.
Mánudaginn 28. nóvember verður opnað að
Hafnarstræti 104.
Heimilisþjónusta flytur að Hlíð og er síminn
27930.
Félagsmálastofnun Akureyrar.