Dagur - 25.11.1988, Blaðsíða 13

Dagur - 25.11.1988, Blaðsíða 13
á góðum degi Hér á Akureyri bar það við, fyrir rúmum 60 árum, að maður einn fór að rjála við mótorhjól, sem skilið hafði verið eftir fyrir utan hús í Brekkugötu og var vélin í gangi. Maðurinn var óvanur þessu farartæki, en vanur hjól- reiðamaður. Settist hann nú á bak að gamni sínu, en varð þess valdandi í sama vetfangi, að reiðskjótinn skellti á skeið mikið. Maðurinn gat setið og stýrt, en kunni ekki að stöðva hjólið. Hófst nú ægileg reið um Akur- eyrargötur, svo að allt hrökk undan. Maðurinn stefndi inn í bæinn og fram Eyjafjarðarveg sem fugl flygi. Sá maðurinn, að hann átti líf sitt undir því, að hann gæti stýrt svo, að ekki yrði slys. - Segir ekki af för hans fyrr Bílastæðaskortur þjakar Akureyringa, þótt hann sé mun minni en í Reykja- vík. Hugleiðingar um bif- reiðar og hjólhesta 25. nóvember 1988 - DAQUR - 13 Þórsarar! Munið getraunirnar alia laugardaga. Felagsnumer Þórs er 603 Skrifstofa knattspyrnudeildar er opin alla virka daga frá kl. 17-18, sími 22381. Veitum upplýsingar og aðstoð. Knattspyrnudeild. Nýjung frá Esso- nesti við Leiruveg Bensín og díseleidsneyti afgreitt á kvöldin frá sælgætissölu. Sjálfsafgreiðsla Esso-nesti við Leiruveg. en hann er kominn fram hjá Saurbæ, 25 km frá Akureyri. Þá stöðvaðist hjólið af sjálfu sér. Vildi svo heppilega til, að bensín- ið var þrotið. Lofaði maðurinn Guð fyrir lífgjöfina, og þóttist sleppa vel úr þeysireið þessari. Það gerðist aftur rétt fyrir miðja öldina í Reykjavík að maður nokkur „stal“ heldur stærra far- artæki, sem sagt strætisvagni. Þetta var þó í góðum tilgangi gert, og vildi þannig til: Er bíl- stjóri vagnsins ætlaði að leggja af stað sunnan úr Skerjafirði, kom hann vagninum ekki í gang. Tals- vert af farþegum var komið í bílinn. Vagnstjórinn skrapp þá inn í næsta hús til að hringja á annan bíl sér til aðstoðar. En á meðan strætisvagnstjór- inn var að þessu, bar að mann nokkurn, sem þurfti að komast í vinnu sína til bæjarinsfog ætlaði með vagninum. Er honum var sagt hvernig sakir stóðu, settist hann óbeðinn í vagnstjórasætið, kom vagninum í gang og hélt af stað með alla farþegana. Ók hann áætlunarferðina eins og lög gera ráð fyrir, skilaði bílnum á sinn stað á Lækjartorgi og hélt svo leiðar sinnar, eins og ekkert væri sjálfsagðara en að gerast strætisvagnstjóri í viðlögum. - Hræddur er ég um að þessi tvö atvik myndu ekki ganga svona greiðlega fyrir sig í dag af skiljan- legum ástæðum. Bílaeign landsmanna er orðin gífurleg og er farin að valda bæði einstaklingum og þjóðinni í heild talsverðum vandræðum. Hér á Akureyri gengur umferðin ágæt- lega fyrir sig þótt alltaf verði eitthvað um slys og óhöpp. Aðal- vandræðin í sambandi við umferð- ina hér virðast vera að bílastæði eru of fá. Sá sem hefur þurft að sinna erindum sínum í miðborg Reykjavíkur á bíl, á mánudegi eða föstudegi eftir hádegi, mundi þó kalla að hér væri aldeilis nóg af stæðum fyrir bíla. Annað vandamál er komið hér upp sem ekki þekktist fyrir tveimur, þremur árum. Það er að í dag er nær útilokað að selja bifreið sem er orðin eldri en 4ra ára. Maður verður bara að keyra þessa eldri bíla „út“ og síðan lenda þeir í einhverjum „bíla- kirkjugarðinum“, sem spretta upp, vegna þessarar þróunar. Þegar ég var ungur, var ég að læra hjá flugfélaginu S.A.S. í Kaupmannahöfn um nokkurt skeið. Við vorum sendir tveir og tveir í einu frá Flugfélagi íslands, til að kynnast mótorsamsetning- um og prófunum á flugvéla- Auðunn Blöndal skrifar hreyflum hjá þeim dönsku. Þetta var að sjálfsögðu mjög skemmti- legur tími og lærdómsríkur um margt. Ég man hvað ég varð hissa þegar ég sá forstjóra þessa stóra fyrirtækis akandi á reiðhjóli til vinnu sinnar. Við íslensku lærlingarnir áttum þá flestir, eitthvað sem við gátum kallað bíl og man ég að minn fyrsti bíll var Ford Prefect ’48 eða ’50 módel. Eftir að ég varð eldri ætlaði ég svo að taka þennan stórforstjóra mér til fyrirmyndar, ég keypti mér gott tveggja gíra hjól og fékk konuna mína til að kaupa sér annað, af sömu gerð. Ég held að ég hafi haldið út að hjóla í vinn- una í viku eða tíu daga. Eftir það var þessi góði hjólhestur minn auglýstur í smáauglýsingu, sem nýr, og seldist fljótt. Eitthvað hélt konan mín hjólreiðarnar lengur út, en síðan var hennar fákur einnig seldur. Það mun hafa verið í kringum 1904 sem fyrsti bíllinn var keypt- ur til landsins. Maður að nafni D. Thomsen, keypti þessa bifreið og fékk styrk frá ríkinu að upphæð kr. 2.000. Þessi maður átti að gera tilraunir með, hvort tiltæki- legt væri að nota bifreiðar á veg- um á íslandi. Bíll þessi reyndist afar illa, var bæði vélarvana og bilaði oft. Það var svo ekki fyrr en 20/5 1913 að skoskur maður, útgerð- armaður í Hafnarfirði, Bookless að nafni, flutti hingað bifreið sem stóð undir nafni. Sagt var um far- kost þennan að hann liði mjúkt og liðlega um veginn og léti vel að stjórn. Þá fyrst voru menn orðnir spyrjandi yfir hvort bílar yrðu framtíðarfarartæki íslend- inga. Það er víst enginn í vafa um það lengur. Þegar þetta var að gerast hafði fyrsta járnbrautar- slysið orðið hér. Það var í maí- mánuði þetta sama ár og vildi þannig til, að sunnudaginn 4. maí varð stúlka undir járnbrautar- vagni, er verið var að skemmta fólki með því að flytja það um Eskihlíðarjárnbrautina. Stúlka þessi ætlaði að stökkva af vagnin- um í því að lestin stansaði, en varð undir og fótbrotnaði og hlaut fleiri meiðsl. Þetta gerðist rétt tæpum mánuði eftir að fyrsti gufuvagninn fór um járnbraut hérlendis. Öll vitum við um endalok eimreiðaferða hérlendis og fáir eru þeir sem trúa að járnbrautir verði lagðar um okkar góða land, héðan af. En hver veit? A.B AðaHundur Knattspyrnudeildar KA verður haldinn í KA-heimilinu mánudaginn 28. nóvember nk. kl. 20.30. KA-félagar eru hvattir til að mætal Stjórnin. Kjörmarkaður KEA Hrísalundi 5 ÞaÖ borgar sig að fá sér i helgarmatínn hjá okkur Lambakjöt af nýslátruöu í kjötborði ásamt mörgum góðum réttum. Munið kjúklingana beint úr ofninum Viðskiptavinir takið eftir að rauðróf- urnar eru komnar á mjög góðu verði Opið til kl. 19.00 í kvöld föstudag og til kl. 16.00 laugardaga. Verslið hagstætt og veríð velkomin \/ o W VISA Hrísalundur

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.