Dagur - 30.11.1988, Side 4
4 — DAGUR - 30. nóvember 1988
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÓLF 58, AKUREVRI, SlMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 800 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 70 KR.
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 530 KR.
RITSTJÓRI:
BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
BLAÐAMENN:
ANDRÉS PÉTURSSON (iþróttir),
ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, BJÖRN JÓHANN BJÖRNSSON
(Sauðárkróki vs. 95-5960), EGILL H. BRAGASON,
FRÍMANN HILMARSSON (Blönduósi vs. 95-4070),
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON
(Reykjavík vs. 91-17450, pósthólf 5452, 105 Reykjavík),
MARGRÉT ÞÓRA ÞÓRSDÓTTIR, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON,
STEFÁN SÆMUNDSSON, VILBORG GUNNARSDÓTTIR,
LJÓSMYNDARAR: GUÐMUNDUR HRAFN BRYNJARSSON,
TÓMAS LÁRUS VILBERGSSON,
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRIMANN FRÍMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÚRI:
HAFDfS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
Vandi dreifbýlis-
verslunar
Verslunarfyrirtæki í dreifbýli standa mjög höllum
fæti um þessar mundir og hafa undantekningarlítið
búið við mikinn taprekstur um langt skeið. Er þá
sama hvort litið er til verslunarfyrirtækja í einka-
eign ellegar fyrirtækja í félagslegri eigu, svo sem
kaupfélaganna. Nú þegar hafa nokkur verslunarfyr-
irtæki í dreifbýlinu orðið gjaldþrota og fjölmörg önn-
ur eiga við svo stórvægilega rekstrarörðugleika að
etja, að vafasamt verður að teljast að þau nái að
standa þá af sér.
Valur Arnþórsson, kaupfélagsstjóri Kaupfélags
Eyfirðinga, ræddi síversnandi stöðu dreifbýlisversl-
unar í viðtali í Degi á þriðjudag. Þar kemur fram að
þessir erfiðleikar eiga sér sínar skýringar. í fyrsta
lagi hefur staða dreifbýlisverslunar versnað vegna
þeirra þjóðfélagsbreytinga, sem átt hafa sér stað;
þ.e. fjölgunar í þéttbýli og fækkunar í dreifbýli. í
annan stað hafa stórbættar samgöngur gert landið
allt að einum markaði, þannig að fólk í dreifbýli
sækir verslun jafnframt til stærstu þéttbýlisstaða.
Þá hafa hækkandi vextir komið mjög illa við dreif-
býlisverslunina, vegna mikils birgðahalds, en eins
og kunnugt er, er veltuhraði verslunar í dreifbýli
miklu lægri en í verslunum á þéttbýlisstöðum. Loks
hefur það veruleg áhrif á stöðu dreifbýlisverslunar,
hversu stór hluti af sölu hennar er dagvörur, svo
sem landbúnaðarvörur, sem hafa ákaflega lága
álagningu, miklu lægri en sem nemur kostnaðinum
við að selja þessar vörur. Þessi álagning er svo lág,
að meira að segja eigendur stórmarkaða á Reykjavík-
ursvæðinu, kvarta hástöfum, en þó fá þeir svo og
svo stóran hluta verslunar úr nágrannabyggðum til
sín daglega.
Þessi öfugþróun fyrir dreifbýlisverslun í landinu
er mikið áhyggjuefni. Valur Arnþórsson komst svo
að orði í fyrrnefndu viðtali:
„Nú liggur í augum uppi að fólk í dreifbýli þarf á
verslunarþjónustu að halda á sama hátt og það þarf
heilbrigðisþjónustu og menntunaraðstöðu. Búseta,
án verslunarþjónustu í hæfilegri fjarlægð, er nánast
óhugsandi. Það hlýtur að verða hlutverk þjóðfélags-
ins að leysa þessa þörf á sama hátt og þjóðfélagið
leysir önnur viðfangsefni íbúanna. Það gengur ekki
að verslunaraðilar reki dreifbýlisverslunina árum
saman með tapi, það þýðir einfaldlega að hún
leggst niður. Það er því óhjákvæmilegt að á íslandi,
eins og í öðrum þróuðum löndum, séu gerðar ráð-
stafanir af hálfu opinberra aðila til að dreifbýl-
isverslun geti haldist við lýði.“
Ástæða er til að vekja athygli á þessum orðum.
Innan mjög skamms tíma getum við staðið frammi
fyrir því að fjölmargar verslanir í dreifbýlinu hætti
eða verði gjaldþrota. Ef svo fer mun það hafa gífur-
lega neikvæð áhrif á búsetuþróunina í landinu,
enda telja flestir það nauðsyn að hafa a.m.k. dag-
vöruverslun í næsta nágrenni.
Stjórnvöld verða að huga að stöðu dreifbýlisversl-
unar í landinu og gera viðeigandi ráðstafnir henni
til bjargar, ef koma á í veg fyrir enn stórfelldari
byggðaröskun en þegar hefur átt sér stað. BB.
Þórsarar gefa félagsheimili sínu nafn:
„Hamar skal það heita“
- sagði Aðalsteinn Sigurgeirsson formaður félagsins um leið
og Halldór Árnason aíhjúpaði nafnið sem fyrir valinu varð
Þórsarar héldu fokeldishátíð
mikla í hinu nýja félagsheimili
sínu á Iaugardaginn. Þá var
heimilinu einnig gefið nafn en
stjórn félagsins stóð fyrir sam-
keppni um nafnið. „Hamar
skai það heita,“ sagði Aðal-
steinn Sigurgeirsson formaður
Þórs um leið og Halldór Árna-
son skósmiður afhjúpaði nafn-
ið sem varð fyrir valinu.
Mikill fjöldi gesta mætti í
heimilið á laugardag og er talið
að um þriðja hundrað manns hafi
komið í heimsókn. Á meðal
þeirra var Sigfús Jónsson bæjar-
stjóri, bæjarstjórnarmenn og Sig-
björn Gunnarsson formaður
íþróttaráðs.
Dagskráin hófst með því að
Aðalsteinn formaður bauð gesti
velkomna en gaf síðan Gísla
Kristni Lórenzsyni formanni
byggingarnefndar orðið. Hann
rakti byggingarsögu hússins og
ræddi einnig framtíðaráform í
byggingarmálum félagsins. Er
Gísli Kristinn hafði lokið máli
sínu, afhenti Hjálmar Pétursson
félaginu glæsilegt minnismerki að
gjöf, um tvo Þórsara, þá Kristján
Kristjánsson og Þórarinn
Jónsson, sem létust í íþróttaferð
á vegum félagsins um Vestfirði,
8. júlí árið 1951.
En þá var komið að því að
greina frá úrslitum í samkeppni
félagsins um nafn á félagsheimil-
ið. Dómnefndin sem skipuð var
sjö valinkunnum félagsmönnum
átti úr vöndu að ráða en hafði
engu að síður komist að sameig-
inlegri niðurstöðu.
Aðalsteinn formaður sagði að
alls hefðu borist um 50 bréf með
83 nöfnum. Fyrir valinu varð
nafnið „Hamar“ og höfðu þrír
aðilar sent inn þetta nafn og var
þeim öllum veitt verðlaun. Þeir
voru Gunnlaugur Björnsson,
Sveina Pálsdóttir og Þorsteinn
Þorsteinsson. Dregin voru út ein
aðalverðlaun og komu þau í hlut
Gunnlaugs Björnssonar, sem er
nú betur þekktur sem KA-maður
en hefur þó starfað í herbúðum
Þórs.
Að síðustu var gestum boðið
að ganga um og skoða húsið og
þiggja ljúfengar veitingar hjá
kvennadeild Þórs.
Að lokum má geta þess að
dómnefndin sem valdi nafnið á
félagsheimilið var skipuðuð þeim
Halldóri Árnasyni, Rafni Hjalta-
lín, Svölu Halldórsdóttur, Sig-
urði Arnórssyni, Þorsteini Svan-
laugssyni, Gísla Kristni Lórenz-
syni og Aðalsteini Sigurgerissyni.
-KK
Halldór Árnason skósmiður afhjúpar nafnið sem fyrir valinu varð.
Kvennadeild Þórs bauð gestum upp á glæsilegar kaffiveitingar í tilefni dagsins
og kunnu gestir greinilega vel að meta það sem á boðstólum var.