Dagur - 30.11.1988, Blaðsíða 7
30. nóvember 1988 - DAGUR - 11
Þessi stúlka var að lesa bókina um góðu börnin í Grunnskólanum á Kópaskeri. Nemendur
í skólanum ætla að fara með foreldrum sínum til Akurcyrar að sjá Emil í Kattholti þegar far-
ið verður að sýna leikritið um jólin.
Atvinnumál í héraðinu eru ekki í sem bestu horfi þessa
stundina, en menn hafa fullan hug á að snúa vörn í sókn.
að hafa hér skátafélag. Slík félög
eru að jafnaði ekki til í smærri
sveitarfélögum," sagði Ingunn.
Snúum vörn í sókn
Atvinnumál í héraðinu eru ekki í
sem bestu horfi þessa stundina,
en Ingunn sagði að ntenn hefðu
fullan hug á að snúa vörn í sökn í
þeim efnum. Atvinnuleysi hefur
ekki verið verulegt í Presthóla-
hreppi, á fyrstu níu mánuðum
þessa árs hafa 24 verið atvinnu-
lausir, þar af flestir í janúar,
febrúar og ntars. Mest var at-
vinnuleysi í hreppnum árið 1981
þegar að jafnaði voru fimm at-
vinnulausir í hverjum ntánuði,
eða samtals 61 yfir árið og síðan
aftur árið 1984 þegar 54 voru
atvinnulausir yfir árið. Einkum
bitnaði það á konum, en árið
1981 þegar atvinnuleysi var mest
í hreppnum var 51 kona á skrá á
móti 10 körlum.
) leggja árar í
ittir oddviti í Presthólahreppi
samráði við það fólk sem kæmi til
með að njóta þjónustunnar.
Félagslífið ótrúlega öflugt
Mikið og öflugt félagslíf er í
Presthólahreppi. Þar eru starf-
andi ýmiss konar félög og sagðist
Ingunn dást að því hversu virkt
fólkið væri og tæki mikinn þátt í
félagsstarfi. „Fólk lætur mynd-
bandið ekki stoppa sig neitt af í
félagslífinu. Pað er í raun ótrú-
legt hversu vel gengur að halda
uppi öflugu félagslífi í jafn
fámennu byggðarlagi og þessu.“
Á síðasta ári var stofnað leik-
félag í hreppnum og voru for-
ráðamenn þess í óða önn að
undirbúa dagskrá fyrir leiklistar-
daginn 12. nóvember þegar
blaðamenn voru á staðnum. Síð-
asta vetur fékk leikfélagið Guð-
rúnu Stephensen leikkonu til að
halda námskeið m.a. í framsögn
og sagði Ingunn að það hefði tek-
ist mjög vel og allir verið ánægðir
með það. „Þetta var mjög
ánægjulegt, hún var með krökk-
unum á daginn og fullorðna
'fólkinu á kvöldin þannig að
allir nutu góðs af,“ sagði Ingunn.
Fjölbreytnin í félagsstarfinu er
mikil, að sögn Ingunnar. Kven-
félag og Kiwanisklúbbur eru
starfandi, kirkjukór og briddsfé-
lag. Foreldrafélag við skólann
heldur uppi öflugu starfi, og
sagði Ingunn að félagið væri að
undirbúa skemmtiferð með börn-
in til Akureyrar þar sem ætlunin
bát þótt mótí blási
væri að sjá Emil í Kattholti. Ung-
mennafélagið Snörtur er og á
staðnum og í vetur stunda karlar
og konur blak af miklu kappi í
gamla sláturhússalnum. í hitteð-
fyrra héldu allir sem vettlingi
gátu valdið út á fótboltavöll og
þökulögðu hann. Ingunn sagði að
það hefði verið mikið verk, en
svo sannarlega þess virði að hafa
grasvöll í hreppnum. „Það mættu
yfir 100 manns í þökulagninguna,
bæði börn og fullorðnir. Þetta
sýnir best samheldnina í sveitar-
félaginu." Góð þátttaka er í
starfsemi ungmennafélagsins og
yfir sumarmánuðina er ráðinn
þjálfari sem fer á milli staða á
svæðinu.
Skátar gáfu fánastöng
Þá má nefna hestamannafélag
sem á síðasta sumri stóð fyrir því
að á staðinn kom ágætur Skag-
firðingur og kenndi á reiðnám-
skeiði. Á milli 40 og 50 manns
sóttu námskeiðið og endaði það
með heilmikilli hópreið inn í
Kelduhverfi sem í tóku þátt
hestamenn af svæðinu öllu, eða
allt norðan úr Þistilfirði. Skáta-
félagið Skerjabúar er einnig
starfandi á Kópaskeri og hefur
verið í nokkur ár. Skátar hafa
tekið þátt í ýmsum mótum og
staðið fyrir skemmtilegum uppá-
komum. Á þjóðhátíðardaginn
síðasta gáfu þeir skólanunt fána-
stöng, en hún hafði ekki verið til
áður. „Við erum hreykin af því
Ingunn sagði að ýmsar blikur
væru á lofti í atvinnumálum hér-
aðsins, en leitað yrði allra leiða
til að koma þeim í þokkalegt
horf. Verið er að kanna hvort
fólk er tilbúið að fara af stað með
einhvers konar átaksverkefni og
fjórar konur hafa nú þegar látið
skrá sig á námskeið fyrir konur í
stofnun og rekstri fyrirtækja sem
Iðntæknistofnun mun halda á
Húsavík í apríl á vori komanda
Þá má einnig geta þess að full-
bókað er á námskeið í þrjátíu
tonna skipstjórnarréttindum sem
haldið verður á Kópaskeri í
febrúar og mars. „Það er langt
frá því að menn séu að leggjast í
einhverja ördeyðu,“ sagði Ing-
unn bjartsýn á framtíðina. . mþþ
Bifvélavirki gerir við kirkju:
„Það er góður andi í kirkjunm“
- spjallað við Jón Þóroddsson
sem vann við múrviðgerðir
í Snartarstaðakirkju við Kópasker
úr lofti svo ekki færi að leka inn í
Miklar endurbætur hafa verið
gerðar á Snartarstaðakirkju
við Kópasker. Nýlega var
kirkjan máluð að utan og einn-
ig hefur verið unnið talsvert
inni í kirkjunni sjálfri. Þegar
blaðamenn Dags voru á ferð-
inni á Kópaskeri á dögunum
var Jón Þóroddsson við vinnu í
kirkjunni og var hann að
skipta um hitalögn í gluggum
hennar.
Jón sagði að kirkjan hefði ver-
ið illa farin og brýn þörf á endur-
bótum. í fyrra haust vann hann
við kirkjuna og tók þráðinn aftur
upp nú í haust, en hann hefur að
mestu verið einn við vinnuna.
„Eg er reyndar bifvélavirki, en
hef undanfarið unnið að múr-
viðgerðum. Stunda svo sjóinn að
sumrinu,“ sagði Jón. Hann sagði
kirkjuna hafa verið illa farna
vegna raka og þess dæmi að lekið
hefði í gegn. Svo heppilega hefði
þó viljað til að aldrei hefði verið
messað á mestu rigningardögun-
um. „Það mátti ekki koma dropi
kirkjuna.“ Fjárhagserfiðleikar
hefðu ollið því að ekki var ráðist
í endurbætur fyrr, en eitthvað
hefði birt yfir í peningamálunum
og þá hefði verið ákveðið að láta
lagfæra eitt og annað sem nauð-
synlegt var.
Jón sagði að fyrirhugað væri að
mála kirkjuna að innan og gera
við mestu skemmdirnar í
kórnum, en þegar er búið að
koma í veg fyrir leka. Ný loft-
ræsting hefur verið sett upp í
kirkjunni og ýmislegt annað gert
til að koma henni í gott horf. Fyr-
ir ofan dyr inn í kirkjuna hang-
ir gömul altaristafla og er hún
orðin nokkuð lúin. „Það er áhugi
fyrir því að koma henni í við-
gerð, enda er hún orðin mjög
gömul og hefur mikið gildi.“
Næsta sumar á að ljúka við
mestu endurbæturnar og ganga
þá m.a. alvegJrá öllum gluggum.
„Það er mjög góður andi hér í
kirkjunni og gott að vinna
hérna,“ sagði Jón sem var einn
við vinnu sína að kvöldlagi. mþþ
Snartarstaöakirkja við Kópaskcr. Að undanförnu hefur verið unnið við lagfæringar
á kirkjunni og nýlega var hún máluð að utan. „Það er gott að vinna hérna,“ segir
Jón Þóroddsson. Myndir: TLV