Dagur - 30.11.1988, Blaðsíða 13
30. nóvember 1988 - DAGUR - 13
Stofnfélagar heiðraðir. Talið frá vinstri. Ingimar Eydal, Hörður Tuliníus, Rafn Hjaltalín og Birgir Stefánsson. í
ræðustól er forseti Kaldbaks, Þorsteinn Konráðsson.
Kivvan isklú I) burin n
Kaldbakur 20 ára
Afhending gjafabréfs til Sjálfsbjargar á Akureyri. Snæ-
björn Þórðarson, formaður Sjálfsbjargar, tekur við gjafa-
bréfí að upphæð 200.000 krónur, úr hendi Þorsteins
Konráðssonar, forseta Kaldbaks.
Meðal skemmtiatriða var svokallað „myndastyttuatriði“.
María Arnadóttir og Eiríkur Rósberg fóru á kostum í
þessu ágæta atriði.
Um þcssar mundir er Kiwanis-
klúbburinn Kaldbakur á Akur-
eyri 20 ára. Hann var stofnaður
14. september 1968 og voru
stofnfélagar 26 talsins. Frá upp-
hafi hefur meginmarkmið
klúbbsins verið að þjóna öðrum,
en í leiðinni að byggja klúbbfé-
laga upp. Fjáröflun hefur verið
með ýmsu móti og má þar nefna
kartöflurækt, páskaeggjasölu,
auglýsingasölu á klukkuturni
o.fl., o.fl. Ágóðinn af slíkri fjár-
öflun hefur runnið til styrktar-
verkefna, t.d. Fjórðungssjúkra-
hússins á Akureyri, Tónlistar-
skólans, æskulýðsmála o.fl. en
hæst ber þó stuðnirtgur klúbbsins
við Sjálfsbjörg á Akureyri, en
hann hefur verið rauður þráður í
gegnum starf klúbbsins á liðnum
árum. Fleira hefur verið á döf-
inni, t.d. sala á K-lykli, sent er
landssöfnun, og hefur hluti þeirr-
ar söfnunar komið til styrktar
geðdeild F.S.A.
Laugardaginn 5. nóvember sl.
hélt klúbburinn upp á 20 ára
afmælið að Jaðri og var mikið
glens og gaman. I tilefni af
afmælinu færði klúbburinn Sjálfs-
björg á Akureyri gjafabréf að
upphæð kr. 200.000 til tækja-
kaupa. Kiwanisfélagar víða að á
Íandinu ásamt mökum fjölmenntu
á hátíðina, sem heppnaðist með
miklum ágætum eins og sést á
meðfylgjandi myndum.
Svo sem sjá má var glatt á hjalla í afmælishófínu.
Matnum voru gerð góð skil, enda afar girnilegur.
Strax á
Norðurlandi
- tónleikar og ball í Dynheimum í kvöld
Hljómsveitin Strax er nú á ferð
um Norðurland og verður hún
með ball og tónleika í Dynheim-
um í kvöld, miðvikudagskvöld.
Að sögn Jakobs Frímanns
Magnússonar verður miða-
verði stillt mjög í hóf og aldurs-
takmark ekkert í Dynheimum.
En Strax kemur víðar við.
Á fimmtudagskvöldið 1. des-
ember spilar hljómsveitin fyrir
dansi á fullveldisfagnaði Mennta-
skólans á Akureyri. Þá verður
hljómsveitin í Sjallanum á föstu-
dagskvöld og á Hótel Húsavík á
laugardagskvöldið.
Strax mun birtast Norðlending-
um í nýrri ntynd, en auk Jakobs
Magnússonar og Ragnhildar
Gísladóttur eru í hljómsveitinni
þeir Baldvin Sigurðsson bassa-
Íeikari og Sigfús Óttarsson
trommuleikari, Eyfirðingar og
fyrrum Baraflokksménn. Loks er
í sveitinni hinn kraftmikli gítar-
leikari Sigurður Gröndal.
„Þetta eru þrekmestu rokkarar
sem við fundum nú á haustmán-
uðum og við bjóðum því upp á
kraftmikið rokk, auk þess að
vera með efni af nýju plötunni og
gömul Stuðmannalög í bland.
Við erurn með mjög vítt
prógramm,“ sagði Jakob. SS
Hljómsveilin Strax. Frá vinstri:
Jakob Magnússon, Sigfús Ottars-
son, Ragnhildur Gísladóttir, Sigurð-
ur Gröndal og Baldvin Sigurðsson.
Harmoniku-
dansleikur
verður haldinn að Lóni Hrísalundi \, laugardag-
inn 3. desember frá kl. 22.00-03.00.
Allir velkomnir. \
Félag harmonikuunnenda.
á
Ástkær kona mín,
GUÐRÚN A. SIGURÐARDÓTTIR,
Eyrarlandsvegi 12, Akureyri,
lést að Hjúkrunarheimilinu Seli 29. nóvember.
Jarðarförin auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda.
Ingólfur Gunnarsson.
Eiginmaður minn,
ÓLAFUR KJARTANSSON,
bóndi
Litla-Garði, Saurbæjarhreppi,
lést 23. nóvember á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri.
Jarðarförin fer fram frá Akureyrarkirkju miðvikudaginn 30.
nóvember kl. 13.30.
Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuð, en þeim sem vildu
minnast hans er bent á Krabbameinsfélag íslands.
Fyrir hönd aðstandenda,
Heiðbjört Kristinsdóttir.
Útför,
GUÐRÚNAR JÓNSDÓTTUR,
frá Hrísum,
fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 2. desember kl. 13.30.
Þeir sem vildu minnast hennar eru beðnir að láta Dvalar-
heimilið Hlíð njóta þess.
Benjamín Stefánsson, Þóra Björnsdóttir,
og barnabörn.