Dagur - 30.11.1988, Blaðsíða 15
30. nóvember 1988 - DAGUR - 15
íþróttir
i
Flugleiðadeildin í körfii:
Enn tapar TíndastóU
Biðu lægri hlut fyrir ákveðnum ÍR-ingum, 82:68 í gærkvöld
Leikmenn Tindastóls frá Sauð-
árkróki sneru heim stigalausir
eftir viðureignina við IR í
íþróttahúsi Seljaskóla í
gærkvöld. Lokatölurnar urðu
82:68 eftir að staðan hafði ver-
ið 42:30 í hálfleik, ÍR í hag. ÍR
náði strax góðu forskoti í byrj-
un og hélt því allt til loka ieiks-
ins.
Ekki var útlitið gott fyrir
norðanmenn þegar 6 mínútur
voru liðnar af leiknum því þá
hafði ÍR skorað 12 stig gegn
engu. Á meðan flest körfuskot
þeirra rötuðu rétta leið gekk allt
á afturfótunum hjá Sauðkræking-
um. Þá kom Eyjólfur liðinu loks
á bragðið.
Næstu mínúturnar hélst þessi
ntunur á liðunum og virtust
Tindastólsmenn eiga í mesta
basli með þá Sturlu Örlygsson og
Björn Steffensen. Með þessa
leikmenn fremsta í flokki komust
ÍR-ingar í 24:9 en aftur minnkaði
Valur muninn í 12 stig og sá mun-
ur hélst allt til loka hálfleiksins.
Tindastólsmenn komu ákveðn-
ari til leiks í síðari hálfleikinn,
sérstaklega Björn Sigtryggsson
sent barðist vel. Þrátt fyrir það
tókst þeim ekki að brjóta leik ÍR
niður og náðu því aldrei að ógna
sigri þeirra að neinu marki.
Minnstur var munurinn 9 stig
strax í byrjun hálfleiksins en
Mjög óhress
með firétt DV
- segir Smári Garðarsson
um sovéskan þjálfara til Þórsara
Smári Garðarsson formaður
handknattleiksdeildar Þórs er
mjög óhress með frétt DV í
gær um að félagið ætli að
ráða sovéskan þjálfara til
félagsins. „Blaðamaður DV
hringdi til mín og ég sagði
honum að málið væri á
algjöru byrjunarstigi og
tók loforð af honum að birta
ekkert um málið fyrr cn
eitthvað skýrðist í þessu máli,
því það væri á viðkvæmu
stigi,“ sagði formaðurinn.
Samkvæmt frétt DV hafa
Þórsarar hug á því að ráða Bor-
is Abkashev er þjálfaði lið
Valsmanna árið 1980. Einniger
skýrt frá því að hinn þekkti
leikntaður Belov myndi koma
með Boris hingað til lands.
Srnári staðfesti að þessi þjálf-
ari hefói verið inni í ntyndinni
en langt væri frá því að nokkuð
væri ákveðið í því efni, t.d.
hefðu Þórsarar einungis haft
samband við sendiráöið en ekki
Boris sjálfan.
Þess má geta að Abkashev
þessi er inni í myndinni hjá HSÍ
sem næsti landsliðsþjáifari
íslendinga.
Hvað kemur í stað
SanavaUarins?
- KRA lýsir yfir áhyggjum sínum
Á aðalfundi KRA 9.11.1988 var
eftirfarandi ályktun samþykkt:
Nú þegar svo virðist sem komið
sé að því að leggja niður Sana-
völlinn, lýsir aðalfundur KRA
miklum áhyggjum og furðu
sökum þess að ekkert virðist
eiga að koma í staðinn.
Við viljum benda á að Sana-
völlurinn lengir æfingatíma
knattspyrnumanna á Akureyri
um 3 mánuði á vorin vegna þess
hversu lágt hann stendur. Ef
þessir 3 mánuðir eru teknir af æf-
ingatímanum, hvar stöndum við
þá í keppni við félög af Reykja-
víkursvæðinu er hafa gervigras
og geta æft á því. allt árið?
Við gerum kröfur til knatt-
spyrnumanna okkar og erum
stolt þegar vel gengur en erum
líka gagnrýnin þegar á móti blæs,
því eigum við að skapa þeim þá
aðstöðu að þeir standi jafnfætis
keppinautum sínum í upphafi
leiks en á það hefur mikið skort
eftir að gervigrasvöllurinn í
Reykjavík var tekinn í notkun.
Því skorar aðalfundur KRA á
ráðamenn bæjarins að þeir sjái til
þess að Sanavöllurinn verði ekki
lagður niður fyrr en annar völlur
er koma skal í hans stað er tilbú-
mestur varð hann 16 stig undir
lok leiksins.
Telja verður þennan sigur ÍR
nokkuð sanngjarnan. Lið Tinda-
stóls virtist aldrei komast full-
komlega í gang, illa gekk að
trufl.a sóknir ÍR og í sókninni
komust þeir lítt gegn þéttri vörn.
ÍR-ingurinn Björn Steffensen
átti að vanda stórleik og var besti
maður vallarins. Sturla Örlygs-
son átti einnig góðan leik í fyrri
hálfleik en kom lítið inná í þeim
síðari. Jón Örn varð sprækari eft-
ir því sem leið á leikinn og skor-
aði góðar körfur undir lokin.
Eyjólfur Sverrisson var bestur
Tindastólsmanna. Hann var
drjúgur í sókninni, duglegur við
að fiska vítaköst og gerði sér lítið
fyrir og skoraði úr þeim öllum,
alls 11 talsins. Valur Ingimundar-
son var að vanda sterkur og
Björn Sigtryggson skilaði hlut-
verki sínu ágætlega, sérstaklega í
seinni hálfleik.
Dómarar leiksins voru þeir
Bergur Steingrímsson og Jón
Bender og skiluðu þeir hlutverki
sínu ágætlega. JÓH
Stig ÍR: Björn Stcffcnscn 31. Jön Örn Guö-
laugsson 16, Sturla örlygsson II. RagnarTorfa-
son S. Jóhannes Svcinsson S, Bragi Rcynisson 4,
Gunnar Þorsteinsson 2, Karl Guðlaugsson 2.
Stig UMFT: Eyjólfur Svcrrisson 27. Valur
Ingimundarson 22, Björn Sigtryggsson 14, Kári
Marísson 3, Ágúst Kárason I, Sverrir Svcrrisson
1.
Sverrir Sverrisson og félagar hans
gegn IR-ingum í gærkvöld.
Tindastólsliðinu náðu sér ekki á strik
Hvað gera knattspyrnumenn þegar Sanavöllurinn hverfur?
Handknattleikur yngri flokkar:
Klúður hjá Frömurum
- en Þórsurum tókst samt að sigra í 2. flokki
Þórsarar í 2. flokki unnu alla
sína leiki í 2. deild og tryggðu
sér þar tneð sæti í 1. deild og
sæti í úrslitakeppninni í vor.
En það er ekki sigurinn sem
munað er eftir í þessari keppni
heldur mjög slæleg fram-
kvæmd Framara á mótinu. Ef
lið Þórs og ÍBV hefðu ekki
verið mætt til Reykjavíkur
hefði keppnin ekki farið fram.
Með góðra manna hjálp var
reynt að bjarga nokkrum leikj-
um fyrir horn og þurfti einung-
is að fresta einum leik Þórsara.
„Framkvæmdin var eitt stórt
hneyksli," sagði Birgir Björnsson
þjálfari 2. flokks Þórs. „Fresta
þurfti mörgum leikjum því engir
dómarar mættu og engin forráða-
maður frá Fram lét sjá sig á
keppninni en þeir áttu að sjá um
þetta fjölliðamót."
Mál þetta var tekið fyrir á
fundi mótanefndar HSÍ í gær og
þar var farið fram á að Framarar
skiluðu inn skýrslu um ástæður
fyrir þessari slöku framkvæmd.
Björn Jóhannesson formaður
mótanefndar sagði að móta-
nefndin myndi bíða eftir þessari
skýrslu og síðan senda stjórn HSÍ
skýrslu um málið.
Þrátt fyrir þessa brotalöm tókst
Þórsurum að spila fjóra leiki og
sigra í þeim öllum. Einungis
leikurinn gegn Val féll niður en
hann skipti ekki máli því norðan-
drengirnir höfðu þegar tryggt sér
sæti í 1. deild og þar með sæti í
úrslitum 2. flokks í vor.
Úrslit í leikjum 2. flokks Þórs-
ara:
Þór-ÍBV 21:20
Þór-UBK 28:20
Þór-HK 23:17
Þór-Víkingur 19:17
Þór-Valur engir dómarar
Völsungur upp um deild í
4. flokki kvenna
Völsungur og Þór í 4. flokki
kvenna léku í Njarðvík í 3. deild
og komust Húsvíkingar upp í 2.
deild á betra markahlutfalli en
Þórsararnir. Úrslit í leikjum Völsungs: Þórs og
Völsungur-UMFN 12: 7
Völsungur-Fylkir 10: 8
Völsungur-FH 13:16
Völsungur-Þór 12:10
Völsungur-Stjarnan 4: 5
Þór-UMFN 9: 5
Þór-Fylkir 11: 8
Þór-FH 7:13
Þór-Stjarnan 12: 6
Lokastaðan í 3. deild 1. FH
2. Völsungur 3. Þór 4. Njarðvík 5. Stjarnan 6. Fylkir
KA stelpunum í 4. flokki tókst
ekki nógu vel upp í 2. deild í
sama flokki. Þær sigruðu einung-
is í einum leik en það dugði
ekki til að halda sér í deildinni.
Úrslit í leikjum KA: KA-Haukar 8:11
KA-Víkingur 2: 7
KA-KR 4:11
KA-ÍBV 6: 9
KA-HK 10: 9
Lokastaðan í 2. deild:
1. Haukar
2. KR
3. ÍBV
4. Víkingur
5. KA
6. HK
Handbolti:
KA og UBK
í kvöld
KA mætir Breiðabiiki í 1.
deildinni í handboltanum í
kvöld. Lcikurinn fer fram í
íþróttahöllinni og hefst kl.
20.30.
Friðjón Jónsson fyrirliði var
þokkalega bjartsýnn fyrir leik-
inn og sagði að undir venjuleg-
um kringumstæðum ætti KA
að geta unniö Breiöablikslið-
ið. „Þeim hefur gengið illa að
undaförnu og reyndar okkur
líka. En miðað við að KA-lið-
ið nái að spila af eðlilegum
styrkleika ættum við að bera
sigur úr býtum.“
Friðjón sagði að auðvitaö
hefðu úrslit seinustu leikja
verið vonbrigði fyrir alla sem
fylgdu liöinu. „Þrír heimaleik-
ir hafa tapast með einu marki
og það rná segja að áhorfend-
ur hafi fengið nokkuð fyrir
sinn snúö, þótt stigin hafi ekki
orðið eftir á Akureyri. Von-
andi mæta því menn í Höllina
og styðja við bakið á okkur,“
sagði fyrirliðinn vongóður.
í kvöld fara þrír aðrir leikir
fram í 1. deildinni. Víkingar
mæta Valsmönnum í Laugar-
dalshöll, Grótta tekur á móti
Frömurum í Digranesi og
Stjarnan fer til Vestmanna-
eyja og keppir við heima-
rnenn.
Einnig eru nokkrir leikir í 1.
deild kvenna. FH mætir Val,
Haukar keppa við Stjörnuna
og Fram og ÍBV keppa í Laug-
ardalshöll.