Dagur - 06.12.1988, Síða 2
2 - DAGUR - 6. desember 1988
Ekkert „ríki“ á
EgOsstöðum
Egilsstaðabúar setn vilja
„lyfta“ sér aðeins upp og
dreypa á guðaveigum, þurfa að
aka í a.m.k. 30 mínútur til
Seyðisfjarðar í næsta „ríki“,
eða að greiða undir fleiginn
sinn í póstkröfu.
í vor var samþykkt í atkvæða-
greiðslu að heimila ÁTVR að
setja upp verslun á Egilsstöðum.
Þátttaka í atkvæðagreiðslunni
var ágæt og um 56% þeirra sem
afstöðu tóku, vildu að áfengis-
útsala yrði opnuð á staðnum.
„Við höfum ritað bréf til ráðu-
neytisins og áfengisverslunarinn-
ar og tilkynnt þeim þessa niður-
stöðu, jafnframt því að við biðj-
um um að verslun verði sett upp
hér sem fyrst,“ sagði Sigurður
Símonarson bæjarstjóri í samtali
við Dag. „Þeir eru auðvitað með
mörg verkefni á sinni könnu og
aldrei að vita hvenær kemur að
okkur, en mér hefur verið tjáð að
ekki komi að okkur fyrr en í
fyrsta lagi næsta haust. Skynsem-
in segir okkur að þetta hljóti að
koma á öllum þéttbýlisstöðum,
sérstaklega þar sem um er að
ræða jafn mikinn ferðamanna-
straum og hér er. Það nær ekki
nokkurri átt fyrir fólk sem fer hér
um að þessi þjónusta skuli ekki
vera hér.“ VG
Skákfélag Akureyrar:
Gylfi sigraði
á Haustmótinu
- en Bogi sigraði í hraðskákmótinu
Gylfi Þórhallsson sigraði á
Haustmóti Skákfélags Akur-
eyrar og varði þar með titil
sinn frá því í fyrra. Keppni í A-
flokki var æsispennandi en
Gylfi hlaut 6 vinninga af 8
mögulegum, Rúnar Sigurpáls-
son og Þór Valtýsson fengu 5V2
vinning og Kári Elíson 5 vinn-
inga. Þessir fjórir börðust um
sigurinn.
Næstir komu Magnús Teitsson
með 4 v., Reimar Pétursson og
Bogi Pálsson með 3 v., Skafti
Ingimarsson með 2V v. og Sig-
urjón Sigurbjörnsson 1Vi v. Einn
keppandi varð að hætta vegna
veikinda.
I B-flokki sigraði Lárus Péturs-
son og fékk hann IVi vinning af 9
mögulegum. 2.-3. sæti: Jakob
Þór Kristjánsson og Stefán
Andrésson 6xh v. 4. Þorleifur
Karlsson 6 v. 5.-6. Júlíus Björns-
son og Örvar Arngrímsson 4 v.
Skákstjórar voru Albert Sigurðs-
son, Páll Hlöðvesson og Ingimar
Friðfinnsson.
Þá eru hér úrslit í hraðskák-
móti þar sem keppendur voru um
60 í þremur flokkum. Flokkur
fullorðinna: 1. Bogi Pálsson 17
vinningar af 20. 2. Þór Valtýsson
16'/i v. 3. Gylfi Þórhallson 16 v.
4.-5. Reimar Pétursson og Rúnar
Sigurpálsson 15 V v. 6. Jón Björg-
vinsson 14VL 7. Sigurjón Sigur-
björnsson 14 v. 8. Smári Ólafsson
13 v.
Unglingaflokkur: 1. Rúnar
Sigurpálsson 23 V vinningur af
24. 2. Þórleifur Karlsson 19'/2 v.
3. Reimar Pétursson 19 v. 4.
Smári Teitsson 17 v. 5. Ragnar
Þorvarðarson 16'A. 6. Pétur
Grétarsson 13 v. 7. Júlíus Björns-
son 12 v.
Drengja- og telpnaflokkur: 1.
Páll Þórsson 24 vinningar af 26.
2. Halþór Einarsson 24 v. (Páll
sigraði í einvígi). 3. Gestur
Einarsson 23 v. 4. Birkir
Magnússon 22. 5. Þorbjörg Þórs-
dóttir 21 v. 6. Halldór Ingi
Kárason 17 v. 7.-10. Magnús
Dagur Ásbjörnsson, Bárður
Heiðar Sigurðsson, Einar Jón
DAGUR
Revkjavík
8 91-17450
Norðlenskt dagblað
Gunnarsson og Kristján Ingi
Jóhannsson 16 v. Skákstjóri var
Sigurjón Sigurbjörnsson. SS
, r/.„, . ....
Kjarabót á Húsavík 5 ára
Kjarabót, matvörumarkaður að Garðarsbraut 62 á Húsavík átti 5 ára afmæli föstudaginn 25. nóv. sl.,
það var einmitt föstudagur fyrir fimm árum sem var fyrsti verslunardagurinn í Kjarabót. Jón Þorgríms-
son eigandi verslunarinnar og tengdasonur hans, Sighvatur Einar Sighvatsson verslunarstjóri eru á
myndinni ásamt hluta blómanna sem bárust í tilefni dagsins. Mikið af heillaóskum og blómum barst.
„Eg er þakklátur þeim sem gerðu okkur daginn svona ánægjulegan," sagði Jón. Milli 500-1000 manns
munu hafa komið í verslunina á afmælisdaginn. Boðið var upp á veitingar í tilefni dagsins og hurfu mjög
góðar rjómatertur eins og dögg fyrir sólu, en þær voru pantaðar frá Brauðgerð KÞ og ætlaðar fyrir 500
IM
manns.
Kvennalistakonur endurflytja lagafrumvarp um umönnun barna:
Atviimuöryggi foreldra verði
ekki raskað vegna bamauppeldis
- foreldri hafi rétt til að ganga aftur að starfi tveimur árum frá fæðingu barns
Kvennalistakonurnar Kristín
Halldórsdóttir, Þórhildur Þor-
leifsdóttir, Kristín Einarsdóttir
og Málmfríður Sigurðardóttir
hafa lagt fram á Alþingi frum-
varp til laga um rétt foreldra til
leyfis frá störfum vegna
umönnunar barna. Samkvæmt
frumvarpinu hefur foreldri
sem beiðist lausnar frá starfi
sínu til þess að annast barn sitt
rétt til að ganga aftur að sama
Dögun hf. Sauðárkróki:
Tekur rækjuskip
Rækjuverksmiðjan Dögun hf.
á Sauðárkróki hefur tekið á
leigu fiskiskipið Hilmi II, SU-
177, frá Fáskrúðsfirði. Leigu-
samningur, sem gerður var við
Söltunarstöðina Hilmi sf., gild-
ir frá 1. febrúar nk. og er gerð-
ur til eins árs. Hilmir II er 305
tonn að stærð, smíðaður í
Hollandi 1967 og endurbættur
tíu árum síðar. Með því að
leigja skipið hefur áframhald-
andi rekstur hjá Dögun verið
tryggður, en framtíð fyrir-
tækisins hefur verið ótrygg frá
því að rækjuskip þess, Röst
SK-17, lagðist að bryggju með
útrunnið haffærisskírteini.
Leigusamningurinn er með
forkaupsrétti og ef út í það fer að
Dögun muni kaupa skipið þá hef-
ur Sauðárkróksbær samþykkt að
veita bæjarábyrgð, allt að 27
Þokkalegt hey
á Norðurlandi
Rannsóknir Búnaðarsambands
Eyjafjarðar á heyjum norðan-
lands frá síðastliðnu sumri hafa
leitt í Ijós að gæðin eru svipuð
og sumarið 1987, þrátt fyrir
rysjótta tíð sl. sumar. Guð-
mundur H. Gunnarsson sagði
að fóðurgildið væri þó misjafn-
ara nú en sumarið ’87, en með-
altalið hins vegar mjög svipað
hvað gæðin snertir.
„Þetta er allt frá mjög góðu
heyi niður í lakara hey, þannig að
gæðin eru breytilegri en í fyrra.
Meðaltalið sýnir þó að hey á
Norðurlandi hefur verið mjög
þokkalegt. Það þarf 1,89 kg af
heyi í fóðureiningu, sem er sama
magn og í fyrra,“ sagði Guð-
mundur.
Á Austurlandi er útkoman
hins vegar verri, en þar rigndi
mikið í sumar og hey því lakari.
Þar þarf um 2,3 kg af heyi í fóð-
ureiningu. í Eyjafirði ermeðaltal
440 sýna 1,85 kg í fóðureiningu,
sem er þokkalega gott, enda
sagði Guðmundur að mörg mjög
góð sýni hefðu komið úr Eyja-
firði.
Hann taldi að bændur þyrftu
að kaupa svipað magn af fóður-
bæti og í fyrra, en þó þyrftu þeir
væntanlega að mæta þeim breyti-
leika sem væri á gæðum heyj-
anna. SS
áleigu
milljónum króna. Er ábyrgðin
bundin Dögun hf. og ekki yfir-
færanleg. En fyrst um sinn mun
Dögun leigja skipið og óvíst er
hvort af kaupum verði.
Sem fyrr segir liggur rækjuskip
Dögunar, Röst SK-17, við
bryggju með útrunnið haffæris-
skírteini og að sögn Garðars
Sveins Árnasonar framkvæmda-
stjóra Dögunar hefur ekki verið
ákveðið hvað verður um skipið í
framtíðinni. Það mun þó liggja
við bryggju yfir jólahátíðina og
sagði Garðar að það yrði að sjálf-
sögðu skreytt í jólabúning, sem
og önnur stærri skip.
Nýlega lauk vinnslu á innfjarð-
arrækju, alls 50 tonnum, hjá
Dögun og á þessu ári hafa verið
framleidd 800 tonn af rækju, sem
er metár. í fyrra voru framleidd
690 tonn. Sem kunnugt er var
starfsfólki Dögunar sagt upp 1.
október sl. með mánaðar upp-
sagnarfresti, en þær uppsagnir
voru teknar til baka þegar vinnsla
á innfjarðarrækjunni hófst. Að
sögn Garðars Sveins verður ekki
farið í það að segja upp starfs-
fólki að nýju, en næstu tvo mán-
uði, eða þar til Hilmir II fer á
veiðar, verður rólegur tími hjá
Dögun. „Við munum nýta hann
til að gera þessa árlegu tiltekt í
verksmiðjunni, mála og gera
hreint. Síðan gefst rýmri tími til
að skrifa jólakortin,“ sagði Garð-
ar Sveinn að lokum, hress að
vanda. -bjb
starfi og sömu kjörum allt að
tveimur árum frá fæðingu
barnsins.
Frumvarpið en nú endurflutt
en því var, að loknum umræðum
á þingi fyrir tveimur árum, vísað
til ríkisstjórnarinnar en þær
kvennalistakonur telja ekkert
hafa gerst síðan og endurflytja
því frumvarpið.
í greinargerð með frumvarpinu
kemur fram að atvinnuþátttaka
kvenna nálgist nú atvinnuþátttöku
karla, á sama tíma og kröfur
atvinnulífsins til starfsfólks hafi
aukist verulega. Þessar kröfur
hafi reynst erfitt að samræma
kröfum um umönnun og uppeldi
ungra barna. Því sé tilgangur
frumvarpsins að koma til móts
við breyttar aðstæður foreldra
ungra barna og gera þeim kleift
að sinna þörfum heimilis og
barna fyrstu tvö árin í ævi barns
án þess að raskað sé atvinnu-
öryggi þeirra. JÓH
Kaupmannafélagið
á Akureyri:
Gerir samn-
ing við Dag
Kaupmannafélagið á Akureyri
hefur gert samning við dag-
blaðið Dag um verulegan afslátt
fyrir félagsmenn varðandi
auglýsingar fyrir jólin.
Frátekin er minnst ein síða í
blaðinu hvern fimmtudag til jóla,
þ.e. þann 1., 8., 15. og 22. des-
ember. Félagið greiðir hluta
kostnaðar. Auglýsingum þarf að
skila á þriðjudegi og gott er að
hafa samband við Frímann aug-
lýsingastjóra af þessu tilefni, en
hann er í síma 24222,