Dagur - 06.12.1988, Blaðsíða 7

Dagur - 06.12.1988, Blaðsíða 7
88Sr iadmasab .9 - RUöAQ - 3 6. desember 1988 - DAGUR - 7 Handknattleikur 2. deild: Páll Gíslason snarar sér inn úr horninu í leiknum. hornamaður sem stóð sig mjög vel í þessum leik. Annars á allt Þórsliðið hrós skilið fyrir þennan leik og þetta gefur mönnum auk- ið sjálfstraust fyrir næstu leiki. Haukaliðið kom á óvart í þess- um leik með lélegum leik. Það vantaði einhvern neista í liðið og ekki ólíklegt að þeir hafi vanmet- ið andstæðingana. Elías Jónasson var mjög áberandi þann tíma sem hann lék með og ef hann hefði og skorar eitt af sex niörkum sínum Mynd: EHB getað leikið allan tfmann hefðu úrslitin orðið önnur. Árni Her- niannsson átti líka þokkalegan leik en aðrir leikmann spiluðu nokkuð undir getu. Mörk Þórs: Páll Gíslason 6/2, Sævar Arnason 5, Kristinn Hreinsson 4, Atli Rúnarsson 3, Jóhann Jóhannsson 3, Ing- ólfur Samúclsson I. Mörk Hauka: Elías Jónasson 5, Árni Hermannsson 5, Sigurjón Sigurðsson 3, Jón Þórðarson 3, Sigurður Pálsson 3/1, Jón Örn Stefánsson 1, Haukur Hauksson 1. Jafnt var á flestum tölum fram að leikhléi og munaði aldrei meira en tveimur mörkum á lið- unum. Þórsarar tóku góðan kipp áður en dómararnir flautuðu fyrri hálfleikinn af og leiddu með tveimur mörkum 11:9 þegar gengið var til búningsherbergj- anna. Haukarnir komu ákveðnir til leiks í seinni hálfleik, náðu fljót- lega að jafna leikinn og komust að lokum yfir. Þá fór að fara um áhorfendur og hugsuðu sjálfsagt margir að núna væri draumurinn búinn. En Þórsarar neituðu að gefast upp og Haukunum tókst ekki að hrista þá af sér og aldrei munaði meira en þremur mörkum á lið- unum. Lokamínútur leiksins voru æsi- spennandi og risu áhorfendur úr sætum þegar spennan var sem mest. Gestirnir voru tveimur mörk- um yfir þegar rúmar tvær mínútur voru eftir 21:19, eins og áður sagði. Kristinn Hreinsson skoraði þá tuttugasta markið fyrir Þór, Hermann varði í næstu sókn og Ingólfur Samúelsson jafnaði leik- inn 21:21. Þá upphófst mikill darr- aðardans á fjölum Hallarinnar, Haukarnir glopruðu boltanum og þegar rúmar 30 sekúndur voru til leiksloka renndi Sævar Árnason sér inn úr horninu og skoraði sigurmarkið við mikil fagnaðar- læti Þórsara. Þórsliðið kom mjög á óvart í þessum leik með góðum leik og mikilli baráttu. Páll Gíslason átti stórleik með þeim, var marka- hæstur o'g stjórnaði spilinu af röggsemi. Hermann Karlsson stóð í markinu með miklum ágætum, varði m.a. tvö víti og sextán önnur skot í leiknum. Sævar Árnason er mjög efnilegur Þór kom mjög á óvart í 2. deildinni í handbolta og lagði efsta liðið Hauka að velli með 22 mörkum gegn 21 í æsi- spennandi leik. Haukar voru tvö mörk yfír 21:19 þegar rúm- ar tvær mínútur voru til leiks- Ioka en Þórsarar skoruðu þrjú síðustu mörkin og tryggðu sér sigur rétt fyrir leikslok með marki Sævars Arnasonar úr horninu. „Það eru ekki alltaf jólin," sagði Hilmar Björnsson þjálfari Haukanna og hristi hausinn þeg- ar hann gekk fram hjá blaða- mönnunum eftir leikinn. Þetta voru orð að sönnu fyrir gestina en þetta var kærkominn jóla- glaðningur fyrir Þór en liðinu hefur ekki gengið sem skyldi það sem af er tímabilinu. Heimamenn byrjuðu þennan leik af miklum krafti og var ekki að sjá að þarna væru efsta og neðsta lið deildarinnar að mætast. Þór komst í 5:1 og voru þeir hinir hressustu. Á sama tíma virtist vanta einhvern neista í Haukaliðið. Þeir hresstust nú samt fljótlega og jöfnuðu 5:5. Munaði þar mestu um stórleik „gamla“ mannsins Elíasar Jónassonar en hann skoraði 5 mörk úr 5 tilraun- um á fyrstu tuttugu mínútum leiksins, en þá þurfti hann að fara af velli vegna meiðsla. Knattspyrna:^ Moli ta IA? - „Við Albert erum í sömu aðstöðu“ segir Skagamenn reyna nú að fá Þórsarann Siguróla Kristjáns- son til að skipta yfír á Skipa- skaga. Þá vantar miðjuleik- Siguróli Kristjánsson. hann mann í stað Ólafs Þórðarsonar sem fer til Teits bróður síns hjá Brann í Noregi. Siguróli segist í fyrstu hafa tek- ið frekar dræmt í ósk í A en nú sé hann á báðum áttum. „Það er mikill aðstöðumunur fyrir knatt- spyrnumenn að spila þar og hér og svo er alltaf freistandi að prófa eitthvað nýtt. En ég er svo mikill félagsmaður í mér að það verður erfitt að fara frá Þórsliðinu. Reyndar má segja að við Albert séum í sömu aðstöðu. Hann veit ekki hvort hann á að fara til Frakklands og ég er ekki viss hvort ég eigi að fara á Skagann." Siguróli segist munu taka ákvörðun um hvort af félags- skiptum verður fyrir áramót. Glæstur sigur Þórs - á efsta liðinu Haukum 22:21 Nú aesist loikurínn K.A I.B.V. íslandsmótið í handknattleik 1. deild Miðvikudaginn 7. des. kl. 20.30 í íþróttahöllinni á Akureyri Fjölmennum og sjáum spennandi leik Axel Stefánsson. Siguröur Gunnarsson. Áfram KA

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.