Dagur - 06.12.1988, Blaðsíða 8

Dagur - 06.12.1988, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - 6. desember 1988 íþróttir Flugleiðadeildin í körfu: Þórstap í baráttuleik - 99:88 fyrir Njarðvík Þórsarar mættu Njarðvíkingum í Flugleiðadeildinni í körfubolta í Höllinni á sunnudagskvöldið. Þrátt fyrir góða baráttu tókst Þórsliðinu ekki að velgja Suður- nesjasveinunum undir uggum og urðu þeir að sætta sig við 11 stiga tap 99:88. Eins og oft áður í vetur töpuðu Þórsarar þessum leik á fyrstu mínút- um leiksins. Njarðvíkingar skoruðu nefnilega fimm fyrstu körfurnar og komust í 10:0. Þórsurum tókst aldrei að minnka muninn niður fyrir þessi tíu stig og ættu þeir að velta þessu fyrir sér og hvort ekki sé hægt að vinna bilbug á þessum slappleika í byrjun. Leikurinn var að mestu leyti í jafn- vægi það sem eftir var. Njarðvíking- ar leyfðu öllum leikmönnum sínum að spreyta sig og sýnir það hve mikil breidd er í liðinu að þeir náðu allir að koma tuðrunni niður körfuhring- inn. í leikhléi var staðan 56:46 fyrir Njarðvík og hélst sá munur nokkuð óbreyttur til leiksloka. Reyndar tóku gestirnir sprett um miðjan síðari hálfleik og náðu tæplega 20 stiga for- skoti 85:66. En Þórsarar minnkuðu muninn í 11 stig fyrir leikslok, án þess þó að ógna sigri Njarðvíkinga. Reyndar má segja Þórsliðinu til hróss í þessum leik að þeir gáfust aldrei upp í leiknum og var hörku- keyrsla á leikmönnum liðsins frá upphafi til enda. En andstæðingur- inn var hreinlega of sterkur í þetta skiptið og því fór sem fór. Það sem gerði gæfumuninn í þess- um leik var að „bakkarnir“ í Þórslið- inu áttu frekar slakan dag. Konráð lenti mjög snemma í villuvandræðum og gat lítið beitt sér í síðari hálfleik og Birgir hefur oft leikið betur en í þessum leik. Ákafinn í Konráð er oft svo mikill að hann fær dæmdar á sig villur fyrir klaufaleg brot og ætti hann að læra að tempra kraftinn í sér á réttum augnablikum. Björn Sveinsson átti stórleik að þessu sinni og var allt annað að sjá til hans í þessum leik en í seinasta leik gegn ÍS. Reyndar bar ekki mikið á honum í fyrri hálfleik, en eftir leikhléið var Björn óstöðvandi og skoraði hann þá körfur af öllum stærðum og gerðum. Jóhann Sig- urðsson var einnig drjúgur og lék þarna einn af sínum betri leikjum á tímabilinu. Einnig var Eiríkur bróðir hans duglegur að vanda og gafst hann aldrei upp. Guðmundur Björnsson var einnig sterkur í leikn- um en var óheppinn með suma dóma dómaranna og tapaði þannig nokkr- um stigum. Hjá Njarðvík bar mest á þeim Hreiðari Hreiðarssyni og Friðrik Rúnarssyni. Friðrik skoraði m.a. fimm þriggja stiga körfur úr sex skottilraunum. Annars er Njarðvík- urliðið mjög jafnt og skoruðu allir leikmenn liðsins körfu í þessum leik. Þeir verða því að teljast líklegir meistarar á þessu tímabili. Dómarar voru þeir Rafn Bene- diktsson og Pálmi Sighvatsson. Þeir voru heldur mistækir og hallaði frek- ar á Þórsarana en hitt. Stig Þórs: Björn Sveinsson 25, Guðmundur Björnsson 19, Konráð Óskarsson 14, Jóhann Sigurðsson 12, Eiríkur Sigurðsson 9, Kristján Rafnsson 8, Birgir Karlsson 1. Stig UMFN: Friðrik Rúnarsson 19, Hreiðar Hreiðarsson 18, ísak Tómasson 16, Kristinn Einarsson 13, Friðrik Ragnarsson 11, Helgi Ragnarsson 6, Georg Birgisson 2, Rúnar Jónsson 2, Jóhann Sigurðsson 1. 1. deild kvenna: ingu fyrir andstæðingunum í fyrri hálfleik. Afleiðingin var sú að Vík- ingur var níu mörkum yfir í leikhléi 14:5. Allt annað var að sjá til Þórsliðsins í síðari hálfleik og virtust þær hafa fengið góða yfirlesningu inni í bún- ingsherbergjunum. Vörnin var miklu betri og sóknirnar lengdust og ekki var skotið úr nema öruggum færum. En níu marka munur var of mikill til að vinna upp og lauk leiknum því með sigri Víkingsstúlknanna 22:18. Harpa Örvarsdóttir kom mjög vel út úr þessum leik og skoraði hún tvö falleg mörk úr horninu og fiskaði þar að auki þrjú vítaköst í leiknum. María Ingimundardóttir var örugg í vítaskotunum og stóð sig vel í vörn- inni. Valdís Hallgrímsson barðist vel að vanda. Stórskyttan Inga Huld Pálsdóttir náði sér ekki á strik í þess- um leikjum um helgina og skoraði óvenjulega lítið af mörkum. Mörk Þórs: María Ingimundardóttir 7/6, Inga Huld Pálsson 3, Valdís Hallgrímsdóttir 2, Harpa Örvarsdóttir 2, Margrét Björnsdóttir 1, Steinunn Geirsdóttir 1, Þórdís Sigurðar- dóttir 1 og Eva Albertsdóttir 1. Slakur seinni leikur Seinni hálfleikurinn í fyrri leiknum gaf góða von um að Þórsstelpurnar myndu geta veitt gestunum verðuga mótspyrnu í seinni leiknum. En það fór á annan veg, Þórsarar náðu sér aldrei á strik í leiknum og urðu að sætta sig við stórtap 24:13. Best er að segja sem minnst frá þessum leik því hann var mjög slakur hjá heimastúlkunum. Reyndar var fyrri hálfleikurinn ekki svo slæmur og stóðu þá Þórsstúlkurnar nokkuð í sterku Víkingsliðinu. Staðan þegar liðin gengu til búningsherbergja var þá 9:6 fyrir gestina. í síðari hálfleik stóð ekki steinn yfir steini hjá Þórsstelpunum. Vörn- in hriplak og sóknarleikurinn var fálmkenndur og ómarkviss. Afleiðingin varð auðvitað sú að Vík- ingsliðið labbaði yfir Þórsarana og sigraði með 11 marka mun 24:13. Þór og Víkingur léku tvo leiki í 1. deildinni í kvennahandbolta í Höllinni um helgina. Þórsarar stóðu í Víkingsstelpunum í fyrri leiknum og töpuðu honum með aðeins fjögurra marka mun 22:18. I síðari leiknum stóð ekki steinn yfir steini hjá Þórsliðinu og unnu Víkingarnir því auðveldan sigur 24:13. Fyrri leikur liðanna var á föstu- dagskvöldið og var hann mun betur leikinn af hálfu Þórsstúlknanna. Reyndar byrjuðu þær leikinn mjög illa og virtust þær bera of mikla virð- María Ingimundardóttir var markahæst Þórsara um helgina. Mynd: ehb Þór tapaði tvívegis - fyrir Víkingum um helgina Eiríkur Sigurðsson reynir hér körfuskot í leiknum gegn Njarðvík. Mynd: ehb Sölvi Sölvason. Skíði: Sölvi til Frakklands - sem fulltrúi Siglfirðinga Eins og sagt hefur verið frá í Degi fer hópur íslenskra skíðakrakka til Frakklands í janúar á vegum frönsku Olympíunefndarinnar. Sigfírðingar hafa nú tilnefnt full- trúa sinn og er það göngumaður- inn Sölvi Sölvason. Sölvi var bikarmeistari pilta 16-17 ára í fyrra og og sigraði í mörgum göngumótum í fyrravetur. Hann er því vel að þessum heiðri kominn og sómir sér vel sem fulltrúi sinnar heimabyggðar, Siglufjarðar. Ársþing KSÍ: Mikill halli hjá KSÍ - 3. deildin sameinuð 1989 Ársþing Knattspyrnusambands íslands var haldið að Selfossi um helgina. Þingið fór friðsamlega fram, en þó var nokkur undiralda meðal þingfulltrúa vegna mikils halla á sambandinu sem reyndist vera um 9 milljónir. Menn greinir á um til hvaða aðgerða reynist nauðsynlegt að grípa til að minnka þennan halla, en lítil umræða var samt um reikinga sam- bandsins. Ellert B. Schram formaður KSÍ var endurkjörinn formaður KSÍ og allir stjórnarmenn voru endurkjörn- ir, nema að Steinn Helgason sagði sig úr stjórninni. Tillaga um að 3. deildin verði spil- uð í einum riðli frá og með árinu 1989 var samþykkt og það þýðir að 3. deildin verður leikin á sama hátt og 1. og 2. deild. Þetta þýðir að efstu liðin í hvorum riðli fara upp í 2. deild á næsta ári, eins og verið, lið númer 2., 3. og 4., halda sér í 3. deildinni en hin liðin falla í svæðaskipta 4. deild. Ef þetta fyrirkomulag hefði gilt í ár hefðu lið ÍK, Víkverja, Leiknis R., UMFA og UMFN í SV-riðlinum og lið Þróttar N., Hugins, Hvatar og Sindra í NA-riðlinum leikið í 4. deildinni næsta sumar. Felld var tillaga frá Breiðablik og Stjörnunni um að spila íslandsmót í 4. flokki kvenna. Það er lýsandi dæmi um áhuga manna á kvenna- knattspyrnu að einungis 32 af 122 fulltrúum á þinginum greiddu atkvæði þegar þessi tillaga var borin upp. Hins vegar er rétt að taka það fram að samþykkt var að KSÍ myndi beita sér fyrir svæðisbundnum telpna- mótum fyrir þennan aldursflokk. Sigurður Hannesson framkvæmda- stjóri KSÍ hefur sagt upp störfum hjá Knattspyrnusambandinu og óvíst er hvort ráðið verður í hans stöðu. Að sögn Ellerts B. Schrams formanns KSÍ má búast við því að skorin verði niður landsliðsverkefni vegna halla á rekstri KSÍ. 6. desember 1988 - DAGUR - 9 Enska knattspyrnan: Kanarífiiglamir vængstýfðir á ViUa-Park - Cottee með sitt 100. deildarmark- Loks sigur hjá Man. Utd. - West Ham í ham Tony Cottee skoraði sigurmark Everton gegn Tottenham, hans 100. mark í deildarleikjum. Efsta lið 1. deildar, Norwich tapaði sínum fyrsta leik á úti- velli í vetur og West Ham sigr- aði mjög óvænt á útivelli gegn Millwall. Jan Molby er nú laus úr fangelsi, sat inni í 6 vikur og hefur verið tekinn í sátt við Liverpool og mun vera áfram hjá félaginu. Tottenham fékk aftur stigin tvö sem dæmd voru af liðinu fyrr í vetur, en þarf að greiða £15.000 í sekt og for- maður félagsins sagðist glaður vilja kaupa tvö stig á viku fyrir Úrslit Úr vikunni: 2. deild. Bournemouth-Hull City 5:1 Deildabikarinn. Endurtekinn jafnteflisleikur úr 3. umferð: Oldham-Everton 0:2 4. umferð. Aston Villa-Ipswich 6:2 Bradford-Everton frestað Bristol City-Tranmere 1:0 Leicester-Nottingham For. 0:0 Luton-Manchester City 3:1 Q.P.R.-Wimbledon 0:0 Southampton-Tottenham 2:1 West Ham-Liverpool 4:1 Þá var dregið í 5. umferð og leika þessi lið saman: Luton-Southampton West Ham-Aston Villa Leicester/Nott. For,- Q.P.R./Wimbledon Bradford/Everton- Bristol City 1. deild. Arsenal-Liverpool 1:1 Aston Villa-Norwich 3:1 Everton-Tottenham 1:0 Luton-Newcastle 0:0 Manchester Utd.-Charlton 3:0 Millwall-West Ham 0:1 Nottingham For.-Middlesbr. 2:2 Q.P.R.-Coventry 2:1 Sheffield Wed.-Derby 1:1 Wimbledon-Southampton 2:1 2. deild. Bournemouth-Blackburn 2:1 Bradford-Birmingham 2:2 Crystal Palace-Man.City 0:0 Hull City-Brighton 5:2 Ipswich-Plymouth 2:2 Oldham-Leicester 1:1 Oxford-Barnsley 2:0 Portsmouth-W.B.A. 0:0 Shrewsbury-Swindon 0:1 Stoke City-Chelsea 0:3 Sunderland-Watford 1:1 Walsall-Leeds Utd. 0:3 3. deild. Aldershot-Notts County 2:3 Brcntford-Bolton 3:0 Bristol City-Reading 2:1 Bury-Wigan 1:1 Chesterfield-Mansficld 1:3 Fulham-Bristol Rovers 0:2 Gillingham-Chester 0:2 Huddersfield-Blackpool 1:1 Preston-Cardiff City 3:3 Southend-Port Vale 1:1 Swansea-Sheffield Utd. 2:2 Northampton-Wolves 3:1 4. deild. Burnley-Hartlepool 0:0 Darlington-Scunthorpe 3:3 Exeter-Colchester 4:2 Grimsby-Scarborough 2:1 Halifax-Crewe 0:1 Leyton Orient-Lincoln 3:1 Peterborough-Rochdale 1:0 Rotherham-Stockport 2:1 Torquay-Cambridge 3:1 Tranmere-Doncaster 2:2 Wrexham-Carlisle 2:1 York City-Hereford 4:1 sömu upphæð. En lítum þá á leiki laugardagsins. Norwich varð loks að játa sig sigrað á útivelli gegn Aston Villa sem hafði yfirburði í leikn- um. Það var aðeins í lokin sem Norwich sýndi sitt rétta andlit, en þá var leikurinn þegar tapaður. Sigur Villa hefði getað orðið stærri ef Alan Mclnally og Tony Daley hefðu ekki misnotað góð færi og liðið hafði jafnvel efni á að misnota vítaspyrnu þegar staðan var jöfn 1:1. Markvörður Norwich Bryn Gunn felldi þá Mclnally og vegna mótmæla leikmanna Norwich varð David Platt að bíða með spyrnuna í 2 mín., skotið var laust og auðveld- lega varið. Platt bætti þó ráð sitt 5 mín. síðar er hann kom Villa yfir með skalla og Kevin Gage gerði þriðja mark Villa með góðu skoti frá vítateig. Það mark var þó ekki eins glæsilegt og fyrsta mark leiksins sem Gage skoraði með hörkuskoti af 25 metra fæfi. Trevor Putney jafnaði fyrir Norwich rétt fyrir hlé. Manchester Utd. losnaði loks úr jafnteflunum er liðið sigraði Charlton auðveldlega á Old Trafford. Ralph Milne sem eitt sinn lék með Charlton skoraði fyrsta mark leiksins á 20. mín. eftir að Bob Bolder í marki Charlton hafði slegið boltann frá eftir hornspyrnu Gordon Strach- an. í síðari hálfleik bættu heima- menn tveim mörkum við, fyrst Brian McClair með skalla eftir sendingu Bill Garton og síðan Mark Hughes með glæsilegu skoti sem hann sendi viðstöðu- laust í netið hjá Bolder. Q.P.R. og Coventry léku bæði með sweeper í liðum sínum, en gamla brýnið Trevor Francis hjá Q.P.R. er ekki óvanur slíku eftir veru sína á Ítalíu og hann átti stórleik hjá Q.P.R. Það var hann sem kom liðinu yfir rétt fyrir hlé með góðu marki. Trevor Peake lék sweeper hjá Coventry, en tókst ekki að ljúka leiknum því hann var sendur út af snemma í síðari hálfleik. Mark Falco bætti öðru marki við fyrir Q.P.R. snemma í síðari hálfleik, en þrátt fyrir að Coventry léki manni færra fór liðið að sækja meira og David Speedie náði að minnka muninn, en tókst ekki að jafna. Paul Parker varnarmaður Q.P.R. var borinn meiddur út af í leikn- um sem var mjög harður. West Ham hefur heldur betur tekið kipp, burstaði Liverpool í Deildabikarnum í vikunni og sigraði síðan Millwall á útivelli með eina marki leiksins. Paul Ince skoraði markið á 18. mín. er hann komst í sendingu Ian Dawes bakvarðar Millwall sem var ætluð markverðinum. Það sem eftir var leiksins sótti Millwall án afláts og átti hreinlega leikinn. Vörn West Ham varðist þó öllu sem að henni var beint og tókst með hetjulegri baráttu að halda hreinu. Áhorf- endur sem flestir voru á bandi Millwall hvöttu lið sitt mjög og létu síðan öllu lauslegu rigna yfir leikmenn West Ham er þeir yfir- gáfu völlinn í leikslok. Everton sigraði Tottenham með eina marki leiksins, Tony Cottee skoraði sitt 100. deilda- mark í fyrri hálfleik og það dugði gegn Tottenham. Vörn Totten- ham var úti að aka þegar Ian Snodin bakvörður Everton sendi bogabolta inn í vítateig Totten- ham, Cottee missti knöttinn frá sér, en fékk nægan tíma til að ná honum aftur og senda í netið. Þulurinn sem lýsti leiknum sagði að Cottee hefði haft nægan tíma til að fá sér tesopa og rabba við ömmu sína áður en hann sendi boltann í netið, svo seinir voru varnarmenn Tottenham. Það gengur ýmislegt á hjá Wimbledon, John Fashanu var settur úr liðinu þar sem hann neitaði að vera fyrirliði, en liðið sigraði þó Southampton 2:1. Chris Nicholl framkvæmdastjóri Southampton fékk afhent kampa- vín fyrir leikinn sem fram- kvæmdastjóri mánaðarins og gef- ur leikmönnum sínum örugglega ekki með sér úr flöskunni. Charl- ton Fairweather skoraði sigur- mark Wimbledon 2 mín. fyrir leikslok. Terry Gibson skoraði fyrsta mark leiksins fyrir Wimble- don, en Neil Maddison unglingur sem lék sinn fyrsta leik með Southampton jafnaði. Middlesbrough skoraði fyrsta og síðasta markið í 2:2 jafntefli á útivelli gegn Nottingham For. Lee Chapman skoraði bæði mörk Nottingham For., en þeir Mark Brennan og Stewart Ripley skor- uðu fyrir Middlesbrough. Mel Sterland kom Sheffield Wed. yfir í fyrri hálfleik gegn Derby, en Nigel Callaghan jafn- aði fyrir Derby úr vítaspyrnu á 89. mín. Newcastle getur engan veginn komið boltanum í markið, gerði 0:0 jafntefli á útivelli gegn Luton og er nú í neðsta sæti í 1. deild. 2. deild • Watford er efst í 2. deild, gerði jafntefli á útivelli gegn Sunderland. Tim Sherwood kom Watford yfir í fyrri hálfleik, en John McPhail jafnaði úr víta- spyrnu fyrir Sunderland og fékk síðan tækifæri til að skora sigur- mark liðsins úr annarri víta- spyrnu, en þá varði Tony Coton. • Chelsea vann góðan sigur úti gegn Stoke City þrátt fyrir að Peter Nicholas væri rekinn út af. Graham Roberts skoraði úr víta- spyrnu og þeir Clive Wilson og Kevin McAllister bættu síðan við mörkum. • Blackburn tapaði gegn Bournemouth, þeir Luther Bliss- ett og Colin Clarke sem er í láni frá Southampton sáu um mörkin fyrir Bournemouth, en Simon Garner gerði eina mark Blackburn. • Charlton Palmer hjá W.B.A. var rekinn út af í 0:0 jafnteflinu gegn Portsmouth og Crystal Pal- ace og Manchester City gerðu einnig markalaust jafntefli. • Shrewsbury fékk ekki leik sínum gegn Swindon frestað þar sem inflúensa herjar á leikmenn liðsins. David Geddis fyrrum leikmaður Shrewsbury færði sér það í nyt og skoraði sigurmark Swindon. • Steve Whitton og Carl Richard- son skoruðu fyrir Birmingham gegn Bradford, en Mark Leonard og Paul Jewell svöruðu fyrir Bradford. • Andy Payton skoraði tvö mörk fyrijÉHull City sem sigraði Brighton 5:2. • Bobby Davison skoraði tvö af mörkum Leeds Utd. sem sigraði Walsall á útivelli. Þ.L.A. Staðan 1. deild Norwich 15 8-5-2 17:18 29 Arsenal 14 8-3-3 32:17 27 Millwal! 14 6-6-2 27:19 24 Liverpool 15 6-6-3 20:11 24 Southampton 15 6-5-4 25:22 23 Coventry 15 6-5-4 18:13 23 Derby 14 6-5-3 18:11 23 Everton 14 6-4-4 18:14 22 Nott.Forest. 15 4-9-2 19:19 21 Man.Utd. 15 4-9-2 19:13 21 Sheff.Wed. 14 5-5-4 14:15 20 Middlésbro 15 6-1-8 19:26 19 Aston Villa 15 4-6-5 22:22 18 QPR 15 5-3-7 16:15 18 Luton 15 3-6-6 15:17 15 Tottenham 15 3-6-6 24:28 15 Charlton 15 3-5-7 17:27 14 Wimbledon 14 3-4-7 14:24 13 West Ham 15 3-3-9 13:29 12 Newcastle 15 2-4-9 9:27 10 2. deild Watford 19 10- 4- 5 31:19 34 Man.City 19 9- 6- 4 24:17 33 Blackburn 19 10- 3- 6 33:25 33 Chelsea 19 9- 6- 4 33:20 33 Portsmouth 19 8- 7- 4 29:21 31 W.B.A. 19 8- 7- 4 29:21 31 Stoke 19 7- 6- 6 21:25 27 Barnsley 19 7- 6- 6 25:26 27 Ipswich 19 8- 3- 8 27:24 27 Bournemouth 19 8- 3- 822:2227 Leicester 19 6- 8- 5 23:26 26 Leeds Utd. 19 6- 8- 5 22:19 26 C.Palace 18 6- 7- 5 28:25 25 Plymouth 17 7- 4- 6 25:25 25 Sunderland 19 5-10- 4 24:22 25 Swindon 19 6- 7- 6 24:27 25 Hull 20 6- 6- 8 25:31 24 Bradford 19 5- 8- 6 20:21 23 Oxford 20 6- 5- 9 30:30 23 Oldham 19 5- 7- 7 30:30 22 Shrewsbury 19 3- 8- 8 13:24 17 Brighton 18 5- 2-11 24:42 17 Walsall 19 2- 8- 9 19:27 14 Birmingham 19 3- 5-11 15:37 14 Liverpool hélt Norwich á toppnum - gerði jafntefli við Arsenal Stórleikur helgarinnar í 1. deild fór fram á sunnudag og áttust þar við Arsenal og Liverpool í London. Með sigri í leiknum hefði Arsenal komist í efsta sæti 1. deildar á hagstæðara markahlutfalli en Norwich, en af því varð ekki og leiknum lauk með jafn- tefli. Bæði lið léku fyrsta flokks knattspyrnu og sigurinn hefði getað lent hvorum megin sem var, en sterkur vindur skemmdi fyrir léikmönnum. Síðari hálf- leikurinn var mjög spennandi fyrir hina 32.000 áhorfendur. Liverpool náði forystunni strax eftir hlé, John Barnes í sínum fyrsta leik eftir meiðsli, lék þrjá varnarmenn Arsenal sundur og saman áður en hann sendi boltann í nctið framhjá John Lukic markverði Arsenal. Alan Smith náði þó að jafna leikinn fyrir Arsenal eftir send- ingu frá David Rocastle, hans 15. mark í vetur fyrir liðið. Undir lokin munaði minnstu að Liverpool tryggði sér sigur- inn í leiknum er John Barnes tók aukaspyrnu fyrir liðið, en skot hans hafnaði í þverslánni hjá Arsenal. • Á sunnudaginn voru stjórn- armenn Newcastle í London að ræða við .lim Srnith fram- kvæmdastjóra Q.P.R. um að taka við liöi Newcastle af Colin Suggett sem hefur gegnt þeirri stöðu undanfarnar vikur. Newcastle er í neðsta sæti deildarinnar og félagiö virðist ekki treysta Suggett til að forða liðinu frá falli í 2. deild. Þ.L.A.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.