Dagur - 06.12.1988, Page 3
Verkalýðsforingjar um atvinnuástandið:
Olíklegustu fyrirtæki
fækka starfsmönnum
Ef taka má mark af fréttum
upp á síðkastið, virðist atvinnu-
ástandið í landinu ekki vera
svo ýkja gott. Æ fleiri fyrirtæki
bætast í hóp þeirra sem gripið
hafa til uppsagna starfsfólks og
svartsýnustu menn segja krepp-
una rétt að byrja.
Dagur hafði samband við tvo
verkalýðsforingja, þau Kristínu
Hjálmarsdóttir hjá Iðju og Sævar
Frímannsson hjá Einingu og innti
þau eftir ástandinu hjá þeirra
félagsmönnum.
„Mér líst alls ekki vel á þetta.
Það virðist vera samdráttur víð-
ast hvar og í svo til hverju fyrir-
tæki er fækkun á starfsfólki,
meira að segja hjá ólíklegustu
fyrirtækjum. Eg er nú að vona að
ekki verði meira um uppsagnir,
en er þó hræddust unt Alafoss.
Ástandið þar er ákaflega óljóst
og veltur á því hvort þeim takist
að ná samningum. Ef þeir standa
þetta ekki af sér, er ég ekkert
óskaplega bjartsýn,“ sagði
Kristín. Nú eru yfir 30 Iðjufélag-
ar á atvinnuleysisskrá sem er um
5-6% allra félagsmanna og mun
rneira en verið hefur um alllangt
skeið. Auk þess eiga uppsagnir
fjölda manns eftir að taka gildi.
Kristín sagðist einnig hrædd við
að ef til stórfellds atvinnuleysis
kæmi, stæði atvinnuleysistrygg-
ingasjóður ekki undir sér vegna
stórskertra framlaga til hans.
„Það er óhætt að segja að horf-
ur séu frekar slæmar," sagði Sævar
Frímannsson. Hann sagði
atvinnuleysi félagsmanna hafa
aukist mikið upp á síðkastið, en
að þeir gerðu sér vonir um að um
tímabundið ástand sé að ræða.
Fyrir elsta verslunarhúsi
Yopnfirðinga lá að verða rifið,
en nýlegar hugmyndir um
varðveislu þess koma að lík-
indum í veg fyrir að húsið
hverfi. Það voru Danir sem
byggðu húsið árið 1882 og þar
höndluðu þeir með ýmsa vöru
um skeið, en Kaupfélag Vopn-
firðinga tók við rekstrinum
þegar það leit dagsins Ijós.
Húsið stendur við sjávarbakk-
ann fyrir miðju þorpi og er eitt af
elstu húsum Vopnafjarðar. Ein-
ungis þrjú hús standa eftir frá
þessum tíma, hið elsta frá árinu
1880, þá verslunarhúsið og eitt
sem byggt var árið 1885. Þegar
kaupfélagið flutti sig um set í
nýtt húsnæði voru innréttaðar
fjórar íbúðir í húsinu og í því
„Við eru væntanlega að komast á
botninn. Þetta hefur verið að
þróast síðan í haust, en ég trúi
ekki öðru en að okkar ágæta
ríkisstjórn geri eitthvað í þessunt
málurn." VG
búið allt fram að árinu 1980. Frá
þeim tíma hefur húsið ekki verið
notað, að sögn Ómars Þ. Björg-
ólfssonar byggingafulltrúa á
Vopnafirði.
Ómar sagði fullan vilja fyrir
því að varðveita húsið og færa
það í upprunalegt horf. Endan-
leg ákvörðun þar um væri þó ekki
búið að taka, né heldur að gera
kostnaðaráætlun vegna endur-
bótanna. Góðir máttarviðir eru í
húsinu, en ýmislegt þarf að gera
fyrir það svo upprunaleg mynd
þess komi á.
Ómar sagði að nýta mætti hús-
ið á ýmsan hátt og nefndi þá hug-
mynd sína að setja þar upp ráð-
hús þeirra Vopnfirðinga. Húsið
væri stórt og þar ættu að komast
fyrir fjölmargir aðilar með skrif-
stofur sínar. mþþ
Elsta verslunarhús Vopnafjarðar:
Verður það rifið
eða gert að ráðhúsi?
r
6. desember 1988 - DAGUR - 3
Frá kjörbúðum KEA
Jólaafsláttur
af smjöri
í öllum kjörbúðum
félagsins
VvMatvörudeíld
Góðar fréttir fyrir verslun og iðnað á Norðurlandi
Kynnum bætta þj ónustu
við Akureyri og aðrar Norðurlandshaftiir
Ný áætlun Skipadeildar:
Frá Reykjavík alla fímmtudaga.
Á Akureyri á mánudagsmorgni.
Þetta er þáttur í að gera Akureyri
að miðstöð flutninga skipadeildar
úti á landi.
Athugið að nú er búið að stytta
biðina eftir innflutningi frá Reykja-
vík um 5 daga.
Takið vikuna snemma með
SKIPADEILD
SAMBANDSINS
AKUREYRI
Hafnarstræti 91-95, sími 27797
TÁKN TRAUSTRA FLUTNINGA