Dagur


Dagur - 07.12.1988, Qupperneq 7

Dagur - 07.12.1988, Qupperneq 7
Eins og sjá má, er fagmannlega lagt á borð, servíettubrot og allt á réttum stað. 7. desember 1988 - DAGUR - 11 Jólin nálgast Að mörgu er að hyggja Við bjóðum nytsamar vörur til jólagjafa Kjólar - blússur - pils Húfur - slæður Sængur - koddar - teppi - sængurverasett Dúkar í úrvali Barnaföt og úlpur á unga og aldna og margt fleira Allir þekkja okkar frábæra verð Verið velkomin. wwm Sigutbar Gubmimdssomrhf HAFNARSTR/ETI 96 SÍMI 96*24423 AKUREYRI Pað lá nokkuð beint við að spyrja þá hvort nemendur ættu ekki til að bæta á sig nokkrum aukakílóum yfir veturinn. „Vitið þið, að það eru sko kennararnir sem fitna, sérstaklega í prófun- um. Við höfum lent í því að þurfa að borða 30 rétti á einunt degi, svo er græðgin svo mikil að maður lætur sér ekki nægja að smakka bara, heldur borðar maður vel af hverjum rétti,“ sagði Steinþór. Útlitið skiptir miklu máli Námsmat í þessum áfanga fer þannig fram, að gefin er einkunn fyrir hverja kennslustund. Á prófi fær hver nemandi einn rétt sem hann á að útbúa og er hann dæmdur. Þar er farið eftir vinnu- hraða, bragði og útliti, sem hefur geysilega mikið að segja. í fram- reiðslu á hver nemandi að leggja á borð fyrir fjóra. Borðið er dæmt, sem og hvernig þeim tekst til við framreiðslu á mat; og sem fyrr segir, eru það kennararnir sem sitja til borðs og snæða. Heyrst hefur að sumir kennarar finni svo mikið til með nemend- um sínum, að þeir geri t.d. í því að klára allt af diskununt svo minni hætta sé á að eitthvað detti í gólfið, en líklegt er talið að hér sé aðeins um tylliástæðu að ræða; maturinn er auðvitað svona góður. Nemendum er bent á, að í prófi saki ekki að klæða sig upp og taka margir það til greina. Þó eru alltaf einhverjir sem mæta í lopapeysunni sinni, en það sama gildir um þetta og matinn, ef maturinn lítur vel út, skiptir minna máli þótt hann sé vondur. Nú fór angan hamborgar- hryggsins að leggja um húsið og óneitanlega fór notaleg jóla- stemmning um okkur. Ástandið í eldhúsinu fór að bjóða upp á, að nemendur þurftu á leiðbeining- unt að halda svo við drógum okk- ur í hlé. Sveppasúpan var að verða tilbúin, kjötið að verða steikt og meðlætið kitlaði sannar- lega bragðlaukana. Prúðbúið borðið skemmdi sannarlega ekki stemmninguna og var sem við vær- um komin á fínasta veitingahús. Enda kunnu krakkarnir vel að meta þetta. „Eiga strákarnir ekki að vaska upp í dag,“ spurði ein stúlknanna og Steinþór kinkaði kolli til sam- þykkis. „Það var alltaf rígur um hver ætti að vaska upp, svo við ákváðum að skipta þessu á milli þeirra,“ sagði hann að lokum, en við héldum leiðar okkar margs vísari um starfsemi Hússtjórn- arbrautar VMA. VG Og . . . strákarnir fengu sko að vaska upp. Þeim fórst það nú ágætlega ef satt skal segja. Einn reyndi að skorast undan og vera skemmtilegur uppi á borði . . . en hann hlaut aldeilis ekki skemmtileg örlög. Myndir: TLV Snjókeðjur á flestar stærðir hjólbarða. DIESEL-VERK VÉLASULUNGAR OG VHDGERÐIR DRAUPNISGÖTU 3 ■ 600 AKUREYRI SlMI (96)25700 Viðskiptavinir takið eftir! Opnunartímar í desember Eftirtalda daga verður verslunin opin lengur en venjulega. Laugardag 10. des. frá kl. 10.00-18.00 Mánudag 12. des. frá kl. 9.00-21.00 Þriðjudag 13. des. frá kl. 9.00-21.00 Miðvikudag 14.des.frá kl. 9.00-21.00 Fimmtudag 15. des. frá kl. 9.00-21.00 Föstudag 16. des. frá kl. 9.00-21.00 Laugardag17.des. frá kl. 10.00-21.00 Fimmtudag 22. des. frá kl. 9.00-22.00 Föstudag 23. des. frá kl. 9.00-22.00 Laugardag 24. des. frá kl. 9.00-12.00 Sérstök athygli er vakin á því að verslunin er opin öll kvöld til kl. 21.00 vikuna 12.-17. desember. Verið velkomin. HAGKAUP Akureyri

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.