Dagur - 06.01.1989, Blaðsíða 13
öí$er -JsúriBi .8 - RUcJAÖ - sr
6. janúar 1989 - DAGUR - 13
Fjármálaráðuneytið -
Fjárlaga og hagsýslustofnun:
Skýrsla um
ríkisij ármál
Fjárlaga- og hagsýslustofnun hef-
ur sent frá sér skýrslu um ríkis-
fjármál. Skýrslan er unnin af
sérfræðingum frá Þjóðhagsstofn-
un, Seðlabanka íslands, Háskóla
Islands og Fjárlaga- og hagsýslu-
stofnun. I skýrslunni er reynt að
varpa ljósi á tengsl opinberra
fjármála og ýmissa hagstærða,
s.s. verðbólgu, vaxta og við-
skiptajöfnuð við útlönd. En þess
konar tengsl hafa verið mjög til
umræðu víða um lönd síðustu ár,
þar sem vaxandi ríkishalli og mis-
vægi í utanríkisviðskiptum hafa
einkennt mjög þjóðarbúskap
margra þeirra undanfarna tvo
áratugi.
Það sem fyrir vinnuhópnum
vakti var í stuttu máli:
1. Kanna áhrif hagsveiflna á
opinber fjármál hér á landi.
2. Draga fram tengsl ríkishalla
og ýmissa mikilvægra hag-
stærða, einkum verðbólgu og
viðskiptahalla.
3. Bera saman afkomu og skuld-
ir hins opinbera hér á landi við
helstu grannríki.
í þeim ásetningi var í upphafi
nauðsynlegt að skilgreina umfang
opinberrar starfsemi, þ.e. draga
mörk milli opinberrar starfsemi
og starfsemi einkaaðila. Niður-
staðan var að gagnlegt væri að
skoða eftirfarandi þrjár skilgrein-
ingar nánar: i) Þrengstu skil-
greiningu (skilgreiningu þjóð-
hagsreikninga), sem nær til A-
hluta ríkissjóðs, sveitarsjóða og
almannatrygginga, ii) miðskil-
greiningu, sem nær að auki til
lánasjóða í B-hluta ríkissjóðs og
iii) víðustu skilgreiningu, sem
tekur einnig til ríkisfyrirtækja og
orkuveitna sveitarfélaga.
Ráðist var í gerð samræmds
uppgjörs fyrir opinberan búskap
með ofangreindar skilgreiningar
að leiðarljósi fyrir árabilið 1980-
1985, en slíkt uppgjör hefur ekki
verið unnið áður.
Helstu niðurstöður
skýrslunnar eru:
1 Hallarekstur í opinberum
búskap hefur ekki verið eins
viðvarandi nér á landi og ætla
mætti af almennri umræðu. Af
þeim sex árum sem til athugun-
ar voru, þ.e. 1980-1985, mæld-
ist tekjuhalli aðeins tvö ár sam-
kvæmt þrengstu skilgreining-
unni, enginn samkvæmt mið-
skilgreiningunni, en aftur fjög-
ur ár skv. þeirri víðustu.
Einkageirinn reyndist hins veg-
ar með tekjuhalla öll árin og
það umtalsverðan sum þeirra,
án tillits til skilgreiningar.
2. Hreinar skuldir opinberra
aðila hafa aukist tiltölulega
lítið á þessu árabili. í árslok
1985 voru hreinar skuldir um
8% af vergri landsframleiðslu
skv. þrengstu skilgreiningu,
engar samkvæmt miðskil-
greiningu og um 25% af vergri
landsframleiðslu samkvæmt
þeirri víðustu. Munar þar
mestu um skuldir orkuveitna
ríkis og sveitarfélaga.
3. Ljóst er að allsterkt samhengi
er á milli afkomu hins opin-
bera og viðskiptajafnaðar við
útlönd. Vandinn er einkum
fólginn í því að greina milli
orsakar og afleiðingar. Niður-
staða vinnuhópsins er sú að
stærstu sveiflur í viðskipta-
jöfnuði okkar íslendinga megi
rekja til utanaðkomandi
þátta, svo sem sveiflna í afla,
fiskverði á erlendum mörkuð-
um og breytingum á innflutn-
ingsverðlagi. Sveiflur í við-
skiptajöfnuði hafa síðan haft í
för með sér sveiflur í tekju-
jöfnuði hins opinbera.
4. Tekjuhalli og skuldir hins
opinbera hér á landi hafa ver-
ið minni en í flestum öðrum
löndum Vestur-Evrópu, Jap-
an eða Bandaríkjunum á
umræddu tímabili. Fæst sú
niðurstaða án tillits til þess
hver af skilgreiningunum
þremur á í hlut.
5. Afkomusveiflur hér á landi,
einkum í útflutningsgreinum,
verða ekki greindar í tilsvar-
andi sveiflum í afkomu hins
opinbera. Ástæðan er sú að
sveifluþættirnir vega hver
annan upp í tekju- og út-
gjaldahliðinni. í ljós kemur að
sveifluþáttur tekjujafnaðar
hins opinbera hérlendis er
minni en í mörgum öðrum
ríkjum Efnahags- og fram-
farastofnunarinnar (OECD).
Skýrslan verður til sölu í
Bókabúð Lárusar Blöndal,
Bókabúð Sigfúsar Eymundsson-
ar, Bókabúð Máls og menningar
og Bóksölu stúdenta.
Til sölu 3 sperrubil
að Draupnisgötu 3
Stærð ca. 200 fm.
Upplýsingar gefur Tryggvi Sveinbjörnsson í síma
96-26678 á kvöldin.
Stórútsala!
Peysur ★ Pils ★
Kjólar og fleira.
Verið velkomin.
Opið á laugardögum
^frá kl. 10-16.
Blússur,WVerslu,,iI,
Uflog
nn
Sunnuhlíð 12, sími 22484y
v§'aliœ
Sími 24979
Namskeio hefjast 9. januar.
Jazzdans. Fyrir 7 ára og eldri. Byrjendur og
framhald.
Ballet. Yngst 7 ára. Byrjendur og framhald.
Jazzleikskóli fyrir börn 4-6 ára.
Leikir, söngur, dans, leikræn tjáning.
Skírteinaafhending sunnudaginn 8. janúar frá
kl. 14-16. _ Innritun í síma 24979 frá kl. 18-20
Innritun laugardag
frá kl. 14-16.
Tryggvabraut 22
Akureyri
Fósturfaðir minn,
STEFÁN HÓLM KRISTJÁNSSON,
Dvalarheimilinu Hlíð,
Akureyri,
verður jarðsunginn mánudaginn 9. janúar kl. 13.30 frá Akur-
eyrarkirkju.
Sigurlaug Helgadóttir, Ragnar Ragnarsson,
Móðir okkar og amma,
SIGURLÍNA JAKOBSDÓTTIR,
Strandgötu 13, Akureyri,
lést að Hjúkrunarheimilinu Seli I, Akureyri þann 5. janúar.
Fyrir hönd aðstandenda.
Þórir Kristjánsson,
Davíð Kristjánsson.
Móðir okkar,
INDIANA DAVÍÐSDÓTTIR,
Gránufélagsgötu 41, Akureyri,
andaðist á Hjúkrunarheimilinu Seli, 3. janúar.
Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn
10. janúar kl. 13.30.
Þeir sem vildu minnast hennar láti Hjúkrunarheimilið Sel njóta
þess.
Fyrir hönd vandamanna.
Helga Sigurjónsdóttir,
Sigurlína Sigurjónsdóttir,
Gunnar Sigurjónsson.
Ujtmí ord
„Því að augu mín hafa séð
hjálpræði þitt, sem þú hefir
fyrirbúið í augsýn allra lýða.“
Lúk. 2.30-31.
Símeon tók litla barnið I
fangið og lofaði Guð fyrir fæð-
ingu frelsarans. Hann gladdist
í hjarta sínu, því að honum
hafði verið vitrað af heilögum
anda, „að hann skyldi ekki
dauðann sjá, fyrr en hann
hefði séð Krist Drottins". Og
hann sagði ennfremur: „Nú
lætur þú, Drottinn, þjón þinn I
friði fara, eins og þú hefur heit-
ið mér, þvi að augu mín hafa
séð hjálpræði þitt, sem þú hef-
ur fyrirbúið í augsýn allra
lýða.“ Von Símeons tengdist
honum sem hvíldi í fangi
hans. Þetta var mikil stund og
merkur dagur þegar eftirvænt-
ing hans breyttist í áþreifan-
legan veruleika.
Hin fyrstu viðbrögð við fæð-
ingu Jesú voru undrun og lof-
gjörð hjá öllum þeim, sem áttu
trúna í hjartanu. „Faðir hans
og móðir undruðust það, er
sagt var um hann.“ Það er
mjög athyglisvert, að Símeon
segir fyrirfram alla söguna
um Jesúm. Hann segir okkur
allan sannleikann um hann.
Hann lýsir báðum hliðum þess
sem var að gerast og átti eftir
að koma fram. Hann undir-
strikaði að nú væri ástæða til
þess að gleðjast og fagna yfir
komu lausnarans. En hann
sleppti ekki hinu, sem átti eftir
að koma í Ijós, hve margir
myndu síðar taka afstöðu á
móti honum. Flestir af hans
samtíð vildu fagna honum
sem konungi eða veraldlegum
leiðtoga, en vildu ekki taka við
þeim boðskap sem hann var
kominn til að flytja.
„En Símeon blessaði þau og
sagöi við Maríu móður hans:
Þessi sveinn er settur til falls
og til viðreisnar mörgum í
ísrael og til tákns, sem móti
verður mælt, og sjálf munt þú
sverði níst í sálu þinni. Þannig
munu hugsanir margra hjartna
verða augljósar." Lúk. 2.34-
35. Þessi orð rættust á þann
veg, að meö afstöðu manna til
Krists, kemur í Ijós hvort við í
raun og veru trúum á Guð,
hvort við virðum okkar Guð og
skapara og viljum taka við
hjálpræði hans I Jesú Kristi.
Gengió
Gengisskráning nr. 3
5. janúar 1989
Kaup Sala
Bandar.dollar USD 46,540 48,660
Sterl.pund GBP 87,671 87,887
Kan.dollar CAD 40,653 40,754
Dönsk kr. DKK 7,0399 7,0573
Norskkr. N0K 7,3876 7,4058
Sænsk kr. SEK 7,8940 7,9135
Fi. mark FIM 11,6543 11,6831
Fra. franki FRF 7,9567 7,9764
Belg. franki BEC 1,2954 1,2986
Sviss. franki CHF 32,0026 32,0818
Holl. gylllnl NLG 24,0625 24,1219
V.-þ. mark DEM 27,1613 27,2285
ít. Ilra m 0,03695 0,03704
Aust. sch. ATS 3,8616 3,8711
Port. escudo PTE 0,3310 0,3318
Spá. pesetl ESP 0,4281 0,4292
Jap.yen JPY 0,38716 0,38812
írsktpund IEP 72,789 72,769
SDR5.1. XDR 65,1300 65,2910
ECU-Evr.m. XEU 56,5321 56,6719
Belg.fr. fin BEL 1,2906 1,2938