Dagur - 06.01.1989, Blaðsíða 3

Dagur - 06.01.1989, Blaðsíða 3
6. janúar 1989 - DAGUR - 3 Sparisjóður Ólafsflarðar 75 ára: Áramótainnistæður námu 313 milljónum króna Sparisjóður Ólafsfjarðar hélt upp á 75 ára afmæli sitt sl. þriðjudag. í tilefni dagsins var gestum og gangandi boðið upp á rjúkandi afmæliskaffi í húsa- kynnum sparisjóðsins, Aðal- götu 14 í Olafsfirði. Sparisjóður Ólafsfjarðar getur státað af glæstri sögu og vel- gengni frá fyrstu tíð. Frá form- legum stofndegi, 1. janúar 1914, hefur hann eflst og dafnað og á 75 ára afmælinu er hann 9. eða 10. stærsti sparisjóður landsins. Þorstcinn Þorvaldsson sparisjóðs- stjóri Sparisjóðs Ólafsfjarðar. Mynd: KK Um síðustu áramót námu inni- stæður í Sparisjóðnum 313 millj- ónum króna sem er nokkru hærra en árið áður. Þorsteinn Þorvalds- son, sparisjóðsstjóri, segist vera bjartsýnn á gengi þessarar einu peningastofnunar í Ólafsfirði í framtíðinni. Hann segir að starf- semi sjóðsins sé komin í það horf sem nútíma bankastofnun sæmir. Um 1980 voru tölvur teknar í notkun og nú eru þær beinlínu- tengdar. Sparisjóðurinn er nú í eignar- húsnæði við Aðalgötu 14 í Ólafs- firði. Þangað flutti hann starf- semi sína 28. janúar árið 1983. Fyrstu árin var sjóðurinn til húsa að Strandgötu 3, á heimili séra Helga Árnasonar, fyrsta spari- sjóðsstjórans. í samfelld 55 ár var aðsetur Sparisjóðsins í 40 fer- metra húsnæði í húsi nr. 9 við Brekkugötu. Séra Helgi Árnason var spari- sjóðsstjóri frá 1914 til 1925. Þá tók séra Ingólfur Þorvaldsson við og hélt um stýrið til ársins 1928 er Þorvaldur Sigurðsson tók við. Hann var sparisjóðsstjóri til 1970. Allt til ársins 1982 var Þor- valdur Þorsteinsson sparisjóðs- stjóri en þá tók sonur hans, Þor- steinn Þorvaldsson, við. óþh Flugleiðir: Flug gekk vel um jól og áramót Innanlandsflug Flugleiða gekk vel í kringum jól og áramót, miðað við árstíma, enda veðurfar fremur hagstætt. Ekki þurfti að fella niður ferðir til eða frá Akureyri en vélun- um seinkaði stundum nokkuð. Hins vegar þurfti að fella niður flug til Vestmannaeyja og ísafjarðar. Á Akureyrarflugvelli var stöðugur straumur farþega og sagðist Gunnar Oddur Sigurðs- son umdæmisstjóri reikna með að fjöldi þeirra hefði verið svip- aður og unr jólin 1987. Ekki hafði hann neinar tölur á takteinum í þessu sambandi, né um fjölda farþega á árinu 1988, en þær eru væntanlegar á næstunni. SS Sambýli byggt fyrir Ijölfatlaða á Akureyri - áætlaður kostnaður er 20 milliónir króna Farið hefur verið fram á fram- lag úr Framkvæmdasjóði fatl- aðra til byggingar sambýlis fyr- ir fjölfatlað fólk á Akureyri. Áætlað er að sambýlið verði fyrir sex einstaklinga sem búa í heimahúsum og hafa notið dagvistunarþjónustu. Bjarni Kristjánsson, fráfarandi framkvæmdastjóri Svæðisstjórn- ar um málefní fatlaðra á Norður- landin eystra, sagði að umræddir einstaklingar væru á fullorðins- aldri og þyrftu á sérhæfðu hús- næði og þjónustu að halda. Áætl- aður kostnaður við byggingu sambýlisins er um 20 milljónir króna, með öllum tilheyrandi búnaði. Að sögn Bjarna eru menn frekar vongóðir um að framlag fáist úr framkvæmdasjóði til byggingar sambýlisins þegar á þessu ári. í fyrra dróst fram á vor að úthluta úr sjóðnum en að þessu sinni ætti úthlutun að geta farið fram í febrúar, og líta þá ákvarðanir Stjórnarnefndar málefna fatlaðra vonandi dagsins ljós í framkvæmd. Stjórnar- nefndin tekur ákvarðanir um framkvæmdir í samræmi við til- lögur svæðisstjórna í viðkomandi landshlutum um forgangsverk- efni. Hvað aðrar úthlutanir úr sjóðnum snertir eru líkur á að sundlaugin við Sólborg verði full- gerð á nýbyrjuðu ári, ef fé fæst og kostnaðaráætlanir standast, en sótt var um eina milljón króna til laugarinnar. Þá er sótt um fram- lög til að ljúka ýmsum öðrum verkum á sviði málefna fatlaðra, t.d. til sambýlis á Húsavík, til Iðjulundar og vegna Plastiðjunn- ar Bjargs, en sérstök nefnd hefur verið skipuð af svæðisstjórn til að fara ofan í saumana á rekstri vernduðu vinnustaðanna tveggja á Akureyri og gera tillögur um framtíðarstarfsemi þeirra. EHB Önnumst öll verðbréfaviðskipti og veitum hvers konar ráðgjöf á sviði fjármála Vextir umfram Tegund bréfs verðtryggingu Einingabréf 1,2 og 3 ............ 10,0-13,0% Bréf stærri fyrirtækja .......... 10,5-11,5% Bréf banka og sparisjóða ........ 8,5- 9,0% Spariskírteini ríkissjóðs ....... 7,0- 8,0% Skammtímabréf ................... 7,0- 8,0% Hlutabréf ........................... ? KAUPÞING NORÐURLANDS HF Ráðhústorg 5 Akureyri Sími 96-24700 Gengi Einingabréfa 6. janúar 1989. Einingabréf 1 3.428 Einingabréf 2 ....... 1.932 Einingabréf 3 ....... 2.226 Lífeyrisbréf ........ 1.724 Skammtímabréf ... 1,193 Verdbréf er eign sem ber arð Ja,hver þrefaldur! Þrefaldur fyrsti vinningur á laugardag! Láttu ekki þrefalt happ úr hendi sleppa! Leikandi og létt! Upplýsingasími: 685111 G t ileymið ekki að geta smáfuglunum.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.