Dagur - 25.01.1989, Side 5
kvikmyndorýni
mj Umsjón: Jón Hjaltason
Ástarsaga með
lífsglöðu yfirbragði
Borgarbíó sýnir:
Heimsókn til Ameríku (Coming to
America).
Leikstjóri: Jolin Landis.
Helstu hlutverk: Eddie Murphy,
Arscnio Hall og Shari Headley.
Paramount Pictures 1988.
Jafnvel þó ég sé illu heilli hættur
að draga bíómyndir í dálka eftir
innihaldi þeirra þá held ég þó að
hjá því verði ekki komist með
Heimsókn til Ameríku. Það sem
rekur mig til þess er mjög
útbreiddum misskilningur varð-
andi meginstef hennar. Jafnvel
framleiðendur myndarinnar
reyna að slá ryki í augun á vænt-
anlegum áhorfendum. Þeir kalla
hana gamanmynd en þegar öllu
er á botninn hvolft er Heimsókn
til Ameríku miklu fremur ástar-
saga, þó ekki þrungin depurð eða
yfirvofandi sorg; nei hún er þvert
á móti geislandi af lífsgleði og
almennri ánægju með lífið. Öllu
gamni fylgir nokkur alvara (er
skoðun okkar íslendinga) en lífs-
gleðinni í þessari nýjustu mynd
John Landis fylgir akkúrat engin
alvara og þar er sjálfsagt komin
skýringin á gamanmyndarstimpl-
inum. Og vissulega bregður fyrir
spaugilegum atvikum en þau
mátti einnig finna í Rocky eitt og
var hún þó ekki kölluð gaman-
mynd.
Heimsókn til Ameríku segir
okkur frá kónginum í Zamunda
sem á sér son, prinsinn Akeem.
Akeem er í þann veginn að ganga
í það heilaga að skipun föður síns
sem sjálfur hefur valið konuefn-
ið. Ungi maðurinn er þó ekki
allskostar ánægður með þessa til-
högun mála og gerir uppreisn.
Kóngurinn semur, prinsinn fer til
Ameríku og brúðkaupinu er sleg-
ið á frest. En faðirinn gerir sér
ekki fulla grein fyrir ásetningi
Akeems sem ætlar upp á eigin
spýtur að finna sér konu. Og hvar
skyldi hana vera að finna annars
staðar en í Drottningarhverfi í
New York? Hvergi segir Akeem
og heldur þangað ásamt besta
vini sínum að leita sér eiginkonu
með sjálfstæðan vilja. Hængur-
inn er bara sá að þetta er hið
versta fátækrahverfi og fátt þar
um fýsilegt kvenfólk en Akeem
heldur leitinni ótrauður áfram,
leigir sér herbergi, fær vinnu og
örfáa daga ferðast ríkisbubbinn
um á meðal úrkastsins.
Og Akeem verður að ósk
sinni. Hann finnur konuna og
reynir að vinna ástir hennar án
þess að opinbera ætterni sitt og
auð.
Eddie Murphy leikur prinsinn
unga, Akeem. Eg minntist áðan
á mögulega skýringu á gaman-
myndarstimplinum. Önnur skýr-
ing er einfaldlega bros Murphys.
Maðurinn þarf bókstaflega ekki
að gera annað en að bera tenn-
urnar til þess að fólk skelli upp
úr. Hann er hreint út sagt óborg-
anlegur og engin furða að hann
sé sagður vinsælasti gaman-
myndaleikari bíómyndanna síð-
an Chaplin leið. Án Murphys
væri Heimsókn til Ameríku
hvorki fugl né fiskur. Með þessu
er þó ekki verið að kasta rýrð á
aðra leikara því bæði Arsenio
Hall, í hlutverki vinarins, og
Shari Headley, sem Akeem hrífst
af upp úr skónunt, standa sig vel.
Það er bara að brosið hans
Murphys á sér engan líka.
Það er óhætt að mæla með
Heimsókn til Ameríku fyrir alla
fjölskylduna. Þetta er lífsglöð
ástarsaga, hnyttin á köflum,
stundum falleg, aldrei verulega
ljót, vandamálin rista ekki djúpt
og endirinn er í samræmi við ósk-
ir okkar allra.
Murphy og Arsenio Hall reyna að láta lítið á sér bera í fátækrahverfi New York,
25. janúar 1989 - DAGUR - 5
Stórútsala
í nokkra daga
Ótrúlegur afsláttur
: Verslunin
Opið á laugardögum
frá kl. 10.00
til 16.00.
Sunnuhlíð 12. sími 22484
Tölvufræðslan auglýsir:
PC - Grunnnamskeið
Námskeið fyrir byrjendur í tölvunotkun.
Kynntur er algengur notendahugbúnaður auk þess
sem fjallað er um vélbúnað PC-tölva.
Efni námskeiðsins:
★ Helstu hugtök tölvutækninnar
★ Vélbúnaður PC-tölva
★ Jaðartæki
★ Stýrikerfið MS-DOS
★ Ritvinnslukerfið Word-Perfect (Orðsnilld)
★ Töflureiknirinn Multiplan
★ Verklegar æfingar
Námskeiðið hefst miðvikud. 1. febrúar 1989.
Innritun og nánari upplýsingar eru í síma 27899 eftir
kl. 13.00.
Tölvufræðslan Akureyri hf.
Glerárgötu 34
Alpakvöld
í Sjallanum
föstudags- og
laugardagskvöld
Hljómsveitin KARAKTER
heldur uppi fjörinu
Týrólatríó
beint frá Sviss
Ferðakynning
Ferðaskrifstofa Reykjavíkur
Tískusýning frá Sporthúsinu
Happdrætti
Verð aðeins kr. 2.800.-
Ekta Týrólahlaðborð
Kaldur soðinn lax • reyktur og gratinn lax • fyllt egg • salatborð
10 tegundir • brauðkarfa • blandaður pikles • kálfapottréttur að hætti
Alpabúa • reykt innbakað grísalæri • heitur kjötostur • nautakjöt
soðið i kjötseiði með sinnepi • soðinn kjúklingur Basel • blóðmör og
lifrarpylsa með eplamauki • reykt nautatunga með sterkum
piparrótarrjóma • hunangssteiktur kjúklingur • bacon með rosti
kartöflum • Schirishscha'ri svissneskur kartöfluréttur • snöggsoðið
grænmeti súrkál spaeteli • alpa-makkarónur • rjómasoðið hvítkál,
ávaxtakarfa • steiktar eplaskifur með þeyttum rjóma • heit eplakaka
með þeyttum rjóma • ferskt ávaxtasalat
og að sjálfsögðu fáum við svissneskan
kokk til að sjá um hlaðborðið
Miða- og borðapantanir daglega
í símum 22970 og 22770