Dagur - 31.01.1989, Side 1
72. árgangur
Akureyri, þriðjudagur 31. janúar 1989
21. tölublað
Bæjarstjórn Akureyrar:
Fyrri iimræða um fhrni-
vörp að fjárhagsáætlun
- rekstrargjöld 938 milljónir kr.
Fyrri umræða um frumvörp að
fjárhagsáætlun fyrir Bæjarsjóð
Akureyrar, Hafnarsjóð og
sjóði veitustofnana fer fram á
fundi Bæjarstjórnar Akureyr-
ar í dag. Niðurstöðutölur á
rekstraráætlun eru liðlega 1,1
milljarður króna, 154,6 millj-
ónir eru færðar á eignabreyt-
ingar en niðurstöðutölur á
áætlun um eignabreytingar eru
kr. 334,9 milljónir. Ekki er
gert ráð fyrir neinni aukningu
á útistandandi bæjargjöldum á
þessu ári, framlag til nýbygg-
inga er óskipt upp á 192,3 millj-
ónir króna, afborganir af er-
lendum lánum nema 133,6 millj-
ónum króna.
holræsa 55,9 millj., yfirstjórnar
bæjarins 52,8 millj., hreinlætis-
mála 45,3 millj., heilbrigðismála
49 millj., menningarmála 44
millj., fþrótta- og æskulýðsmála
38,7 millj., fjármagnskostnaður
32,9 millj., eldvarnir og örygg-
ismál 31,3 milljónir. Gjaldaliðir
samtals liðlega 938 milljónir kr.
Hvað gjaldfærðan stofnkostn-
að snertir rennur mest til félags-
mála og almannatrygginga, 20,5
milljónir, fræðslumála 8,1 millj.,
umhverfismála 6,4 millj., íþrótta-
og æskulýðsmála 4,9 millj., gatna
og holræsa 14,3 millj. og til fast-
eigna 6 milljónir kr. 154,6 millj-
ónir voru færðar á eignabreyting-
ar. EHB
Ferðalangar lentu i miklum erfiðleikum um helgina vegna fannfergis. Her sjast Norðurleiðarútan og áætlunarbíll frá
Sérleyfisferðum Akureyrar með nemendur úr VMA strand í Staðarskála í Hrútafirði. VMA-krakkarnir komust að
lokum til Reykjavíkur á föstudagskvöldið eftir rúmlega 14 tíma ferð. Mynd: ap
Útsala
Útsala
S\
im
HERRADEILD
Gránufélagsgötu 4
Akureyri • Sími 23599
Rekstrargjöld Bæjarsjóðs eru
áætluð rúmar 938 milljónir á yfir-
standandi ári, rekstrartekjur kr.
1.157.503.000,- og áætlun um
innborganir vegna eignabreyt-
inga kr. 334.9 milljónir. Gjald-
færður stofnkostnaður er upp á
64.9 milljónir.
Tekjur bæjarins af útsvörum
verða samkv. áætluninni kr. 648
milljónir. Þar af eru aðstöðugjöld
184 millj., fasteignaskattar 198
millj., framlag úr Jöfnunarsjóði
56.3 millj., aðrir skattar og tekjur
3.3 millj., tekjur af fasteignum
37,4 millj., vaxtatekjur 18,8
millj. og ýmsar tekjur upp á 11
milljónir króna.
Stærstu gjaldaliðir rekstrar-
áætlunar eru til félagsmála og
almannatrygginga 307,7 milljón-
ir, fræðslumála 139,8 millj.,
umhverfismála 58 millj., gatna og
Niðursuðuverksmiðjan Hik sf. á Húsavík hefur sagt upp öllu starfsfólki:
„Vara okkar selst ekki lengur
vegna hvalveiðisteftau íslendmga“
- segir Helgi Helgason framkvæmdastjóri
fyrirtækið situr uppi með birgðir fyrir um 40-50 milljónir
Niðursuðufyrirtækið Hik sf. á
Húsavík hefur sagt upp öllu
starfsfólki sínu og að sögn
Helga Helgasonar fram-
kvæmdastjóra er ekkert annað
fyrir þá að gera en að Ioka
fyrirtækinu. „Hvalastefna
Islendinga hefur orðið til þess
að við getum ekki selt okkar
vöru lengur. Við sitjum uppi
með birgðir fyrir um 40-50
milljónir króna og stöndum
ekki undir því Iengur,“ sagði
Helgi.
„Hér hafa starfað í kringum 15
manns og hugmyndin var að
reyna að bæta við fólki. En það
er ljóst að við þurfum að borga
góðan skerf af þessu hvalastríði
Islendinga og það hefur enginn
boðist til þess að borga þetta með
Skíðasvæðin á Norðurlandi voru opnuð um helgina:
Fólk llvkktist í brekkumar
t/ , , p. ..
Helstu skíðasvæði á Norður-
landi voru opnuð almenningi í
fyrsta skipti í vetur um síðustu
helgi. Nú er mánuður Iiðinn af
nýju ári og telst þetta harla
enn tvær vikur í opnun á Siglufirði
óvenjulegt en ástæðan er sú
sama alls staðar; snjóleysi.
Á Akureyri var margt um
manninn í Hlíðarfjalli á laugar-
daginn, var ágætis veður í Fjall-
Snjórinn hrelldi ökumenn en kætti skíðamenn um helgina.
Mynd: TLV
inu og góður nýfallinn snjór. Á
sunnodaginn var hins vegar
skafrenningur og heldur færra
fólk, aðallega var þar um að ræða
íþróttafólk sem væntanlega gríp-
ur nú langþráð tækifæri til æf-
inga.
í Ólafsfirði var lyfta í fjallinu
ofan við bæinn opnuð í fyrsta
skipti um helgina, þar var einnig
gott veður og margt fólk á
skíðum. Barnalyftan á Gullatúni
var sömuleiðis opin auk þess sem
fjöldi fólks var úti á gönguskíð-
um. Fyrr í vetur fór hópur barna
frá Ólafsfirði til skíðaæfinga í
Noregi, en þegar heim kom var
enginn snjór að æfa sig í fyrr en
nú.
Fyrir rúmri viku gerði skíða-
deildin á Húsavík tilraun til að
koma sér upp æfingasvæði og
settu þeir upp vísi að lyftu á litlu
svæði í fjallinu ofan við bæinn, en
á laugardag var ein lyfta af þrem-
ur sett af stað í fyrsta sinn í vetur
fyrir almenning. Aðsókn var góð
og kunnu börnin sérstaklega vel
að meta það að komast loksins á
skíði. í>ó enn sé ekki nægur snjór
á aðalskíðasvæðinu, virðist snjó-
magn í nágrenninu vera mikið
þótt snjóinn hafi ekki fest nema í
lautum og gilum.
Báðar lyfturnar á Dalvík voru
opnaðar um helgina þó aðeins
hafi verið opnað fyrir aðra skíða-
brekkuna, en vonast er til að hin
verði tilbúin um næstu helgi. Á
annað hundrað manns tóku opn-
uninni fegins hendi, sérstaklega
þó börnin. Á Dalvík muna menn
ekki annað eins snjóleysi og hef-
ur skíðaíþróttafólk eingöngu get-
að æft þrek til þessa.
Á Siglufirði eru nú unnin síð-
ustu handtökin við að setja upp
tvær nýjar lyftur í Skarðsdal og
vona bjartsýnustu menn, að því
verki ljúki eftir um það bil tvær
vikur. Þar hefur hins vegar verið
nægur snjór og hefði því ekki
strandað á honum ef lyftur væru
til staðar. VG
okkur. Þó að sjávarútvegsráð-
herra hafi talað um að það væri
auðvelt að selja alla þessa vöru,
hefur það ekki verið í okkar til-
felli. Það er búið að berjast við
aðra markaði síðustu mánuði en
ekkert gengiðT
Við lentum allra fyrirtækja
verst í þessu, því við sitjum uppi
með lang mestar birgðir. Við
seldum okkar vöru eingöngu til
Tangelmann í Þýskalandi þegar
fyrirtækið hætti viðskiptum við
íslendinga. Og þó að margir hafi
sagt að það skipti ekki máli og að
við gætum selt okkar vöru á öðr-
um mörkuðum, hefur annað
komið á daginn,“ sagði Helgi.
Að sögn Helga hafði fyrirtækið
náð samningum við Aldi í
Þýskalandi um sölu á niðurlagðri
rækju fyrir skömmu en fáum dög-
um síðar hætti Aldi fyrirtækið
öllum viðskiptum við íslendinga
og þar fór sá samningur fyrir
lítið.
„Við sem að þessu fyrirtæki
stöndum, höfum lagt allt okkar
undir og treystum á þessa samn-
inga sem voru í gangi. En eins og
staðan er í dag og ef allt fer á
versta veg, stöndum við uppi
eignalausir og allslausir," sagði
Helgi ennfremur.
Hik sf. hefur verið starfrækt
síðan vorið 1986 og á árinu 1987
skilaði fyrirtækið hagnaði. Útlitið
í upphafi síðasta árs var einnig
nokkuð bjart eða þangað til að
viðskiptaaðilar úti í heimi hættu
viðskiptum við íslenska lagmetis-
framleiðendur vegna hvalveiða
íslendinga. -KK