Dagur - 31.01.1989, Síða 5

Dagur - 31.01.1989, Síða 5
31. janúar 1989 - DAGUR - 5 SYKURKLUKKA 1 sýnir reglulega mat- málstíma þarsem lítill sykurerífæð- unni og því lítil hætta á tann- skemmdum. morgunverður kvöldmatur SYKURKLUKKA 2. Svona Iítur dæmið hins vegar út, þegar oft er verið að fá sér eitthvað sætt. morgunverður hádegismatur síðdegiskaffi mjólkurglas og smábiti hádegismatur kvöldmatur tennur þeirra séu burstaðar. Það kemur í hlut foreldranna að gera athöfnina aðlaðandi. Til dæmis er hægt að veita verðlaun, sem mega samt auðvitað ekki vera sætindi af neinu tagi, kaupa reglulega nýjan tannbursta, mis- munandi á lit og annað. Nota skal fluortannkrem við burstun, nema hjá 0-3ja ára, fái þau fluor- töflur daglega. Hæfilegt magn fluortannkrems á burstann er bútur á stærð við baun, en ekki að þekja burstann alveg, eins og oft er sýnt í auglýs- ingum. Mikilvægt er að skola vel með vatni, helst bæði fyrir og eftir burstun. 3. Fluor. Sannað er að fluor í hæfilegu magni dregur mjög úr tann- skemmdum, eða allt að 50-60%. Þetta þýðir ekki að nóg sé að taka fluortöflur og borða síðan sælgæti daginn út og inn og sleppa alveg að bursta. Pá skemmast tennurnar eftir sem áður, en kannski tíu skemmdir í stað tuttugu. Auðvitað þarf mataræði og tannhirða að vera í lagi líka. Hæfilegur dagskammtur af fluortöflum er: ‘/2-3ja ára 1 tafla 3- 6 ára 2 töflur 6-12 ára 3 töflur Æskilegt er að barnið bryðji töflurnar eftir burstun. Til eru bragðbættar fluortöflur vilji barnið ekki þessar bragðlausu. Auk þess er æskilegt að börn séu fluorskoluð í skólum og fluorlökk- un hjá tannlækni tvisvar á ári gef- ur aukna vernd. 4. Reglulegar heimsóknir til tannlæknis. Hæfilegt er að börnin komi í fyrstu skoðun til tannlæknis þriggja ára gömul, en auðvitað fyrr ef grunur leikur á að tann- skemmd sé til staðar. Þá kynnast börnin tannlækninum og umhverfinu áður en þarf að byrja að gera við. Það er mikilvægt að fyrsta reynsla barnsins sé jákvæð og ákveðið traust myndist milli þess og tannlæknisins. Síðan er æskilegt að foreldrar biðji tann- lækninn að kalla barnið inn tvisv- ar á ári upp frá því. Þannig upp- götvast skemmdir á byrjunarstigi og stórra og sársaukafullra aðgerða verður aldrei þörf. Einnig bendir tannlæknirinn á leiðir til úrbóta ef tannskemmda verður vart, þ.e. kennir foreldr- unum og barninu réttar matar- venjur, tannhirðu og fluornotk- un. Lokaorð Það hlýtur að vera metnaður hvers foreldris að barnið þess sé heilbrigt og líti vel út. Heilar og hreinar tennur bera eigandanum gott vitni og eru forsenda góðs útlits og vellíðunar. Til að halda tönnunum heilum þarf engar öfg- ar eða meinlæti, heldur bara að passa að borða ekki á milli mála, borða hollan og góðan mat, hafa nammidaga og ekkert sælgæti þess á milli, hirða tennurnar vel, nota hæfilega mikinn fluor og fara reglulega til tannlæknis. Góðar tennur á barnsaldri eru gott veganesti á lífsleiðinni og líklegt er að barnið hafi þá einnig góðar tennur þegar það fullorðn- ast, því að lengi býr að fyrstu gerð. Gangi ykkur vel Halldór G. Halldórsson tannlæknir Hluti aðstandenda Endurskoðunar Akureyri h.f. Talið frá vinstri: Halldór Hróar Sigurðsson, Ólafur Nilsson, Arnar Árnason, Þorsteinn Kjartansson, Björgólfur Jóhannsson og Heimir Haraldsson. Með samruna fyrirtækjanna á Akureyri í einu félagi er að því stefnt að auka möguleika þess á að veita viðskiptamönnum víð- tæka og sérhæfða þjónustu á hin- um ýmsu starfssviðum þess. Með samstarfi við önnur endurskoð- unarfyrirtæki verða meiri mögu- leikar á sérhæfingu starfsmanna á hinum ýmsu þjónustusviðum og aukinni menntun þeirra. Meðal þeirra þjónustusviða sem félagið mun annast má nefna: Endurskoðun og reikn- ingsskil, bókhald og bókhalds- skipulagningu, launabókhald og hvers konar tölvuvinnslu, ráðgjöf í skattamálum og gerð skattfram- tala, stofnun félaga og samein- ingu félaga, rekstrarráðgjöf og áætlanagerð. Stjórnarformaður félagsins er Þorsteinn Kjartansson, löggiltur endurskoðandi, en framkvæmda- stjórar þeir Arnar Árnason og Björgólfur Jóhannsson, löggiltir endurskoðendur. Iðnaðarhúsnæði tíl leigu * á Oseyri 4, Akureyri ca.soofm. Mjög gott húsnæöi á góðum stað norðan við nýju Glerárbrúna. Fagverk sf. sími 21199 Konráð Árnason heimasími 23024. Forsætisráðherra með fund á Akureyri Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra, heldur almennan fund á Hótel KEA miðvikud. 1. febrúar kl. 21.00. Fundarefni: Atvinnu- og efnahagsmál. A.llir velkomnir Stjórn K.F.N.E. AKUREYRARBÆR Fundur um skóla- mál í Síðuhverfi Miðvikudaginn 1. febrúar kl. 20.30 er boð- að til kynningar- og umræðufundar í Síðuskóla. Dagskrá: • Inngangsorð og yfirlit um skólabyggingar og ákvarð- anir um skólasvæði - formaður skólanefndar. • Framkvæmdaáætlun 1987-1996 fyrir grunnskólana á Akureyri - skólafulltrúi. • Viðhorf stjórnar foreldrafélags Síðuskóla - formaður foreldrafélagsins. • Samþykktir og viðhorf starfsfólks Síðuskóla - full- trúar kennara. • Samþykktir og viðhorf starfsfólks Glerárskóla - skólastjóri Glerárskóla. • Fyrirsþurnir og umræður. ^ Fundarstjóri veröur Sr. Pálmi Matthíasson. ÍBÚAR í GLERÁRHVERFI ERU HVATTIR TIL AÐ MÆTA. Fundarefnið tengist starfsemi bæði Síðu- skóla og Glerárskóla á næstu árum. Undirbúningsnefnd.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.