Dagur - 09.02.1989, Blaðsíða 1
Hugsanleg sameining
frystihúsanna í Ólafsfirði:
Búist við
skýrist ui
Samkvæmt áreiðanlegum
heimildum Dags er gert ráð
fyrir að um eða upp úr næstu
helgi liggi fyrir hvort af sám-
einingu frystihúsanna í Ólafs-
firði, Hraðfrystihúss Ólafs-
fjaröar hf. og Hraðfrystihúss
Magnúsar Gamalíelssonar hf.,
verður.
Á síðustu dögum hefur verið
farið ofan í saumana á fjölmörg-
um atriðum sem lúta að hugsan-
legri sameiningu frystihúsanna.
Útgerðarfélag
Akureyringa:
Sléttbakur
aftur
bilaður
að málið
íi helgina
Prír fulltrúar frystihúsanna og
Ólafsfjarðarbæjar voru í Reykja-
vík í liðinni viku og ræddu þar
við forsvarsmenn banka og sjóða
um hvernig unnt væri að tryggja
nýju sameinuðu frystihúsi rekstr-
argrundvöll.
Eftir því sem næst verður kom-
ist er gert ráð fyrir að leggja
endurnýjaða sameiginlega um-
sókn frystihúsanna um fyrir-
greiðslu fyrir stjórn Atvinnu-
tryggingarsjóðs, að því tilskyldu
að fyrir liggi trygging fyrir rekstr-
argrundvelli nýs frystihúss.
Gunnar Hilmarsson, formaður
stjórnar Atvinnutryggingars;jóðs,
segir að afstaða hennar til sam-
einingar frystihúsanna sé ennþá
óbreytt. Hann segir stjórnina
fúsa að taka fyrir endurnýjaða
umsókn frystihúsanna í Ólafsfirði
þegar ýmis atriði varðandi
skuldastöðu og eignamat hafi
verið lagfærð. óþh
Ákefðin leynir sér ekki í svip þessa unga „lögregluþjóns“ sem reyndi að slá köttinn úr tunnunni á Akureyri í gær.
Mynd: TLV
#•*?!
Baldur EA-108 á Ðalvík fékk á sig brotsjó:
Umtalsverðar skemmdir urðu á
tækjum og innréttingum skipsins
- má ætla að tjónið nemi a.m.k. einni milljón króna, segir Valdimar Bragason
Sléttbakur, frystitogari Út-
gerðarfélags Akureyringa hf.,
kom til Akureyrar í gær eftir
fjögurra vikna útiveru. Togar-
inn fékk 270 tonn í túrnum en
það gerir um 170 tonn af fryst-
um flökum. Þegar búið var að
landa aflanum var Sléttbakur
tekinn í slipp til viðgerða.
Sléttbakur var til viðgerða hjá
Slippstöðinni hf. fyrir nokkrum
vikum vegna bogins skrúfuöxuls.
I síðustu veiðiferð urðu vélstjór-
ar varir við að stefnisrörsolían
lak af og héldu menn í fyrstu að
lekinn væri með stefnisrörinu eða
fóðringu við það. Þetta reyndist
ekki rétt því þegar skipið var
komið í slipp sáu menn að olía
lak út með lausum boltum í
skrúfuhausnum. Viðgerð mun
Ijúka öðru hvoru megin við helg-
ina.
Vilhelm Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri Ú.A., sagði að
miklar ógæftir hefðu verið
undanfarnar vikur og afli togar-
anna rýr vegna slæms veðurs.
Aðspurður um kostnað vegna
bilana í Sléttbak, sem verður að
teljast sem nýtt skip eftir gagn-
gera endurnýjun og breytingu,
sagði Vilhelm að Ú.A. þyrfti allt-
af að greiða kostnað af slíku að
meira eða minna leyti. EHB
Baldur EA-108 frá Dalvík fékk
á sig brotsjó í tvígang um kl. 4
aðfaranótt sl. mánudags, en þá
var hann staddur út af suð-
austurlandi. Umtalsverðar
skemmdir urðu á skipinu, en
þær hafa ekki verið metnar til
fjár. Valdimar Bragason, út-
gerðarstjóri Útgerðarfélags
Dalvíkinga hf., áætlar tjónið
allt að einni milljón króna.
Björgúlfur EA-312 frá Dalvík
kom Baldri tii aðstoðar og
fylgdi honum inn til Norðfjarð-
ar, en þar hefur verið unnið að
því að gera hann sjókláran á
nýjan leik. Að sögn Brynjólfs
Oddssonar, skipstjóra á
Baldri, bundu menn vonir við
að bráðabirgðaviðgerð lyki í
gærkvöld og var þá gert ráð
fyrir að halda aftur á miðin.
Þegar brotið skall á Baldri var
hávaðarok eystra, 10-12 vindstig.
„Þetta var engan veginn versta
veður sem ég hef lent í. Hins veg-
ar var sjólag mjög slæmt, hann
var stöðugt að skipta um átt, úr
einni stormáttinni í aðra“ sagði
Brynjóifur.
Baldur var ekki á veiðum þeg-
ar óhappið varð. Brynjólfur seg-
ist hafa heyrt veðurlýsingu á
Stórhöfða í Vestmannaeyjum á
sunnudagskvöld og ákveðið að
hreyfa ekki veiðarfæri. Fyrra
brotið kom beint framan á skipið
og beyglaði brúna og braut einn
gluggann. Brimsölt úthafsaldan
frussaðist um alla brú og þaðan
niður í vistarverur skipverja.
Stýrimaður var við annan mann í
brúnni, en þá sakaði ekki. Hinir
skipverjar voru í kojum. „Þegar
við vorum að reyna að þétta
gluggann var sett á lens og engum
togum skipti að annað brot kom
á skipið að aftan,“ sagði Brynj-
ólfur. Sjórinn fór í loftriestikerfið
og niður í vél.
Við brotið sló allt rafmagn út á
Baldri og af þeim sökum gátu
skipverjar ekki látið vita af sér
um tíma. Um síðir gátu þeir
komið boðum til kollega sinna á
Björgúlfi í gegnum neyðarstöð
og síðar örbylgjustöð.
Aðspurður um skcmmdir á
skipinu sagði Brynjólfur að aðal-
talstöð þess væri ónýt. Þá liafa
annar radarinn og dýptarmælir
ekki farið í gang. „Það er greini-
legt að sjór hefur komist í nánast
öll tæki og rafkerfi út um allt
skip. Vélarúmið er það eina sem
hefur sloppið algjörlega við tjón.
Á brúarhæð og íbúðahæð var
meira og minna sullandi sjór og
eftir því sem skipið er betur
skoðað kemur meira og meira í
ljós,“ sagði Brynjólfur.
f öllum látunum hrifsaði Ægir
konungur til sín gúmmíbát og
plastbát sem voru upp í brú
Baldurs.
Samkvæmt upplýsingum Dags
varð tjón á fleiri skipum á þess-
um slóðum í veðurofsanum.
Guðmundur Ólafur frá Ólafsfirði
tapaði afturmastri og skipverjar á
Sjóla sáu á eftir gúmmíbát. Það
sama var uppi á teningnum hjá
Þórhalli Daníelssyni. óþh
Steinullarverksmiðj an:
Framleiðsla og sala farið betur af stað
en áætlanir gerðu ráð fyrir
Það sem af er þessu ári hefur
framleiðsla og sala hjá Stein-
ullarverksmiðjunni á Sauðár-
króki farið betur af stað en
forráðamenn verksmiðjunnar
höfðu áætlað. Búið er að selja
um 300 tonn á innanlands-
markað og um 200 tonn hafa
farið á erlendan markað, aðal-
lega til Finnlands og Færeyja.
Þá hafa farið um 15 tonn á
Englandsmarkað, en það er sá
markaður sem verksmiðjan
bindur mestar vonir við.
Að sögn Einars Einarssonar
framkvæmdastjóra var gert ráð
fyrir að um 15% samdráttur yrði
á innanlandsmarkaði á þessu ári.
Sem kunnugt er fékk verksmiðj-
an einangrun hitavatnslagnarinn-
ar frá Nesjavöllum til Reykjavík-
ur og átti það verkefni að brúa
það bil sem samdrætti á innan-
landsmarkaði munaði. En það
stendur til hjá Hitaveitu Reykja-
víkur að draga úr einangrunar-
framkvæmdum við lögnina á
þessu ári, þannig að líklega fara
ekki nema 150-200 tonn af-stein-
ull í lögnina á þessu ári, í stað 400
sem átti að setja í hana.
Á síðasta ári seldi verksmiðjan
um 1200 tonn á erlendum mörk-
uðum og sagði Einar að það yrði
svipað á þessu ári, en þeir vonuð-
ust til að það yrði meira.
Sem kunnugt er hafa þrír er-
lendir aðilar sýnt áhuga á kaup-
um og dreifingu á steinull, með
hugsanleg hlutafjárkaup í huga,
og sagði Einar að ekkert nýtt hefði
gerst í þeim málum. „Þetta eru
hlutir sem eru í gangi, það hefur
lítið skýrst og skýrist sjálfsagt
ekki fyrr en lengra kemur fram á
vorið,“ sagði Einar. -bjb