Dagur - 24.02.1989, Blaðsíða 3
24. febrúar 1989 - DAGUR - 3
Sigurður Gunnarsson, rauðmagatrillukarl,
hvetur til meira rauðmagaáts:
Húsvíkingar ekki nógu
grinunir við rauðmagann
Aðalfundur
Gigtarfélagsins á Norðurlandi eystra
verður haldinn sunnudaginn 26. febrúar í Barna-
skóla Akureyrar kl. 16.00.
Jón Þorsteinsson formaöur G.í. kemur á fundinn.
Félagar fjölmennió.
Stjórnin.
Nú er kominn sá tími er rauð-
magi fer að sjást á borðum hér
norðan heiða. Degi er ekki
kunnugt um marga trillukarla
sem lagt hafa rauðmaganetin,
enn sem komið er, enda hefur
tíðarfarið að undanförnu vart
boðið upp á mikla rauðmaga-
veiði. Dalvíkingar eru rétt í
startholunum í rauðmagaveið-
inni og sama má segja um trillu-
karla á Siglufirði. Það er helst
að Húsvíkingar hafi náð
nokkrum rauðum á land það
sem af er. Sigurður Gunnars-
son sjómaður á Húsavík hefur
verið hvað iðnastur og sl.
mánudag náði hann rúmum
900 rauðmögum úr netunum.
Dágóður atli það á einum degi,
en Sigurður gerir lítið úr veið-
inni og segir aflann vera „það
langbesta til þessa.“
Sigurður lagði reyndar fyrstu
rauðmaganetin í janúarlok en
það var ekki fyrr en í þessari viku
sem veðurguðirnir gáfu honum
færi á að stunda veiðina af ein-
hverju viti. „Reyndar var aldrei
alveg dautt. Maður hefur verið
að fá alveg upp í 250 rauðmaga,
svona tveggja, þriggja nátta. Svo
er aldrei að vita hvað verður,“
segir Sigurður.
Hann segist ekki vera gamall í
hettunni í rauðmagaveiði, hafi
byrjað á henni í fyrra af illri
nauðsyn. „Ég fór nú út í þetta
vegna þessara kvótamála. Ég
fékk á mig kvóta eins og aðrir,
sem að vísu var í samræmi við
mína aflareynslu. Með því að
hverfa að rauðmagaveiðinni er
maður aðeins að reyna að lagfæra
fyrir sér. Sem betur fer er hún
utan við alla veiðistjórnun.
Ráðamenn eru með puttana nið-
ur í nógu mörgu þó þeir sleppi
rauðmaganum,“ segir Sigurður.
Hann bindur vonir við að geta
stundað rauðmagaveiðina fram
að páskum. Hann segir þó að það
ráðist alfarið af því hversu lengi
markaðurinn taki við. Meginhluti
aflans fer í fiskbúðir á Akureyri
og í Reykjavík og svo selur hann
auðvitað Húsvíkingum í soðið.
Sigurður kvartar þó undan því að
þeir séu orðnir alltof linir við að
borða rauðmagann. „Húsvíking-
ar eru satt best að segja ekki
grimmir við að borða rauðmaga.
Mér finnst rauðmagaáti þeirra
hafa farið aftur. Því miður hafna
margir af yngri kynslóðinni rauð-
maganum," bætir Sigurður við.
„Við höfum oft staðið betur,“
sagði Jón Geir Ágústsson,
byggingafulltrúi, þegar hann
var inntur eftir lóðaframboði á
Akureyri. Minnst er til af lóð-
um fyrir einnar hæðar einbýlis-
hús, líklega ekki nema 5 til 6
lóðir, en nokkuð meira er til af
lóðum fyrir tveggja hæða ein-
býlishús og tveggja hæða
raðhús.
Um þessar mundir er verið að
vinna að skipulagi 1. hluta Gilja-
hverfis en í þeim áfanga er gert
ráð fyrir fjölbýlishúsum og rað-
húsum, þau síðarnefndu bæði
eins og tveggja hæða. Skipulags-
nefnd gerði fyrir nokkru sam-
þykkt um endurskoðun á skipu-
lagi við Vestursíðu og eru menn
að velta fyrir sér að fara alfarið út
í byggingu fjölbýlishúsa á því
svæði.
Sigurður Jóhannesson, bæjar-
fulltrúi, flutti á sínum tíma til-
lögu um þéttingu byggðar í Síðu-
hverfi og samþykkti Bæjarstjórn
Akureyrar að aðstoða húsbyggj-
endur í hverfinu með því að taka
þátt í greftri og fyllingu grunna
að ákveðnu marki. Akureyrar-
Aðspurður um hvort rauðmaga-
veiði sé skemintileg iðja segir
Sigurður svo ekki vera. „Æi, ekki
finnst mér hún neitt sérstaklega
skemmtileg. Mér finnst þorsk-
veiðin mun fjörlegri. Pað er
meira líf í að draga þorsk, ýsu
og ufsa. En það er allt í lagi að
fást við rauðmagann,“ segir
Sigurður Gunnarsson. óþh
bær hefur þannig unnið að þétt-
ingu byggðarinnar og boðið sér-
stök kjör á einbýlishúsalóðum.
Jón Geir sagði að sú stefna hefði
borið nokkurn árangur og all-
margir einstaklingar hefðu nýtt
sér þennan möguleika.
Byggingafulltrúi var spurður
að því hvort seinagangur í skipu-
lagi hamlaði lóðaframboði í
bænum. „Það er ekki bara seina-
gangur í skipulagi heldur er það
pólitísk ákvörðun hvað er lagt af
götum hverju sinni og hversu
mikið fjármagn er veitt í þetta.
Bærinn tók þá ákvörðun að reyna
að auka við byggð í Síðuhverfi
með því að greiða ákveðna upp-
hæð með lóðunum. Það má segja
að slíkt geti komið að hluta til á
móti því að leggja nýja götu eða
götur,“ sagði Jón Geir.
Skipulagsmál voru til umræðu
á síðasta fundi Bæjarstjórnar
Akureyrar. Heimir Ingimarsson
gagnrýndi þá seinagang í skipu-
lagi og formaður skipulagsnefnd-
ar, Freyr Ófeigsson, sagði einnig
að skipulag hefði gengið fremur
hægt nema þá helst í Giljahverfi.
EHB
Akureyri:
Lóðaframboð
með miirna mótí
- aðeins örfáar lóðir lausar
fyrir einnar hæðar einbýlishús
IMI55AIM
Bílasýning
verður laugardaginn 25. og sunnudaginn
26. febrúar frá kl. 2-6 e.h. báða dagana að
Bifreiðaverkstæði Sigurðar Valdimars-
sonar í sýningarsal að Óseyri 5
(norðurhluta).
Sýndir verða meðal annars:
Subaru J12 4x4, auk fleiri gerða af Subaru
bílum, Nissan Sedan og Nissan Sunny.
Athygli skal vakin á að þeir sem fá eftirgjöf á
verði bíla frá Tryggingastofnun,
fá 10% viðbótarafslátt frá umboðinu.
Bifreiðaverkstæði
Sigurðar Valdimarssonar
Óseyri 5 - Sími 22520 - Akureyri.
NISSAN
Ingvar Helgason hf. Rauðagerði.
NU ER AÐ HROKKVA
EÐA STÖKKVA
Hver fær milljónir
á laugardaginn?
PS. Þú getur notað sömu tölurnar, viku eftir viku
- meö því að kaupa tveggja, fimm, eða tíu vikna miða
Sími 685111. Upplýsíngasímsvari 681511
SAMEINAÐA/SÍA