Dagur - 24.02.1989, Blaðsíða 16
mm
Akureyri, föstudagur 24. febrúar 1989
Leikhústilboð
Gratineruð humarsúpa,
innbakaðar lambalundir með wiskysósu.
Kaffi og konfekt.
Verð 1.390,-
Skýrsla byggingafulltrúa fyrir 1988:
Stöðug uppsveifla
í byggingaiðnaði
á Akureyri
Greinileg aukning varð á bygg-
ingaframkvæmdum á Akureyri
í fyrra, annað árið í röð. Á síð-
asta ári var hafin bygging 156
íbúða í bænum, 111 voru full-
gerðar á árinu og 100 íbúðir
voru taldar fokheldar í árslok.
Alls voru 232 íbúðir í smíðum í
árslok miðað við 187 íbúðir
árið 1987.
Samkvæmt yfirliti frá bygginga-
fulltrúanum á Akureyri, Jóni
Geir Ágústssyni, kemur í ljós að
árið 1988 fjölgaði íbúðum sem
byrjað var á á árinu um 46 milli
ára. Hafin var smíði 15 einbýlis-
húsa, 7 raðhúsa með 30 íbúðum
og 5 fjölbýlishúsa með 111 íbúð-
um. í fyrra voru byggðar 91 íbúð
í fjölbýlishúsum.
Af þeim 111 íbúðum sem
skráðar voru fullgerðar á árinu
voru 19 í einbýlishúsum, 20 í rað-
húsum og 72 í fjölbýlishúsum. í
árslok voru fokheldar og lengra
komnar íbúðir 20 í einbýlishús-
um, 41 raðhúsaíbúð og 58 íbúðir
í fjölbýlishúsum. Skemmra á veg
komin í byggingu í árslok voru 11
einbýlishús, 8 raðhúsaíbúðir og
94 íbúðir í fjölbýlishúsum.
Skýrsla byggingafulltrúa flokk-
ar framkvæmdir eftir því hvort
um er að ræða íbúðarhúsnæði
eða húsnæði til annarra nota.
Hvað síðari flokkinn snertir þá
voru á árinu 1988 hafnar fram-
kvæmdir vegna viðbyggingar að
Árstíg 6, 4. áfangi Sjafnar við
Austursíðu, Viðbygging við
Sana, iðnaðarhúsnæði að
Norðurtanga 3, félagsheimili að
Sjafnarstíg 3 og viðbygging við
húsnæði Malar og Sands hf.
Byggingar 4. áfanga Sjafnar og
Sana voru fullgerðar á árinu.
Einnig íþróttahús við Bugðusíðu,
eitt flugskýli, byggingar að Jaðri,
Óseyri 9, 20 og 22, félagsheimili
Hvítasunnusafnaðarins.
Þá má nefna framkvæmdir við
Glerárkirkju, viðbyggingu við
Hlíð, 2. áfangi Sjafnar, verk-
stæðishús við Fiskitanga, Gler-
árgötu 26, Hótel KEA, Hofsbót
4, Hvannavellir 14, sundlaug Sól-
borgar, Réttarhvammur 1, við-
bygging K. Jónsson & Co., félags-
heimili Þórs, íþróttahöllin,
Strandgata 29-31, VMA 5. áfangi
og hús NLFA í Kjarnaskógi.
EHB
Hann Sigurður Skúlason veghefilsstjóri hefur haft í nógu að snúast upp á síð-
kastið en Ijósmyndari Dags gómaði hann í kaffipásu í gær, sem hann eflaust
hefur verið vel að kominn. Mynd: tlv
Handbolti:
ísland A-þjóð
á nvjan leik
íslendingar hafa nú tryggt sér
þátttökurétt í A-heimsmeist-
arakeppninni í handbolta sem
fer fram í Tékkóslóvakíu að ári
en þeir unnu stóran sigur á
Holiendingum I B-heimsmeist-
arakeppninni í handbolta í
gær.
íslendingar tóku forystuna í
sínar hendur strax á fyrstu mfnút-
um leiksins og héldu henni allan
tímann.
Leikurinn fór 31:17 og voru
yfirburðir íslendinga augljósir
allan tímann. Markahæstur ís-
lendinga var Jakob Sigurðsson
með 8 mörk og 'Héðinn Gilsson
með 5 mörk, en hann lék aðeins í
seinni hálfleik. VG
Forráðamenn HÓ í Ólafsfirði ræða við ráðherra og
forráðamenn banka og sjóða í höfuðborginni:
Þeir leita ákaft að
reks trargru nd vell i n u m
Forráðamenn Hraðfrystihúss
Ólafsfjarðar hf. eru nú staddir
Eigandi Garðshorns neitaði N.A.N. um leyfi til verðkönnunar:
Var ekkert talað við mig um
sérstaka könnun smáverslana
- hefði auðvitað tekið þátt í slíkri könnun, segir Axel Valgeirsson
Neytendafélag Akureyrar og frétt Neytendafélagsins: „Það er
nágrennis framkvæmdi í byrj- einsdæmi að verslunareigandi
un vikunnar verðkönnun hjá neiti þátttöku í verðkönnun hjá
nokkrum smáverslunum á félaginu og geta neytendur velt
Akureyri. Ætlunin var að
kanna verðlag í 6 smáverslun-
um en Axel Valgeirsson, eig-
andi Garðshorns, neitaði
starfsmanni N.A.N. um leyfi
til verðkönnunar. Axel neitar
því alfarið að hann forðist
verðkannanir og gagnrýnir
N.A.N. harðlega fyrir að
hvernig að þessari könnun,
sem og öðrum könnunum þess
er staðið.
því fyrir sér hvaða ástæða liggi
þar að baki.“
Axel er mjög svo óhress með
þessi orð N.Á.N. og segir að með
þeim sé fyllilega gefið í skyn að
verðlag Garðshorns sé það hátt
að verslunin þori ekki að taka
þátt í verðkönnun. „Þetta er út í
hött því ég er alveg fyllilega sam-
bærilegur við þær verslanir sem
þátt tóku í könnuninni,“sagði
Axel. Hann sagðist vilja taka
fram að hann hefði ekki verið í
versluninni þegar leitað var eftir
verðkönnun en starfsstúlka henn-
ar hefði, að hans fyrirmælum,
neitað þátttöku í könnuninni á
þeirri forsendu að mjög illa hafi
verið staðið að slíkum könnunum
til þessa. „Ég hefði gjarnan viljað
taka þátt í þessari sérstöku könn-
un smáverslana, en starfsmaður
N.A.N. minntist ekki einu orði á
að um slíka könnun væri að
ræða. Hefði ég fengið að vita að
um smáverslanakönnun væri að
ræða hefði ég að sjálfsögðu tekið
þátt í henni,“ sagði Axel Val-
geirsson. óþh
Sjá verðkönnunina á bls. 7.
í Reykjavík og eiga þar fundi
með fulltrúum sjóða og stofn-
ana í því skyni að finna nýju
frystihúsi í Ölafsfirði rekstrar-
grundvöll. í gær áttu þeir m.a.
fund með tveimur af stjórn-
armönnum í Atvinnutrygg-
ingarsjóði, Gunnari Hilmars-
syni og Jóhanni Antonssyni,
og eftir því sem Dagur kemst
næst ræddu þeir einnig við
Steingrím Hermannsson, for-
sætisráðherra.
Kaup Hraðfrystihúss Ólafs-
fjarðar hf. á Hraðfrystihúsi
Magnúsar Gamalíelssonar hf. var
fyrsta skref sameiningar frysti-
húsanna. Eftir er mikil vinna við
að. endurskipuleggja reksturinn
og skjóta undir hann tryggum
stoðum. Vandi nýja frystihússins
er auðvitað mjög mikill á hveiti-
brauðsdögunum. Fyrstu skref
þess eru stigin með um 240 millj-
óna skuld á bakinu en ef áætlanir
standast verður unnt að ná þeim
niður í ríflega. 150 milljónir
króna. Gert er ráð fyrir að selja
eignir, svo sem húseignir og
hlutabréf, fyrir 23 milljónir
króna. Þá miða áætlanir við að
auka hlutafé nýja frystihússins
um 90 milljónir króna. Á móti
kemur umtalsverður kostnaður
við t.d. uppsetningu flæðilínu í
nýju frystihúsi.
Fulltrúar HÓ „lögðu ákveðin
plön“ fyrir stjórnarmenn í
Atvinnutryggingarsjóði í gær,
eins Gunnar Hilmarsson kýs að
orða það. Hann vill lítið segja um
hugmyndir þeirra HÓ-manna en
bætir því við að Ólafsfirðingar
vilji greinilega takast á við
vandann. „Vonandi gengur þetta
upp en við skulum sjá hverju
fram vindur,“ segir Gunnar.
Á þessari stundu er erfitt að
segja fyrir um hvaða leið verður
farin til að tryggja rekstur HÓ.
Vitað er að heimamenn líta til
hlutafjársjóðs, sem ríkisstjórnin
hyggst koma á fót til að aðstoða
þau fyrirtæki sem ekki njóta
fyrirgreiðslu Atvinnutryggingar-
sjóðs. Vel kemur til greina að
HÓ fái inni hjá hlutafjársjóði til
að treysta stoðir fyrirtækisins en
á síðari stigum komi til afgreiðsla
Atvinnutryggingarsjóðs, skuld-
breytingar o.fl. óþh
Nýtt skipulag Ráðhústorgs og Skátagils:
Óvíst hvenær framkvæmdir heQast
- arkitektar skila endanlegum útfærslum í vor
Þær verslanir sem tóku þátt í
verðkönnun N.A.N. eru Hóla-
búðin, Verslunin Esja, Verslunin
Síða, Verslunin Brynja og Kjör-
bíll Skutuls.
Nokkur verðmunur er á milli
verslana og kemur Hólabúðin út
með flest lægstu verðin og munar
t.d. miklu á kartöfluflögum, eða
51% Eins er talsverður munur á
Nesquik kakómalti eða 49%.
I frétt frá Neytendafélaginu
segir að eflaust séu margar
skýringar á þessu misjafna vöru-
verði á milli verslana. Sú skýring
er m.a. nefnd að birgðir kunni að
vera misgamlar og verðlag af
sama skapi mishátt.
Eins og áður segir neitaði Axel
Valgeirsson, eigandi Garðs-
horns, N.A.N. um þátttöku í
verðkönnuninni. Um þetta segir í
„Ég er mikill áhugamaður um
að þetta verði gert og hefði
persónulega viljað að byrjað
yrði á verkinu í ár, Ég er hins
vegar ekki fastur í þeirri hug-
mynd ef forgangsröðin kynni
að verða önnur. I síðasta lagi
hefði ég viljað sjá framkvæmd-
ir heljast á næsta ári,“ sagði
Freyr Ófeigsson, formaður
Skipulagsnefndar Akureyrar-
bæjar, er hann var spurður um
væntanlegar breytingar á Ráð-
hústorgi og Skátagili.
Árið 1987 var efnt til verðlauna-
samkeppni um skipulag hluta
miðbæjar Akureyrar, Ráðhús-
torgs og Skátagils. Arkitektarnir
Jón Ólafur Ólafsson, Sigurður
Einarsson og Þráinn Hauksson
skiluðu inn tillögu sem fékk 1.
verðlaun í samkeppninni og var
samið við þá um nánari útfærslu á
verkinu.
Freyr Ófeigsson sagði að síðan
hefði ekki gerst eins mikið í
málinu og hann hefði gjarnan
viljað. Arkitektarnir þrír vinna
að endanlegri útfærslu tillögunn-
ar og hafa mætt á einn eða tvo
fundi hjá skipulagsnefnd. Freyr
sagðist vona að hluti arkitekta-
vinnunnar yrði tilbúinn í vor,
þ.e. endanlegar teikningar af
torginu sjálfu og neðsta hluta
Skátagils, því þeir þættir hefðu
forgang.
Að sögn Freys er ekki ljóst
hvenær hafist verður handa um
sjálfar breytingarnar. Að til-
lögunum fengnum væri ekkert
skipulagslega því til fyrirstöðu að
framkvæmdir gætu hafist heldur
væri spurningin um peninga.
Enginn sérstakur liður er á fjár-
hagsáætlun bæjarins fyrir þetta
verk en fé til gatnagerðar er óskipt
og sagði Freyr að ef samstaða
væri um slíkt mætti hugsa sér að
hluti gatnagerðarfjárins færi í
framkvæmdir við Ráðhústorg og
Skátagil. EHB