Dagur - 24.02.1989, Blaðsíða 14
14 - DAGUR - 24. febrúar 1989
Kjörmarkaður KEA Hrísalundi 5
Nauðungaruppboð
þriðja og síðasta,
á eftirtöldum fasteignum
fer fram á eignunum sjálfum
á neðangreindum tíma:
Aðalbraut 45, Raufarhöfn, þingl.
eigandi Anton Sigfússon, fimmtu-
daginn 2. mars 1989 kl. 13.15.
Uppboðsbeiðendur eru: Trygginga-
stofnun ríkisins, Veðdeild Lands-
banka íslands, Magnús Norðdahl
hdl. og Brunabótafélag íslands.
Birkilandi (Vestaralandi IV), þingl.
eigandi Lárus Hinriksson, fimmtu-
daginn 2. mars 1989 kl. 10.00.
Uppboðsbeiðendur eru: Tómas Þor-
valdsson hdl., Sigríður Thorlacius
hdl., Brynjólfur Eyvindsson hdl.,
Búnaðarbanki (slands og Veðdeild
Landsbanka Islands.
Grund, Raufarhöfn, þingl. eigandi
Bjarni J. Guðmundsson, fimmtu-
daginn 2. mars 1989 kl. 13.00.
Uppboðsbeiðendur eru: Innheimtu-
maður ríkissjóðs og Fjárheimtan
hf., lögfr. og innheimtuþ.
Naustum, við Húsavíkurhöfn, þingl.
eigandi Naustir hf., mánudaginn 6.
mars 1989 kl. 14.00.
Uppboðsbeiðandi er Landsbanki
íslands.
Nónási 6, Raufarhöfn, neðri hæð,
þingl. eigandi Sigvaldi Ó. Aðal-
steinsson, fimmtudaginn 2. mars
1989 kl. 13.30.
Uppboðsbeiðendur eru: Sigurmar
Albertsson hdl., Tryggingastofnun
ríkisins, Veðdeild Landsbanka
Islands, Árni Pálsson hdl., Stein-
grímur Þormóðsson hdl., Benedikt
Olafsson hdl., Landsbanki Islands,
Andri Árnason hdl., innheimtumað-
ur ríkissjóðs og Brynjólfur Eyvinds-
son hdl.
Pálmholti 1, Þórshöfn, þingl. eigandi
Sigurður Óskars. og Sigríður
Alfreðsd., fimmtudaginn 2. mars
1989 kl. 15.00.
Uppboðsbeiðandi er Veðdeild
Landsbanka íslands.
Pálmholti 10, Þórshöfn, þingl. eig-
andi Egill Einarsson, fimmtudaginn
2. mars 1989, kl. 15.15.
Uppboðsbeiöendur eru: Innheimtu-
maður ríkissjóðs og Veðdeild
Landsbanka fslands.
Skútahrauni 2a, Reykjahlíð, þingl.
eigandi Sæþór Kristjánsson, mið-
vikudaginn 1. mars 1989 kl. 14.00.
Uppboðsbeiðendur eru: Innheimtu-
maður ríkissjóðs, Árni Pálsson hdl.
og Veðdeild Landsbanka íslands.
Söltunarst. v/Höfðabr., Raufarh.,
þingl. eigandi Fiskavík hf., fimmtu-
daginn 2. mars 1989 kl. 13.45.
Uppboðsbeiðandi er innheimtu-
maður ríkissjóðs.
Ægissíðu 20 (áður I og II), Grenivík,
þingl. eigandi Hrafnhildur Hall-
grímsdóttir, föstudaginn 3. mars
1989 kl. 14.30.
Uppboðsbeiðendur eru: Trygginga-
stofnun rikisins, Veðdeild Lands-
banka íslands, Brunabótafélag
(slands og Ólafur B. Árnason hdl.
Sýslumaður Þingeyjarsýslu,
Bæjarfógeti Húsavíkur.
Vcrið
velkomin
Bókaútgáfan Snorrahús:
Tvær nýjar bækur
komnar á markaðinn
Til helgarinnar
Ostafylltur lambavöðvi.
Lambaragu. Nautapiparsteik.
Sherry triffle ásamt fjölda annarra rétta úr kjötborðinu.
Bókaútgáfan Snorrahús á
Akureyri hefur sent frá sér
tvær nýjar kiljur; ástarsöguna
„Framavonir“ eftir Suzanne
Sherrill og spennusöguna „Ég
er morðinginn“, eftir -ky.
„Framavonir" er 5. bókin í ást-
arsöguflokki útgáfunnar. Á
bókarkápu segir m.a.: „Öll rök
hnigu í þá átt að hin fagra Kelly
Patrick yrði næsti aðalfram-
kvæmdastjóri fremstu sjónvarps-
stöðvar Chicago. Ef henni tækist
ekki að fá Grant Andrews, sjón-
varpsmanninn eitursnjalla, til að
endurnýja ráðningarsamning
sinn, yrði valdaferill hennar sá
stysti í sjónvarpssögunni. Allt frá
þeirra fyrstu fundum gneistaði á
milli þeirra. Sem nýr yfirmaður
varð Kelly að sanna sig. Grant
gerði henni það ljóst að honum
yrði ekki sagt fyrir verkum.
„Snillingurinn'* vissi nákvæmlega
hvers virði hann var og hvað
hann vildi - Kelly! Hún reyndi að
þræða hinn gullna meðalveg en
óskin um starfsframa og sam-
viska hennar háðu harða baráttu;
hún vildi ekki leggja sjálfa sig að
veði. Hún neitaði og neitaði allt
þar til ...“
„Ég er morðinginn“ er 5. bók-
in í flokki vandaðra, þýskra
spennusagna. Á bókarkápu segir
m.a.:
„„Gerard Bengler er 42ja ára,
bókhaldari hjá Jerxheims og for-
maður Samtaka iðrandi fólks,
sértrúarflokks sem hefur vaxið
fiskur um hrygg í seinni tíð, eftir
að hafa þrifist illa árum saman
undir stjórn annars manns.
Dæmigert sjálfsmorð er framið.
En það versta er að mikils metinn
fjármálamaður hefur notfært sér
aðstöðu sína til að fá útrás fyrir
afbrigðilegar kynhneigðir sínar á
yngri safnaðarmeðlimum. Stór-
hneyksli!
Þá tekur Bengler formaður til
sinna ráða. Hann drepur munað-
arsegginn. Og svo gefur hann sig
fram við lögregluna eftir mikið
sálarstríð. Hann vill bæta fyrir
brot sitt - en einhverjir vilja ekki
að hann taki á sig sökina. Þeir
gefa honum fjarvistarsönnun..."
Höfundur bókarinnar, -ky, er
einn virtasti sakamálasagnahöf-
undur Þjóðverja. -ky er reyndar
dulnefni, en höfundurinn hefur
einnig haslað sér völl á vettvangi
fagurbókmennta og kýs því að
halda nafni sínu leyndu.
Hægt er að gerast áskrifandi að
báðum þessum bókaflokkum og
fá viðkomandi eina bók ókeypis
um leið og þeir gerast áskrifend-
ur. Auk þess er happamiði í
hverri bók og er dregið úr inn-
sendum miðum og þrír heppnir
lesendur hljóta veglega bók frá
Erni og Örlygi að launum.
Á tilboði:
Krebinettur á aðeins kr. 448,- kílóið
Vínarpylsur á kr. 461,20.
Ólympíunefnd íslands:
Boðið aö senda 5 Mtrúa
- til fræðslustefnu um ólympíumálefni
Ólympíunefnd íslands hefur
borist boð frá Alþjóða-ÓIympíu-
fræðsluráðinu um að senda 5
fulltrúa á fræðslustefnu ráðsins
í Ólympíu, 29. júní til 12. júlí,
næsta sumar.
Þátttakendur skulu vera virkir í
íþróttastarfi og íþróttaiðkendur
og ekki eldri en 35 ára. Þeir
verða einnig að vera vel að sér í
ensku eða frönsku.
Tveim af þessum fimm, karli
og konu, eru boðnar fríar ferðir,
en aðrir greiða fullt gjald. Uppi-
hald með gistingu í Áþenu með
ferðum til og frá Ólympíu er
400,00 dollarar á mann.
Umsóknir skulu hafa borist
fyrir 10. mars til Ólympíunefndar
íslands, íþróttamiðstöðinni
Laugardal, 105 Reykjavík.
Miisíktilraiinir ’89“
í Tónabæ í apríl
Félagsmiðstöðin Tónabær mun í
apríl nk. standa fyrir Músíktil-
raunum ’89. Tilraunir þessar eru
nú orðnar árlegur viðburður í
tónlistarlífi landsmanna og er
þetta sjöunda skiptið sem þær
eru haldnar.
Músíktilraunir eru opnar öll-
um upprennandi hljómsveitum
alls staðar að af landinu, ef þær
telja sig nægilega góðar til að
taka þátt í hljómsveitakeppni af
þessu tagi. Aðstandendur Músík-
tilrauna munu reyna að útvega
afslátt af flugfari fyrir keppendur
utan af landi.
Músíktilraunir ’89 verða
haldnar á fimmtudagskvöldum í
apríl, eins og hér segir:
1. tilraunakvöld 6. apríl.
2. tilraunakvöld 13. apríl.
3. tilraunakvöld 20. apríl.
Úrslitakvöldið verður föstu-
daginn 21. apríl.
Á hverju þessara tilrauna-
kvölda koma fram 5-7 tilrauna-
hljómsveitir, og flytur hver þeirra
fjögur frumsamin lög. Áhorfend-
ur gefa síðan hljómsveitunum
stig fyrir hvert lag. Tvær stiga-
hæstu hljómsveitirnar af hverju
tilraunakvöldi keppa síðan til
úrslita föstudaginn 21. apríl, þar
sem áhorfendur og sérstaklega
skipuð dómnefnd sérfróðra
manna velja sigurvegara Músík-
tilrauna ’89.
Auk tilraunahljómsveita munu
fjórar af þekktustu hljómsveitum
landsins koma fram, sem gestir,
bæði á tilraunakvöldunum og á
úrslitakvöldinu.
Þær hljómsveitir sem hyggja á
þátttöku í Músíktilraunum ’89,
geta skráð sig í félagsmiðstöðinni
Tónabæ, s. 35935, eftir 20.
febrúar, og fyrir 1. apríl nk.