Dagur - 24.02.1989, Blaðsíða 15
•24. febrúar 1989 - DAGUR - 15
íþróttir
Skíði:
Keppt á Akureyri, Dalvík og Húsavík
- Hermannsmótið í Hlíðarflalli og punktamót á Dalvík
Tvö stór skíðamót, fara fram
um þessa helgi á Norður-
landi og svo tvö smærri mót.
Hermannsmótið, Visa-bikar-
mót í alpagreinum fullorðinna
fer fram í Hlíðarfjalli og á Dal-
vík fer fram punktamót í alpa-
greinum 13-14 ára krakka. Um
helgina fer einnig fram skíða-
göngumót í Hlíðarfjalli og
firmakeppni á skíðum fer fram
á Húsavík.
Keppnin í Hermannsmótinu
hefst á laugardag kl. 10.00 og
verður þá keppt í svigi kvenna og
stórsvigi karla. Á sunnudag hefst
keppnin á sama tíma og er þá
keppt í svigi karla og stórsvigi
íþróttir helgarinnar:
Skíði og karfa
- úrslitakeppnin í blaki hefst um helgina
Að vanda er ýmislegt um að
vera á íþróttasviðinu á
Norðurlandi. Þar má fyrst
nefna Hermannsmótið í alpa-
greinum skíðaíþrótta í Hlíðar-
fjalli. Einnig er punktamót á
skíðum fyrir 13-14 ára á
Dalvík. A Húsavík er einnig
töiuvert um að vera; þar fer
fram firmakeppni á skíðum,
frjálsíþróttamót HSÞ í hlaup-
um innanhúss fer fram á sunnu-
Úrslitakcppnin í blakinu hefst um
helgina.
dag og fjölliðamót yngri flokka
karla í handknattleik fer fram
um helgina í íþróttahúsinu þar.
Svo má ekki gleyma því að
Dagur stendur fyrir kjöri
Iþróttamanns Norðurlands og
verða úrslitin tilkynnt í .hófí á
Hótel KEA á laugardaginn.
Það er einnig heilmikið um að
vera hjá norðlensku íþróttfólki
sunnan heiða. Það ber hæst að
úrslitakeppnin í blakinu hefst um
helgina og leika KA-menn tvo
leiki fyrir sunnan. Á laugardag
mæta þeir HK í Kópavogi
kl. 14.00 og á sunnudag spila þeir
við ÍS í Hagaskóla kl. 15.15.
Búast má við hörkubaráttu í
þessum leikjum því nú leggja öll
lið allt sitt í það að leggja KA að
velli. En KÁ-menn eru ósmeyk-
ir, allir eru heilir og reiðubúnir
að gefa sig á fullu í þessa keppni.
Stór hópur ungra badminton-
spilara frá TBA fer suður og
keppir þar á Unglingameistara-
móti íslands og einnig fara yngri
flokkar KA, Þórs og Völsungs
suður ef veður leyfir og keppa
þar í fjölliðamótum í sínum
aldursflokkum í handknattleik.
Tindastóll keppir við Val í
Flugleiðadeildinni á laugardag á
þeim óvenjulega tíma 18.30.
Þórsarar spila ekki um helgina en
leika þess í stað við KR á mánu-
dagskvöldið í Skemmunni kl.
20.30.
1X21X21X21X21X21X21X21X21X2
Sveinbjörn
mœtir Sigurpáli
Karl Davíðsson hafði ekki mjög langa viðdvöl í getraunaleikn-
um því Sveinbjörn Guðmundsson reyndist getspárri en hann.
Sveinbjörn hefur skorað á Sigurpál Vilhjálmsson aðalbókara og
verður gaman að sjá hvernig vinnufélögunum tekst upp að
þessu sinni.
Það er til mikils að vinna að þessu sinni því. sprengipotturinn í
síðustu viku, 2.5 miljónir, gekk ekki út og má því búast við að 1.
vinningur verði um 5 miljónir að þessu sinni.
Sveinbjörn:
Aston Villa-Charlton 1
Derby-Everton 2
Millwall-Coventry 2
Norwich-Man.Utd. x
Southampton-Tottenham 1
Wimbledon-Sheff.Wed. 1
Bournemouth-Portsmouth 1
Barnsley-Blackburn 1
Brighton-Watford 2
Oxford-lpswich 1
Stoke-Leicester 1
Sunderland-Hull 2
Sigurpáll:
Aston Villa-Charlton 1
Derby-Everton 2
Millwall-Coventry x
Norwich-Man.Utd. 2
Southampton-Tottenham 1
Wimbledon-Sheff.Wed. 1
Bournemouth-Portsmouth 1
Barnsley-Blackburn x
Brighton-Watford 2
Oxford-lpswich 2
Stoke-Leicester 1
Sunderland-Hull x
1X21X21X21X21X21X21X21X21X2
kvenna. Búist er við öllu sterk-
asta skíðafólki landsins til keppn-
innar þannig að vert er að hvetja
alla skíðaáhugamenn að fylgjast
með mótinu. Verðlaunaafhend-
ing er síðan á sunnudag kl. 15.00
á Skíðastöðum.
Á Dalvík fer fram punktamót í
alpagreinum 13-14 ára. Búist er
við allt að 80 keppendum á mótið
og verður því mikið fjör á Dalvík
báða dagana.
Um helgina verður einnig keppt
í KA- og Þórs-móti í skíðagöngu
í Hlíðarfjalli. KA-mótið hefst á
laugardag kl. 13.00 og verður
keppt með hefðbundinni aðferð.
Þórsmótið er síðan á sunnudag á
sama tíma og er þá keppt með
frjálsri aðferð. Keppendur eru á
aldrinum 6-76 ára og er búist við
góðri þáttöku að þessu sinni.
Húsvíkingar eru einnig iðnir
við kolann í sambandi við skíða-
mót. Þeir þurftu að fresta fyrir-
hugaðri firmakeppni um síðustu
helgi en hún verður um þessa
helgi í staðinn og hafa Völsungar
fengið um 70 fyrirtæki til þess að
taka þátt í keppninni.
Ivan Varlanov knattspyrnuþjálfari
VÖISungS. Mynd: IM
Húsavík:
Rússinn
kominn
- til Völsunga
Sovéski þjálfarinn Ivan Varla-
nov er mættur til Húsavíkur og
þegar farinn að þjálfa knatt-
spyrnumenn á staðnum.
Varlanov er 52 ára gamall og
var um margra ára skeið þjálfari
hins þekkta liðs Spartak Moskva.
Hann er sjálfur gamall leikmaður
og spilaði þá m.a. með Youri
Sedov þjálfar Víkings. Varlanov
er mjög virtur þjálfari í Sovét-
ríkjunum og var einn af aðstoð-
arþjálfurum sovéska landsliðsins
í Evrópukeppninni síðasta
sumar.
Eins og fram hefur komið í
Degi þá hafa Völsungar misst
marga leikmenn síðan í fyrra og
enn er ekki ljóst hvort Jónas
Hallgrímsson leikur með Húsvík-
ingum næsta sumar en hann hef-
ur verið orðaður við Þórsliðið.
Kristján Olgeirsson hefur ekki
heldur gert upp hug sinn hvort
hann dregur fram skóna að nýju.
En það er enginn uppgjafartónn
hjá Völsungum. Það er næstum
30 manna hópur sem æfir með
meistaraflokknum, meirihluti
þeirra er að vísu ungur að árum
en þarna eru framtíðarleikmenn
félagsins og binda forráðamenn
Völsunga vonir við það að Varla-
nov geti gert góða hluti með
þessa drengi.
Ingigerður Júlíusdóttir sigraði bæði í svigi ug stórsvigi á Dalvíkurmótinu.
Dalvíkurmótið á skíðum:
Góð þátttaka
og ágætur árangur
Dalvíkurmót á skíðum var
haldið um síðustu helgi. Þátt-
takendur voru um 80 og var
færi og veður mjög gott á laug-
ardeginum en versnaði eitt-
hvað á sunnudeginum.
Keppt var í svigi og stórsvigi
frá 9 ára aldri og upp úr. En lít-
um þá á einstök úrslit:
Svig:
Stelpur 9-10 ára:
1. Dagbjört Sigurpálsdóttir
2. Snjólaug Jónsdóttir
3. Inga Lára Óladóttir
Strákar 9-10 ára:
1. Sturla M. Bjarnason
2. Össur Willardsson
3. Helgi Indriðason
Stelpur 11-12 ára:
1. Rakel Friðriksdóttir
2. Hólmfríður Þorsteinsdóttir
3. Kristín Guðmundsdóttir
Strákar 11-12 ára:
1. Sveinn Torfason
2. Steingrímur Sveinbjörnsson
3. Dagur Óskarsson
Stelpur 13-14 ára:
1. Margrét Eiríksdóttir
Strákar 13-14 ára:
1. Sveinn Brynjólfsson
2. Hörður Másson
3. Gunnþór Gunnþórsson
Stelpur 15-16 ára:
1. Kristín Sveinbjörnsdóttir
2. Ágústa Bjarnadóttir
Strákar 15-16 ára:
1. Ágúst Jónsson
2. Gunnlaugur Jónsson
Konur:
1. Ingigerður Júlíusdóttir
Karlar:
1. Björgvin Hjörleifsson
2. Hilmar Guðmundsson
3. Þorsteinn Skaftason
Stórsvig
Stelpur 9-10 ára:
1. Dagbjört Sigurpálsdóttir
2. Snjólaug Jónsdóttir
3. Dagný Ragnarsdóttir
Strákar 9-10 ára:
1. Sturla M. Bjarnason
2. Össur Willardsson
3. Helgi Indriðason
Stelpur 11-12 ára:
1. Rakel Friðriksdóttir
2. Ásta Bragadóttir
3. Kristín Guðmundsdóttir
Strákar 11-12 ára:
1. Bjarni Skarphéðinsson
2. Sveinn Torfason
3. Valur Traustason
Stclpur 13-14 ára:
1. Margrét Eiríksdóttir
Strákar 13-14 ára:
1. Sveinn Brynjólfsson
2. Bjarni Jónsson
3. Marinó Ólason
Stelpur 15-16 ára:
1. Ágústa Bjarnadóttir
2. Kristín Sveinbjörnsdóttir
Strákar 15-16 ára:
1. Gunnlaugur Jónsson
Konur:
1. Ingigerður Júlíusdóttir
2. Anna Jóhannesdóttir
3. Magnea Helgadóttir
Karlar:
1. Björgvin Hjörleifsson
2. Jón B. Bragason
3. Hilmar Guðmundsson
íþróttamaður Norðurlands 1988:
Úrslitin tilkynnt á morgun
- í hófi á Hótel KEA
Á morgun laugardag fer fram
hóf á Hótel KEA þar sem úrslit
verðá kynnt í kjöri Dags á
íþróttamanni Norðurlands
1988. Fimm íþróttamenn verða
heiðraðir og hljóta þeir allir
viðurkenningu frá blaðinu og
íþróttamaður Norðurlands fær
þar að auki glæsilegan farand-
bikar sem keppt hefur verið
um síðastliðin fjögur ár.
Þeir sem áður hafa hlotið
þennan titil eru Kári Elíson lyft-
ingamaður, Daníel Hilmarsson
skíðamaður og Halldór Áskels-
son knattspyrnumaður. Það
verður síðan tilkynnt í Degi á
þriðjudaginn hver hefur hlotið
nafnbótina íþróttamaður
Norðurlands 1988.