Dagur - 28.02.1989, Síða 1
72. árgangur Akureyri, þriðjudagur 28. febrúar 1989 ____________41. tölublað
JM
HERRADEILD
Gránufélagsgötu 4
Akureyri • Sími 23599
Súlan EA-300:
Fékk á sig brotsjó
úti af Langanesi
„Ég stóð við glugga í brúnni og
sá ölduna koma. Hún hefur
verið svona rúmlega hæð skips-
ins og ég neita því ekki að ég
hörfaði undan,“ sagði Kristinn
Snæbjörnsson 2. stýrimaður á
Súlunni EA-300 frá Akureyri í
gær, en um klukkan 17.30 á
sunnudag fengu þeir á sig
brotsjó þegar skipið var statt
um 10 mílur úti af Langanesi.
SigluQörður:
Hættuástandi
aflýst
Almannavarnanefnd Siglu-
fjarðar kom saman til fund-
ar kl. 11 í gærmorgun og var
á fundinum ákveðið að
aflýsa hættuástandi í
bænum, enda snjórinn afar
þéttur og hverfandi líkur á
snjóflóði. íbúar 8 húsa
höfðu yfirgeflð þau um helg-
ina vegna snjóflóðahættu en
þeir fóru til síns heima í gær.
Gríðarlegur snjór er á Siglu-
firði og að sögn lögregluþjóns
sem við ræddum við muna
elstu menn varla eftir öðru
eins fannfergi í bænum.
„Snjórinn hefur hins vegar
minnkað hérna í fjallinu því
það hefur verið svo hvasst að
hann hefur fokið,“ sagði lög-
regluþjónninn.
Engin teljandi vandræði
hafa fylgt í kjölfar snjókom-
unnar á Siglufirði en samgöng-
uerfiðleikar eru auðvitað
miklir og fóru menn gangandi
á milli húsa í gær, enda útilok-
að að hreyfa bíla._SS
KEA hefur áhuga
á að kaupa
„Við höfum lýst áhuga á að
kaupa skipið en samingar
hafa ekki verið undirritað-
ir,“ sagði Kristján Ólafsson,
fulltrúi á sjávarútvegssviði
KEA, er hann var spurður að
því hvort Kaupfélag Eyfirð-
inga hyggðist festa kaup á
Súlnafelli ÞH 361.
Súlnafellið er 218 tonna
stálskip, smíðað árið 1964 í
Ullsteinsvik i Noregi. Skipið
var yfirbyggt árið 1984. Súlna-
fell er í eigu Útgerðarfélags
Norður-Þingeyinga og hefur
verið gert út frá Þórshöfn á
ísfiskveiðar. Áður var skipið
gert út frá Siglufirði og hét þá
Skjöldur.
Kristján Ólafsson sagði að
Kaupfélag Eyfirðinga stefndi
að því að styrkja sjávarútvegs-
svið sitt í heild. Hann sagði að
ef af kaupum á Súlnafellinu
myndi verða þá yrði það til að
styrkja hráefnisöflun til fisk-
vinnslu KEA í Hrísey. EHB
Enginn fjórtán skipverja Súl-
unnar var úti er þetta gerðist
og skemmdir á skipinu urðu
litlar.
Leiðindaveður var á þessum
slóðum þegar brotið reið yfir, um
7 vindstig og mikill sjór. „Aldan
skall á stjórnborðssíðuna, lenti á
glugga sömu megin og skekkti
rennu sem notuð er fyrir nótina.
Þá sprakk listi á glugga í brúnni
og sjór skvettist inn, nógu mikill
til að bleyta vel þrjá menn sem
þar voru,“ sagði Kristinn.
Súlan var með fullfermi af
loðnu, þegar þetta gerðist og var
ákveðið að halda þegar til Þórs-
hafnar og landa þar. í gær biðu
þeir þess að viðgerð á rennunni
lyki og var ætlað að halda svo
beint á loðnumiðin aftur. í gær
var fínasta veður á Þórshöfn að
sögn Kristins, en ekki vildi hann
gera mikið úr gæftum á svæðinu.
„Þetta er hálfgert kropp núna,“
sagði hann. Áætlað er að Súlan
fari einn túr í viðbót og haldi síð-
an heim á ný. VG
Norðlendingar hafa ekki farið varhluta af snjókomu og ófærð að undanförnu. I dag mun draga úr úrkomu en skafa
dálítið og kólna lítið eitt. Á miðvikudag á veðrið loks að verða skaplegt. Mynd: 'n.v
Vetur konungur byrstir sig:
Gíftirlegt fannfergi á Norðurlandi
- bflar og jafnvel hús komin á kaf
Vetur konungur hefur hreiðr-
að um sig á Norðurlandi að
undanförnu og er fannfergi
víðast hvar gífurlegt og vegir
með öllu ófærir, jafnvel innan-
bæjar. Lögreglan á Akureyri
hafði í ýmsu að snúast um
helgina við að aðstoöa öku-
menn en ekki urðu nein telj-
andi vandræði af völdum
ófærðarinnar og árekstrar með
færra móti, eða fimm frá föstu-
degi og fram á mánudagsmorg-
un. Snjóruðningstæki hafa
haldið strætisvagnaleiðum
opnum.
Á Dalvík var hins vegar ófært
með öllu þegar við höfðum sam-
band við lögregluna þar í gær.
Fólk var beðið um að merkja
skaflana þar sem það hugði bíla
sína undir, með flaggi eða stöng,
til þess að björgunarsveitarmenn
á snjóbílum keyrðu hreinlega
ekki yfir þá. Aðeins snjóbílar og
vélsleðar komust um götur
bæjarins, en byrjað var að ryðja
Norðurland vestra:
Allt á bólakafi í snjó
íbúar á Norðurlandi vestra
fengu svo sannarlega að finna
fyrir norðan áhlaupinu um
helgina. Frá föstudagskvöldi
fram á sunnudag var iðulaus
stórhríð og rok og á þeim tíma
kyngdi niður gífurlegu magni
af snjó. Snjórinn kom þó mis-
jafnlega mikið niður, á Skaga-
strönd og Hvammstanga muna
menn vart meiri snjó í langan
tíma á meðan Blönduósingar
sluppu tiltölulega vel við fann-
fergið. í Skagafirði er mikill
snjór þó ekki hafi nein met
verið slegin. Þá er allt á bóla-
kafi í snjó í Fijótum og ekki
fært nema vélsleðum. Þó
nokkuð bar á rafmagnstruflun-
um víðs vegar í kjördæminu
um helgina vegna veðursins,
rafmagnstruflanir víða
aðallega í V-Húnavatnssýslu á
sunnudag, voru sumir bæir án
rafmagns í 6-7 klukkutíma.
Það var fyrst í gær sem Skag-
strendingar fóru að huga að
snjómokstri í bænum og dugðu
vart minni tæki en jarðýtur af
stærstu gerð, svo mikið var fann-
fergið. Að sögn Þórs Gunnlaugs-
sonar lögreglumanns á Skaga-
strönd fóru sum hús á kaf í snjó
og var ekki fært nokkru ökutæki
um bæinn um helgina. Engin
óhöpp urðu vegna veðursins á
Skagaströnd, svo vitað var í gær.
Kennsla féll niður í skólum á
Skagaströnd eftir hádegi í gær.
Á Hofsósi var öllu skólahaldi
aflýst í gær, vegna veðurs og
ófærðar um bæinn. Þar setti nið-
ur mikinn snjó og hvassviðrið sá
fyrir því að stórir skaflar mynd-
uðust. Á Hvammstanga voru
nokkur hús á kafi í snjó og urðu
íbúar þeirra að fara inn og út úr
húsunum um glugga og hurðir á
efri hæðum. Skólahald féll niður
á Hvammstanga eftir hádegi í
gær, vegna ófærðar og veðurs.
Það var samdóma álit þeirra er
blaðið hafði samband við í gær á
Norðurlandi vestra að fannfergið
væri með því mesta sem menn
hafa séð um nokkurn tíma,
undanfarnir vetur hafa verið
óvenju snjóléttir. „Maður hefur
séð annað eins og meira fannfergi
um ævina, en ekki svona mikið í
mörg ár,“ komst einn viðmælandi
blaðsins að orði. , .,
-bjb
helstu götur í gær.
„Snjóskaflarnir eru hér eins og
öldudalir og erfitt að sjá hvort
bílar eru þar undir. Ég kem úr
Reykjavík, hef búið hér í átta ár,
og ég hef aldrei séð svona mikinn
snjó. Húsið hjá mér er horfið í
snjó og maður þarf að moka sig
út,“ sagði Sævar Freyr Ingason,
lögregluþjónn á Dalvík.
Kennsla var felld niður í
grunnskólanum á Dalvík. Um 40
börn eru veðurteppt í bænum en
þau komu þangað í því skyni að
taka þátt í skíðamóti. Kennsla
var einnig felld niður í grunn-
skólanum í Hrísey og í Hrafna-
gilsskóla.
Að sögn íbúa í Hrísey er mikið
fannfergi þar og a.m.k. eitt hús
allt að því komið á kaf. Á föstu-
daginn flykktist fólk í fiskvinnslu
og skólahald raskaðist því nem-
endur jafnt sem kennarar tóku til
hendinni.
„Við bíðum bara eftir hafísn-
um og ísbjörnunum til að kóróna
ástandið," sagði íbúi í Grímsey,
en þar hefur verið vonskuveður
og mikill snjór þannig að íbúar
hafa haldið sig heima við. Bátar
hafa ekki farið á sjó síðan á
föstudag.
Ólafsfirðingar hafa einnig orð-
ið fyrir barðinu á vetrarríkinu og
á Grenivík var allt á kafi í snjó,
svo einhver dæmi séu tekin. Mik-
il röskun hefur verið á atvinnu-
og félagslífi víðast hvar á
Norðurlandi enda ófærðin með
eindæmum. SS