Dagur - 28.02.1989, Side 2
2 - DAGUR - 28. febrúar 1989
Jóhann A. Jónsson hjá Hraðfrystistöð Þórshafnar:
Stjóm Útgerðarfélags N.-Þing.
keyrir á naumu meinhlutavaldi
- og hafnar skuldbreytingu hjá sjóðum atvinnulífsins
„Ef menn ætla að selja Súlna-
fellið hlýtur sú staða að koma
upp að Stakfellið verði nýtt
sem ísfiskiskip,“ sagði Jóhann
A. Jónsson, framkvæmdastjóri
Hraðfrystistöðvar Þórshafnar,
en hann er óhress með þá fyrir-
ætlun Utgerðafélags Norður-
Þingeyinga að selja Súlnafell
ÞH 361 frá Þórshöfn, hugsan-
lega til Eyjafjarðarsvæðisins.
Jóhann sagði að Súlnafellið
hefði landað um 600 tonnum hjá
frystihúsinu á síðasta ári. Skipið
var keypt til Þórshafnar í október
1987. I fyrra varð alvarleg vélar-
bilun í skipinu sem þýddi bæði
kostnaðarauka og frátafir frá
veiðum.
Þórólfur Gíslason, fyrrverandi
kaupfélagsstjóri á Þórshöfn og
núverandi kaupfélagsstjóri KS á
Sauðárkróki er stjórnarformaður
Útgerðarfélags Norður-Þing. og
var endurkjörinn til eins árs á
stjórnarfundi í október í fyrra.
Jóhann A. Jónsson sagði í sam-
tali við blaðið að hann teldi þá
þróun mála mjög öfugsnúna að
stjórnarformaðurinn væri ekki
búsettur í byggðarlaginu.
„Við óskuðum eftir því á sín-
um tíma, þegar Stakfellið fór í
breytingar, að fá aukna hlutdeild
í útgerðinni og vildum kaupa
aukinn hlut í félaginu. Því var
hafnað en fyrir u.þ.b. hálfum
mánuði buðum við í hlutabréfin
aftur og vildum í framhaldi af því
leita til hlutabréfasjóðs og
Atvinnutryggingasjóðs til lausnar
vandræðum útgerðarinnar eins
og aðrir gera og finna aðra lausn
á málunum en að selja skipin. Því
var hafnað af kaupfélaginu og sú
stefna virðist uppi að selja skipið
úr byggðarlaginu," sagði Jóhann
og benti á að forsenda þess að fá
skuldbreytingar hjá nefndum
sjóðum væri sá tilgangur að
vernda atvinnulíf heilla byggðar-
laga. Afstaða meirihlutans í
stjórn Ú.N.Þ. væri höfnun á
þeirri stefnu og væru margir
undrandi á að stjórn félagsins
vildi ekki reyna að leysa málin án
þess að selja skipið.
Tilboð minnihlutans í stjórn
Ú.N.Þ. var að greiða 19 milljónir
kr. fyrir þann hlut sem Raufar-
hafnarhreppur hafði átt í félag-
inu. „Þeir keyra þetta á 52%
meirihlutavaldi en þeir verða að
átta sig á að það er líka 48%
minnihluti í félaginu. Allar
ákvarðanir eru teknar í þessum
hlutföllum,“ sagði Jóhann. EHB
Sigurður RE og Örn KE landa í Krossanesi:
Fá meira fyrir tonnið en á Austfjörðum
Hjólin snúast á fullu í Krossa-
nesi eftir að tvö loðnuskip, Sig-
urður RE og Örn KE, lönduðu
fullfermi hjá verksmiðjunni í
gær og fyrradag, alls um 2100
tonnum. Krossanesverksmiðj-
an greiðir hærra verð fyrir
loðnutonnið en aðrar verk-
smiðjur á Norður- og Austur-
landi en þá ber líka að taka til-
lit til lengri siglingartíma af
miðunum.
Sigurður RE landaði sínum
1400 tonnum í Krossanesi að
sögn vegna þess að hámarksverð
sem verksmiðjurnar á Austfjörð-
Ófærð á vegum á Norðurlandi
Vegir á Norðurlandi voru víð-
ast hvar ófærir með öllu um
helgina. I gær var byrjað að
ryðja frá Akureyri til Dalvíkur
og einnig til Húsavíkur en sam-
kvæmt upplýsingum frá Vega-
gerð ríkisins á Akureyri sóttist
verkið seint vegna þess hve
snjórinn var mikill og einnig
blautur og þungur. Því var
óvíst hvort eða hvenær þessar
leiðir yrðu færar.
Ekkert verður hreyft við fann-
ferginu í Ólafsfjarðarmúla fyrr
en veðrið gengur niður. Þar verð-
ur lögð áhersla á að ryðja flug-
brautina til þess að koma þeirri
samgönguleið í lag.
A Grenivík var orðið mjólk-
urlaust í gær. Að sögn Péturs
Axelssonar, útibússtjóra Kaup-
félags Eyfirðinga, var ráðgert að
senda bát í gærkvöld með skóla-
fólk til Akureyrar og átti hann að
koma til baka með mjólk og
brauð. Mjög mikill snjór er á
Grenivík og samgöngur á landi
erfiðar.
Suðurleiðin var kolófær;
Öxnadalsheiðin, Vatnsskarðið og
áfram, en í dag verður Öxnadals-
heiðin rudd. SS
Eyja^örður:
Rafinagnstruflanir á sunnudag
Á sunnudaginn urðu nokkrar
rafmagnstruflanir í Eyjafirði,
s.s. á Grenivík, Hauganesi, í
Svarfaðardal og á bæjum inni í
firðinum. Endurvarpsstöðin
datt út á Dalvík, handbolta-
áhugamönnum til mikillar
hrellingar því þetta var einmitt
á þeim tíma sem bein útsend-
ing var frá úrslitaleik Islands
og Póllands í B-heimsmeist-
arakeppninni.
Að sögn Ingólfs Árnasonar hjá
Rafmagnsveitum ríkisins á Akur-
eyri voru þetta smávægilegar ráf-
Bflvelta á
(BflVelta var á einni helstu
umferðargötu Sauðárkróks,
Skagfírðingabraut, á móts við
Sundlaugina sl. laugardags-
kvöld. Ökumaður bflsins
missti stjórn á honum sökum
djúpra hjólfara á götunni, með
þeim afleiðingum að bfllinn
valt á hliðina. Ökumann og
magnstruflanir sem stöfuðu af
ísingu á línum og samslætti. Raf-
magn datt aðeins út í skamman
tíma og hvað handboltann varðar
þá verður leikurinn endursýndur
nk. laugardag.
í gærmorgun varð rafmagns-
laust í Hlíðarfjalli vegna bilunar í
línu en rafmagn komst á eftir
hádegi. Þar hefur verið lokað síð-
an á föstudag og var Hermanns-
mótinu frestað. Gríðarlegur
snjór er í fjallinu, sannkallaður
skíðasnjór, og verður byrjað að
troða hann um leið og veður leyf-
ir. SS
Króknum
farþega sakaði ekki, en bfllinn
er töluvert skemmdur.
Hjá lögreglunni á Sauðárkróki
var helgin róleg, ef frá er talin
aðstoð við bæjarbúa sökum
ófærðar og veðurs. Einn öku-
maður var tekinn fyrir ölvunar-
akstur á Sauðárkróki. Hjá lög-
reglunni á Blönduósi var helgin
afar tíðindalítil. -bjb
um greiða er um 3500 krónur.
Með því að landa í Krossanesi
fæst meira fyrir hvert tonn eða
um 3600 krónur. Geir Zoéga,
forstjóri Krossanesverksmiðj-
unnar, sagði að síðastliðið haust
hefði verið ákveðið að greiða 100
krónum meira fyrir tonnið en
verksmiðjur SR í Siglufirði
borga. „Þetta er einfalt mál, til
að skipin komi hingað þurfum
við að greiða meira en aðrir. Það
er svo annað mál að það er ekki.
glóra í þessu loðnuverði en skip
fara ekki framhjá Raufarhöfn I
eða Siglufirði til að koma til okk-
ar fyrir minna en 100 krónum
meira fyrir tonnið. Þannig er nú
umhverfið sem við lifum í, þetta
er staðreynd," sagði Geir.
Krossanesverksmiðjan fram-
leiðir fiskeldismjöl en það er í
háum gæðaflokki. Þrátt fyrir
þessa verðmætu framleiðslu úr
hráefninu telur Geir að loðnan sé
nokkuð dýru verði keypt. „En
valið stendur um að vera mcð í
leiknum eða ekki,“ sagði Geir.
EHB
Sigurður RE kemur til hafnar í Krossanesi með 1400 tonn af loðnu. Mynd: gs
Törn hjá mjólkurbílstjórum:
Keyrum þar til öll
mjólk er komin í hús
- segir pórarinn Egill Sveinsson samlagsstjóri
Mjólkurbílstjórar í Eyjafíröi
fóru hægt 'ýfír í gær, enda afar
erfitt yfirferðar víðast hvar,
mikil blinda og færðin afleit.
Síðast þegar við fréttum í gær
hafði mjólk náðst af tveimur
bæjum í Svarfaðardal, en ekk-
ert var búið að keyra inn í
Öxnadal og Hörgárdal. Ein-
hverjir bílar brutust inn í
Eyjafjörð og var verið að
moka Öngulsstaðahreppinn
seinni partinn í gær.
Þórarinn Egill Sveinsson
mjólkursamlagsstjóri á Akureyri
sagði að keyrt yrði stanslaust þar
til búið væri að ná mjólkinni,
enda þyrfti hún að vera komin í
samlag f síðasta lagi á morgun.
„Samkvæmt ströngustu túlkun
reglugerðar þurfum við að ná
mjólkinni inn á morgun," sagði
Þórarinn. Hann sagði að síðan
þyrfti að flokka hráefnið, það
nýjasta færi í neyslu og það elsta
í vinnslu.
„Við keyrum bara endalaust
þar til við náum allri mjólkinni,
þetta verður rosaleg törn hjá bíl-
stjórunum," sagði Þórarinn og
bætti við að ef piltar sínir kæmust
hvergi vegna ófærðar á tankbíl-
unum væri eins gott fyrir fólk að
halda sig heima. „Þetta eru súp-
erbílstjórar á góðum bílum og ef
þeir komast ekki ferðar sinnar
kemst það enginn.“ mþþ
Sauðárkrókur:
■ Byggingarnefnd samþykkti
á fundi sínu fyrir skömmu að
hafna umsóknum um bygg-
ingafulltrúaembættið en alls
bárust 7 umsóknir um stöð-
una.
■ Bæjarráð hefur samþykkt
að fella úr gildi samþykkt um
afgreiðslutíma verslana á
Sauðárkróki.
■ Bæjarráð samþykkir að
óska eftir því við skólanefndir
Grunnskólanna, Tónlistar-
skólans og Fjölbrautaskólans
að þær taki afstöðu til þess
hvernig fyrirgreiðslu bæjarins
í húsnæðismálum aðkomu-
kennara veröi háttað og felur
bæjarstjóra að mæta á fundi
með nefndunum.
■ Veitustjóri hefur lagt frarn
drög að fjárhagsáætlun Hita-
veitu fyrir árið 1989. Eru
rekstrartekjur áætlaðar 43,3
milljónir og rekstrargjöld
rúmar 18,8 milljónir. Til
eignabreytinga frá rekstri
rúmar 24,4 milijónir.
■ Veitustjóri hefur lagt fram
drög að fjárhagsáætlun Vatns-
veitu fyrir árið 1989. Eru
rekstrartekjur áætlaðar rúmar
12,6 milljónir og rekstrargjöld
rúmar 6,1 milljón. Til eigna-
breytinga frá rekstri rúmar 6,5
milljónir.
■ Veitustjórn hefur sam-
þykkt að gjaldskrá Hitaveitu
hækki um 6% frá og með 1.
mars.
■ Veitustjórn hefur sam-
þykkt að lokið verði rann-
sóknum og tilraunadælingu úr
borholu við Fornós.
■ Rafveitustjóri hefur lagt
fram drög að fjárhagsáætlun
Rafveitu fyrir árið 1989. Eru
rekstrartekjur áætlaðar 76
milljónir. Rekstrargjöld eru
áætlaðar 69,2 milljónir og til
eignabreytinga frá rekstri 6,8
milljónir.
■ Veitustjórn hefur sam-
þykkt að hækka gjaldskrá Raf-
veitu um 5% frá og með 1.
mars. Hækki heildsöluverð
rafmagns hækki gjaldskrá Raf-
veitu um sömu prósentur til
viðbótar.
■ Á fundi Bygginganefndar
íþróttahúss fyrir skömrnu
skýrði bæjartæknifræðingur
frá því að á síðasta ári hafi
verið framkvæmt fyrir rúmar
3,5 milljónir af fé ársins 1988
og að auki um 1,5 milljón sem
færist á áriö 1989.
■ Á sama fundi skýrði bæjar-
stjóri frá viðræðum við fram-
kvæmdastjóra UMSS og kom
fram að honum leist þunglega
á að halda landsmót UMFÍ
1993. Þá kom fram hjá bæjar-
stjóra að ekki þyrfti að búast
við framlögum úr íþróttasjóði
til framkvæmda á næstu árum.
■ Félagsmálaráð hefur sam-
þykkt að sumarlokun á leik-
skólum verði óbreytt, eða 4
vikur á sama tíma á báðum
leikskólum.
■ Félagsmálaráð hefur sam-
þykkt að ráða Þorkel Þor-
steinsson í starf forstöðu-
rnanns unglingavinnu sumarið
1989.