Dagur - 28.02.1989, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - 28. febrúar 1989
V ^ i.« .**' ilpn n- Cf>
Húsavík:
Mysudrykkir og sæt-súr
pottréttur
- hjá gestakokkum í Matbæ
Margt var um manninn í
Matbæ KÞ síðasta föstudag í
þorra, er bændur þyrptust í
búðina til að kaupa í konu-
dagsmatinn. Þeim var gefín
góð hugmynd að rétti dagsins
af gestakokkunum Pálma
Pálmasyni og Guðmundi B.
Guðjónssyni. Drykkir dagsins
voru einnig kynntir, voru það
Ijúffengir mysudrykkir, mysa
blönduð ávaxtasafa sem Hlífar
Karlsson mjólkursamlagsstjóri
KÞ gaf fólkinu að smakka.
Uppskrift þeirra Pálma og
Guðmundar gerði mikla lukku og
þó konudagurinn sé liðinn í ár er
aldrei að vita nema einhver hafi
áhuga á að gleðja einhvern með
góðum rétti og því er best að láta
uppskriftina fylgja hér með.
Uppskriftin er að auðveldum
pottrétti, miðuð við fjóra og kall-
ast A la Pálmgumms:
800 g svínalundir eða nautakjöt
4 meðalstórir laukar
8-9 meðalstórir nýir sveppir
2 tsk. salt
'/2 tsk. pipar
2 tsk. kjötkraftur
1 lítil ananas dós
2 msk. karrý
1-2 pelar rjómi
8 msk. kínversk sœt-súr sósa.
Úrvinnsla: Kjöt, sveppir og lauk-
ur skorið smátt og látið krauma
saman á pönnu og síðan
kryddað. Rjómi settur í og rétt-
urinn látinn sjóða í 3-4 mínútur.
Að lokum er sæt-súra sósan
hrærð saman við. Ef þurfa þykir,
má setja sósulit í réttinn og lita
eftir smekk.
Þetta er í annað sinn sem fitjað er
upp á þeirri nýbreytni að gesta-
kokkar séu í Matbæ á föstudög-
um og hefur það mælst vel fyrir.
Fyrstu gestakokkarnir voru Sig-
urbjörg Bjarnadóttir og Þórunn
Sigurðardóttir og er uppskiftin að
kjúklingaréttinum þeirra á þessa
leið:
Þormóður Jónsson smakkar á konudagsmatnum.
Guðrún Gerður Eyjólfsdóttir eigandi, við eitt borðanna
Husavík:
Vistleg bíljarðstofa opnuð
- leigð út fyrir saumaklúbba og fermingarveislur
Gerður Eyjólfsdóttir hefur
opnað Biljarðstofuna að Garð-
arsbraut 54 á Húsavík. Á stof-
unni er rúmgott og vistlegt, þar
eru fjögur biljarðborð, tvö tólf
feta og tvö tíu feta, einnig er
setkrókur þar sem hægt er að
fá sér kaffísopa eða kaupa gos-
drykki og sælgæti, og í fram-
tíðinni ætlar Gerður einnig að
vera með samlokur og ham-
borgara á boðstólnum.
Haldið var smáhóf í tilefni af
opnun stofunnar og sýndu þar
nokkrir góðkunnir Húsvíkingar,
bæði konur og karlar, mikla fimi
með kjuðana, þó hvorki þau sjálf
eða aðrir hafi áður vitað um
hæfni þeirra á þessu sviði. Að
sögn Gerðar er hún fyrsta konan
á landinu sem ein er með rekstur
biljarðstofu, aðrar stofur reki
karlar eða þá hjón. Gerður sagð-
ist hafa heyrt þá sögu að í fyrstu
hafi billjard eingöngu verið leik-
inn af konum en síðar hafi breyt-
ing á orðið cg biljarðurinn sé
dæmigerð karlaíþrótt. Líklega
fer þetta þó að breytast á ný því
saumaklúbbar hafa pantað tíma
hjá Gerði.
Biljarðstofan er opin frá kl.
15.00 til 23.30. Aldurstakmark er
14 ár og 16 ár eftir kl 20.00 á
kvöldin. Klúbbfélagar geta feng-
ið keypt afsláttarkort. Um helg-
ina voru vanir biljarðleikarar á
stofunni sem sögðu byrjendum
til. Fyrirhugað er að bjóða upp á
biljarðkennslu og mótshald er á
döfinni.
Gerður hygst sækja um leyfi til
vínveitinga í lokuðum samkvæm-
um. Hún hefur hug á að leigja
staðinn til veisluhalda og þá í
samvinnu við Ástu Ottesen eig-
anda Veitingastaðarins Bakkans.
Sagði Gerður m.a. að það væri
eitthvað sem ætti við unga fólkið
að fá að halda fermingarveisluna
sína á Biljarðstofunni.
Aðspurð um væntingar um
gang nýja fyrirtækisins í framtíð-
inni sagði Gerður: „Það þýðir
ekkert annað en að vera bjartsýn
og það á við um allan atvinnu-
rekstur. Ég óttast ekkert og mót-
tökurnar hafa verið góðar.“ IM
Gestakokkarnir, Hlífar Karlsson, mjólkursamlagsstjóri með mysudrykkina,
Pálmi Pálmason og Guðmundur Guðjónsson með konudagsréttinn.
1 kjúklingur
2 dl cream of chicken soup
1 dl majónes blandað með súr-
mjólk eða sýrðum rjóma
karrý eftir smekk
hvítlauksduft (má sleppa)
krydd eftir smekk
'/2 dós maísbaunir
V2 dós sveppir
ananashringir, smátt skornir.
Kjúklingurinn soðinn og kjötið
hreinsað af og skorið í bita. Súp-
unni, majónesblöndunni og
kryddinu blandað saman ásamt
niðurskornum sveppum, maís-
baununum og ananasnum og loks
er kjúklingabitunum bætt út í.
Sett í eldfast mót og ostur rifinn
yfir. Látið í 200-220° heitan ofn
og bakið í ca. 30 mínútur. Borið
fram með hrísgrjónum, hrásalati
og snittubrauði. IM
Konur í atvinnurekstri á Húsavík. Jónasína í Muru, Gerður í Biljarðstof-
unni, Ólöf í Muru, Ásta á Bakkanum.
Arndís Jónsdóttir, Bjarni Þór Einarsson, bæjarstjóri, mæðgurnar Guðrún
Gerður Eyjólfsdóttir og Eyrún Gunnarsdóttir.
Sigurður Pétur Björnsson fyrrverandi útibússtjóri Landsbankans og Bjarni
Þór Einarsson bæjarstjóri reyna hæfni sína við eitt borðanna.