Dagur - 28.02.1989, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - 28. febrúar 1989
t
f/ íþróttir \
Úrslitakeppnin í blaki karla:
KA byrjar vel
Karlalið KA í blaki byrjaði úr-
slitakeppnina vel um helgina.
Leiknar voru tvær umferðir og í
fyrri umferðinni vann KA lið HK í
Kópavogi, 3:0. A sunnudaginn
mættu KA-menn liði ÍS og eftir
mikla baráttu og tvísýnan leik
stóðu norðanmenn uppi sem sig-
urvegarar. Staða þeirra er því góð
eftir fyrstu umferðirnar en Ijóst er
að úrslitakeppnin verður hörð.
Öruggt gegn HK
Sigur KA á HK var nokkuð öruggur.
Framan af fyrstu hrinunni var jafn-
ræði með liðunum en þegar líða tók
á seig KA fram úr. HK minnkaði þó
muninn í tvö stig, 11:9, en KA tók þá
góðan kipp og sigraði 15:9. Önnur
hrinan var á líkan veg. Þegar staðan
var jöfn, 6:6, skildu leiðir og KA-
menn skoruðu hvert stigið af öðru og
unnu 15:8. í síðustu hrinunni barðist
HK vel framan af en réði ekki við
andstæðing sinn og mátti sætta sig
við tap í hrinunni, 15:9, og þar með
tap í leiknum.
Dregið hefur verið í bikarkeppni
Blaksambands Islands. Völsungur
á Húsavík fær HK-stúIkurnar úr
Kópavogi í heimsókn og KA þarf
að mæta Þrótti í Reykjavík.
Völsungarnir komust í undanúrslit
með því að sigra KA stúlkurnar
örugglega 3:0 á Húsavík fyrir
skömmu. Þær ættu að eiga góða
möguleika á því að komast í úrslita-
leikinn því HK-liðið er skipað ung-
um og óreyndum stúlkum. Aætlað er
að Ieikurinn fari fram um helgina
10.-12. mars á Húsavík.
KA-strákarnir sigruðu Skautafélag
Akureyrar 3:0 í bikarleik fyrir
- vann bæði HK og ÍS
Deildarmeistararnir
í kröppum dansi
Leikur KA og ÍS á sunnudaginn var
æsispennandi. Stúdentar komu
grimmir í leikinn og ætluðu sér
greinilega stóra hluti. KA-mönnum
virtist koma þetta mótlæti í opna
skjöldu en héldu þó jöfnu framan af
fyrstu hrinu. Þegar staðan var orðin
4:4 fór allt að ganga á afturfótunum
hjá KA en að sama skapi gekk flest
upp hjá ÍS. Eftir skamma stund var
staðan orðin 13:6 fyrir ÍS en þá bætti
KA fjórum stigum við og breytti
stöðunni í 13:10. ÍS svaraði með
tveimur stigum og vann hrinuna
15:10.
í annarri hrinu var hart barist. ÍS
hafði þó alltaf frumkvæðið og spilaði
betur en KA-menn klóruðu í bakk-
ann. Hvað eftir annað minnkuðu
þeir muninn í eitt stig og í fyrsta
skipti í hrinunni var jafnt, 13:13. Þá
virtust taugarnar bila hjá deildar-
meisturunum og þeir áttu ekki svar
við leik ÍS í lokin og máttu því þola
skömmu. Sá leikur var nokkuð
spennandi þrátt fyrir að yfirburðir
KA væru þó nokkrir. Allir liðsmenn
KA fengu að spreyta sig og vann KA
síðustu hrinuna naumt 16:14.
Róðurinn verður þyngri hjá KA-
strákunum því þeir mæta Þrótti frá
Reykjavík fyrir sunnan. Sá leikur er
á dagskránni 18. mars.
Aðrir leikir í bikarkeppninni eru
Víkingur a og Víkingur b í kvenna-
flokki og ÍS og HK í karlaflokki.
Úrslitaleikirnir í blakinu eru síðan
áætlaðir laugardaginn 15. apríl í
Reykjavík og er verið að vinna að
því að fá þeim sjónvarpað.
14:16 tap.
í þriðju hrinu komu KA mennirnir
ákveðnari til leiks. Þeir komust strax
yfir í upphafi og náðu forskoti en ÍS
jafnaði 5:5. Jafnt var á öllum tölum
upp í 9:9 en þá komst KA yfir á ný.
Stúdentarnir minnkuðu muninn í
14:13 en síðasta sókn KA gekk vel
upp og 15. stigið var í höfn.
Fjórða hrinan gekk hratt fyrir sig.
Mótspyrna ÍS var nánast að engu
orðin og ekki var annað að sjá en lið-
ið hefði ekki meira úthald í leikinn.
Leikurinn var greinilega að snúast
við, KA sem hafði fram að þessu átt
í mesta basli sótti í sig veðrið en leik-
ur ÍS riðlaðist að sama skapi. Hvað
eftir annað varði hávörn KA skelli
Stúdenta en sunnanmenn áttu fá svör
við skellum KA-manna. Fjórðu hrin-
unni lauk 15:3 og því var komið að
úrslitahrinu.
Lokahrinan var spennandi framan
af. Jafn var á öllum tölum upp í 6:6
en þá skiptu KA-menn um gír og
börðust grimmilega. Á þessum síð-
ustu mínútum sýndu þeir stórgóðan
leik sem ÍS átti ekki svar við. Loka-
staðan varð 15:7 og þar með hafði
KA unnið leikinn 3:2.
Fei, þjálfari, var bestur KA-
manna í þessum leik en þeir Stefán
Jóhannesson, Stefán Magnússon og
Sigurður Arnar Ólafsson áttu einnig
ágætan leik. Hjá ÍS voru þeir Sigfús
Viggósson og Sigurður' Þráinsson
sterkir. JÓH
Konráð Þorsteinsson. Mynd: Ámi Palli
Blak:
Völsungur mætir HK
og KA mætir Þrótti
- í bikarkeppni BLÍ
Kvennalið Völsungs í blaki mætir HK í undanúrslitum á Húsavík og á góðan möguleika á því að komast í úrslit. Mynd: im
Stefán Magnússon og félagar í KA,unnu ÍS naumt í úrslitakeppninni. Mynd: tlv
Badminton:
Konráð vann þrefalt
á Þorramótinu
Hið árlega þorramót unglinga í
badminton, var haldið í Iþrótta-
höllinni laugardaginn 18. feb. sl.
Keppendur voru 45 og þar af 11
frá TBR og 3 frá Víkingi.
Úrslit urðu sem hér segir:
Hnokkar tvíl.: Róbert Guðmunds-
son og Haraldur Guðmundsson TBR
kepptu á móti Ragnari Þorgrímssyni
og Eiríki Svanssyni TBA og unnu
15/5-15/3.
Tátur einl.: Vigdís Ásgeirsdóttir
TBR vann Svandísi Kjartansdóttur
11/3-12/9.
Sveinar Einl.: ívar Örn Gíslason
TBR vann Njörð Ludviksson TBR
11/8-11/6.
Sveinar tvíl.: ívar og Njörður TBR
unnu Egil Hólmsteinsson TBA 15/
12-10/15-15/12.
Meyjar einl.: Brynja Steinsen TBR
vann Valdísi Jónsdóttur VÍK. 11/5-
11/8.
Meyjar tvíl.: Brynja og Valdís unnu
Aðaíheiði Pálsdóttur og Unni Pálm-
arsdóttur TBR 17/14-14/7.
Drengir einl.: Konráð Þorsteinsson
TBA vann Jóhann Arnarsson TBA
15/9-15/8.
Drengir tvíl.: Konráð og Jóhann
TBA unnu Ingimar Erlingsson TBA
og Tómas Garðarsson VÍK. 15/2-
15/11.
Telpur einl.: Svandís Jónsdóttir
VÍK. vann Bryndísi Baldvinsdóttur
TBR 11/2-11/9.
Telpur tvíl.: Bryndís og Svandís
unnu Þórunni Friðleifsdóttur og
Elínu Jónsdóttur TBA 15/9-17/15.
Tvenndarleikur var spilaður í einum
flokki þ.e. drengir/telpur og þar spil-
uðu Njörður Ludviksson og Brynja
Steinsen TBR á móti Konráð Þor-
steinssyni og Elínu Jónsdóttur TBA
og unnu Konráð og Elín 15/8-15/5.
Aðalfundur KA:
Sigmundur nýr formaður
Aðalfundur KA var haldinn á
föstudaginn og Sigmundur Þóris-
son kosinn nýr formaður félags-
ins.
Guðmundur Heiðreksson fráfar-
andi formaður gaf ekki kost á sér til
endurkjörs en hann var kosinn
varaformaður í stjórn.
Aðrir í stjórn með Sigmundi voru
kosnir Stefán Gunnlaugsson, Vil-
borg Gunnarsdóttir, Þórarinn
Sveinsson, Gunnar Garðarsson,
Tómas Ingi Olrich og Jóhannes
Bjarnason. í varastjórn voru kosnir
Finnur Sigurgeirsson, Baldur Sig-
urðsson auk Guðmundar.
Úr stjórn gengu þeir Sigbjörn
Gunnarsson og Ólafur Ásgeirsson.
í skýrslu fráfarandi formanns kom
fram að reksturinn hefði gengið
nokkuð vel á síðasta ári og vel geng-
ið að greiða niður gamlar skuldir
félagsins.
1 ræðu hins nýja formanns, Sig-
mundar Þórissonar, kom fram þakk-
læti til fráfarandi stjórnar og sagðist
hann vonast til að geta fetað í fótspor
gömlu stjórnarinnar í happadrjúgum
rekstri.