Dagur - 28.02.1989, Qupperneq 14
14 - DAGUR - 28. febrúar 1989
AKUREYRARB/ER
Viðtalstímar
bæjarfulltrúa
Fimmtudaginn 2. mars 1989 kl. 20-22 verða
bæjartulltrúarnir Sigurður J. Sigurðsson og Úlf-
hildur Rögnvaldsdóttir til viðtals á skrifstofu
bæjarstjóra, Geislagötu 9, 2. hæð.
Bæjarfulltrúarnir munu svara símaviðtölum
eftir því sem aðstæður ieyfa.
Síminn er 21000.
Bæjarstjóri.
Stýrikerfið MS—DOS
Námskeið í stýrikerfinu MS — DOS
hefst fimmtudagiiin 2. mars.
Efiil námskeiðsins:
★ PC - tölvur og uppbygging þeirra
★ Uppbygging MS - DOS
★ Helstu sldpanir
★ Slcipulagning harðra diska
★ Skipanaskrár
★ Aiiritataka
Ritvinnsla
Námskeið í hinu geysivinsæla
ritvinnslukerfi WordPerfect hefst föstu-
daginn 3. mars.
Efiii námskeiðsins:
★ Grundvallaratriði í MS - DOS
★ Noldcur byijendaatriði í WordPerfect
★ Helstu skipanir við texta\,innslu
★ Verslunarbréf og töílusetning
★ Dreifibréf
★ íslenska orðasafnið og notkun þess.
Tölvufræðslan Akureyri h£
Glerárgötu 34 • 4. hæð • Akureyri
Nauðungaruppboð
á eftirtöldum fasteignum fer
fram í dómsal embættisins,
Hafnarstræti 107,3. hæð,
Akureyri, á
neðangreindum tíma:
Gránufélagsgötu 35, Akureyri,
þingl. eigandi Ingimar Harðarson
o.fl., föstud. 3. mars ’89, kl. 14.30.
Uppboðsbeiðendur eru:
Tryggingastofnun ríkisins og Bæjar-
sjóður Akureyrar.
Grænugötu 12, 3. hæð t.h., Akur-
eyri, þingl. eigandi Mary Hörgdal
o.fl., föstud. 3. mars '89, kl. 14.30.
Uppboðsbeiðandi er:
Hróbjartur Jónatansson hdl.
Hamarstíg 25, Akureyri, þingl. eig-
andi Hilda Árnadóttir, föstud. 3.
mars ’89, kl. 14.45.
Uppboðsbeiðendur eru:
Iðnlánasjóður og innheimtumaður
ríkissjóðs.
(sborg EA-159, Hrísey, þingl. eig-
andi Borg h.f., föstud. 3. mars ’89,
kl. 15.00.
Uppboðsbeiðandi er:
Tryggingastofnun ríkisins.
Óseyri 6b, B-hl„ Akureyri, þingl.
eigandi Norðurljós h.f., föstud. 3.
mars ’89, kl. 15.15.
Uppboðsbeiðandi er:
Gunnar Sólnes hrl. og Guðjón Á
Jónsson hdl.
Bæjarfógetinn á Akureyri
og Dalvík,
Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu.
Nauðungaruppboð
annað og síðara,
á eftirtöldum fasteignum fer
fram í dómsal embættisins,
Hafnarstræti 107, 3. hæð,
Akureyri, á
neðangreindum tíma:
Baldurshagi, e.h. og ris, Dalvík,
þingl. eigandi Þórir Jakobsson o.fl.
föstud. 3. mars '89, kl. 13.30.
Uppboðsbeiðendur eru:
Veðdeild Landsbanka íslands,
Gunnar Sólnes hrl., Ólafur Birgir
Árnason hdl. og Guðmundur Krist-
jánsson hdl.
Brekkugata 3, (b. 4. hæð, Akureyri,
talinn eigandi Pálmi H. Björnsson,
föstud. 3. mars '89, kl. 13.45.
Uppboðsbeiðendur eru:
Gunnar Sólnes hrl., Bæjarsjóður
Akureyrar, Brunabótafélag íslands
og Ásgeir Thoroddsen hdl.
Grenilundur 15, Akureyri, þingl. eig-
andi Haukur Adolfsson, föstud. 3.
mars '89, kl. 14.00.
Uppboðsbeiðendur eru:
Guðjón Ármann Jónsson hdl. og
innheimtumaður ríkissjóðs.
Kaldbaksgötu 2, Akureyri, þingl.
eigandi Blikkvirki s.f., föstud. 3.
mars '89, kl. 14.00.
Uppboðsbeiðandi er:
Iðnlánasjóður.
Strandgötu 51, Akureyri, þingl. eig-
andi Blikkvirki s.f., föstud. 3. mars
'89, kl. 14.00.
Uppboðsbeiðandi er:
Iðnlánasjóður.
Bæjarfógetinn á Akureyri
og Dalvík
Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu.
Sauðárkrókur:
Opnir dagar hjá Fjölbrauta-
skólanum hefjast á morgun
Hjá Fjölbrautaskólanum á
Sauöárkróki hefjast á morgun,
1. mars, opnir dagar í skólan-
um, þar sem heföbundinni
kennslu verður ýtt til hliðar og
nemendur og kennarar taka aö
sér ýmis verkefni. Undirbún-
ingur hefur staðið yfir frá því í
janúar og margir lagt hönd á
plóginn við að gera dagskrána
sem besta úr garði. Opnu
dagarnir standa yfir frá 1. mars
fram á laugardaginn 4. mars og
enda með árshátíð nemenda
um kvöldið. Fjölbreytt
dagskrá verður og skal þar
fyrst nefna útvarpsstöðina Rás
Fás á FM 93,7.
Útvarpað verður alla dagana
og má segja að útvarpsefnið verði
af öllum toga. Ber þar hæst
útvarpsleikrit sem samið hefur
verið sérstaklega til flutnings á
Rás Fás. Höfundur leikritsins vill
ekki láta nafns síns getið, sökum
undangenginna árása á rithöf-
unda, sbr. Rushdi. Enga gagn-
rýni á múhameðstrú er þó að
finna í þessu leikriti, það fjallar
aðeins um mannleg átök og heit-
ar ástríður.
Ýmsir áfangahópar hafa unnið
vandað efni fyrir útvarpið, s.s.
nemendur í barnabókmenntum
og félagsfræði. Á Rás Fás verður
dagskrá opnu daganna rækilega
kynnt og ættu Sauðárkróksbúar
að hafa útvarpstækin sín stillt á
FM 93,7 MHz þessa daga.
En það er ekki bara útvarp
sem starfar á opnu dögunum.
Fjölmargir hópar taka að sér hin
ýmsu viðfangsefni. Fyrstan skal
nefna útgáfuhóp, sem unnið hef-
ur sleitulaust að útgáfu skóla-
blaðsins Molduxa, en veglegt
blað mun koma út í tengslum við
opnu dagana. Útivistarhópur
mun skokka, trimma, og sprikla
um fjöll og firnindi, umhverfis-
hópur mun snyrta og fegra
umhverfi skólans, tónlistarhópur
mun standa fyrir tónlistarkvöld-
um og uppákomum, danshópur
mun dansa og kynna ýmsar teg-
undir fótamenntarinnar, íþrótta-
hópur verður með íþróttahátíð á
degi hverjum og ótal fleiri hópar
munu koma við sögu.
Vinnutilhögun opnu daganna
gengur þannig fyrir sig að fyrir
hádegi munu hóparnir vera að
störfum og eftir hádegi verður
gengið til dagskrár. í boði m.a.
verður fjöldinn allur af kynning-
um. Má þar nefna kynningu á
Amnesty International, Iðn-
sveinafélagi Skagafjarðar, fram-
haldsnámi erlendis, tölvubúnaði
skólans, skáldum, táknmáli lík-
amans. Einnig verða fyrirlestrar
um hin ýmsu málefni. Guðmund-
ur Ólafsson pistlahöfundur á Rás
2 mun flytja fyrirlestur um fyrir-
sjáanlegar breytingar á samfélag-
inu á bjóröld. Guðmundur
Sigurður Jóhannsson mætir þar
einnig og ræðir um boð og bönn á
bjóröld. Guðmundur ætti að vera
lesendum Dags að góðu kunnur.
Þá mun kunnur fjölmiðlamaður
halda fyrirlestur um fjölmiðla og
kosti þeirra og galla, ef einhverjir
eru. Einnig er vert að geta þess
að nemendur munu fara í kynnis-
ferðir í fyrirtæki og stofnanir.
Auk þess að vera kynnt á Rás
Fás, mun dagskrá opnu daganna
birtast bæjarbúum í formi bækl-
ings sem dreift verður í öll hús.
Fjölmargir dagskrárliðir eru opn-
ir öllum og eru bæjarbúar hvattir
til að fylgjast náið með tápmiklu
æskufólki að störfum, sem er
dyggilega stutt af áhugasömum
kennurum. Af framansögðu má
sjá að óvenju fjölbreytt dagskrá
verður á opnu dögunum, sem
jafnan hafa verið hápunktur
skólastarfsins hjá F. á S. -bjb
Farkort:
Greiðslukort með nýstárlegu sníði
VISA ÍSLAND og Félag
íslenskra ferðaskrifstofa (FÍF)
hafa gert með sér samkomulag
um útgáfu sérstaks greiðslukorts
með nýstárlegu sniði til notkunar
innanlands og utan, sem bera
mun heitið FARKORT.
Hér er um að ræða nýja gerð af
VISA-korti, svonefnt „AFFIN-
ITY CARD“, sem kalla mætti
fríðindakort á íslensku. Slík kort
eru að ryðja sér mjög til rúms
víða um heim, en á þeim er leyft
að merki samstarfsaðila birtist,
ásamt VISA-merkinu og nafni
útgefanda (banka eða sparisjóðs)
á forhlið kortsins. Getur þar ver-
ið bæði um að ræða fyrirtæki,
samtök eða stofnanir.
Farkort VISA og FÍF mun
veita öll sömu réttindi og almenn
VISA-kort um heim allan, en til
viðbótar mun handhöfum hins
nýja korts bjóðast ýmis hlunnindi
á sviði ferðalaga, skemmtana og
lífsnautna með aðild að farklúbbi
FÍF. Er þar m.a. um að ræða
sérstakt bónuskerfi, sveigjanleg
greiðslukjör, einstök ferðatilboð,
afslátt í skoðunarferðum og hjá
veitingastöðum á vinsælum
ferðamannastöðum, frítt ferða-
blað og ýmis önnur fríðindi.
Enda þótt fyrstu farkortin
verði ekki gefin út fyrr en í maí
nk., verður fljótlega hægt að
sækja um þau og tryggja sér
þannig betri kjör og möguleika í
sólarlandaferðum í sumar.
Umsóknir og kynningarbækling-
ar munu liggja frammi í öllum
VISA-bönkum/sparisjóðum og
hjá ferðskrifstofum, þar sem
frekari upplýsingar verða veittar
um farklúbbinn og hið nýja
greiðslukort VISA. Handhöfum
gullkorta VISA munu sjálfkrafa
veitast öll hin sömu réttindi og
farkortið býður.
Árgjald farkorta verður
nokkru hærra en almennra korta,
eða mitt á milli þeirra og gull-
korta, eða um kr. 2.800,- Stofn-
gjald verður kr. 1.200,- en aðeins
kr. 600,- hjá þeim sem eru VISA-
korthafar fyrir. Mögulegt verður
fyrir fólk að hafa fleiri VISA-kort
en eitt. Farkortin munu gilda á
öllum þjónustustöðum eins og
venjuleg VISA-kort.